Morgunblaðið - 23.11.1962, Síða 1
40 sföur (l og II)
49. árgangur
263. tbl. — Föstudagur 23. nóvember 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Allar gerðir þingsins ólögmætar
*
Engin lögmæt stjórn í ASI
næstu tvö árin
FUNDUR á hinu svonefnda Alþýðusambandsþingi hófst um
klukkan 1.40 í gærdag. — Óskar Hallgrímsson kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár og las upp eftirfarandi yfirlýsingu:
„Á síðasta þingfundi gerðist sá atburður, að löglega
kjörnum fulltrúum Landssambands íslenzkra verzlunar-
manna var meinaður atkvæðaréttur hér á þessu þingi, þrátt
fyrir að mikill meirihluti þingsins hafði áður staðfest inn-
göngu LÍV í Alþýðusambandið.
Sú gerræðislega ákvörðun að svipta fulltrúa LÍV lög-
mætum rétti var tekin á umræddum fundi með 26 atkvæða
meirihluta. Á sama tíma er 30 lögmætum fulltrúmn meinað
að hafa áhrif á gerðir þingsins.
Sá „meirihluti“ sem hér hefur myndazt er því til orðinn
í krafti athafna sem ekki eiga sér neinn stað í lögum ASI,
né þeim venjum, sem skapazt hafa við afgreiðslu kjörhréfa
á þingum samhandsins. Hinn svokallaði meirihluti þessa
þings er því fenginn með þeim hætti, sem ekki er unnt að
viðurkenna né láta ómótmælt.
Um leið og við mótmælum þessum vinnuhrögðum
, meirihlutans“ lýsum við yfir því, að við teljum þessar og
síðari gjörðir þessa þings, þar á meðal væntanlegt stjórnar-
kjör, ólöglegar, þótt við höldum áfram þátttöku í þingstörf-
nm til þess að reyna að spyrna gegn frekari misheitingu
valds af hendi hins vafasama meirihluta, er skapazt hefur
á þinginu“.
Fyrir hönd þeirra, sem fara vildu að lögum með mál
LÍV, undirrituðu þessa yfirlýsingu:
Óskar Hallgrímsson, Jón Sigurðsson,
Pétur Sigurðsson, Eggert G. Þorsteinsson,
Guðjón Sigurðsson, Pétur Guðfinnsson.
A myndimú sjást foringi framsóknarmanna á ASI-þingi,
Guðmundur Björnsson, og Hannibal Valdimarsson að lokinni
atkvæðagreiðslu um kjörbréf LÍV. Leynir sér ekki, að þeir
eru ofsaglaðir yfir þvi að hafa tekizt gerræðið og lögbrotin,
jafnframt því að stórskaða heildarsamtök íslenzkrar alþý'óu.
Þegar Óskar Hallgrímsson
hafði lokið máli sínu stóð Hanni-
bal Valdimarsson upp og kvaðst
harma, að þeir aðilar, sem væru
í minniíhluta á löglegum þing-
fundi sættu sig ekiki við ákvörð-
un meirihlutans.
Sagði Hannibal að ákvörðun
meirihlutans um kjörbréf LÍV
Kyrrt á landamæmm Ind-
lands og Kína
Nýju Delhi og Peking,
22. nóv. (NTB-AP-Reuter)
• í dag var allt með
kyrrum kjörum á landamær-
um Indlands og Kína — og
er það nánast í fyrsta sinn í
mörg ár, að þar er algerlega
átakalaust.
9 Indverskir h e r m e n n
hafa grafið sér skotgrafir
fyrir norðan borgina Tezpur,
til þess að vera viðbúnir,
hefji Kínverjar aftur sókn að
Assam-sléttunni, Hafa her-
irnir gætur hvor á öðrum.
• Ekki er enn kunnugt,
hverju indverska stjórnin
svarar tillögum Kínverja. En
á fjöldafundi ungmenna í
Nýju Delhi í dag, sagði Nehru
forsætisráðherra, að Indverj-
ar muni aldrei láta bugast af
ógnunum Kínverja.
Talsmaður kinverska varna-
málaráðuneytisins staðfesti í dag,
að allt væri með kyrrum kjörum
á landamærunum, en nokkru áð-
ur hafði Nehru, forsætisráðherra
Indlands, lýst því yfir, að skot-
hríðin hefði verið stöðvuð í gær-
kvöldi. Ekki var í yfirlýsingu
Kínverja nein athugasemd um
það, hvort Indverjar hefðu virt
vopnahléð, en fréttaritarar í
Peking segja, að um það sé ekki
efast þar í borg. Á hinn bóginn
sagði talsmaður ráðuneytisins,
að indverskar flugvélar hefðu
brotið kínverska lofthelgi yfir
vatninu Spanggur í Ladakh-
héraði. Ekki hafi verið skotið á
flugvélarnar, en haft væri vak-
andi auga með varðstöðvum
Indverja. Lýsti Pekingstjórnin
yfir þeirri von sinni, að Indlands
stjórn íhugi vel tillögur hennar
og svari þeim jákvætt.
Fregnir frá vígstöðvunum
hermá, að indverskir hermenn
hafi grafið sér skotgrafir fyrir
norðan borgina Tezpur tdl þess
að vera viðbúnir, ef Kínverjar
hefja aftur sókn að Assam-slétt-
unni. Segjast Indverjar fylgjast
með kínversku hermönnunum í
stöðvum þeirra í fjallshlíðunum
og skóginum og reyna þeir að
geta sér til af tilfærslum þeirra,
hvort vopnahléð sé gert í alvar-
legri tilraun til þess að binda
endi á bardagana, eða hvort hér
sé um blekkingu eina að ræða.
Framh. á bls. 23.
væri bæði lögmæt og sjálfsögð.
Innganga LÍV hefði verið form-
lega staðfest og meginkrafa þess,
þ.e. þingset^ með málfrelsi og
tiilögurétti, hefði verið tekiny ti'l
greina.
Sverrir Hermannsson bað næst
ur um orðið og þakkaði þeim
fjölmörgu, sem hefðu talað máli
LÍV á þinginu og veitt því at-
kvæði sín. Kvaðst hanh harma
það gerræði, sem framið hafði
verið á þinginu í garð LÍV.
Sagði Sverrir, að ástæða væri
til þess fyrir LÍV-fulltrúana að
vera á þinginu til að kynna sér
þau méi, sem fyrir liggi. Þess
vegna hefði verið ákveðið, að
fulltrúar LÍV saetu áfram á þing-
inu, en þeir áskilji sér þó allan
rétt yarðandi löglega inngöngu
í ASÍ. Svaraði hann svo árásum
Hanni'bals á verzlunarmenn og
sig persónulega.
Pétur Sigurðsson tók til máis
og benti á, að ýmsir þeir full-
trúar, sem greitt hefðu atkvæði
Framlhald á bls. 2.
SAS heldurl
fast við
fyrirvarann
í EINKASKEYTI, sem Mbl.
barst frá Stokkhólmi í gær
kvöldi segir, að stjórn SAS
hafi á fundi sínum í Zúrich í'
Sviss ákveðið að halda fast við
þann fyrirvara, er hún gerði
við samþykkt IATA — Al-
þjóðasamhand flugfélaga. —
Ennfremur hefi verið sam-
þykkt, að stjórn SAS snúi sér
til ríkisstjórna Norðurlanda
vegna máis þessa.
Skeytið hljóðar svo:
Stockholm, 27. nóv. Stjóm
Norðurlandaflugfélagsins SAS
kom í dag saman til fundar í
Zúrich í Sviss og ræddi m.a.
samþykktir tfm samvinnu SAS
og Swissair. Á fundinum var
einnig fjallað um flugsam-!
göngur yfir Atlantshafið og
þær aðgerðir, sem fyrirhugað
ar eru til þess að aflá SAS
heimildar til samkeppni viS
Loftleiðir á jafnréttisgrund-
velli — þannig að veita megi
einhverjum hluta viðskipta-
vina Loftleiða til SAS.
Ákveðið var að halda fast
við fyrirvarann, er SAS gerði
við samþykkt IATA — alþjóða
samband flugfélaga — (SAS
hefur frest til 15. des. til þess
að samþykkja fargjaldaákvæði
IATA eða tilkynna hverjar
fyrirætlanir félagsins eru).
Ennfremur var ákveðið, að
SAS setji sig í samband við
ríkisstjórnir Norðurlanda
vegna máls þessa. I
Fjögur börn létust
Barcelona, 22. nóvember. —*
NTB — Reuter.
Fjögur böm létu lífið og 25 mcidd
ust, sum aivarlega, þegar strætis
vagn, þéttsetinn skólabörnum,
vallt niður 90 metra brekku í ná
grenni Barcelona. Bömin höfðu
verið með kennurum sínum í
heimsókn í hið sögufræga
klaustui- Santas Creus i hérað-
inu Tarragona.
Adenauer hyggst veita ungu
blóði í stjórn V - Þýzkalands
Bonn og Berlín, 22. nóv
— AP-NTA-Reuter
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum í Berlín, að Adenau
er kanzlari V-Þýzkalands muni
á mánudaginn liefja viðræður,
er miði að því að leysa stjórnar
kreppuna í Vestur-Þýzkalandi.
Hann mvun hafa í huga, að bíða
úrslitanna í kosningunum, sem1
fram fara í Bayern á sunnudag
inn en landvarnaráðherrann,
Franz Josef Strauss er, sem kunn
ugt er leiðtogi Kristilega sósía-
listaflokksins í Bayerns, sem er
nokkurs konar deild eða undir-
flokkur Kristilega demókrata-
flokksins.
Einn af forystumönnum Kristi
legra demókrata segir að Aden- '
auer hyggist veita ungu blóði í I
stjórn V-Þýzkaiands — en tekur
fram í því sambandi að aldur
fari ekki eingöngu eftir áraf jölda.
Adenauer kom í morgun flug
leiðis til Vestur-Berlínar til þess
að sitja flokiksfund Kristilegra
demókrata. Hann mun einnig eiga
viðræður við Willy Brant, borg
arstjóra V-Berlínar.
Flokksfundur þessi var áikveðinn
fyrir mörgum vikum, áður en
Spiegel málið bar á góma, en
það verður eitit aðal umræðu
efni flokksfundarins.
Framh. á bls. 23.