Morgunblaðið - 31.07.1962, Síða 22
22
MORCUNBLAÐIÐ
ÞriSjudagur 31. júlí 1962
Hér er Rósmundur kominn að línu og skorar. Fyrirliðinn
Simmendinger, sem búinn er að tapa af Rósmundi, er þegar
farinn að benda á línu til að mótmæla markinu við dómar-
ann. Og sjáum nú línunna. Rósmundur er einn fyrir utan
hana, Simmendinger á henni en landi hans stendur alveg
fyrir innan og reynir að ná tökum á Rósmundi. Svo hristu
Þjóðverjarnir" hausinn lengi yfir því að ekki skyJdi dæmt
á Rósmund fyrir brot sem hann ekki framdi, eins og mynd-
in sýnir. — (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
Landsleikur við Færey-
inga á föstuda gskvöld
Fram fær gdða dóma í Danmörku
liðinu hrósað, en þess getið að
liðsmenn séu eldri en leikbræð-
ur þeirra í Vordingborg. Sér-
stakt hrós fær h. framvörður og
vinstri armur sóknarinnar. Einn-
ig er iotfsamlega getið um mið-
vörð og h. innherja. Blaðið segir
að Framjiðið hafi komið mjög
s óvart með hröðum leik og
góðri tækni samfara miklu út-
haldi. Fram skoraði fyrst á 3.
mín. (h. innh.) en nokkru síðar
jafnaði VIF úr vítaspyrnu. Stóð
1—1 í hálfleik. Á fyrstu lö mín.
síðari hálfleiks skoruðu Framar-
ar 3 mörtk og höfðu algera yfir-
burði lengst af í hálfleiknum.
Framarar eru í ferðalögum og
boðum dag h/vern, segja blöðin.
TILRAUNALANDSLIB í hand-
knattleik mætti hinum þýzku
gestum FH í íþróttahúsinu á
Keflavíkurflugvelli á sunnudag-
inn. Eftir all tvísýnan leik en
misjafnan að gæðum vann ísl.
liðið með 17 miirku j gegn 13.
Var sigur þess vel verðskuldaður
bezta handknattleikslið Þjóð-
verja, hefur margoft verið í úr-
slitum við Göppingen, sem er nú
verandi Þýzkalandsmeistari. —
Gestirnir eru því ekki af verri
endanum hvað þetta snertir. —
Tveir liðsmanna hafa verið í
þýzka landsliðinu.
en þeir uku forskotið jafnt og
þétt. Þarinig skoraði Bayer tvq
mörk, Hágele og Knecht sitt hvort
og Simmendinger enn eitt. Stóð
6:1 fyrir Þjóðverja eftir 12 mín.
leik — og ekkert jákvætt hafði
sést hjá ísl liðinu, þvert á móti.
En þá vai eins og liðið vaknaði
af vondum draumi. Kristján
Stefánsson kom inn á og hafði
það mikil áhrif. Birgir skoraði
tvö næstu mörk og Kristján önn-
ur tvö, hið fyrra sérlega glæsi-
legt. Breytti ísl liðið stöðunni úr
1:6 í 5:6 á 9 mínútum. Og þegar
8 mín. eru til leikhlés jafnar Ragn
ar.
Lok hálfleiksins voru heldur
dapurleg fyrir íslendinga. Karl
Jóh. og Birgir taka báðir víta-
köst á Þjóðverja. Kast Karls var
varið, en Birgir nrissti knöttinn
áður en af kasti varð. Lélegt það.
Framh. á bls. 23
sen, KI; Eyvind Dam, HB og
Steinbjörn Jacobsen, KI.
Varamenn: Heralvur Andrea-
sen, TB; Danjal Krosstein, KI;
Hendin Samuelsen, B-36 Marius
Jensen, HB; Bjarni Holm, B-36;
Eddy Petersen, TB og Olafur Ol-
sen, B-36.
Allir leikmennirnir eru úr
fyrstu deildar félögunum fjór-
um, B-36, Þórshöfn, sem er Fær-
eyjarmeistari 1962, KI, Klakksvík
sem sigraði í I. deild í fyrra, HB
Þórhöfn, sem sigraði 1960. Fjórði
flokkurinn í fyrstu deild er TB
Þvereyri, tveir varamannanna eru
úr því félagi
Allir leikmennirnir úr HB og
B-36 hafa áður heimsótt fsland.
Sex leikmanna landsliðsins nú,
léku við fslendinga árið 1959;
Thórdur Holm. Jegvan Jahansen,
Brynjer Gregoriusen, Thorstein
Magnusen, Jegvan Jacobsen og
Eyvind Dam.
Færeyingarnir verða hér í hálf
an mánuð. Þeir heimsækja ís-
íirðinga, Akurnesinga og Keflvík-
inga og dveljast hjá þeim dag-
langt eða lengur, leika á öllum
stöðunum og ferðast eitthvað um.
Hafa allir þessir bæir haft náin
skipti við Færeyinga áður og
launa nú fyrir góðar móttökur.
Hér má sjá dálítið mismunandi aðferöir við að stöðva upphlaup í handknattleik. T.h. er Kristján
Stefánsson (röndóttur) að stöðva skot eins Þjóð verjanna. Hann gerir það hárrétt og löglega,
^ tekur knöttin. T. v. sést hvernig Þjóðverji stöðvar hann, tekur hönd hans, ekki knöttinn.
ANNAR flokkur Fram em nú er
á keppnisferð í Danmörku lék
annan leik sinn í förinni í Vord-
íngborg á laugardag. Fram tap-
aði þeim leik með 2 mörkum
gegn 3. í skeyti frá Fram segir
að nú hafi allir varamenn leikið
með, „svo allir fengju leik í
ferðinni“. Fyrri leikinn í Vord-
ingaborg vann Fram með 5—2.
Þriðji leikurinn átti að vera í
Glostrup í gærkvöldi.
Blöð í Vordingborg skrifa lof-
samlega um komu Framara. —
Segja iþau frá móttöku þeirra í
ráðhúsi borgarinnar og að allir
búi á einkaiheimilum drengja sem
komi til íslands næsta sumar.
Fyrir fyrri leikinn er Fram-
En Þjóðverjar náðu tveim mörk
um til viðbótar og töfðu síðan til
hlés og hvíldu sig með tveggja
marka forskot.
Lið Færeyinga.
Peter Sigurd Rasmussen, HB;
Jacob Luth Joensen, HB; Thórd-
ur Holm, B-36: Magnus Kjelnæs,
KI; Jegvan Johansen, HB; Brynj
er Bregoriusen, HB; Thorstein
Magnusen, B-36; Jegvan Jacob-
Hér fær Ragnar óblíða meðferð. Það er ekki boltinn sem
skiptir máli hjá Þjóðverjum, heldur maðurinn. Leiðinda-
leikur slíkt. —
ekki sízt vegna þess að Þjóðverj
ar beittu nú sem fyrr all hörðum
leik, grófum varnaraðferðum og
átti dómarinn nokkra sök á að
leikurinn varð á köflum tafsam
ur og leiðinda- og reiðibragður
á öllum athöfnum manna.
• 5 marka þýzk forysta.
Þýzka liði Esslingen er eitt
Annar landsliðsmannanna,
Werner Kneht náði forystu fyrir
lið sitt eftir 2 mín. leik. örn Hall
steinsson jafnaði örskömmu síðar
með góðu skoti, en þetta var eitt
af því fáa, sem ísl. liðið sýndi
gott fyrstu mín. Þjóðverjarnir
náðu öllum tökum á leiknum,
mark þeirra komst aldrei í hættu,
Á FÖSTUDAGINN leikur B-lið
íslands í knattspyrnu landsleik
við A-lið Færeyja. Leikurinn verð
ur á Laugardalsvellinum og hefst
kl. 8,30. Þetta er í annað sinn, sem
sömu aðilar mætast. 1959 lék B-
lið íslands í Færeyjum og vann
Iandsleikinn með 5 mörkum gegn
2.
Landliðsnefnd hefur valið lið
fslands í þessum leik en það
skipa:
Markvörður:
Geir Kristjánsson, Fram.
Bakverðir:
Hreiðar Ársælsson, KR.
Þorsteinn Friðþjófsson, Va.
Framverðir:
Ormar Skeggjason, Val.
Bogi Sigurðsson, ÍA.
Ragnar Jóhannsson, Fram.
Framherjar:
Baldur Scheving, Fram.
Skúli Ágú.stsson, ÍBA.
Ingvar Elísson, fA.
Ellert Schram, KR.
Þórður Jónsson, ÍA.
Varamenn ísl. liðsins eru Einar
Helgason ÍBA, Halldór Lúðvíks-
son Fram, Högni Gunnlaugsson
ÍBK, Grétar Sigurðsson Fram og
Guðmundui Óskarsson báðir úr
Fram.
Dómari í leiknum verður Hauk
ur Óskarsson en línuverðir
Magnús Pétursson og Grétar Norð
fjörð. Forsala aðgöngumiða hefst
við Útvegsbankann á fimmtudag.
Verð miða er kr. 50,00 í stúku,
35,00 stæði og 10,00 fyrir börn.
Færeyingar koma hingað með
„Drottningunni" á fimmtudag.
Eru í förinni 18 leikmenn og tveir
fararstjórar.