Morgunblaðið - 23.11.1962, Side 2
MORGTJNBLAÐ1Ð
Föstudagur 23. nóv. 1962
Heimboð
Belgrad, 22. nóv. —
NTB — AFP —
• Stjórn Póllands hefur boðið
Tito forseta Júgóslavíu í opinbera
heimsókn til Póllands, að því er
tilkynnt var í Belgrad í dag. —
Tito fer til Moskvu í desember í
boði Krúsjeffs forsætisráðherra
Sovétríkjanna, en fer væntanlega
s'ð - til Póllands.
rlawalpindi, Pakistan,
22. nóvember — AP —
• Utanríkisráðherra Pakistan,
Mohammad Ali, hefur þegið boð
Chou En-Lai, forsætisráðherra al
þýðulýðveldisins Kína, um að
koma í heimsókn til Peking, að
því er fréttastofan Pakistani seg
ir í dag. Er talið, að tilgangurinn
með þessu heimboði sé að semja
endanlega um landamæri ríkj-
anna, þar sem nyrðri héruð Vest
ur-Pakistan og Sinkiang-hérað-
ið í Kína liggja saman.
ísing hamlor
innonlondsilugi
INNANLANDSFLUG lá að
heita niðri hjá Flugfélagi ísl-
lands í gær. Áformað var að
fljúga til Akureyrar, Þórshafn
ar, Kópaskers, Vestmanna-
eyja og Egilsstaða, en aðeins
ein ferð var farin, kl. 5 í gær
til Akureyrar. Ástæðan til
þessara samgöngutruflana var
mikil ókyrrð og ísing í lofti.
Höfðavatn
lagði þrisvar
BÆ, Höfðaströnd, 22. nóv. —
Gott veður hefur verið hér und-
anfarna daga og er allur snjór
horfinn af láglendi. Tíð hefur þó
verið ur hleypingasöm og hefur
Höfðavatn þannig t.d. frosið
þrisvar en ísa jafnan tekið af því
aftur. Er slíkt mjög óvenjulegt.
Allur fénaður er nú kominn á
hús en lítið er gefið nema þá
fóðurbætir. Aðeins tveir þilfars-
bátar róa nú frá Hofsósi, en trill-
ur eru hættar. Bátarnir reru
fyrst með net en róa nú með
línu. — Björn.
Tvö útköll og gabb
SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt að
Lynghaga 7, kl. 3 síðdegis í gær.
Hafði þar kviknað í potti á elda
vél, en skemmdir urðu engar. Þá
var slökkviliðið kvatt að Nýlendu
götu 24 nokkru fyrir hálf fimm.
Hafði kvikn’að þar í bifreiðinni
R-7501, en búið var að slökkva
og skemmdir nær engar. Loks var
slökkviliðið gabbað að brunaboða
á Hafnarhúsinu kl. 8 í gærkvöldi.
Atkvæöi talin eftir atkvæöagreiösluna um kjörbréf L andssambands íslenzkra verzlunarmanna.
Pétur Sigurðsson, alþingism.,
fordæmir lagabrot framsóknar-
manna og kommúnista.
Óskar Hallgrímsson flytur yfir-
lýsingu um ólögmæti ASÍ-
þingsins.
Bræla á síldarmjðunum
Lítil síld til Akraness
Akranesi 22. nóv.
NÚ er suðvestan bræla á mið-
unum útaf Jökli. 5 bátar héðan
fengu samtals 1150 tunnur af
sí'ld fyrrihluta nætur, en kl. 2:30
í nótt fór að hvessa oig gera
storm, sem haldizt hefur síðan.
Aflahæstur var Sigurður með
400 tunnur, (100 tunnur frá í
fyrrinótt), Fiskaskagi 300, Höfr-
ungur 250, Skírnir 150 og Sveinn
XfcNAIShnúhr
| / SV50hnúfar
k SnjMroma
• Úhi
Á hádegi í gær var fremur
djúp lægð út af Snæfellsnesi,
og lágu samskil frá henni suð
austur yfir landið. Fyrir suð
vestan skilin var skúraveður,
en víða rigning á undan þeim.
Hiti var 4—8 stig og er það
vel hlýtt miðað við árstíiha.
í dag má búast við að lægð
in verði komin í námunda við
Jan Mayen. Þá verður hér
vestan átt og kaldara í bili.
Um helgina hlýnar senni-
lega aftur, því að vaxandi
lægð var undan norðaustur-
strönd Bandaríkjanna í gær
og sigldi hraðbyri í áttina hing
að.
Guðmundisson 50 tunnur. Enginn
bátur er nú úti héðan.
Vélbáturinn Sæunn kom í dag
með 2,500 tómar síldartunnur
frá Keflavíik til Haraldar Böðv-
arssonar og Co.
í rúma tvo mánuði hefur ver-
ið unnið að því að stækka síld-
ar- og fiskimjölsverksmiðju
Akraness. Hefur verkinu miðað
vel áfram þótt margt sé eftir.
Afköst nýju verksmiðjunnar eiga
að verða 4,500 mál á sólanhring
Þá er og verksmiðjan að láta
byiggja gríðarmikla mjöilskemmu
neðan við Akursbraut, um 675
fermetra og 3,000 rúmmetra. Á
skemman að getað rúmað 7,000
tonn af mjöli. — Oddur
Nýr læknir og
prestur í Nes-
kaupstað
Neskaupstaður, 22. nóv.
NÝR yfirlæknir Jón R. Árna-
son, hefur nýlega tekið við starfi
á sjúkrahúsinu. Kam hann hing-
að frá Svíþjóð, en þar hefur
hann dvaldizt við nóm og störf
undanfarin 7 ár. Eggert Brekkan
lét af starfi um mánaðamótin
september-október og gegndi Ól-
afur Jónsson, aðstoðarlæknir,
störfum yfirlæknis þar til hinn
nýi læknir kom.
Sr. Árni Sigurðsson, er vann
prestkosningarnar hér með mikl
um yfirburðum, er nú kominn
l tiil bæjarins með fjölskyldu sína.
— ASÍ Jb/ng
Framih. af bls. 1.
gegn kjörbréfum LÍV, ættu vafa
saroa setu á þinginu og tók dæmi
um það.
Las hann upp bréf frá bónda
í Skorradal í Borgarfirði, sem
kvaðst hafa orðið meira en lít-
ið undrandi yfir að sjá í Mbl.
nafn Magnúsar Jakobssonar, sem
fulltrúa á ASÍ-þingi, því Magnús
væri fluttur úr Borgarfirði.
Hann hefði verið sendur af
koromúnistum til að láta kjósa
á þingið í verkalýðsfél. Skildi
sem hann befði eitt sinn verið
formaður í. Hins vegar hefði
ekki verið haldinn fundur í
Skildi árum saman og ekki verið
kosið í félaginu á ASÍ-þingið.
Samt mætti Magnús Jakobsson
þar, sem fulltrúi Skjaldar. í bréf
inu sagði ennfremur, að vara-
formaður félagsins væri reiðu-
búinn til að votta, að ekki hefði
verið kosið á þingið og Magnús
ekki fulltrúi þess.
Benti Pétur á að þessi maður
hefði greitt atkvæði gegn kjör-
bréfurn LÍy. Loks ræddi Pétur
nokkuð um róg Hannibals er-
lendis um LÍV og verzlunar-
menn og að lokum aldamótahugs
unarhátt Hannibals og fyl.gifiska
ASÍ-stjórnarinnar varðandi
skipulag sambandsins og aðferðir
þeirra í kjarabaráttunni.
Eggert G. Þorsteinsson talaði
um, að margir þeirra, sem greitt
hefðu atkvœði gegn kjörbréf-
um LIV, væru í glerhúsi, því
Miimingargjöf um
Jón biskup Vídalín
FORSETA ÍSLANDS hefir borizt
að gjöf kr. 19.925,00 frá frú Soff-
íu Sigurbjörnsson í Leslie, Saek.,
Kanada, til minningar um Jón
biskup Vídalín. Ákvörðun um
hvernig fénu skuli varið verður
tekin í samráði við biskup og
þjóðminjavörð. Frú Soffía er ætt
uð úr Borgarfirði ey.stra, fædd
1876, dóttir Sigurjóns Jónssonar
bónda á Háreksstöðum.
(Frá skrifstofu Forseta íslands)
Akranes og 1
nærsveitir
AFGREIÐSLA Morgun-
blaðsins fyrír Akraneskaup-
stað er að Vesturgötu 105 sími
205. Afgreiðslan annast einn-
ig alla fyrirgreiðslu fyrir
Morgunblaðið vegna kaupenda
í nærsveitum bæjarins, þ.e.:
Innri Akraneshreppur, Mela-
sveitin, Leirársveit, og Skil-
mannahrepp. Umboðsmaður-
inn er Jón Bjarnason
réttur margra fulltrúa værl
meira en lítið vafasamur.
Fór Eggert nokkrum orðum
um fals og yfirdrepsskap Hanni-
bals varðandi störf hans fyrir
verkalýðshreyfinguna og vitnaði
í ráðberratíð hans máli sínu til
sönnunar, einlkum í þáiverandi
ástand í húisnæðismálum.
Fjölmargir tóiku til roáls, sum
ir oftar en einu sinni, en ekki
verða umræður raktar nánar,
Kommúnistar og frarosóknar-
roenn héldu áfraro að reyna að
réttlæta gerræði sitt og lagabrot
á verzlunarfólki.
Lýðræðissinnar hins vegar
héldu áfram baráttu sinni fyrir
hagsmunum ve rzlu n a rfól ks i ns og
fordæmdu harðlega lagabrot
hins vafasama „meiri’hluta“
kommúnista og framsóknar-
manna.
★ ★
Fyrir kvöldmatarhlé var
skýrsla miðstjórnar og reikning-
ar samþykktir.
Eftir hlé voru sýndar rnyndir
frá Listasafni ASÍ og samlþykkt-
ar þa'kkír til gefandans, Ragnars
Jónssonar forstjóra. — Síðan
voru öryggis- og tryggingarmái
rædd fram eftir kvöldi.
» EFTIRFARANDI vísa var
kveðin undir einni af ræðum
Guðmundar Björnssonar frá
Stöðvarfirði, leiðtoga Fram-
sóknarmanna á hinu svo-
nefnda Alþýðusambandsþingi,
en hann hafði mikið talað um,
að veita þyrfti prenturum
„rassskellingu" með því að
leyfa þeim þingsetu með skil
yrðum:
Flengir hann með fimbulróm
fer svo læknishönd um sárin.
Fylgja vill hann Félagsdóm,
en — fresta honum næ-'
árin.
Indverskir flug-
menn þjálfaðir
í Rússlandi
Moskvu, 22. nóvember. —
NTB — Reuter.
Haft er eftir áreiðanlegum heim-
ildum í Moskvu í dag, að um þess
ar mundir dveljist í Sovétríkjun
um átta indverskir flugmenn við
þjálfun í meðferð orrustuþota af
gerðinni MIG-21.
Fyrirhugað er, að Indverjar
fái slíkar flugvélar frá Sovétríkj
unum innan skamms. Herma
sömu fregnir, að þeir muni fá
fjórar vélar í desember en tvær
eftir áramót. Eigi Indverjar að
nota þær einhvern tilskilinn tíma
heima fyrir, áður en Indverjar
fái heimild til að hefja fram-
leiðslu slíkra flugvéla í Indlandi.
Flugmennirnir indversku eru
sagðir hafa verið í Rússlandi frá
því í séptember.