Morgunblaðið - 31.07.1962, Síða 17
Þriðjudagur 31. júlí 1962
MORGUNBLAÐIÐ
17
★
Farið var á bílum frá Xsafirði
til Reykjavíkur. Bílarnir voru
frá Borgarnesi, mjög svo hátt-
prúðir og kurteisir bílstjórar og
manni virðist að nokkuð reyni á
(bílstjórana í langkeyrslum og á
jnisjöfnum vegum og spurði ég
ennan bílstjórann hvort hann
yrði ekki þreyttur og svaraði
Ihann því fljótt neitandi.
I»að eru allsstaðar hetjur í öll
um störfum okkar á íslandi.
í Bolungarvík var okkur boð-
lð upp á leiksýningu — Meyja-
ekemmuna daginn sem við kom
um til ísafjarðar. Bolungarvík er
fallegt þorp.
Lagt var upp frá ísafirði á
Breiðadalslheiði frekar stutta
heiði og er þá komið niður í On
undarfj., mjög svo fallega og
vinalega sveit. >ar sögðu konurn
«r að þær hefðu séð myndarleg
ustu piltana í ferðinni. Eg læt
Austfirðingar í bændaför
BÆNDAFÖR var farin af Fljóts
dalshéraði 11. júní sl. — 9 úaga
ferðalag. Þátttakendur voru 64 af
Héraði og Fjörðum. Þriðjungur
inn af hópnum mun hafa verið
Ibonur —..ar ógiftar og ef til
vill hafa þær náð :;ér í pilt ' f—’ð
inni og þá hefur þeirra ferðalag
ekki verið til einskis; 16 barna
móðir var í ferðinni, og enginn
gat séð það á henni að hún hafði
alið svo mörg börn. Hún lítur
út eins og ung kona. Aldursfor
seti var Gísli Helgason í Skógar
gerði, ..ærri 82 ára, og stóð hann
sig eins og .íatja, eins o6 hans
Var von og vísa.
Flogið var frá Egilsstöðum til
ísafjarðar og tók vélin 53 farþega
en Vopnfirðingar fóru til Þórs-
Ihafnar og flugu þaðan. Segja má
að það sé ævintýri líkast að eft-
ir 2 klukkutíma ferð ofan af Jök
uldal er maður kominn vestur á
ísafjörð — slíi.ar eru samgöng-
urnar orðnar hér á landi.
Hinn frái fáki um háveg lofts
ins var réttan klukkutíma vestur
á fsafjörð og þoka var alla leið
ina, svo við sáum aldrei til jarð
ar, og þótti okkur það miður.
f>egar flugvélin lenti á ísafirði,
var þar strax fyrir hinn vinsæli
fararstjóri okkar Ragnar Ásgeirs
son. Riagnari þótti áreiðanlega
vænt um, er vélin kom fram úr
þokunni.
Þetta verður engin ferðasaga,
aðeins drepið á fátt eitt, sem
fyrir augun bar. Eg vona að ein-
hver annar, sem var í ferðinni
segi frá ferðalaginu nánar, síðar
meir.
Slíkar bændafarir sem þessar
hafa mikið menningarlegt gildi
að kynnast landi og þjóð hefur
sína þýðingu. Þetta var 28.
„toændaförin“, sem Ragnar er far
arstjóri fyrir. Hann á eftir að
íara margar enn.
Það eru einmitt sannir fslend-
fngar, sem ferðast sem allra mest
um landið sitt, því óvíða er önn
ur eins riáttúrufegurð og á hinu
góða landi okkar, hvar sem far
ið er. Hvar sem maður kemur, er
fólkið prúðmannlegt og glæsilegt
og viðtökurnar allsstaðar svo
Ihöfðinglegar, að því er varla
hægt að lýsa sem skyldi. Eg held
að ef við hefðum verið öllu leng
ur í ferðalaginu, hefðum við svo
Ikastað á okkur, að við hefðum
okkur hvergi g*tað hrært ar heim
kom.
ósagt um það. Svo er farið yfir
Gemlufallsheiði og þá er Dýra
fjörður framundan, einnig falleg
ur fjörður og búsældarleg sveit.
Komið var að Núpi og skoðaður
hinn fallegi trjágarður, Skrúð-
ur Hann hefur verið stað-
settur undir há Núpnum, á frek
ar hrjóstugum stað. Séra Sig-
tryggur hefur haft mikla trú á
landinu. Er þetta glæsilegur garð
ur. Svo sáum við eitt mesta æð
arvarp í landinu á Mýrum í
sömu sveit, komum þó ekki að
því, en sáum það tilsýndar.
Áfram er ekið og næst blasir
við Arnarfjörður. Tekur maður
fljótt eftir hinum fræga fossi þar
Dynjanda. Þar er Mjólkárvirkj-
unin fyrir Vestfirði, sem við sá-
um. Svo lá leið okkar af Vest-
fjörðum um Barðaströndina, sem
er mjög svo grösug og frjósöm,
og begar kemur niður að Bjarkar
lundi er nokkurt skóglendi.
★
Þegar komið er fyrir Gilsfjörð
blasir við Dalasýsla, fríðir dalir
og mikil víðátta og ræktunarskil
yrði þar mjög góð, er mér sýnd
ist. Fyrsti bserinn, þar sem ekið
er framlhjá, er Ólafsdalur, þar
sem hinn mikli brautryðj andi var
í búskaþ, Torfi Bjarnason.
Áfram er haldið, Skógarströnd
ina, og niður í Helgafellssveitina
Þaðan er búsældarlegt og fögur
sjón í góðu veðri að líta yfir
Breiðafjarðareyjarnar. Veðrið
var okkur frekar óhagstætt hluta
ferðarinnar og nutum við því
ekki fegurðarinnar sem skyldi
En allsstaðar blasir við sjón.
f upphafi var ákveðið að fara
í bát úr Hnúksnesi um eyjarnar
og koma við i Brokey og sigla til
Stykkisihólms, en þessi sigling
fórst fyrir vegna ofsastorms og
þótti öllum það illt. Þeir, sem
gistu í Helgafellssveitinni, hafa
vafalaust fengið ósk sína upp-
fyllta, er gengu á Helgafell. en
ég læt nú ósagt hvort allir hafi
fylgt settum reglum þar um. Eg
var ekki svo lánssamur að ganga
á fellið. Við hjónin gistum þá
nótt í Grafarnesi við hliðina á
hinu tígulega felli, Kirkjufelli.
Ferðinni var haldið áfram um
Búlandshöfða og Fróðárheiði og
þá blasa við fallegar sveitir sunn
an á Snæfellsnesinu, og var ek-
ið út á Arnarstapa, og þar snúið
við. Þar þótti ýmsum fagrar kon
ur að sjá, en mér fanst þær alls-
staðar fallegar.
Svo liggur leiðin framundan,
um Mýrarsýsluna. Það er mikil
slétta og gróðursæl og ekið er
niður í Borgarnes, faliegt þorp
og glæsilegar nýjar byggingar,
svo sem kirkjan, verzlunarhús
kaupfélagsins og veitingahúsið.
Og þá næst tekur við Borgarfjörð
urinn, fögur og grózkusöm byggð
arlög.. Mér finnst þetta fagra
hérað minna á Fljótsdalshérað.
★
f Borgarfirði vorum við 17 júní
í miklu blíðskaparveðri og fór-
um víða um héraðið og komum
við á mörgum hinum fornu sögu-
og höfutotoólum, og við komum
á öll menntasetur Borgfirðinga,
sem eru fimm að tölu. Þennan
dag skartaði héraðið sínu fegusta
Hraunfossarnir, sem koma undan
hrauninu ofan við Giltoakka eru
undraverð náttúrufyrirbrigði,
falla þeir í Hvítá. Síðasta daginn
var haldið til Reykjavíkur, farið
um fagrar sveitir í Kjósasýslu
og Kjalarnesþingi. Flogið var
austur frá Reykjavík.
í Hlégarði var lokaþátturinn í
þessu glæsilega ferðalagi. Voru
þar margar ræður fluttar, eins
og fyrr í veizlum, en við sátum
margar. Eins og fyrr segir var
hvarvetna tekið á móti okkur
með mikilli alúð og gestrisni.
Hópur manna kom á móti okkur
við hver sýslutakmörk og einnig
var okkur fylgt á næstu sýslu-
takmörk.
★
Með slíkum ferðalögum sem
þessum kynnist maður allmikl-
um hópi manna. Auk hinnar
miklu gestrisni, sem áður er á
minnzt, skai þess getið meðal
annars, að þrír stórbændur buðu
hópnum heim og voru þar miklar
veitingar, og auk ferðalaganna
var margt manna úr byggðrlög
unum með okkur.
Sannir bænda- og sveitahöfð-
ingjar hafa lengi verið og verða
lengi hér á landi. Þessir bæir
voru: Gilsbakki, Brautarholt og
Blikastaðir.
Móttökurnar í héruðunumt er
voru undirbúnar af búnaðarsam
böndunum og búnaðarfélögunum
voru framúrskarandi og sama er
að segja um hina fjölmörgu
sveitatoæi, sem við gistum á. At
vinuvegir okkar hafa mikið
breytzt til batnaðar í seinni tíð.
Lífið er allt auðveldara, léttara
og frjálslegra, en það áður var.
Fólkið er þroskamikið, frjáls-
legt og lífsglatt, enda líður öll-
um vel.
Þjóðin elskar landið sitt af
heilum hug og enginn kærir sig
um að skipta kjörum við okkur
eða nokkra aðra, sem byggja hin
ríkari og fjölmennari lönd. En
hún þráir að mega búa í friði
við sitt, fjöllim og dalina og foss
ana, hinn tæra sjó og hið bláa
loft. Mér hefði í rauninni fund-
izt vel viðeigandi, þar sem þessi
austfirzki hópur endaði förina
í höfuðborginni, að þeir, sem með
stjórn búnaðarmálanna fara í
landinu, hefðu átt að sýna okk-
ur Bændahöllina. Mér fannst
það frekar tómlegt, að svo skyldi
ekki vera, Eins og allir lands-
menn vita, haía bændur lagt
stórfé í þessa veglegu byggingu.
Eg vil svo að lokum þakka öll
um fyrir rausnarlegar viðtökur
á einn og annan veg og greiddu
götur okkar á eftirminnilegan
hátt. Þetta ferðalag verður okk
ur öllum ógleymanlegt og búum
við lengi að því. Eg hef nú farið
í tvær bændafarir og vonast til
að eiga eftir að fara í þá þriðju.
Ragnar Ásgeirsson hefur verið
fararstjóri okkar hér að austan
og vona ég að hann eigi eftir að
fara í þriðju bændaförina með
okkur. Ragnar Ásgersson er
röggsamur fararstjóri, fjölfróður
um land og þjóð, skemmtilegur
og góðviljaður.
Bið ég svo blaðið að flytja
kveðju okkar, allra ferðalang-
anna, til hinna fjölmörgu heimila
sem-við gistum á og allra annarra
sem við hittum í förinni og ferð
uðust með okkur í héruðunum.
Einar Jónsson
— Hraunlagið
Framhald af bls. 15 \
nokkrar upplýsingar héðan. ' v.“
— Og eiga ekki jarðskjálfta-
mælarnir fyrir austan að gefa
öruggt merki þegar Katla byrj
-ar að hreyfa sig?
— Jú, jarðskjálfti á að finn-
ast í allra næstu sveitum, en ekki
sterkur. Jarðakjálftar eru bara
svo fáir þar um slóðir, svo þetta
á þess vegna að vera gott við-
vörunarmerki.
Eysteinn er á förum utan i
byrjun spetember. Háskólinn í
Tulsa hefui stóra náttúruvísinda
deild, þar sem kennd er jarð-
fræði, stærðfræði, eðlisfræði,
efnafræði og jarðeðlisfræði og
mun Eysteinn kenna síðast-
nefndu greinina. :|
Eina handknattleiksheimsóknin á árinu
Reykjavíkurúrvalið -- Esslingen
leika í íþróttahúsinu að Hálogalandi í
kvöld kl. 20.15.
Dómarií Axel Sigurðsson.
j Verð aðgongumiða
Kr. 30
} Móttökunefndin.