Morgunblaðið - 23.11.1962, Qupperneq 14
14
MORGVNBLAB1Ð
Fðstudagur 23. nóv. 1962 'j
Staðarfellskirkja
afhent sðfnuði
SUNNTJDAGINN 4. nóv. s.l. var
hátiðaguðsþjónusta haldinn í
Staðarleilskirkju á Pellsströnd í
tilefni af því, að kirkjan, sem
var ríkiseign, hefur nú verið af-
hent söfnuðinum. Allir prestar
prófastsdcemisins voru mættir:
Eggert Ólafsson, prófastur,
Kvennahrekku, Ásgeir Ingibergs
son, prestur í Hvammi og Ingi-
berg Hannesson, prestur á Hvoli
í Saurbæ. Margt fólk var við
kirkju, m.a. kennarar og nem-
endiur Staðarfellsakóla og nokkr
ir Pellsstrendingar, sem nú eru
búsettir í Reykjavík og víðar.
Bíkið lét fylgja kirkjunni
myndarlegt álag, og fyrir það
fé var kirkjan endurbyggð í
sumar, svo að þetta er nú h‘ð
fegursta guðshús að öllum ytri
og innri búnaði. Viðgerð þessi
var framkvæmd af Davíð Kr.
Jenssyni, byggingameistara,
Langagerði 60, og Jóni Kristófers
syni, trésmið, Rauðalæk 23,
báðum tií heimilis í Reykjavík,
og verður ekki annað séð en
al:lt sé unnið af mikilli prýði og
vandvirkni. Kirkjan var og mál-
uð og prýdd af Jóni Björnssyni
og Grétu, konu hans. Hefur þetta
gamlla og fagurbyggða hús því
íklæðzt vönduðum skrúðklæð-
um úr varanlegu efni tiil fram-
búðar.
Sr. Ásgeir gat þess, að khikj-
unni hefðu nýlega borizt góðar
gjafir. Systurnar Björg og Þuríð
ur, dætur Magnúsar Friðriksson-
ar frá Staðarfelli, gáfu skírnar-
font, hinn mesta kjörgrip, í til-
efni af 100 ára afmæli Magnús-
ar heitins, en það var 18. okt.
s.l. KvenfélagJð Hvöt á Pells-
strönd gaf vandaðan gólfdregil
í kirkjuna. Ingólfur Magnússon
frá Svínaskógi afhenti altaris-
könnu með bikurum á bakka.
Kannan er gerð af Jens Guð-
jónssyni, systursjmi háns, en hin-
ir munirnir eru frá verkstæði
Guðlaugs heitins Magnússonar,
gullsmiðs, bróður Ingólfs. Eru
gripir þessir gefnir til minningar
um foreldra þeirra bræðra, Krist
ínu Jónsdóttur og Magnús Hann-
esson frá Svínaskógi. Þá gaf
Þórður Kristjánsson á Bre‘ða-
bólsstað og fjölskylda hans kirkj
unni sálmanúmeratöfiu.
Að guðsþjónustu lökinni bauð
sóknarnefnd Staðarfelissóknar
ölilum kirkjugestum til kaffi-
drykkju í Staðarfellsskólanum.
Þar rakti Pétur Ólafsson, bóndi
í Stóru-Tungu, sögu kirkjunnar.
Hún er reist af HallgrLm1 Jóns-
syni, bónda á Staðarfelli árið
1801, og bar hann einn ailan
kostnað af byggingunni. Að
smíði kirkjunnar Vann Gutt-
ormur Jónsson o.fl. Kirkjan var
eign Staðarfelisbænda, þar til
1920, að hún fylgdi með jörð-
inni, er Magnús Friðriksson gaf
ríkinu Staðarfell. Kirkjan var
frá upphafi vandað og veglegt
hús, enda hefur lítið sem ekkert
Staðarfellskirkja
verið gert við hana, þar til nú
í súmar.
Þjónandi prestar við Staðar-
fellskirkju hafa þessir verið:
1891—1905: Sr. Kjartan Helga-
son í Hvamm*.
1905—1944: Sr. Ásgeir Ásgeirs-
son, s. st.
1944—1956: Sr. Pétur T. Oddis-
son, s. st.
1956—1958: Sr. Þórir Steph-
ensen, Hvoii.
Í958 og síðan: Sr. Ásgeir Ingi-
bergsson, Hvammi.
Margir hafa unnið vel að mál-
efnum kirkjunnar, m.a. Þórður
á Breiðabólstað, er verið hefur
forsöngvari um 40 s.l. ár.
Auk Péturs töluðu undir borð-
um sr. Ásgeir Ingibergsson, Ing-
ólfur Magnússon, Einar Kristjáns
son, skólastjóri, Laugarfelli, og
sr. Egigert á Kvennabrekku.
Pluttu þeir kveðjur og árnaðar-
óskir.
Svo hittist á, að þennan diag
voru rétt 6 ár liðin frá dánar-
degi sr. Péturs í Hvammi, en
hann fórst með sviplegum hætti
sunnudaginn 4. nóvember 1956.
Var hans sérstaklega minnzt, svo
og annarra góðra kennimanna
og leikmianna, er unnið hafa
drengilega að málefnum Staðar-
felLskirkju fyrr og síðar.
F. Þ.
— Utan úr heimi
Framih. af bls. 12.
Við óformlegri atkrvæða-
greiðslu, sem stofnað var til með-
al fréttamanna kom í ljós, að
3 til 4 á móti einum, studdu
Kennedy.
Það væri ekki sanngjarnt, að
segja að skrif fréttamanna í heild
um kosningabaráttu Nixons hafi
verið h’lutdræg, en kosninga-
ferðalög eru þreytandi og
taugaspennan er mikil. Þegar
leið á ferðalagið varð. erfiðara
að leyna fjandskapnum, sem
hafði verið að grafa um sig
milli Nixons og margra frétta-
mannanna, sem með honum voru
Kosninigabaráttan 1960 hófst
eins og venja er til með blaða-
mannafundum, sem haldnir voru
með vissu millibili. Kosninga-
baráttan hafði ekki staðið nema
í hálfan mánuð, þegar tveir
fréttaritarar, sem fóru ekki dult
með það, að þeir væru hlynntir
Kennedy, slógust í hóp þeirra, er
rituðu um kosningabaráttu Nix-
ons. Þetta voru fréttaritarar
stórra blaða í austurríkjum
Bandaríkjanna.
Fjandsamlegar spurningar
í Springfield í Missouri, hélt
Nixon fund með fréttamönnum
og þar vörpuðu nokkrir þeirra
fram fjandsamlegum spurning-
um, sem gerðu frambjóðandann
og ráðgjafa hans æva af reiði.
Eftir þetta hélt Nixon ekki blaða
mannafundi fyrr en eftir kosn-
ingarnar. Frá þessu augnabliki
ríkti mikill kuldi milili Nixons
og frétta-manna og fjarlægðist
hann þá æ meir uppfrá þvi. Eft-
ir því, sem traust Nixons á blöð-
unum minnkaði jókst að sama
skapi trú hans á sjónvarpi. Hann
— Hvað segja
þeir I fréttum
— Bækur....
Frahald af bls. 13.
og fallegri bækur.
— Á blöðunum höfum við
menn til að dæma bækur.
Þeirra hlutverk er meira að
fjalla um efni þeirra og segja
álit sitt á því. Teknisku hlið-
inni má samt ekki gleyma.
Gefur új 21 bók fyrir jólin.
— íslenzk bókaútgáfa bygg
ist mest á gjafabókasölu. Lít
ill hluti bókanna jafnast yfir
árið. Lang mestur hlutinn er
gefinn út fyrir jólin.
— Útgáfufyrirtæki mitt,
Skuggsjá, gefur út fyrir þessi
jól 21 bók, ef með eru taldar
barnabækurnar. Helztu bæk-
urnar eru „Líf er að loknu
þessu“, eftir Jónas Þorbergs
son og fjallar um miðilsgáf-
una og eðli hennar, „Úr heims
borg í Grjótaþorp" eftir Lúð
vík Kristjánsson (ævisaga
Þorláks O. Johnson), tvær
bækur eftir Hagalin, „Margt
býr í þokunni" og „Að duga
eða drepast", tvær litmynda-
bækur eftir Ingólf Daviðsson,
„Tré og runnar“ og „Garð-"
blóm“, tvær bækur eftir Gret-
ar Fells „Það er svo margt“
og „Ljóðvængir", þættir úr
ýmsum áttum eftir Ævar R.
Kvaran „Fólk og forlög“
„Lærið að sauma“ eftir Sig-
ríði Arnlaugsdóttur, ,Af hunda
vakt á hundasleða“ eftir
ar Mikkelsen og loks tvær
skáldsögur „Það vorar að Furu
lundi“ eftir Margit Söderholm
og „Tvísýnn leikur“ eftir Ter-
esa Charles.
endurtólc si og æ, að sjónvarps-
ræður hans og Kennedys hefðu
ékiki haft slæmar afleiðingar fyr
ir hann, eins og flestir álitu.
Nixon fannst sjónvarpið gefa
honum tækifæri til þess að tala
við fólikið milliliðalaiust, án þess
að eiga á hættu að fréttamenn
rangfærðu orð hans.
Eftir ósigurinn í forsetakosn-
ingunum gagnrýndi Nixon og
nánustu fylgismenn hans hvern-
ig mörg blöð þjóðarinnar hefðu
ritað um kosningabaráttuna. Þeir
gagnrýndu þetta sín i milli, en
ekki opinberlega. Harðastri gagn
rýni beindu þeir gegn surnum
stórblöðum austurríkjanna, og
það tók að spyrjast út, að Nixon
teldi að blöðin ættu miikinn þátt
í ósigri sínum.
„Þegar þú hefur tapað“
Sumir beztu vina Nixons með-
al fréttamanna voru ekki sam-
máia því, að blöðin ættu sök á
ósigri hans.
Einn þeirra sagði: „Það voru
margar ástæður tii þess, að Nix-
on beið ósigur, og flestar þeirra
eru í beinu sambandi við álkvarð
anir, sem hann tók sjálfur.
Kennedy taldi t.d. mjöig mis-
ráðið af Nixon að eyða tíma
og kröftum í kosningaferð um
Suðurríkin, þar sem demókrat-
ar ráða lögum og lofum. En ég
gefi ráð fyrir því, að þegar þú
hefur tapað forsetakosningun-
um mieð eins litlum atkvæðamun
og Nixon, þá getirðu ekki kennt
sjálfum þér um það. Ég held,
að þú verðir að kenna það ein-
hverju, sem þú gazt ekki ráðið
við. Annars héldirðu ekki söns-
um.“
Næstu tvö árin eftir að Nix-
on hafði beðið ósigur, heimsótti
hann Washington af og til, en
hann hafði ekki samband við
eins stóran hóp fréttamanna þar
og áður. Hann snæddi stundium
kvöldverð með nokkrum frétta-
mönnum, sem honum fannst, að
túlikað hefðu skoðanir hans rétt,
en hann gerði enga tilraun til
— Innan v#ð 3
Jbi/s. orð . . .
Framhald af bls. 13 ,
ennþá allt of skammt á vegi.
Það er ekki hægt að gera sér
néina grein fyrir því, hvað i
þetta verða mörg bindi. Auk
þess verða svo sjálfsagt imn-
ar ýmsar minni bækur, hand-
bækur og sérorðabækur. 1
— Hafa ekki útvarpsþætt- i
irnir komið ykkur að miklu
gagni?
— Við höfbm komizt í sam-
band við stóran hóp manna
út um allt land gegnum þá,
og fengið þar fjölmörg orð,
sem ekki eru til á prenti.
Mörg þeirra eru bara til á l
vissum landssvæðum.
— Einhvern tíma rakst ég
á spurningalista um ýmis
gömul heiti á verkfærum og
verksháttum. Hafið þið gert
mikið af. því að senda út slíka
lista?
— Við höfum sent út
nokkra lista, og komum sjálf-
sagt til með að gera það í enn
ríkara mæli. Annars hefur
þessi listi sjálfsagt verið frá
Kristjáni Eldjárn. Hann hefur
sent út allmarga slíka lista og
fengið þar margar gagnlegar
upplýsingar, sem við fáum
svo aðgang að.
Að lokum spyrjum við
Jakob, hvað hann hafi fengið
mörg orð gegnum þættdna,
sem hann hefði ekki dæmi
um annars staðar. Hann kvað
seðla úr talmálssafni vera
milli 20 og 30 þúsund, og fjöl-
mörg þeirra hafa aldrei kom-
væru, vissi hann ekki, en
megnið af þeim hefðu þeir
fengið gegnum þættina.
Að svo búnu kvöddum við
Jakob. |
að vingast aftur við fréttaritara
seim hann taldi ósanngjarna. y
Kom ekki á óvart .
Vegna þess, sém á undan var
gengið kom árás Nixons á
fréttamenn á fundinum eftir að
hann beið ósigur í Kaliforníu
ekki á óvart. Minnsta kosti ekki
þeim fréttamönnum, seim fylgt
höfðu honum eftir í kosninga*
baráttunni 1960 og á ferðum
hans meðan hann var varaforseti
Fjandskapurinn hafði verið að
grafa um sig árum saman. En
Nixon tókst að halda gremju
sinni í garð fréttamanna i
skefjun eftir 1960, en nær allir
vissu af henni og hún jókst á
meðan að kosningabaróttunni
fyrir fylkisstjórakosnimgarnar
stóð. Þegar Nixon hafði tapað
þeim kosningum, sagði hann það
sem honum bjó í brjósti.
Iðnfræðingar nefn
ist tæknifræðingar
IÐNAÐARNEFND neðri deildar
hefur aff tilmælum Iðnaðarmála-
■áffuneytisins lagt fram frum-
varp á Alþingi um rétt manna
til aff kalla sig verkfræffinga,
húsameistara og tæknifræffinga.
Hafa einstakir nefndarmenn ó-
bundnar hendur um afstöffu til
þess.
1 athugasemdum viff frumvarp
iff segir m. a.:
„Höfuðnýmæli þessa frum-
varps er það, að hér er la-gt tii,
að heitið tæknifræðingur verði
tekið upp sem starfsheiti þeirra
manna, sem nú nefnast iðnfræð-
ingar, samkvæmt lögum nr. 24
13. júní 1937, um rétt manna til
að kalla sig verkfræðinga, húsa-
meistara eða iðnfræðinga. Enn
íremur, að tæknifræðingar megi
nota orðið „ingeniör" í samibandi
við starfstitil sinn, en verkfræð-
ingar noti samsvarandi erlent
starfsheiti: ,,diplom-ingenjör“ eða
„civil-ingeniör“.
Mínar beztu þakkir til allra er minntust mín á sextugs
afmælinu 13. þ. m.
Guðmundur Sigurðsson, Túngötu 39.
Bróðir okkar
ÞORLÁKUR LÚÐVÍKSSON
kaupmaður,
andaðist 21. þessa mánaðar í Landsspítalanum.
Lovísa Lúðvíksdóttir, Sigurður Lúðvíksson,
Sigríður Lúðvíksdóttir, Bjarni Lúðvíksson,
Dagmar Lúðvíksdóttir, Karl Lúðvíksson,
Margrét Lúðvíksdóttir, Georg Lúðvíksson.
Maðurinn minn
JÓHANN STEFÁN BOGASON
sem andaðist 15. þ. m. verður jarðsunginn frá Neskirkju
laugardaginn 24. nóv. kl. 10,30.
Fyrir hönd barna, systkina og annarra vandamanna.
Halldóra Mangúsdóttir, Ægissíðu 150.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför móður minnar og tengdamóður
ÓLAFÍU GUDMUNDSDÓTT*
Guðmunda Lilja Sigvaldadóttir,
Svavar Bjamason.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför
JÓNÍNU KRISTÍNAR JÓNASDÓTTUF
frá Borgarnesi.
Guð blessi ykkur ölL
Böm og tengdaböm.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og virðingu
við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og
ömmu
BJARNEYJAR MAGNFRÍÐAR BJARNADÓTTUR
Höfðaborg 23,
Vilborg Tryggvadóttir,
Valdimar Tryggvason, Ingibjörg Magnúsdóttir,
Svavar Tryggvason, Sveinbjörg Haraldsdóttir
og barnabörn.
danska Grænlandsfarann Ein izt á bækur. Hve mörg orðin