Morgunblaðið - 23.11.1962, Blaðsíða 3
MORGinSBLAÐlÐ
3
Föstudagur 2S. nóv. 1962
VIÐ hittum að máli Jón Ey-
þórsson, veðurfræðing, í þeim
tilgangi að rabba við hann um
jöklamælingar hér á landi.
Eins og kunnugt er eru jöklar
á íslandi stórlega að láta und-
an síga, og fáir, ef nokkur,
munu hafa fylgzt betur með
því undanhaldi en Jón.
— Hvernig stóð á því, Jón,
að þú fórst að gera mælingar
á breytingum jökla. Þetta
mun ekki beinlínis heyra und-
ir þína grein.
„Meðan ég dvaldist í Noregi
tók ég eitt sumarið þátt 1 rann
sóknum á jöklinum Jötun-
heimar með prófessor Ahl-
mann, sem síðar varð einn af
fremstu jöklafræðingum að
, minnsta kosti norðan Alpa-
fjalla. Mitt hlutverk í þeim
leiðangri var aðallega að gera
veðurathuganir og bera sam-
Undanhald jöklanna
Efri myndin var tekin af Sólheimajökli 1928 en sú neðri 1955.
Greinilega sézt hve mikið jökullinn hefur látið undan síga.
Þessi mynð er tekin í lóninu, sem myndaðist þar sem Sólheimajökull lokaði farvegi Jökulár.
Göngin, sem áin rann um, sjást á myndinni, hálffull af íshröngli, en það er ekki svo þétt að
þarna myndist stöðuvatn. -qr
Sólheimasandi séu. Þarna safn
aðist svo mikið vatnsmagn og
myndaði yfir hundrað metra
djúpt lón sem ruddi sig svo
nokkrum sinnum hvert sum-
ar. Kringum 1940 dró jökull-
inn sig það langt til baka að
Ihann lokaði eikki lengur gil-
inu.
Af þessu hef ég dregið þá
áætlun, að jökullinn sé núna
svipaður og hann var skömmu
áður en Árni Magnússon rit-
aði þetta, eða um 1680. Þá var
hann að ganga fram, en núna
er hann á undanhaldi.
Það hefur verið álit margra
vísindamanna, að veðurfar
hafi versnað snögglega á 18.
öld, og þá valdið mikilli þjóð-
félagslegri hnignun. Ég hef
hins vegar verið þeirrar skoð-
unar að aðalharðindatímahil
í sögu okkar hafi ekki hafizt
. fyrr en á 17. öld.“
— Þú hefur farið víðar
þetta fyrsta sumar?
„Ég fór lika þetta fyrsta
sumar vestur á Snæfellsnes
og setti merki við Snæfells-
jökul. Gígurinn, sem Jón
Loftsson hefur látið taka vik-
urinn úr, var þá fullur af snjó,
og það var hægt að ganga
'beint af vestari gígharminum
út á jökulinn. Nú hefur þetta
breytzt mikið, og jökullinn
þynnzt svo mikið, að til þess
að komast af gígnum yfir á
jökulinn, verður að klífa nið-
ur 60—80 metra djút gil.“
. — Geturðu nú að lokum
sagt mér hvað Sóiheimajökull
hefur dregið sig mikið í hlé?
„Á þessum 32 árum, sem ég
hef fylgzt með honum hefur
hann stytzt um rúman kíló-
meter, eða nánar tiltekið um
1041 meter.
an breytingarnar á jöklinum
Og veðurlagið.“
— Þú hefur þá fengið á-
huga á að athuga sambandið
milli þessa hér heima,
„Sumarið 1930 var ég búinn
að fá nokkur hundruð króna
styrk frá Menningarsjóði, og
notaði sumarleyfið mitt til að
setja upp merki við Sólheima-
jökul og fleiri jökulsporða úr
Eyjafjallajökli. Með mér í
þessu var Haraldur Jónsson,
sem núna er kennari í Gröf
í Breiðuvík á Snæfellsnesi.
Hann var þá nemandi í Kenn-
araskólanum, og vann það á
sínum námsárum að rita upp
mikið af ferðabók Sveins
Pálssonar. Handrit hans var
svo seinna lagt til grundvallar
við þýðingu og útgáfu bókar-
innar. Við hlóðum nokkrar
vörður við hvern jökulsporð,
og mældum fjaxlægðina þaðan
að jökulröndinni.“
— Hefur nökkuð verið hægt
að gera sér grein fyrir breyt-
ingum á jöklunum fram- að
þeim tíma?
„Ekki náttúrlega nákvæm-
lega, en þó má láta sér renna
grun í margt þar að lútandi
samkvæmt gömlum heimild-
um. Til dæmis segir frá því í
riti eftir Árna Magnússon,
Chorografica Islandica, að Sól
heimajökull sé jökulsporður
úr Mýrdalsjökli, sem beygi
til vesturs neðst og hafi þá
þannig lokað fyrir klettagil
þar sem upptök Jökulsár á
Úrbælur í raimagnsmálum
á Kjalarnesi og í Kjós
MATTHÍAS Á MATIESEN og
Alfreð Gíslason bæjarfógeti
hafa lagt fram tillögu til þings
álylktunar um, að Alþingi á-
lytkti að fela raforkumálaráð-
herra að láta fara fram, svo
fljótt sem auðið er, úrbætur á
rafmagnsveitum Kjalarneshrepps
og Kjósarhrepi>s til þess að leysa
úr þeim vandræðum, sem nú eru
á flutningi rafmagns til þessara
byggðarlaga.
Miklar rafmagnstruflanir. -
í greinargerð segir svo:
Um alllangt skeið hafa átt sér
stað mjög miklar rafmagnstrufl-
anir í Kjalarneshreppi og Kjósar
fareppi, sem valið hafa miklum
erfiðleikum og tjóni. Truflanir
þessar munu stafa af því, að
saman hafa verið tengdar raf-
magnsveitur þessara tveggja
hreppa. Rafmagnslína sú, sem
flytur rafmagn eftir Kjalarnesi
og er eign Reykjavíkurborgar,
er ófullnægjandi til þess að
flytja einnig rafmagn til byggð-
anna í Kjósinni. Við lagningu
línunnar var að sjálfsögðu ek'ki
gert ráð fyrir því mikla álagi,
sem nú er orðið vegna tenging-
ar rafmiagnsveitunnar í Kjósar-
hreppi svo og vaxandi notkunar
rafknúinna tækja við heimilis-
og landbúnaðarstörf.
Með flutningi þessarar tillögu
og væntanlegri samþykkt henn-
ar er þess freistað að koma í
veg fyrir frekari vandræði en
orðið er í rafmagnsmálum þess-
ara tveggja hreppa.
Enn stolið úr bíl
Á MELLI kl. 5,4S —6,30 síðdeg-
is í gær var brúnum pakka stol
ið úr Austin-Gipsy-bíl, sem skil
inn var eftir á bifreiðastæðinu
gengt verzlun Björns Kristjáns-
sonar við Vesturgötu.
f pakkanum var nýr klæðskera
saumaður frakki og nýjar buxur
Frakkinn er brúnleitur með Ulst
er-sniði og buxurnar úr ensku
efni, brúnyrjóttu. Verðmæti
fatnaðarins er um 7000 krónur.
Ef einhverjir hafa orðið varir
við þjófnaðinn, eða geta gefið
upplýsingar, væri rannsóknarlög
reglunni það kærkomið.
Það færist nú mjög í vöxt að
s' olið sé úr bílum, og æittu menn
að ’iafa það í huga ,þegar þeir
skilja við bdla sína ólæsta.
Fé ekki komið
a gjoí
ÞÚFUM, 21. nóvember: — Við
ísafjarðardjúp er allsstaðar því
nær snjólaust vestan djúpsins, og
allsstaðar fé úti enn þá, nema
hrútar, sem eru nýkomnir á hús.
Er gott meðan svona viðrar og
þetta tíðarfar helst. — P.P.
Innanfélagsmót í
atrennulausum
stökkum
FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD ÍR
gengst fyrir innanhússmóti í dag,
föstudag 23. nóv. kl. 5 í Iþrótta-
faúsi Menntaskólans. Keppt verð-
ur í langstökki og þrístökki án
atrennu.
STAKSTEIIVAR
Hagsmunum
alþýðu fórnað
Ofbeldisverkin, sem kommún-
istar og Framsóknarmenn unnu
á Alþýðusambandsþingi, eru
mikið áfall fyrir heildarsamtök
launþega. Afleiðingin af slíku
framferði getur auðvitað ekki
orðið önnur en sú, að sér-
hver löghlýðinn og góður borg-
ari þessa lands líti á samkundu,
sem slíkir menn stjórna, sem
marklaust þing. Við hina örlaga-
riku atkvæðagreiðslu munaði 26
atkvæðum á þeim, sem hlíta
vildu lögum og hinum, sem brjóta
vildu þau. Fulltrúar Landssam-
bands islenzkra verzlunarmanna
eru 33 að tölu. Þannig er ljóst,
að þeir, sem lögum vilja hlíta,
eru fleiri en ofbeldismenn-
irnir. Fulltrúar I>ÍV eiga fullan
lagalegan rétt til þess að taka
þátt í ákvörðunum þingsins með
atkvæði sinu. Ákvarðanir, sem
teknar kunna að verða, án þess
að telja atkvæði þeirra, eru því
markleysa og geta einskis orðið
virtar af þeim, sem byggja vilja
á lögum og réttL
Vissu hvað þeir gerðu
Þeir menn, sem þannig hafa
leikið samtök alþýðunnar, að
ekkert mark er takandi á störf-
um eða ályktunum þings Alþýðu-
sambands íslands vissu hvað þeir
voru að gera. Þeir töldu réttlæt-
anlegt að fórna hagsmunum al-
þýðu fyrir eigin völd. Þá skiptir
það engu máli, þótt heildarsam-
tök alþýðunnar setji svo niður,
að mörg ár muni taka að endur-
heimta það traust og virðingu,
sem menn hafa horið fyrir þeim.
Og auðvitað þótti kommúnistum
gott að geta fengið Framsóknar-
menn til löghrotanna með sér. i
fyrsta lagi rýfur það einangrun
kommúnista, en það, sem þeim
finnst þó að vonum mest um vert,
er samsekt Framsóknar, sem
þeir munu hagnýta til hins
ítrasta.
Afleiðing
samsektarinnar
Þegar Framsóknarmenn nú ern
opinberlega orðnir samsekir
kommúnistum um lögbrot og of-
beldisverk, munu hinir síðar-
nefndu hagnýta sér aðstöðuna til
fullnustu. Þeir munu ekki láta
sér nægja litla fingurinn, heldur
taka höndina alla. F- steinn Jóns
son hefur komið flokki sínum í þá
aðstöðu að taka upp vörn fyrir
verstu verk kommúnista, þau að
vega að réttarskipan og lýðræði.
Hann hefur þjappað flokki sín-
um og kommúnista saman i óað-
skiljanlega „þjóðfylkingú', á lík-
an hátt og misvitrir leiðtogar
gerðu á sínum tíma í ríkjum
þeim, sem nú eru nefnd lepp-
ríkin. Þeir höfðu ekki manndóm
til að snúa til baka, þegar lög-
brotin vorn hafin, og því miður
eru ekki miklar vonir til þess,
að Eysteinn Jónsson og sú vinstri
fylking, sem nú ræður Fram-
sóknarflokknum, snúi af villu
síns vegar. Þetta vita kommún-
istar og gleðjast því ákaft.
Alltaf einhver olía
í gær var skýrt frá því hér
í blaðinu, að á nokkrum ökrum
hefði sprottið upp fagurgul blóm,
þar sem „fóðurkál“ átti að vaxa,
og stafaði þetta af því, að fræ,
sem hændur höfðu keypt, skaut
upp olíurapsi í stað fóðurraps,
þótt það þroskaðist ekki svo, að
hægt væri að nýta það til olíu-
vinnslu. Hafa ýmsir bændur orð-
ið fyrir miklu tjóni af þessu.
Ekki var þess getið, hver selj-
andi fræsins hefði verið, en
menn fleygðu því í gær, að það
leyndi sér ekki hver hann mundi
vera, úr því að um olíujurt vaeri
að ræða, það hlyti að vera eitt-
hvað tengt SÍS.