Morgunblaðið - 23.01.1963, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 23. janúar 1963
Bókhald
Tökum að okkur bókhald
Og uppgjör. Getum bætt
við nokkrum fyrirtækjum.
Bókhaldsskrifstofan Þórs-
hamri við Templarasund.
Simi 24119.
Lítið armbandsúr
(vinargjöf) tapaðist frá
Hreyfli að Sólvallarvagn-
stæði. Vinsamlega hringið
í síma 36010. Góð fundar-
laun.
ísskápur, eldavél, sófasett
Til sölu stór ísskápur, stór
eldavél og sófasett. Uppl.
í síma 19316 í hádegi.
Vön vélritunarstúlka
óskar eftir aukastarfi,
helzt heimavinnu. Uppl. í
síma 20449.
Mótatimbur
Vil kaupa 2—5 þúsund fet
af notuðu mótatimbri, 1x4
og 1x6 eða 1x7. Sími
33336 næstu kvöld.
Stig'in saumavél
til sölu, Tjarnarbraut 29,
kjallara, Hafnarfirði.
Húsgagnasmiðir
óskast nú þegar.
Húsgagnavinnustofa
Árna H. Árnasonar
Laugavegi 42.
Saumanámskeið
hefst föstudaginn 1. febr.
að Mávahlíð 40.
Brynhildur Ingvarsdóttir.
Amerísk hjón
óska að taka á leigu 2 eða
3 herb. og eldhús með hús-
gögnum. Svar sendist afgr.
Mbl. merkt: „3890“.
Keflavík
Óska eftir 4ra herb. íbúð.
Símstöðin Keflavíkurflug-
velli gefur upplýsingar.
Bflmótor
Austin 12 til sölu. Uppl. í
síma 16810 eftir kl. 6 e. h.
Keflavík — Nágrenni
Þorramatur, norðlenzkt
hangikjöt, svið, bringur,
hvalur, hrútspungar,
ávextir, grænmeti o. fl.
Sendi Jakob, Smáratúni.
Sími 1826.
Rennibekkur
óskast til kaups. Uppl. í
síma 32184.
Ungur
og ábyggilegur maður ósk-
ar eftir atvinnu. Aðeins
hreinleg vinna kemur til
greina. Tilboð sendist Mbl.
merkt: „3125“.
Hann skal búa uppi á hæðunum,
hamraborgirnar skulu vera vígi
hans. Brauðið skal verða fært hon-
um og vatnið handa honum skal
eigi þverra. (Jes. 33,16).
f dag er miðvikudagur 23. Janúar.
23. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 4:04
Síðdegisflæði kl. 16:22.
Næturvörður vikuna 19. til 26.
janúar er í Vesturbæjar Apóteki.
(Sunnudag í Apóteki Austurbæj-
ar).
Næturlæknir í Hafnarfirði vik
una 19. til 26. janúar er Eiríkur
Björnsson, súni 50235.
Læknavörzlu í Keflavík hefur
í dag Ambjörn Ólafsson.
Neyðarlæknir — sími: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opiff alla
virka daga kl. 9,15-8, laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga frá kl.
1-4 e.h. Simi 23100.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7 laugardaga frá
kl. 9-4 og helgidaga frá kl. 1-4.
Orð lífsins svarar í síma 10000.
Helgafell 59631237. VI. 2.
n Mímir 59631247 = 6
I. O. O. F. 9 = 14412314 = 9. O.
1. O. O. F. 7 = 1441238J4 = Kvm.
Breiðfirðingafélagið hefur starfsemi
sína á þessu ári með félagsvist og
dansi, miðvikudaginn 23. janúar i
Breiðfirðingabúð. Athygli er vakin á
góðum verðlaunum. Félagar fjölmenn
ið og takið með ykkur gesti, en auk
þess eru allir Breiðfirðingar og aðrir
velkomnir.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur held-
ur afmælisfagnað í Þjóðleikhúskjall
aranum, miðvikudaginn 23. þ.m. kl.
7 e.h. Góð skemmtiatriði, leikþáttur
og söngur. Tilkynnið þátttöku sem
allra fyrst 1 áður auglýstum símum.
Útivist bama: Börn yngri en
12 ára, til kl. 20,00; 12—14 ára
til kl. 22,00. Börnum og ungl-
ingum innan 16 ára aldurs er
óheimill aðgangur að veitinga-
og sölustöðum eftir kl. 20,00
/. m
af ■
Frá Náttúrufræðifélaginu
Á fundi I Binu isl. náttúrufræSifé-
Iagi i 1. kennslustofu Háskólans,
mánudaginn 28. janúar kl. 20,30, mun
fil. cand. Haukur Tómasson, jarófræð-
ingur Raforkumálaskrifstofunnar,
flytj erindi: Niðurstöður jarðfræði-
rannsókna vegna Búrfellsvirkjunar.
Vegna áætlunar um virkjun Þjórs-
ár nálægt Búrfelli í jórsárdal, hafa
þar hin síðustu misseri farið fram
stórfelldar jarðfræðirannsóknir á veg-
um raforkumálastjóra, og hefur Hauk-
ur Tómasson unnið að þeim og haft
umsjón með þeim.
sízt íslenzkir, orðið að gera sér að
Löngum hafa jarðfræðingar, ekki
góðu að rannsaka sjálft yfirborð jarð-
ar og draga af þvi ályktanir um það,
sem undir liggur. En á hugsanlegum
virkjunarstöðum við stórár, eins og
Þjórsá undir Búrfelli — þar sem jarð
fræðin er augljóslega orðin „hagnýt
vísindi" — er ekki aðeins yfirborðið
kannað gaumgæfilega og kortlagt,
heldur einnig þreifað djúpt og þétt
niður í berglögin með jarðborun og
grefti.
X erindi sínu mun Haukur Tómas-
son rekja ýmsa þætti í jarðsögu stað-
arins og að nokkru leyti héraðsins
allt frá myndun elztu bergiaga i Þjórs
árdalsfjöllum (á öndverðri ísöld eða
fyrr) tii þess usla, sem Tungnár-
hraunin ollu í vatnakerfi Suðurlands,
er þau flæddu þar yfir (fyrir aðeins
4—8 þúsund árum).
Æskulýðsfélag Langholtssafnaðar.
Almennur fundur feliur niður í
kvöld vegna prófa.
Kvenfélagið Aldan heldur fund
miðvikudaginn 23. janúar kl. 8,30 e.h.
að Bárugötu 11. — Takið með ykkur
handavinnu.
Nýlega hafa verið gefin sam-
an í hjónaband Sigríður Jóns-
dóttir og Haraldur Hafsteinn
Pétursson prentsmiðjustjóri Lyng
heiði 18, Selfossi. (Ljósm.: Studio
Gests Laufásvegi 18).
Sl. sunnudag voru gefin saman
í hjónaband af séra Óskari J.
Þorlákssyni, fris Jónina Hall,
Réttarholtsvegi 29, og Heiðar
Steinþór Valdemarsson, Sörla-
skjóli 50. Heimili þeirra verður
að Sörlaskjóli 50.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína, Guðrún Tyrfingsdóttir,
Lsekjartúni, Holtum, og Ólafur
Haraldsson, Miðey, Landeyjum.
Sl. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína Elsie Júníusdóttir,
Hjarðarbrekku Rangárvöllum, og
Runólfur Haraldsson, Efri-
Ráuðalæk, Holtum.
Nýlega opinberuðu . trúlofun
sína ungfrú Eygló Jónsdóttir
Selalaek, Rangárvöllum og Braigi
S. Haraldsson húsasmiðanemi
Brautarholtí, Skagafirði.
Hinn 20. þ.m. opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Steinunp Lára
Kristinsdóttir, bankajitari, Álf-
heimum 5, og Sigurberg Bragi
Bergsteinsson, nemandi í Verzl
unarskólanum, Sunnuvegi 23.
Hátt ég kalia
hæðir fjalla,
hrópað með til drottins halla.
Mínum rómi,
ljósum ljómi,
lyft þú upp að herrans dómi.
Ég vil kvaka
ég vil vaka
allt tU þess, þú vilt mig taka.
Til þín hljóður
guð minn góður
græt ég eins og barn til móður.
(Matthías Jochumsson:
+ Gengið +
22. janúar 1963.
Kaup Sala
1 Sterlingspund ... 120,39 120 69
1 Bandaríkjadollar .... 42.95 43,06
1 Kanadadollar ..... ... 39,89 40,00
100 Danksar kr .... 623,02 624,62
100 Norskar kr 602,89
100 Sænskar kr. ... 829,65 831,80
100 Pesetar 71,60 71,80
100 Finnsk mörk.... 1.335,72 1.339,14
100 Fransklr fr .... 876,40 878,64
100 Belgiskir fr 86,28 86,50
100 Svissn. frk ... 992,65 995,20
100 V.-Þýzk mörk.... 1.072,10 1.074,86
100 Tékkn. krónur ... 596,40 598,00
100 G-yUini 1.193,47 1.196,53
Bæjarbió í Hafnarfirði hefir frá því á annan í jólum sýnt
dönsku myndina Héraðslækninn (Landsbylægen). Þessi mynd
er byggð á skáldsögu Ib. H. Cavling og hefir sagan komið út
í islenzkri þýðingu. — í kvöld eru síðustu sýningar á myndinni.
UM
FRAMÚRAKSTUR
Það sem ökumenn verða að
athuga, þegar aka skal fram
úr öðru ökutæki, er þetta:
Er vegurinn framundan
hindrunarlaus og nógu breið-
ur, akki gatnamót, beygja,
hæð, vegræsi, eða er skyggni
slæmt, og gæta verður alls
öryggis um hraða. Þá verður
og að athuga vel umferðina
sem um veginn fer, að ekki
komi ökutæki á móti öku-
tæki því sem framúr á að aka.
Sé ökutæki að koma á móti
verður fjarlægðin að vera um
500 metrar og er þá miðað
við að ökuhraðinn sé um 45
—50 km/t. Gefa skal hljóð-
merki áður og um leið og ekið
er framúr, en aka ekki fram
úr fyrr en ökutækið sem á
undan ekur hefir hægt ferð-
ina og gefið merki um að það
hafi tekið eftir að annað öku-
tæki vilji komast framúr.
Beygið ekki yfir á vinstri
vegarbrún fyrr en ökutækið,
sem framúr var ekið sést vel
í baksýnisspeglinum. Þar sem
merktar akreinar eru, og þær
liggjá í sömu akstursstefnu,
má aka vinstra megin fram
úr, en gæta skal sérstakrar
varúðar þegar það er gert.
Lögreglu- sjúkra- og slökkvi-
•liðsbifreiðum skal víkja greið
lega fyrir og nema staðar vel
út á vinstri vegarbrún þar til
þær hafa ekið framúr.
Þeir, sem aka hægt eiga að
fylgjast með þeim sem á eftir
koraa, og hleypa þeim fram
hjá þar sem aðstæður leyfa.
óf mikið hefur orðið um
árekstra, sem beinlínis stafa
af því, að ökumenn hafa ekki
gætt þess, að framúrakstur
var bannaður þar sem ekið
var framúr, samkvæmt um-
ferðarlögum. Og oft hefir
litlu munað að slys hafi orðið.
Vegamálastjórnin þarf að
setja upp þau umferðarmerki,
er sýni hvar framúrakstur
er bannaður, og leiðbeining-
um um hvað vegalengdin er
löng, sem bannið nær til, á
sama merki.
Ökumenn! Hvað sem ykkur
liggur mikið á að komast á-
fram, þá munið að umferðar-
reglurnar eru settar til ör-
yggis.
( Frá Bifreiðaeftirliti ríkisins)
Alto-saxofónn,
sem nýr til sölu á Sund-
laugavegi 20, 3. hæð.
Upplýsingar í síma 34356
eftir hádegi.
JUMBO og SPORI
r
iK- -*-
—■■*—
Teiknari J. MORA
pTTN
Júmbó skýrði Spora óðamála frá
því, að peningafalsararnir væru alveg
á hælum þeirra og nú yrðu þeir að
hverfa á brott í skyndi.
-— Ég vildi bara óska þess, að þú
hefðir ekki sagt hótelverðinum nafn-
ið þitt, hélt hann áfram. — Og við
getum verið alveg öruggir um, að
þessum þorpurum kemur ekki dúr á
auga, fyrr en þeir hafa fundið okkur.
— Við skulum þá að minnsta kosti
flýta okkur burtu héðan, sagði Spori
ákveðinn og skimaði í allar áttir í
kringum sig og læddist síðan á eftir
Júmbó niður stigann.
— Þér eruð þó ekki að yfirgefa
okkur strax? spurði hótelvörðurinn
undrandi.
— Ja, ég veit, að þér skiljið það,
að ég þarf nú strax að sinna mikil-
vægum erindagerðum, svaraði Spori
vandræðalega.