Morgunblaðið - 08.08.1962, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.08.1962, Blaðsíða 24
Fcértasimar Mbl — eftir lokun — Erlendar Iréttir: 2-24-85 Innlendar fréttir: 2-24-84 jiitMðMft Efnahagsmál Sjá bls. 13 178. tbl. — Miðvikudagur 8. ágúst 1962 80 þús. tunnur af saltsíld til Rússlands Söltun aftur leyfð SAMNINGAR hafa nú tekizt um i síld til Sovétríkjanna og hefur sölu á 80 þús- tunnum af salt-1 söltun nú aftur verið leyfð. í Síldaraflinn 1,4 millj. mál og tunnur SÍLDARAFLINN var sl. laugar- dag orðinn 1.413.064 mál og tunn- ur, en var í fyrra 1.197.525 tunn- ux. Aflahæstu skipin eru Höfr- ungur II með 17020 mál og tunn- ur, Víðir n með 16.771, Helgi Helgason með 16.688, Eldborg með 16.476 og Guðmundur Þórð- arson með 16.349, — en skýrslan um önnur skip er á bls. 6. Aflinn hefur farið í salt, 255.289 tunnur, bræðslu 1.130.409 mál og frýstingu 27.366 tunnur. Vikuaflinn sl. viku var 225.461 mál og tunnur Var yfirleitt gott veður á miðunum, en þokuslæð- ingur sums staðar. Eftir helgina gerði storm á miðunum, og var landlega hji síldarbátunum. Lágu t. d. um 60 skip inni á Norðfirði og helmingi fleiri á Seyðisfirði. Leit «kki út fyrir að lægja mundi í nótt. fréttatilkynningu frá Síldarút- vegsnefnd um þetta segir: Samningaumleitunum þeim, sem staðið hafa að undanförnu milli Síldarútvegsnefndar og verzlunarfulltrúa Sovétríkjanna lauk í Reykjavík síðdegis í dag með því, að samningar tókust um sölu á 80 þúsund tunnum saltsildar fyrir nokkru hærra verð en í fyrra. Þegar verkun saltsíldar var stöðvuð, að kvöldi 27. júlí s.l., höfðu verið saltaðar um 55 þús- und tunnur saltsíldar, sem ætl- aðar voru upp í væntanlega samn inga við Sovétríkin. Á fundi sínum í kvöld, ákvað Síldarútvegsnefnd að leyfa verk- ún saltsíldar að nýju. Lík fannst í Siglufjarðarhöfn SIGLUFIRÐI, 7. ágúst. — f gær- kvöldi fannst í höfninni lík Frið- riks Ásgrímssonar frá Reykja- vík, sem hvarf 16. júlí, en hann var skipverji á Hávarði ÍS 100, sem lá hér. Fannst hann fyrir framan svonefndan Slipp við nýju hafnarbryggjuna. Friðrik lætur eftir sig konu og 2 börn. Slökkviliðsmenn í Hafnarfirði berjast við eldinn í togaran- um Surprise. (Ljósm. Njáll Haraldsson). Eldur í Surprise í Hafnarfjarðarhöfn Ndtin lenti í sogdælu Sansu AKRANESI, 7. ágúst. — Sl. sunnudag gerðist það er Sansu var að dæla skeljasandi úti við Hraun, að nótin úr 25—30 tonna drag- nótabát úr Reykjavík lenti í sanddæluskipinu. Sandkornunum fækkaði meir og meir, sem upp komu í Sansu og sjórinn, sem venjulega fossar í lestina, var orðinn eins og lítil Iækjarsitra. — A hinn bóginn skeði það allt í einu hjá reykvísku sjómönnunum að engu var líkara en dragnótin væri tætt út úr höndunum á þeim og loks neyddust þeir til að kubba nót og taugar. Kl. 4 síðdegis á sunnudag kom svo Sansu til Akraness. Þar var megnið af dragnótinni og tilheyrandi köðlum dregið og plokk- að út úr sogrörinu, meira að segja með keflum, hringum og fiski. Dróst að skipinu I gærkvöldi um afcburð þennan og Mbl. spurði dr. Jón Vestdal í ' sagði hann þetta rétt vera. Skip- * Anægjulegt skátamót, þó tjöld fykju að lokum SKÁTAMÓTINU á Þingvöllum var slitið á mánudagskvöld og fóru norsku og bandarísku og hollenzku skátarnir heim í gær, Þing SUS í Reykja- neskjör- dæmi KJÖRDÆMISÞING Sam- bands ungra Sjálfstæðis- manna í Reykjaneskjördæmi verður haldið í félagsheimil- inu Glaðheimum n.k. fimmtu dag, 9 ágúst kl. 8,30. Rétt til þátttöku hafa full- trúar félaga ungra Sjálfstæð ismanna í kjördæminu svo og fulltrúar af svæðum, þar sem ekki eru féiög samkvæmt nán ari ákvörðun kjördæmisþings. Um val fulltrúa vísast að öðru leyti til 20. gr. laga Sam bands ungra Sjálfstæðis- manna. aðrir erlendii skátar fóru út á land, 56 enskir til Akraness, 4 skozkir til Hafnarfjarðar og írskur til Stykkishólms. Sagði Páll Gíslason, mótstjóri í gær, að mótið hefði tekizt mjög vel. Þrátt fyrir óhagstætt veður, oft rigningu og rok, hefðu skátarn- ir borið sig mjög vel og allt far- ið skv. áætlun, enda væri allur viðleguútbúnaður nú orðinn mjög góður. í fyrrinótt gerði mikið rok á Þingvöllum og verSt undir morg- un. Fauk þá nokkuð af tjöld- um, þar á meðal stóru tjöldin, sem notuð voru fyrir sjúkrahús og pósthús, en pósti og öðru var bjargað yfir í annað tjald. Voru erfiðar aðstæður við póst- afgreiðslu í gærmorgun, en gekk þó. 1800 bílar á mótstað Á sunnudag var gestadagur hjá skátum og var þá sólskin og bezti mótsdagurinn. Komu þá um 1800 bílar á mótsstaðinn og taldist skátunum svo til að 8—10 þús. manns hefðu verið þar. Voru þá messur haldnar, lútersk og kaþólsk, hópsýningar síðdegis og feiknamikill varðeldur um kvöld ið. stjórinn á Sansu hefði skýrt svo frá, að hann hefði byrjað að dæla á venjulegum stað með venju- legum merkjum og skipið hefði dælt þanni í rnn 20 mín. Þá hefði hann orðið þess var, að lítill eða enginn sandur hefði kömið upp um sogrörið og farið að huga að Iþví, hvað valda mundi. Hefði hann þá orðið var við að í um kílómeters fjarlægð var bátur, sem dróst aftur á bak að skip- inu. Þá hefði hann látið stöðva dælingu og dregið upp sogrörið og hefði þá komið í ljós að inn í iþað' var komin nótin, eins og skýrt er frá hér að framan. í gær hittust þeir að máli skip stjórinn á Sansu, eigandi Sansu, sem hér er staddur um þessar mundir, og formaðurinn á bátn- um. Sættust þeir á, að tjóninu yrði skipt að jöfnu á milli beggja skipanna, Sansus og dragnóta- bátsins, og þar með á málið að vera úr sögunni. HAFNARFIRÐI, 7. ágúst. — Kl. 9.52 í morgun var slökkviliðið í Hafnarfirði kvatt niður á bryggju, en mikill eldur var í togaranum Surprise, sem lá við syðri hafnargarðinn. Var verið að dæla olíu i togarann og talið að olían hafi lekið niður á ljósa- mótor, sem var í gangi og þannig hafi kviknað í. Vélarrúmið varð þegar alelda og stóðu logar upp um loftventl ana. Um tírna var talin hætta á sprengingu f olíugeymum skips ins. Þegar einn geymirinn hitn- aði, rann olía úr honum um yfir fallsrör og út á þilfar. Slökkviliðið var meira en klukkutíma að berjast við eld- Trésmiðamálið fyrir félagsdómi f GÆR var flutt í Félagsdómi mál varðandi það hvort aðgerðir Trésmiðafélagsins hafi verið lög- legar, er það auglýsti nýjan vinnutaxta, ár, þess að samning- ar hefðu tekizt um hann við vinnuveitendur. Vinna liggur nú niðri vegna ágreinings um þetta. Flutti Egill Sigurgeirsson hrl. mál fyrir hönd trésmiðanna í gær, en úrskurðar er ekki að vænta fyrr en á fimmtudag. I inn og gengu slökkviliðsmenn rösklega fram. Dældu þeir mörg- um tonnum af vatni í skipið, sem hallaðist við hafnargarðinn. Miklar skemmdir urðu í vélar rúmi togaruns, sem var að búa sig á veiðar, er eldurinn kom upp. Eigandi hans er Einar Þor- gilsson & Co. — G.E. Hundar ráðast á gæsir NOKKRU eftir hádegið á mánudaginn gerðist sá ó- venjulegi atburður við Foss- vogsblett 7 hér í bæ að þrír aðvífandi hundar gerðu aðsúg að hóp aligæsa, sem þar lón- aði á polli. Rifu hundarnir og tættu fjórar gæsir svo illa að búizt var við að þeim þyrfti að lóga. Eigandi gæsanna hafði hendur í hári tveggja hundanna ,en sá þriðji slapp. Eigandinn afhenti sökudólg- ana lögreglunni og munu þeir verða réttaðir fyrir tiltækið. Þá er von á skaðabótakröfu frá eiganda gæsanna á hend- ur eiganda hundanna, en a.m. k. annar þeirra, sem náðist, var merktur. Tekur Flugfélag íslands upp flugsamgöngur viö Færeyjar? í EINKASKB YTI, sem Morgun- blaðinu barst í gær frá frétta- ritara blaðsins í Færeyjum, seg- ir að lögmaður Færeyja hafi í ræðu sinni á lögþinginu skýrt svo frá, að hann hefði von um, að Færeyjar kæmust í flugsam- band við umheiminn innan skamms og yrði það annað hvort með samningum við Flugfélag íslands eða Braathen. Skeytið hljóðar svo í heild: Lögþing Færeyja, sem kom saman á Ólafsvökunni, sat fundi í tæpan vikutíma. Því var slitið á laugardaginn og kemur ekki aftur saman fyrr en að afloknum lögþingskosningum sem fram fara snemma i nóvembermánuði — nema brýn nauðsyn krefji, vegna einhverra óvæntra, en að kallandi mála. • 17 klst. umræður Hið eína sem á þessu þingi gerðist var að fjárlagafrumvarp fyrir árið 1963—64 var lagt fram, en niðurstöðutölur þess eru 32 milljónir danskra króna. Enn- fremur samþykkti þingið Ólafs- vökuræðu lögmanns. Umræður á þinginu stóðu samtals sautján klukkustundir og verður þelm útvarpað af segulböndum. í ræðu sinni hét lögmaður þvf að skattar og tollar yrðu ekki hækkaðir á komandi fjárhagsárL Lögmaðurinn kvaðst hafa vonir um, að Færeyjar kæmust í flug- samband við umheiminn, áður en langt um liði. Landstjórnin stæði í - sambandi við flugfélag Braathens og Flugfélag íslands — og persónulega kvaðst lögmað- ur þeirrar skoðunar, að það yrði fyrlr tilstilli Flugfélags íslands, að Færeyjar fengju flugsamband við umheirninn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.