Morgunblaðið - 23.11.1962, Side 22
22
MORCVNBLAÐIÐ
Fostudagur 23. rióv. 1962
ÍR og Ármann fengu
stigin á 1 marks mun
En Fram vann öruggan sigur
lR, Ármann og Fram bættu við
stigatölu sína í fyrrakvöld er
handknattleiksmótinu var fram
haldið að Halogalandi. ÍR vann
Víking eftir spennandi leik með
14 gegn 13. Með sömu stigatölu
vann Ármann Þrótt eftir að hafa
allan tímann haft forystu. Loks
vann Fram öruggan sigur .yfir
Val. Enginn leikjanna var sér-
stæður fyrir góðan handknatt-
leik, en allir með góðum Jeik-
köflum og skemmtilegum sprett
um.
Fram og
FH keppa
á sunnud.
Á SUNNUDAGINN fer frana
nýstárlegur leikur í hand-
knattleik að Hálogalandi. Mæt
ast þar íslandsmeistarar Fram
innanhúss og íslands-
meistarar FH utanhúss — sem
einnig um margra ára skeið
voru Islandsmeistarar inni,
unz Fram tókst að ná titlin-
um frá þeim sl. vor.
Það er Handkmattleikssam-
bandið sem stendur að þessum
leik en hann hefst kl. 4 síð-
degis.
Það mun marga fýsa að sjá
þessi snjöllu lið í leik sem
gæti verið enn skemmtilegri
fyrir það, að eniginn titill er
í veði eða meistaratign.
Fram stóð sig með mikilli
prýði í leik við dönsku meist-
arana í Árósum fyrir stuttu.
Liðið sýndi þar mjög góðan
leik og vakti mikla athygli á
ísl. handknattleik þar ytra.
FH hefur einnág gert garðinn
frægan. Gaman væri að sjá
liðin á fullstórum velli — en
það næstbezta býðst á sunnu
daginn að sjá þau að Iláloga-
landi.
ÍR—Víkingur 14:13
Víkingur hafði lengst af for-
ystu í leiknum, en aldrei með
meira en einu marki og alltaf
jöfnuðu ÍR-ingar. Undir lokin
var það markvörður ÍR, ungur
og óreyndur en góður leikmaður
sem stöðvaði forystu Víkings og
varð til þess að ÍR komst yfir.
Liðin voru ákaflega jöfn að
styrkleika og gat sigurinn lent
jhjá hvOru sem var. ÍR-ingar voru
iþó öllu jafnari í skotum Og vörn
liðsins hefur batnað í síðustu
leikjum.
Varnir beggja liða geta þó enn
batnað mikið eins og 2/7 mörk á
30 mín bera með sér. Hjá IR
voru Gunnlaugur og Hermann
meginstoðir en xmgu mennirnir
Þórður og Ólafur lofa góðu.
Gunnlaugur hefur ekki lengi ver
ið jafn mistækur í skotum og nú.
Hjá Víking eru beztar stoðir
Pétur Bjarnason, Rósmundur og
Sigurður Hauksson.
Ármann—Þróttur 14:13
Ármenningar náðu þegar for-
ystu og þó Þróttm- jafnaði 3:3
var forysta Ármanns ekki ógnað
eftir það. Ármenningar höfðu
alltaf einhver undirtök í leikn-
um, ekki sízt fyrir það að Guð-
mundi Gústafssyni í marki Þrótt
ar tókst ekki vel að verja þetta
kvöld. Ármann hafði ágætt for-
skot í lokin og hélt því þrátt
fyrir góðan lokasprett Þróttar.
Lúðvík, Hörður og Árni eru
stoðir Ármanns en Grétar, Þórð-
ur og Haukur hjá Þrótti. Leik-
urinn var aldrei svipmikill.
Fram—Valur 19:12
Fram nóði strax undirtökum
og hafði leikinn á sínu valdi.
Þurftu Framarar aldrei að beita
sér verulega og munu flestir hafa
komið ósveittir frá leiknum.
Valsmenn börðust vel en lið
þeirra stendur langt að baki liði
Fram í öllum listum handknatt-
leiksins. í hálfleik stóð 9:5 fyrir
Fram og sá munur óx enn unz
lokastaðan varð 19:12.
Guðjón, Ingólfur og Karl Ben
eru sem fyrr uppistaða Fram-
liðsins, en í liðinu er hvergi
veikur hlekkur. Hjá Val veltur
á ýmsu, menn jafnir en engin
stjarna.
Jón Friðsteinsson Fram, lengst til hægri stökk upp af línu og hugðist skjóta,
Vals hindraði hann. Markmaður Vals var við öllu búinn, en dæmt var á þetta víti,
en vamarmaður
. (Ljósm. Sv. Þ.)
Þróttur ,f lytur' í Njðrvasund
Efnir til happdrættis til ágóba fyrir
félagsheimili
13. AÐALFUNDUR Knattspyrnu
félagsins Þróttar var haldinn sl.
sunnudag, 18. þ.m. í Glaumbæ.
Var fundurinn mjög fjölmennur
og fór 'hið bezta fram.
í forföllum formanns las vara-
formaður, Óskar Pétursson,
skýrslu stjórnarinnar, ,sem lá fyr
ir fundarmönnum fjölrituð í
bókarformi ásamt reikningum fé
lagsins. Var skýrslan hin ýtarleg
asta, og bar hún það íheð sér, að
starfsemi félagsins er mjög um-
fangsmikil.
Ekki urðu miklar umræður á
fundinum, nema að mikið var
rætt um nauðsyn þess, að Þrótt
ur fái eigið athafnasvæði og fé-
lagsheimili, en Þróttur er eina
knattspyrnufélagið í Reykjavík,
sem ekki hefur verið úthlutað lóð
undir starfsemi sína. Það háir að
sjálfsögðu félaginu mjög og tefur
fyrir eðlilegum vexti og þroska
félagsins. Allt frá stofnun (1949)
hefur Þróttur verið á hinum
mestu hrakhólum, og þurft að
byggja upp starf sitt og halda
uppi félagslífi við mjög erfið skil
yrði og oft við alls óviðunandi
aðstæður.
Nú hefur stjórn Þróttar sótt um
lóð við Njörvasund fyrir starf-
semi sína og hafa á undanförnum
mánuðum farið fram viðræður
milU forráðamanna Þróttar og
þeirra aðila sem um slík mál
fjalla, svo sem Geir Hallgrímsson
borgarstjóra, Gísla Halldórsson,
forseta ÍBR, Þorstein Einarsson,
íþróttafulltrúa ríkisins, Aðalstein
Richter, skipulagsstjóra ríkisins
og Jónas B. Jónsson, fræðslu-
stjóra, og hafa allir þessir menn
sýnt Þróttí. mikinn áhuga og
skilning og hefur stjórn Þróttar
verið tjáð, að miklar líkur séu
fyrir því, að umsókn félagsins
verði tekin til greina mjög bráð
lega.
Eins og kunnugt er þá er vagga
félagsins á Grímsstaðarholtinu og
í Skerjafirðinum, og voru stofn-
endur félagsins flestir þaðan. En
Góðar tillögur fyrir Island
REYNIR Karlsson fþrótta-
kennari er nýkominn heim
frá setu á íþróttaráðstefnu
sem haldin var á vegum
Evrópuráðsins. Sótti Reynir
ráðstefnuna fyrir tilmæli
Menntamálaráðuneytisins og
stóð hún frá 5.—9. nóv. og
var haldin í Hennef í Þýzka-
landi. Reynir hlaut sína fram-
haldsmenntun sem ílþrótta-
kennari í grend við þann stað
og hafði þvi góð persónuleg .
sambönd, enda kom hann
reynslu ríkari og færandi
hendi íslenzkum jþróttum
heim aftur.
Reynir sagði okkur í gær
að það væri mikill hagnaður
ísl. íþróttahreyfingu að taka
þátt í því starfi sem Evrópu-
ráðið er að skipuleggja á
þessu sviði. Ella myndum við
fara mikils á mis.
Reynir skýrði okkur frá
helztu tillögum og ályktunum
þingsins og einkum eru það
þrjár sem skipta íslendinga
miklu. Þær eru þessar.
Samþykkt var á ráðstefn-
unni ályktun um að Evrópu-
ráðið ráði til sín hóp sérfræð-
inga eða þjálfara í ýmsum
íþróttagreinum og sendi þá
síðan til að halda námskeið
hjá fámennum þjóðum, eða
þeim sem skammt eru á veg
komnar í þessum efnum. Voru
tilteknar þjóðir eins og ís-
lendingar, írar, Kýpurbúar og
Tyrkir.
Kostnaður af þessu telur
þingið að eigi að greiðast
þannig, að Evrópuráðið greiði
ferðakostnað, en þau „stór-
veldi“ sem þjálfararnir komi
frá greiði laun mannanna.
Landið sem þeir kenna í
greiði aðeins uppihaldskostn-
að.
Þessi tillaga varð til eftir
viðræður Reynis við fulltrúa
Evrópuráðsins og var Reynir
m. a. sýndur sá heiður að
kynna tillöguna í þýzka sjón-
varpinu.
í öðru lagi var samþykkt
að hin stærri ríki Evrópu (til-
tekin lönd) skuldbindi sig til
að taka á móti — og greiða
allan kostnað ferðir og annað
— 6 þjálfurum árlega frá fyrr-
greindum löndum og ef til
vill fleiri þjóðum tíl þess að
þeir geti sótt námskeið í þess-
um löndum undir handleiðslu
færustu manna.
í þriðja lagi var samþykkt
að veita styrki til efnilegra
þjálfara í íþróttum, þannig að
þeir geti fengið tækifæri til
að sækja þau námskeið er þeir
hafa sérstakan áihuga á.
Evrópuráðið á að hafa alla
umsjón með þessum styrkjum.
Reynir sagði að þær tiUög-
ur sem hér hafa verið nefndar
hafi mikla þýðingu fyrir ís-
land. Hann sagði að í öllum
löndum væri nú innan knatt-
spyrnunnar haldin stighækk-
andi þjálfunarnáms'k. eins og
hér er gert. Við getum vel
haldið 1. og 2. stig en þarna
er fundin leið til að halda 3.
stigið á glæsilegan hátt.
snemma bættust fleiri og fleiri
í hópinn, úr öllum bæjarhlutum.
Ólíklegt er að úthlutað verði
íþróttasvæði við æskustöðvar
Þróttar, og hefur félagið því sótt
um áðurnefnt svæði, enda ekki
ástæða til annars en að færa út
kvíarnar eftir því sem félaginu
vex fiskur um hrygg, og mjög
nauðsynlegt, að félagið fái sinn
samastað, eins og önnur félög. í
þeim bæjarhluta, sem umbeðið
svæði Þróttar er, þar er ekkert
íþróttasvæði, en mikill fjöldi
barna og unglinga verða annað
hvort að sækja íþróttaæfingar um
langan veg, eða að leika sér á
götunni, og er hvort tveggja
mjög óæskilegt. Enginn æskulýðs
starfsemi er í þessu hverfi, nema
sú sem sóknarpresturinn, séra
Árelíus Níelsson sér um. Það er
því bráðnauðsynlegt að íþrótta-
félag sé starfandi í þessum bæj-
arhluta, þar sem unglingum gefst
kostur á hollum íþróttaæfingum
og þroskandi félagslífi. Það er því
von Þróttar, að þess verði ekki
langt að bíða, að umsókn félags
ins verði afgreidd í borgarstjórn.
Eins og kunnugt er, þá á í-
þróttahreyfingin í landinu við
mikla fjárhagsörðugleika að
stríða. Stjórn Þróttar gerir sér
það ljóst að mikið fjármagn þarf
tíl uppbyggingar ungUngastarf-
semi, og hefur stjórnin því ákveð
ið að hleypa af stokkunum mjög
glæsilegu happdrætti, sem hún
vonar að af verði nokkur hagnað
ur, sem verður látinn renna ó-
skiptúr í félagsheimilissjóð.
Hér er um leikfangahappdrætti
að ræða, allt fyrir alla, unga sem
gamla. Miðinn kostar aðeins kr.
10,00 svo öllum er gefinn kostur
á að eignast miða.
Stjórn Þróttar vonast tíl þess,
að allir velunnarar Þróttar og
fþróttahreyfingarinnar í heild,
styðji þetta góða málefni, og
freisti um leið gæfunnar.
Á síðasta aðalfundi voru eftir
taldir menn kosnir í stjórn Þrótt
ar:
Formaður: Jón Ásgeirsson.
Varaform.: Óskar Pétursson.
Gjaldk.: Guðjón Oddsson.
Ritari: Jón Björgvinsson.
Féhirðir: Börge Jónsson.
Form. handk.d.: Þórður Ás-
geirsson.
Unglingaleiðtogi: Jón Magnúss.
Til vara: Jens Karlsson oe Axel
| Axelsson.