Morgunblaðið - 23.01.1963, Qupperneq 17
tt > ; k Vjjl lí 0*
MORGUISBLAÐIÐ
Miðvikudagúr 23. janúár 1963
1*7
• Vandræði og tjón.-
Blaðamenn hafa séð svo um,
að flugmyndir hafa fengið á sig
folae ævintýra og ofurtækni, sem
er að nokkru rétt, einkum eru
flugmyndir á dagskrá í sambandi
við hertækni, eins og kunnugt
er. Okkur hinum fáu, sem með
flugmyndir höfum að gera hér á
landi, óar við hinni almennu fá-
fræði fólks á flugmyndum en
þær eru notaðar mikið til ým-
issa þarfa, en fáir hafa lagt í
Fornminjar og flugmyndir
Eftir Viggó Oddsson
að fræða fólk um þetta efni. Nú
er svo komið að þessi fáfræði
og þögn veldur bæði vandræðum
og tjóni svo ég vil reyna að bæta
nokkuð úr.
• í stríði og friði.
Flugmyndir eru aðallega
tvennskonar: Mælingamyndir og
könnunarmyndir, en þær síðari
eru m.a. notaðar til hernaðar-
þarfa, skemmtunar og fræðiiðk-
ana. Ýmist eru notaðar léttar
handhægar myndavélar eða
stórar myndavélar með miklum
aðdráttarlinsum til háflugs, líka
eru til mjög hraðvirkar mynda-
vélar tíl notkunar í þotur á lág-
flugi. í þessum myndavélum eru
stundum notaðar innrauðar lins-
ur og filmur til að skýra gróður-
mörk eða felustaði herja eins og
frægt er úr Kúbudeilunni. Að-
eins mælingamyndavélar hafa
þau gæði til að bera sem með
þarf til nútíma kortagerðar en
(hernaðarvélarnar eru oft mjög
skarpar og hentugar til síns
brúks.
• Byrjað efst.
Innlend kortagerð eftir flug-
xnyndum hófst hjá Forverk h.f.
árið 1956, en áður voru gerð
nokkur mynd-mosaikkort. Hér
var strax byrjað á toppinum með
beztu fáanlegu tækjum, en hlaup
ið yfir millistig þau er eldri
kortagerðir urðu að taka. Al-
gengasta notkun flugmynda er
að fá stækkaða flugmynd af um-
beðnu svæði. Fáir.vita að í einni
flugmynd eru margar tegundir
af skekkjum sem stafa af velt-
ingi flugvélar, og þess, að hæð-
armismunur lands og húsa mynd-
ast sem lengdarmálsskekkja og
getur numið um 20% utan um-
beðins mælikvarða á milli tveggja
punkta. I>essa skekkju er hægt
að minnka í mosaik-kortum en
iaga að fullu í dýrustu stereo-
xnælitækjum til kortagerðar.
Flugmynd getur því aðeins ver-
ið sem yfirlitsmynd og heimild-
artákn, ein sér.
• Kort til útflutnlngs.
íslenzk kortagerð er ekki toll-
vernduð, en vegna réttrar gengis-
skráningar eru íslenzk kort nú
ódýrari en víðast annars staðar
með sambærilegum tækjum og
gæðum. Gömul erlend fyrirtæki
undirbjóða oft verk til að ná
viðskiptum með því að nota gaml
ar úreltar vélor og geta oft vél-
eð viðskiptavini sína sem lítt
þekkja til mælinga, og fá því
óöruggari kort en frá nýjum
tækjunum sem venjulega eru að-
eins í nýrri kortafyrirtækjum.
Erlend kortafyrirtæki hafa sótzt
eftir að hafa samvinnu við korta-
gerðina Forverk h.f. þegar vinna
þarf mikil verkefni á skömmum
tíma, ef innlend verkefni leyfa
elíkt álag, en í Forverk eru beztu
taeki til kortagerðar sem fást.
• Keisarans föt 1963.
Síðan 1956 hefur mikið verið
mælt eftir flugmyndum hér á
landi t.d. mikið af „Stór-Reykja-
vík“, sveitabæir, ár og dalir svo
og önnur'byggðarlög. A'll oft fæ
ég ný og gömul kort sem þarf
að lagfæra eða mæla við. f»ar
hefíir gerzt alvarlegur hlutur;
handmældu kortin eru undan-
tekningalítið ónýt eða næstum
ónýt, eins og sýnt er á meðfylgj-
andi mynd 1—4. Munar oft 4—6
m hús úr húsi, jafnvel í dýrustu
miðbæjarkortum (sjá mynd 3).
í mynd nr. 2, er yfir 5 metra
hæðarskekkja á handm. kortinu,
þar sem skálduð er skeifa í land-
ið sem er aðeins bein brekka í
útjaðri kaupstaðar. í samskonar
kortum er leyfileg og fyrirfram
ákveðin skekkja eða hákvæmni
mælinga úr 12—1600 m hæð að-
eins á stærð við undirskál í hæð
og leti, eða sem svarar til þykkt
ar teiknibleksins á kortinu. Fyrst
er ég sá hinar furðulegu óná-
kvæmni handmældu kortanna,
varð ég undrandi, en nú er ég
undrandi ef ég finn eitthvað sem
passar við hið hárfína stereo-
líkan sem ég hef fyrir augum
af landinu sem teikna skal. Á-
nægjulegt er að bæjar og sveita-
félög skuli vaða svo í peningum
að þau skuli geta keypt keisar-
ans föt (kort) í jafn miklu granda
leysi og keisarinn í ævintýrinu,
þótt vel menntir ráðamenn segi
fyrir verkum og kaupum, hald-
andi að ævintýrið sé ævintýri.
• Sjáðu sjálfur.
Það er öllum fyrir verstu að
þegja yfir þessu lengur, það lend
ir á mér að reyna að lagfæra
þessi platkort, og basla við að
gera þau nothæf, en það er dýr-
ara að gera við ónýtt kort en að
teikna nýtt eftir flugmyndum.
Mér er það óskiljanlegt hvernig
þessar skekkjur verða til, nema
þá af hroðvirkni og skorti á virð-
ingu fyrir þeim ménningarlega
heiðri að vera íalið að skapa
sögulegt plagg til uppbyggingar.
Hvað um það — þá ættu þessi
skrif að vekja næga athygli og
aðhald hjá viðkomandi aðilum
sem aðhyllast hina gömlu tækni
sem ætti að vera jafn góð og
stundum betri í stöku tilfellum,
einkum í smáverkum. Ég hef
stundum verið spurður, hvað ég
mundi segja ef einhver segði að
myndmældu kortin sem ég geri
væru ónýt. Ég mundi segja hon-
um að líta í kortavélina og sann-
færazt um hve fjarstæðukennd
sú fullýrðing sé. Einnig fylgjast
erlendir sérfræðingar með gæð-
um og nákvæmni mælinga og
véla á ákveðnu millibili. Þótt
oft hafi verið gerðir leiðangrar
til að prófa myndmældu kortin
sem hafa verið notuð jafnóðum
í athafnalífinu í 6—7 ár, hafa
þau staðizt alla gagnrýni með
ágætum.
• Rústir í Viðey?
í sumar fór ég til Viðeyjar,
Árni Óla hélt þar fyrirlestur og
talaði eins og lifandi segulband,
við værum víst enn að hlusta á
þann ótæmandi fróðleik ef næg-
ar matarbirgðir hefðu verið í
eyjunni. Árni sagði m.a. að á
Skrauthól hafi verið sléttað yfir
margar gamlar rústir sem álitið
var að byggðar hefðu verið á
mismunandi tímum, sennilega frá
upphafi byggðar í eyjunni, ef
ég man rétt það er sagt var. Síð
ar náði ég mér í flugmyndir af
Viðey og tel mig hafa greint
marga reglulega ferhyrninga eða
garða undir grasbreiðunni sem
eru eðlilega mjög ógreinilegir,
rissaði ég þá upp til gamans eins
og sézt á meðfylgjandi mynd.
Væri gaman að athuga þessi
gömlu merkilegu bæjarstæði nán
ar. Má minna á að í Englandi
funduzt víkingaborgir af flug-
myndum svo og rústir í Egypta-
landi, sandi orpnar.
• JarSvegsbreytingar.
Vegna sérstöðu flugmynda-
tækninnar koma oft fyrir ýmis
atvik sem annars ber lítið á,
t.d. þegar athugaðar eru mis-
gamlar myndir í mælitækjum,
sézt oft að mýrar eru misháar
eftir því hve mikill raki er í
jarðveginum. Fer þetta sennilega
mjög eftir því hvernig undirlag
mýranna er, og frárennsli. Hef
ég mælt margra desim. hæðar-
breytingu á mýrum í sérstöku
landslagi, þótt fast og þurrara
land í kring sé óbreytt í smá-
atriðum. Væri fróðlegt að vita
hvort þetta fyrirbrigði hefur ver-
ið rannsakað, t.d. vegna væntan-
legra góðvega.
• Fornminjar á filmum.
í Belgíu hlustaði ég á fyrir-
lestur um verndun fornminja og
gamalla húsa ef eldur, stríð eða
annað óhapp skyldi eyða þeim.
Belgar ljósmynduðu húsin og
teiknuðu af þeim kort þar sem
allt útflúr, súlur og lögun kom
fram og hægt mundi vera að
endurreisa húsin í smáatriðum
á ný, ef með þyrfti. í París sá
ég eftirmynd og líkan af fornu
listaverki og hellu með mynd-
skreytingu sem unnin var af ljós-
myndum, þannig að í stað teikni-
borðs með blýanti sem tengt er
við mælivélina með myndunum,
er notaður slípisteinn sem sverf-
ur nákvæma eftirmynd listaverks
ins — í þeim mælikvarða sem
hentugast þykir. Á sama hátt eru
gerð líkön af landslagi t.d. Mt.
Blanc, í risastærð.
• Fjögur dagsverk.
Nú hef ég nefnt nokkur atriði
úr myndmælingum, nýrri tækni
þar sem uppfinningamennirnir
eru í fullu fjöri og stjórna fram-
förum og fræðslu. Þar eru fáar
gamlar kreddur sem við verð-
um að læra af kennurum sem
fengu kreddurnar hjá enn eldri
kennurum, — „aðeins það bezta
er NÆSTUM nógu gott“, segja
þeir, og málsháttur framfara og
vöndunar — afómaldar — breið-
ist út; annað væri stöðnun og
afturför. Það er háskalegt ef
tæknifróðir menn hætta að fylgj-
ast með framförum um leið og
embættisprófi er lokið, þá verða
þeir „gamlir“ á 10 árum ef ekki
er að gert, nefna má dæmi: Ung-
ur verkfr. og eldri deildu um
hvernig vinna skyldi kort, sá
eldri vildi aka út á land með bíl
áhöld og mann, til að vinna verk-
ið er tæki tvo daga, sá yngri
vildi vinna verkið eftir flug-
myndatækni og hafði sitt fram,
það tók alls um 30 mínútur og
miklum fjármunum var bjargað
og dýrmætur tími nýttist.
Margt fleira mætti segja um
þetta mál en einhvers staðar verð
ur að enda, t.d. hér.
Viggó Oddsson
„Tillagan“
flutt í borg-
arstjnrn
Á SÍÐASTA fundi borgar-
stjórnar Reykjavíkur flutti
Guðmundur Vigfússon (K)
ennþá einu sinni „tillöguna
sína“ um íbúðabyggingar í
Reykjavík og fylgdi henni úr
hlaði með „ræðunni sinni“.
Á eftir var tillagan svo birt
á „sínum stað“ í „Þjóðviljan-
um.“ Og að sjálfsögðu fékk
Guðmundur „svörin sín“ frá
Gísla Halldórssyni á borgar-
stjórnarfundinum.
Þar sem aðeins nokkrar vik
ur eru siðan Guðmundur
flutti tillöguna sína síðast, gat
Gísli auðvitað ekki að þessu
sinni miðlað honum miklum
fróðleik. Þó þurfti Gísli að
fræða Guðmund um það, að
fullgerðar íbúðir í Reykjavík
á sl. ári hefðu verið 598, en
ekki 535, eins og Guðmund-
ur hélt fram, þó að hann þætt
ist byggja tölu sína á skýrslu
byggingafulltrúans í Reykja-
vík, en þar kom einmitt skýrt
fram, að fullgerðar íbúðir á
árinu voru 598! Og þegar haft
er í huga, að Guðmundur
gekk út frá þessari kórvillu
í ræðu sinni, er óþarft að
skýra frá framhaldinu.
Lítið stóliðjuver
hér ekhi hag-
kvæmt
í NÝÚTKOMNU hefti af Iðnað-
armálum birtist m.a. úrdráttur úr
skýrslu Mr. C. E. Sims, sérfræð-
ings frá Sameinuðu þjóðunum,
sem fenginn var hingað í marz-
mánuði sl. til að athuga hag-
kvæmdi þess að koma á fót hér
litlu stáliðjuveri til að hagnýta
úrgangsjárn, er Iðnaðarmála-
stofnunin hefur um nokkurt
skeið unnið að því að rannsaka
skilyrði þess.
Niðurstaða sérfræðingsins er
sú að ekki sé unnt að framleiða
á íslandi steypustyrktarjárn á
samkeppnisfæru verði við inn-
flutt járn miðað við venjulegar
aðstæður. Fáanlegt magn úrgangs
járns og seljanlegt magn steypu-
styrktarjárns á heimamarkaðin-
um, sem hlyti að ráða stærð verk
smiðjunnar, veiti ekki þann
rekstrargrundvöll, sem nauðsyn-
legur verður að teljast. Líklegar
breytingar á þeim skilyrðum, sem
útreikningsforsendurnar miðist
við, virðist síður en svo benda
til hagstæðari niðurstöðu.
Beðið eftir
ný]u toll-
skranni
FLUGFÉLAG fslands hefur
að undanförnu íhugað að hefja
sérstakar vöruflutningaferðir
milli íslands og útlanda með
Skymastervél. Á blaðamanna-
fundi í gær, sagði Örn O. Johnson
að enn hefði ekki orðið neitt úr
þessum ráðagerðum vegna þess,.
að tollur væri enn reiknaður af
samanlögðu vöruverði og farm-
gjaldi. Þetta hefði það í för með
sér, að óhagkvæmt væri að flytja
með flugvélum margs konar
varning, sem mikið væri fluttur
með flugvélum erlendis. Sagð-
ist framkvæmdastjórinn vonast
til þess að breyting fengist á
þessu fyrirkomulagi, enda væri
ekkert réttlæti í því. Tollskráin
væri nú til endurskoðunar og
kvaðst hann vona, að einhver
leiðrétting yrði gerð hér á. Ef
svo yrði, þá mundi Flugfélagið
hefjast handa í þessu máli.