Morgunblaðið - 23.11.1962, Blaðsíða 23
MORGVNBT AÐIÐ
23
Pr Föstuðagur 23. nóv. 1962
— Indland
Fraxnhald aí bds,
rr Nehru forsætisráðherra
ræðu, er hann flutti
fundi indverskra ungmenna i
dag, að Indverjar muni aldrei
láta kúgast af hótunum, þeir séu
reiðubúnir að færa hinar stærstu
fórnir til varnar landi sinu og
frelsi. Hann sagði m.a.: „óvinir
okkar eru í landi okkar. Okkur
er ógnað á alla vegu, en engin
þjóð, allra sízt Indverjar, geta
látið undan þeim ógnunum“. —
Nehru sagði, að þess mætti
vænta, að styrjöld við Kínverja
gæti tekið mörg ár.
Nehru skýrði einnig frá því á
þingfundi í Nýju Delhi í dag, að
hann hefði sent Chou En-lai,
forsætisráðherra Kína, bréf, viku
áður en Kínverjar lögðu fram
vopnahléstillögur sínar. í bréfi
sínu sakaði Nehru Pekingstjórn-
ina um að koma fram eins og
hún væri sigurvegari — en hann
kveðst vilja taka fram, að Ind-
verjar muni aldrei gefast upp,
hversu lengi, sem þeir verði að
berjast og hver svo sem úrslit
bardaganna verði.
1 dag komu fulltrúar stjórna
Bretlands og Bandaríkjanna til
Nýju Delhi til þess að kanna
ástandið og hernaðarþörf Ind-
verja. Einnig kom í dag fyrsta
flutningaflugvélin af tólf, sem
Bandaríkjastjórn sendir Ind-
verjum.
Af hálfu Bandaríkjastjórnar
hefur verið lýst ánægju yfir því,
að vopnahlé hefur komizt á, en
varað er við of mikilli bjartsýni,
því að tilgangur Kínverja kunni
að vera sá einn, að fá svigrúm
til undirbúnings frekari sóknar.
Mynd þessi var tekin 12. nóv. í Se La-fjaligarðinum. Indverskir hermenn ýta fallbyssuvagni.
Ástrnlíustjórn
styður Indverju
Canberra, Ástralíu, —
22. nóv. — NTB — Reuter.
Stjórn Ástralíu hefur boðið
að senda Indverjum herbúninga
og ullarteppi fyrir upphæð, sem
nemur nær þrjátíu milljónum ísl.
kr. Ennfremur kveðst stjórnin fús
að senda Indverjum vopn og skot
færi fyrir um 77 millj. kr., sem
ekki þurfa að greiðast fyrr en síð
Bertrant Russel skrifar
Pekingstjórninni
Peking, 22. nóv.
(AP-NTB-Reuter)
BREZKI heimspekingurinn Bert
rant Russel lávarður, hefur skír-
skotað til stjórnar Alþýðulýðveld
isins Kína að hún flytji her sinn
frá þeim landsvæðum, er voru í
höndum Indverja fyrir 8. sept.
sl. —
Fréttastofan Nýja-Kína skýrði
frá þessum tilmælum lávarðar-
■ins í dag, og því með, að þetta
væri þriðja bréf hans til Peking-
stjórnarinnar vegna landamæra-
deilunnar.
f bréfi sínu segir Russel, að
eftir hans mati sé sanngjarnt til-
boð Kínverja um, að báðir aðil-
ar hörfi um 20 km frá þeirri
vígstöðu, er var 7. nóv. sl. „En“,
segir lávarðurinn, „það, sem nú
virðist eina hindrun þess, að við-
ræður geti hafizt og vopnahlé
verði varanlegt, er krafa Ind-
verja um að miðað sé við þær
stöður, er báðir aðilar höfðu fyr-
ir 8. sept. sl.“ Spyr hann síðan,
hvort Pekingstjórnin sjái sér
ekki fært að verða við þessari
kröfu, svo að friðsamleg lausn
náist í máli þessu.
Brussel, 22. nóv. — NTB-Reuter
ÍHAFT er eftir táreiðanlegum
heimilduum í aðalstöðvum Efna
(hiagsbandalags Evrópu í Brússel
í dag, að stjórn Vestur-Þýzka-
lands ihafi tilkynnt aðildarríkjun
um, að hiún muni neita að stað
festa samninga um tengzl banda
lagsins og átján Afríkuríkja, ef
eitthvert eitt þeirra viðurkenni
stjóm Austur Þýzkalands.
Samningur sá, er um getur,
mun, samfcvæmit íiætl-un, eiga
að ganga í gildi 1. janúar 1963.
Ný vatnsveíta
HELLNUM, 26. nóv. — 1 haust
hefir hór verið unnið að vatns-
veitu fyrir Hellnahverfi, byrjað
var á greftri fyrir leiðslum seint
í sept. og er nú nýlokið við að
tengja í hús. Þetta er 5 km löng
vatnsleiðsla og er vatnið tekið
úr uppsprettum við svonefnt
Seljafhraun, sem er við hlíðar
Snæfellsjökuls. Mun neyzluvatn
varla gerast betra en þarna er
að fá.
Allar vatnsleiðslupípur eru úr
plasti, framleiddar á Reykja-
lundi. Skurðgröft annaðist Stein-
grímur Árnason frá Kistufélli
Lundarreykjadal og verklega að-
stoð veitti Gunnar Steinsen verk
fræðingur Reykjavík, en heima-
menn unnu að öðru leyti þetta
verk. Alþingismennirnir Sigurð-
ur Ágústsson og Jón Árnason
hafa greitt fyrir þessari fram-
kvæmd á mikilsverðan hátt.
Með þessari vatnsveitu er feng
in lausn á miklu vandamáli fyrir
þetta byggðarlag, sem frá fyrstu
tíð hefir búið við skort á vatni
til allra hluta. — K.K.
Rene Coty fyrrverandi
Frakklandsforseti látinn
París, 22. nóv. NTB-Reuter. -
RENE COTY, fyrrverandi
Frakklandsforseti er látinn,
áttræðúr að aldri. Coty var
árum saman þingmaður, tólf
ár í neðri deild en síðan í efri
deild franska þingsins. Hann
gegndi ýmsum ráðherrastöð-
um, var m. a. endurreisnarráð
herra eftir heimsstyjöldina síð
ari. Forseti landsins var hann
á árunum 1953—59, og það
var hann, er greip í taumana,
þegar stjórnleysið virtist ætla
að verða alls ráðandi í Frakk-
landi og fól völdin í hendur
de Gaulle forseta.
Er Coty vair kjörinn for-
seti, fékk hann viðurnefnið
„Óiþekkti Frakkinn". Mikil
ringulreið hafði ríkt við for-
setakjörið og varð hann að
lokum fyrir valinu eftir 13
atfevæðagreiðslur. Sagði Coty
þá, að eini raunverulegi
bandamaður sinn hefði verið
„jólasveinninn" því að þing-
menn efri deildar höfðu verið
áfjáðir í að ljúka forsetakjör-
inu af til þess að komast heim
Rene Coty
í jólaleyfi. Helzta ástæðan til
þess, að Coty var þá kjörinn,
var sögð sú, að hann ætti
enga persónulega fjandmenn,
þrátt fyrir 30 ára feril sem
stjórnmálamaður.
Er Coty fékk völdin í hend-
ur de Gaulle, lagði hann að
veði stöðu sína sem æðsti yfir
maður ríkisins því að honum
var orðið ljóst að franska
þjóðin átti ekki nema tveggja
kosta völ — de Gaulle eða
stjórnleysi og borgarastyrjald-
ir, þar sem Frakkar mundu
berjast gegn Frökkum.
Vildi efla þroska Frakka
sem lýðræðisþjóðar
Á árunum milli fyrri og
síðari heimsstyrjaldarinnar
var Coty forystumaður flokks,
er kallaðist „vinstri lýðveldis-
flokkurinn“. en eftir síðari
heimsstyrjöldina gekk hann í
flokk óháðra íhaldsmanna. —
Hann var einn þeirra 600
þingmanna, sem í Vichy 10
júlí greiddu atkvæði með því,
að stjórn Pétains fengi í hend-
ur einræðisvald. Eftir að de
Gaulle hafði stofnsett stjórn
Frjálsra Frakka í Alsír, voru
þessir 600 þingmenn sviptir
rétti til þess að taka framar
virkan þátt í stjórnmálum.
Er hernámi Þjóðverja lauk,
var mál þessara manna rann-
sakað og 200 þeirra, þ. á m.
Coty og Robert Sehuman
fengu aftur sín pólitísku rétt-
indi.
Persónulegt markmið Cotys
sem stjórnmálamanns var æ-
tíð að efla þroska Frakka sem
lýðræðisþjóðar. Það fékk þvá
augljóslega mikið á hanri, að
verða að krefjast þess 1958,
að lýðræðið yrði gert óvirkt,
— um skeið, a.m.k. svo að
þjóðinni yrði bongið frá
bræðravígium. Hann leit svo
á, að forsetinn ætti að vera
yfir dægurþras stjórnmálanna
hafinn, svo að hann hefði
sem mesta möguleika tii þess
að líta á málin af réttsýni, er
mikið lægi við. Honum voru
stjórnarlög Frátóka lengi mik-
ið áhyggjuefni og skírskotaði
jafnan til Bretlands í þeim
efnum, sem fyrirmyndar.
Vitnaði hann oft í því sam-
bandi til orða Francois Maur-
iac „Frakkar eru allra þjóða
heims verst fallnir til þess að
búa við lýðræði og þess vegna
höfum við allt síðan 1789 eytt
tímanum í að öfunda Frakka
af stjórnarlögum þeirra......
En grundvöllur stjórnmála-
hugsunar Rene Coty eru senni
lega eftirfarandi orð hans:
„Einstaklingurinn verður allt-
af að vera númer eitt, sá, er
mestu ræður í ríkinu — í
senn markmið og tæki starf-
serni þess. Land er raunveru-
lega lifandi vera. Riki er að-
eins hægt að styrkja og
treysta með sífelldri þróun og
endurnýjun."
— Adenauer
Framhald af bls. 1
í dag gerði Adenauer stjórn
flofeksins grein fyrir Spiegel mál
inu í smáatriðum. í orðsendingu
sem út var gefin, að fundinum
loknum segir, að stjórnin muni
leggja ítarlega skýrslu um málið
fyrir þingið í Bonn. Ennfremur
segir, að stjórnin byggi afstöðu
sína í málinu á þrem meginatrið
um:
1. Grunur um landráð sé full
gild ástæða til þess að halda á-
fram rannsókn málsins.
2. Prentfrelsi sé einn mikil-
vægasti þáttur lýðræðisins.
3. Að bæði þýzkir dómstólar
og saksóknari ríkisins eigi fullt
traust þjóðarinnar.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að Adenauer hafi
ekki rætt stjórnarkreppuna að
neinu ráði, en hann hafi ful‘1-
yrt við flokkstjórnina að það
hafi ekki verið ríkisstjórnin er
fyrirskipaði saksóknara ríkisins
að hefjast handa um rannsókn
hjá „Der Spiegel".
Fréttastofan DPA skýrði frá
því í dag, að fundizt hefðu gögn
er sýndu, að Adolf Wicht, ofursti
starfsmaður öryggisþjónustunnar
hefði haft samband við ritstjórn
támaritsins. Wicht var grunaður
um að hafa opinberað leyndar-
skjöl. þegar mál þetta bar á
góma.
Skipulagsstjóri flokksins
Hermann Dufhues sagði á
fundi með fréttamönnum i
kvöld, að Adenauer kanzlari
hafi í hyggju að veita ungu
blóði í stjórn Vestur-Þýzka-
lands. Ekki fékkst Dufhues til
þess að segja nánar um þær
fyrirætlanir, en sagði á hinn
bóginn, að aldur færi ekki
eingöngu eftir árafjölda. Dut
hues var að þvi spurður,
hvort Adenauer hyggðist
segja af sér á næsta ári. Svar
aði hann því til, að sá er hætti
á skilnað hætti einnig á, að
fyrri skuldbindingar yrðu að
engiu gerðar. Nú hafa Frjáls
ir demókratar rofið stjómar
samstarfið, og því væru kristi
Iegir demókratar ekki lengur
bundnir samkouNulaginu um,
að Adenauer segi af sér
kanzlaraembættinu fyrir kosn
ingarnar 1965.
Trúloíunarhringar
Hjálmar Torfason
gullsmiður
Laugavegi 28, 2. hæð.