Morgunblaðið - 08.08.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.08.1962, Blaðsíða 10
10 Miðvikudagur 8. ágúst 1962. MORCITSBLÁÐIÐ xtPÚH------------ Marilyn Monroe * Eftirfarandi tveir smákaflar eru lauslega þýddir úr bókinni „Marilyn Monroe“ eftir Maurice Zolotow. Lýtur hinn fyrri að upp- vexti hcnnar í munaðarleysingjahæhnu — eins og hún sjálf segir frá — en hinn síðari að áhriíum hennar á leikritaskáldskap Artíiurs Miller. IVU- 'yu r.ionroe og Arthur Miller. EINS og við var að búast og vera ber í slíkum stofnunum, var lífið í munaðarleysingja- hælinu í Los Angeles mjög reglubundið og tilbreytingar- lavist. Með uppreisn sinni gegn stundvisi og hlýðni hef- ur Marilyn liklega verið að bæta sér upp þessi ár. Börnin veru vakin klukkan sex á morgnana með glymjandi hringingu. Síðan bjuggu þau um rúmin sín. Þá var þeim safnað saman og svo var gengið í röðum inn í borð- salinn á neðri hæðinni. Borð- salurinn var stór og veggirn- ir skemmtilega skreyttir í blá- um lit. Bæði borðsalurinn og eldhúsið var tandurhreint. Börnin sátu við smáborð, fjögur við hvert. Fæðið var eins gott og gerist í fyrsta flokks sjúkrahúsum — en engu að síður hefur Marilyn ávallt verið að gefa í skyn, að börnin hafi verið neydd til að eta viðbjóðslegan mat, af sömu tegund og þann, sem kemur af stað fangauppreisn í kvikmyndunum hjá Warner Brothers. Eftir máltíðina voru eldri börnin — og þá einnig Norma Jean — stundum látin hjálpa til að þvo upp. Nú segir hún, að húti hafi orðið að þvo upp 100 diska, 100 bolla og 100 hnífapör og skeiðar 3svar á dag. 7 daga vikunnar. Ennfrem ur segist hún hafa verið látin skúra salerni og hreinsa bað- ker. Yfirleitt hefur hún gefið út heldur en ekki sundurleitar skýrslur um þetta skeið ævi sinnar. Hin „opinbera“ ævi- saga hennar segir, að hún hafi fengið tíu sent á mánuði fyrir að vinna í eldhúsinu. Við einn blaðamanninn sagði hún: „Ég sá aldrei neinn eyri. Það var allt látið í jólasjóð- inn. Það var venja að litlu stúlkurnar tóku svo aurana sína út fyrir jólin og keyptu fyrir þá jólagjafir í búðinni á horninu Einhverjar nyt- samar gjafir, eins og stíla- kompur og blýanta". Öðrum blaðamanni sagði hún, að hún hefði fengið fimm sent á viku fyrir vinnu sína í eldhúsinu — 20 sent á mánuði — og svo tíu sent auka lega á mánuði fyrir að vinna í búrinu. „Og af þessari auð- legð“ bætti hún við, „varð ég að láta tvö sent í kirkju- söf -unina, á hverjum sunnu- degi. Ég gat aldrei skilið, hversvegna fólkið var að taka svona aurana frá munaðar- leysingja“. En í viðtali við TIME 1956, hafði hún samt leiðrétt kaup- ið sitt og lækkað það niður í fimm sent á mánuði. Af þessu fór helmingurinn í söfnunina, en hinn helming- urinn var eyðslueyrir, sem hún notaði til þess að kaupa sér nýtt hárband á hverjum mánuði. Engar skýringar vory. gefnar á því, hvernig stíla- kompurnar og blýantarnir komust að í þessari fjárhags- áætlun. Það er enginn vafi á því, að henni hefur sjálfri fundizt hún illa með farin, en þó man Clarice Evans, sem seinna leigði með Marilyn Monroe, eftir því, alveg greini lega, að Marilyn sagði henni sjálf, að mikið hefði það verið „spennandi", þegar hún vann í fyrsta sinr. fyrir „alvörupen- ingum“ — með því að hjálpa til að leggja á borð og þvo diska á munaðarleysingjahæl- inu! Hvort er sannleikur? Áreið anlega hvorttveggja í uagum Marilynar. Allar leikkonur eru gefr.ar fyrir að gera sjálfa sig sögulegar, koma sjálfum sér í hlutverk og leika það svo á sannfærandi hátt. Aldrei ljúga þær! Og ekki geta þær komizt í mótsögn við sjálfar sig, því að þær trúa alltaf því, sem þær eru að segja þá stundina. Á hælinu voru bæði leikir og íþróttir, sem Marilyn nefn- ir ekki einu orði. Að húsa- baki voru fimm ekrur lands, þar sem börnin léku sér á hverjum degi, síðdegis. Þar voru rólur, sölt, klifurslár og sandkassar, ennfremur sund- laug. Og innanhúss var stórt leikherbergi með útvarpi, grammófóni, leikföngum og áhöldum. Þar var líka salur með leiksviði, og þar léku börnin í leikritum og söng- leikum. En ekki kemur neins staðar fram, að Norma Jean Baker hafi nokkurn tíma tekið þátt í slíku. Hún leyndi leikni sinni í fingra- fimi, hnífakasti og húla- dansi. Eitthvað fjórum til fimm mánuðum eftir að Norma kom þarna, fékk hún þunglyndis- kast. Það kom yfir hana einn rigningadag. Regnið minnti hana jafnan á föður hennar og hana langaði þá til að fara á flakk. Og einn daginn, þeg- ar hún var á leið heim úr skólanum, læddist hún út úr röðinni og flýði. Ekkert vissi hún, hvert halda skyldi, held- ur flæktist hún um, stefnu- laust, í bullandi slagveðrinu. Lögregluþjónn nokkur fann hana og fór með'hana í lög- reglustöðina, og síðan var far ið með hana í skrifstofu frú Dewey. Þar var hún færð í þurrt. Hún bjóst við barsmíð, en þess í stað tók frú Dewey hana í faðm sér, og sagði að hún væri falleg. Svo púðraði hún nefið og kinnarnar á Normu. Árið 1950 sagði Norma frá þessu atviki Sonju Wolfson, sem var einskonar blaðafull- trúi hjá Twentieth Century Fox, og bætti þá við í trúnaði: „Þetta var í fyrsta sinn, sem ég varð þess vör, að nokkr- um þætti vænt um mig — og enginn hafði þangað til tekið eftir andlitinu eða hárinu á mér“ Ungfrú Wolfson skrifaði þessi ummæli niður þar á staðnum. f þeim tveim leikritum, sem Miller samdi eftir að hann kynntist Marilyn, er vik ið að efni, sem hann hafði aldrei áður farið höndum um í leikritum sínum. Annað er ást gamals manns á miklu yngri stúlku. Hitt er áhrif ótryggðar á amerískt hjóna- band. Þríhyrningurinn í „Deigl- unni“ er John Proctor, kona hans Elízabet, og Abigail Williams, ung þjónustustúlka, áður vinjiukona hjá Proctor og nú ákærandi margra per- sóna, þar á meðal frú Proctor. Hana kærir hún fyrir galdra. En Proctor kærir hún ekki. Leikritið snýst um sekt — sekt eiginmanns, sem hefur svikið konu sína. Þríhyrningurinn í „Horft af brúnni" er Eddie Carbone, Beatrice kona han og skjól- stæðingur þeirra, Katrín. Hugarhræringar Millers í sambandi við Marilyn Monroe og listamannsóró hans, kom fram í lýsingunum á Abigail og Katrínu, að minni hyggju. Bæði leikritin eru endurskin af áköfum persónulegum geðs hræringum, sem höfundurinn varð fyrir milli 1950 og 1956. Þegar Clifford Odets las „Deigluna“ leikritið áður en það var leikið á Broadway, sagði nenn við kunningja sinn, að þau Marilyn og Miller yrðu skilin áður en langt um liði. „Enginn maður getur samið svona leikrit, nema hans eigið hjónaband sé að fara út um þúfur“ sagði hann. Sjálfur held ég ekki Miller sjálfum hafi verið það ljóst fyrr en einhvemtíma á árinu 1955, að áframhald hjónabands þeirra var óhugsandi. Hann hafði sett meira af sálar- ástandi sínu á pappírinn en hann hafði nokkra hugmynd um sjálfur. Miller hefur sagt, að „því óhæfari sem maðurinn er til að hlaupa burt frá grund vallar-deiluefni leikritsins, því meir nálgast hann hryggi- lega tilveru". Hann hafði í fimm ár verið að reyna að forðast harmleikinn með því að „hlaupa burt frá“ hinni konunni, með því að forðast að taka ákvörðun, og með þvi að slíta öllu sambandi við Marilyn. Og af því að hon- um tókst ekki að hlaupa frá því, varð málið allt að harm- ieik fyrir sjálfan h_nn. — — Starfandi systir hjá ísl. söfnuði í Kanada í kynnisferð á Islandi SYSTIR Laufey Olson frá Winnipeg er komin til íslands sem styrkþegi Lúterska heims- sambandsins og gestur íslenzku kirkjunnar. Er þetta í fyrsta skipti sem styrkþegi alþjóða kirkjusambandsins óskar eftir að koma í náms- og kynnisför tii íslands, að því er biskup ís- lands, herra Sigurbjörn Einars- son, tjáði blaðamönnum. Sagði hann að þetta hefði kirkju vorri þótt vænt um og væri systir Laufey hjartanlega velkomin. Systir Laufey Olson er ísl. að ætt og talar ágætlega ís- lenzku. Hún er ættuð úr Fljót- um í Sakagfirði í móðurætt og úr Borgarfirði í föðurætt. Faðir hennar var Davíð Jónsson og móðir hennar Pálína Margrét Hafliðadóttir, en sjálf er hún fædd í Selkirk í Manitoba í Kanada. Systir Laufey er starf- andi safnaðarsystir í Fyrstu lútersku kirkjunni í Winnipeg, sem er fjölmennasti söfnuður ís- lendinga í Vesturheimi, en prest ur þar er séra Valdimar Ey- lands. Hún skýrði fréttamönnum svo frá í viðtali í skrifstofu biskups, að í söfnuðinum væri um 1400 manns og þar væri mikið kirkjulegt starf. Væri Systir Laufey Olson messað á íslenzku á hverjum sunnudegi og tvisvar á ensku. Væru á vegum safnaðarins rekn ir sunnudagaskólar og þar væru starfandi tvö unglingafélög. Upphaflega var þetta kirkju- félag stofnað af fslendingum og þeir eru þar fjölmennastir, en nú orðið er fólk af öðrum upp- runa þar innan um, enda eru lúthersku kirkjufélögin nú kom- in í eitt samband. Prestar hafa aðeins verið þrír, séra Jón Bjarnason, séra Björn B. Jóns- son og séra Valdimar Eylands. Systir Laufey er fastráðinn starfsmaður hjá söfnuðinum og hefur aðallega með höndum æskulýðsstarf og alls konar menningarstarfsemi. Hún starfar með börnum og unglingum safn- aðarins, þjálfar kirkjulega leið- toga innan hans og heimsækir fólkið. Hún hefur aðallega ósk- að eftir að kynnast hér kirkju- legu æskulýðsstarfi og ætlar að dvelja hér í 3 mánuði. Frá Reykjavík fer hún á norrænt KFUK mót í Vindáshlíð og það- an norður í land, þar sem hún heimsækir ýmsa söfnuði og kynnir sér líf og starfsemi kirkj- unnar eftir föngum. Eftir það kemur hún aftur til Reykjavík- ur. Ef einhverjir einstaklingar, félög eðá ssöfnuðir vildu kom- ast í samband við hana, þá geta þeir snúið sér til skrifstofu biskups, en systir Laufey er fús að veita fræðslu og leiðbeining- ar á sínu sviði ef óskað er. Síldar verksmið j an á Akranesi stækkuð Akranesi 3. ágúst. ÉG fann að máli Valdemar Ind- riðason, forstjór.. Síldar og fiski mjölsverksmiðju Akraness. Sagði hann að nýlega hefði verið á- kveðið að stæfcka verksmiðjuna um helminig þannig að aflköstin yrðu 3000 mál á sólarihring, en nú eru þau 1500. Vélakostinn má auka sem með þarf án þess að húsakynnin þurfi að srtækka að öðru leyti en því að bæta þarf við nrjöldkemmum. — Odidur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.