Morgunblaðið - 08.08.1962, Blaðsíða 1
24 síður
Sýkillinn ræktaður úr andarunga
sennilega fundinn
helgina að tekizt hafi að
rækta frá andarunga úr búi
nokkru suður með sjó bakt-
eríu þá, sem veldur tauga-
veikibróðurnum og hefur
nú, að því er blaðið hefur
komizt næst, verið hægt að
ganga úr skugga um, að hér
er um sama stofn að ræða og
valdið hefur taugaveikibróð-
ur í Reykjavík. Hins vegar
liggur ekki enn fyrir, hvern-
ig unginn hefur sýkzt.
Haldið verður áfram að
rannsaka uppruna taugaveiki
bróðurins og munu niður-
stöður rannsóknanna vænt-
anlega liggja fyrir innan
skamms. Er þess að vænta,
að þessi hvimleiði sjúkdóm-
ur sé á enda hér í bæ nú
þegar tekizt hefur að rekja
uppruna hans.
Rússar hefja aftur
kjarnorkutilraunir
A SUNNUDAG skýrðu
talsmenn jarðskjálftamæl-
ingastofunarinnar í Upp-
sölum frá því, að á
mælitækjum stofnunarinn-
ar hefðu mælzt hræringar, er
sýndu að sprengd hefði veri
öflug kjarnorkusprengja
námunda við Novaja Semlj,
Væri sprengjan að styrkleib
um 40 megalestir, sem san
FromhaW á bÍ£. 2fl-
Þetta væri ekki merki-
SET7ÐI9FIRÐI, 7. ágúst — Síld-
veiðiskýrslan segir, að Höfrung-
ur II frá Akranesi sé aflaíhæstur
nú um þessa síðustu helgi. Mikill
hluti síldveiðiflotans liggur nú á
Seyðisfirði og bíður veðurs, þar
sem ekki hefur ^gefið til veiða
frá því á sunnudag. Einn af
blaðamönnum Mbl. eyðir sumar-
fríi sínu í síldarvinnu á Seyðis-
firði og bar svo vel í veiði fyrir
(honum að Höfrungur H lá við
bryggju á síldarplaninu, þar sem
tiann vinnur. Hann brá sér því
um borð og hitti að máli skip-
Etjórann, Garðar Finnsson, og
rabbaði við hann litla stund.
Við óskuðum til hamingju með
„toppinn“ og sögðum hvað skýrsl
an segði aflann mikinn. — Ekki
nema 17020 mál og tunnur. Og
erum við samt heestir? Við vor-
um búnir að landa kl. 4 sl. laug-
ardag samtals 18.5S0 málum. Svo
eitthvað vantar á skýrsluna.
— Hvernig hefur þetta gengið?
betta hefur verið veðursælt sild-
arsumar hjá j'kkur, spyrjum við.
— Það má heita að verið hafi
blíða veður allan tíman frá því
við lögðum af stað heiman frá
Akranesi að kvöldi sunnudagsins
24. júni og þar til nú um helgina
að hann brældi.
— Þetta hefur þá verið sam-
felld „törn“, eins og þið segið
sjómennirnir.
legt síldarsumar
ef ekki væru hin fullkomnu tæ^i
Viðtal við aflakónginn á Höfrungi II
— Já, það má segja svo. Það
'hafa orðið smávegis tafir vegna
löndunar.
— Eru menn þá ekki orðnir
fegnir hvíldinni? Þetta er meira
en 40 daga stöðugt áframthald.
— Nei, það held ég ekki. —
Menn vilja halda sig að þessu
meðan veiðitíminn stendur. Hann
er ekki svo langur. Þetta er
enda ekki mikið líkamlegt erfiði,
tækin hafa nú tekið við því hlut-
verki. En það geta verið miklar
vökur Oft sólarhringana út.
— Hvenær byrjaðir þú síld-
veiðar, Garðar?
— Ég byrjaði sem skipstjóri
1046, en hafði áður verið hóseti.
— Þú hefur þá kynnzt miklu
aflasumrunum á stríðsárunum
og getur borið þau saman við
það sem nú er.
— Já, þetta er bezta síldar-
sumarið frá því aflaleysis for að
gæta upp úr 1944. Einkum er
aflinn nú mun jafnari jrfir flot-
ann en verið hefur að undan-
förnu. Eg er hræddur um að lítið
hefði verið um afla, ef ekki vœru
thin fullkomnu tæki, sem öll skip
eru nú komin með. Heita má að
við höfum aldrei séð síldina
vaða.. Það eru fyrst og fremst
leitartækin, sem hafa fundið
hana fyrir okkur. Langflest ís-
lenzku skipanna eru með sjálf-
ritandi leitartæki, sem gefur til
kynna ef síld er í 140 gráðu
boga frá skipinu, 70 gráður á
hvort borð og allt í 1500 m.
Framhald á bls. 6.
Garðar Finnsson, skipstjóri
á Höfrungi H um borð í
skipi sínu.
Snjór lokaði
Siglufjarðar-
skarði
EFTUt góða veðrið um verzl-f
unarmannahelgina kólnaði og
í gær snjóaði í fjöll norðan-
lands, var víðast hvar á land-
inu 3—5 stiga hiti, og rigning
frá Húnafióa og austur um
Dalatanga.
Fréttaritari blaðsins á Siglu
firði símaði: !
Á mánudag gerði töluvert
mikla rigningu og snjóaði
ofan í mið fjöll og skarðið
lokaðist um miðnætti. Nokkr-
ir bílar voru á leiðinni yfir
skarðið og tepptust. Strax
á þriðjudagsmorgun var send
ýta þangað og var orðið keðju
fært yfir skarðið um hádegi.
Þetta þykir Siglfirðingum
ekki sérlega tíðindum sæta,
því skarðið getur lokast í
hvaða mánuði sem er — jafn-
vel mánaðamót júlí og ágúst.
Uppruni taugaveikibróðurins
Myndin hér tll vlnstrl var tekin fyrlr skömmu af Marilyn Monroe — meðan hún var enn að
vinna við kvikmyndatöku „Something’s got to give“. Myndin til hægri var tekin á sunnu-
dagsmorgun er hinni látnu var ekið á börum í líkhús í Los Angeles.
Marilyn Monroe látin
*
*
Hún var stjarna í þess orðs fyllstu
merkingu, segir Zanuck forstjóri
20th Century Fox
Patricia Marlowe framdi sjálfs-
morð eftir að hún heyrði um lát
Marilyn
HIN heimskunna og fagra
leikkona, Marilyn Monroe,
lézt að heimili sínu í
Hollywood, aðfaranótt
sunnudagsins. Dauðaorsök
in var of stór skammtur
svefnlyfja, en ekki er ljóst
hvort leikkonan hefur vís-
Framhald á bls. 17.
UNDANFARIÐ hafa heil-
brigðisyfirvöldin unnið að
því stanzlaust að komast
fyrir um orsakir taugaveiki-
bróðurins (musatyfus), sem
hefur orðið vart hér í bæ.
Hafa umfangsmiklar rann-
sóknir átt sér stað án þess að
jákvæðar niðurstöður fengj-
ust. Eins og kunnugt er, var
fyrir skömmu bannað að
selja mayonnaise frá verzl-
unarfyrirtæki einu hér í bæ
og brá þá svo við, að veikin
hjaðnaði að mestu. Ekki er
Mbl. kunnugt um nein tauga-
veikibróðurtilfelli síðustu
daga.
Hins vegar hefur það nú
gerzt, að svo virðist sem
rannsóknirnar á uppruna
veikinnar hafi borið ávöxt.
Morgunblaðið fregnaði um