Morgunblaðið - 03.07.1963, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 3. júlí 1963
MOnCViSnLAÐlO
5
Verzluiuir og verksmiðjuhús JBP við Ægisgötu — (Ljósm. Sv. Þ.)
Blikksmiðja J.B.P. 80 ára
Um þessar mundir er Blikk-
*miðja J. B. Péturssonar í Rvík,
80 ára, en hún er fyrsta og elzta
blikksmiðja höfuðborgarinnar,
etofnuð á öndverðu ári 1883 af
Pétri Jónssyni, Kristjánssonar,
bónda að Skógarkoti í Þmgvalla-
sveit.
Bræðurnir J. Bjarni og Krist-
inn Péturssynir tóku ungir við
rekstri smiðjúnnar að föður sín-
um látnum árið 1908, en báðir
lærðu þéir blikksmíði. Bjarni var
forstjóri fyrirtækisins um nálega
fimm áratugi, eða þar til hann
lézt, árið 1956, en Kristinn var
jafnan meistari 1 smiðjunni og
hafði á hendi daglega verkstjórn
og þar vinnur hann enn fullan
vinnudag, nálega hálíáttræður að
aidri.
25. apríl, sem er fáeðingardagur
J. B. Péturssonar, hefur verið val
inn sem afmælisdagur fyrirtæk-
isins, þar eð stofndagurinn sjálf-
ur er ekki kunnur.
Blikksmiðjan hóf starfsemi
sina í leiguhúsnæði að Vestur-
götu 22, á 15 ferm gólfrými, en
1903 flutti hún að Nýlendugötu
10, og sex árum síðar, eða árið
1909, fluttist hún í eigið húsnæði
að Ægisgötu 4, þar sem hún hef-
ur starfað síðan ásamt í síðar
byggðu húsnæði að Ægisgötu 7,
og starfar nú á 11—1200 ferm
gólfrými.
Nokkuð íyrir árið 1910 setti
blikksmiðjan á stofn dósagerð og
framleiddi nokkur ár mikið af
blikkdósum fyrir niðursuðu Pét-
urs Bjarnasonar á ísafirði, en
þessi niðursuða stóð ekki lengi,
og voru vélarnar eftir það seldar.
Segja má að þessi dósagerð hafi
verið fyrsti vísirinn að fjölda-
framleiðsiu í smiðjunni.
Það var ekki fyrr en í lok
fyrra stríðs, að blikksmiðjan
byrjaði framleiðslu í stórum stíl,
en það var smíði á blikktunnum
undir meðalalýsi og voru þá
jafnframt smíðaðar trétunnur ut.
an um þessar blikktunnur, en
þær voru framleiddar í verk-
smiðju, er bræðurnjr ráku í
Tryggvagötu 10. Þessi tunnu-
framleiðsla var allmikilvæg í
rekstri fyrirtækisins allt fram
undir árið 1928, en 1932 hófst
tunnugerð í enn stærri stíl, þegar
byrjað var að fram'eiða tunnur
úr stáli fyrir lýsisútflutninginn
og var tunnusmíði langstærsti
liður framleiðslunnar eftix það
allt fram til ársins 1950, að aftur
dró úr tunnuframleiðslunni.
Þegar að draga fór úr fram-
leiðslu á stáltunnunum voru önn.
ur verkefni tekin inn í þess stað,
og er aðalverkefni verksmiðjunn
ar nú fjöldaframleiðsla á ýmis
konar járnvöru fyrir bygginga-
iðnaðinn, jafnframt því að smíð-
uð er öll algeng blikksmíði og
einnig rekur fyrirtækið járn-
vöruverzlun.
IJr járnvöruverzluninni.
Læknar fjarverandi
Árni Guðmundsson verður fjarver-
•ndi frá 5. júní til 8. júlí. Staðgengill
Björgvin Finnsson.
Arinbjörn Kolbeinsson verður fjar-
▼erandi frá 3. maí um óákveðinn tíma.
Staðgengill: Bergþór Smári.
Bergsveinn Ólafsson verður fjarver-
•ndi 1. til 7. júlí. Staðgenglar: Pétur
Traustason, augnlæknir, og Þórður
I>órðarson, heimilislæknir.
Bjarni Konráðsson verður fjarver-
•ndi til 1. ágúst. Staðgengill: Bergþór
Cmári.
Björn L Jónsson verður fjarverandi
jlímánuð. Staðgengill: Kristján Jónas-
#on, sími 17595.
Björn Guðbrandsson verður fjarver-
•ndi 1.—7. júlí.
Gunnlaugur Snædal, verður fjar-
▼erandi þar til um miðjan júli.
Guðmundur Eyjólfsson verður fjar-
▼erandi til 19. júlí. Staðgengill er
Erlingur Þorsteinsson.
Guðmundur Benediktsson verður
fjarverandi frá 1. júlí til 11. ágúst.
Staðgengill: Skúli Thoroddsen.
Guðjón Klemenzson i Njarðvíkum
▼erður fjarverandi í júlímánuði. Stað-
gengill: Hreggviður Hermannsson, á
lækningastoíu héraðslæknisins í Kefla
vík, sími 1700.
Hannei Finnbogason verður fjar-
▼erandi frá 11. júni til 1 júlí. Stað-
gengiíl er Víkingur Arnórsson.
Hannes Þórarinsson verður fjarver-
•ndi um óákveðinn tíma. Staðgengill
•r Bagnar Arinbjarnar.
Jónas Bjarnason fjarverandi til 6.
ágúst.
Jón G. Hallgrímsson. verður fjarver-
andi 1. til 10. júlí. Staðgengill er Ein-
ar Helgason.
Karl Gíslason, yfirlæknir á sjúkra-
húsi Akraness, verður fjarverandi um
tveggja mánaða skeið. Staðgengill:
Bragi Níelsson.
Kristinn Björnsson verður fjarver-
andi júlímánuð. Staðgengill: Andrés
Asmundsson.
Karl Jónsson verður tjarverandi frá
29 júní um óákveðinn tíma. Stað-
gengill: Kjartan Magnússon ,til júlí-
loka. Lækningastofa hans er að Tún-
götu 3 kl. 4—4.30.
Kristín E. Jónsdóttir verður fjar-
verandi frá 31. maí um óákveðinnnn
tima. Staðgengill: Ragnar Arinbjarnar,
nema vikuna 1.—8. júlí, Halldór Arin-
bjarnar.
Kristjana Helgadóttir verður fjar-
verandi til 3. ágúst. Staðgengill er
Einar Helgason, Lækjargötu 2, kl.
10—11 nema fimmtudaga ki. 6—7.
Símaviðtalstími kl. 11—12 (í sima
20442), og vitjanabeiðnir í sima
19369.
Kristján Hannesson verður fjarver-
fjarverandi frá 15. júnl til júlíloka.
Staðgengill er Erlingur Þorsteinsson.
Ólafur Geirsson verður fjarverandi
til 29 júlí.
Ólafur Helgason verður íjarverandi
til 5. ágúst. Staðgengiíl: Karl Sig.
Jónsson.
Páll Sigurðsson, yngri, verður fjar-
verandi frá 2. júlí um óákveðinn tíma.
Staðgengill: Stefán Bogason.
Ragnar Arinbjarnar verður fjarver-
andi 1.—6. júlí. Staðgengill: Halldór
Arinbjarnar.
Sigmundur Magnússon, fjarverandi
út júlímánuð.
Stefán Ólafsson verður fjarverandi
til 1. júli. Staðgengill: Ólafur Þor-
steinsson.
Sveinn Pétursson verður fjarverandi
um óákveðinn tíma. Staðgengill er
Kristján Sveinsson.
Valtýr Albertsson verður fjarver-
andi til 30. júní. Staðgengill Ragnar
Arinbjarnar.
Víkingur Árnason verður fjarver-
andi júlímár.uð. Staðgengill: Hannes
Finnbogason.
+ Genaið +
2. júlí 1963.
Kaup Sala
1 Enskt pund 120,28 120,58
1 Bandaríkjadollar .. 42.95 43,06
1 Kanadadollar .... 39,80 39,91
100 Danskar krónur 622,97 624,57
100 Norskar Kr 601,35 602,89
100 Sænskar krónur 829,34 831,49
10° Finnsk mork 1.335,72 1.339,1
100 Franskir fr. — - 876,40 878,64
100 Svissn. fr .. 992.25 994,80
100 Vestur-þýzk mörk 1.078.74 1.081,50
100 Gyllini 1.195,54 1.198,60
100 Beigískir fr. ........ ... 86,16 86,38
100 Pesetar .... 71.60 71,80
100 Tékkn. krónur 596.40 598.00
1000 Lirur _ 69,08 69,26
Keflavík 1 herb. óskast fyrir stúlku utan af landi. Uppl. í síma 1314. Moskwitch, árg. 1957 í góðu lagi til sölu. Uppl. að Rauðalæk 35, 1. hæð eftir kl. 18, næstu daga. — Sími 36460.
Til leigu Stofa til leigu fyrir ein- hleypan mann eða konu. Upplýsingar á Skarphéðins gdtu 18, efri hæð. Keflavík — Njarðvíkur Slysavarnarkonur! — farin verður skemmtiferð að Laugarvatni og Þingvöll- um sunnud. 14. júlí. Uppl. í síma 1162 og 1590.
Stór frystikista Steinsteypuvél með vibramótor, ný, til
til sölu. — Sími 33441. sölu með tækifærisverði. Upplýsingar í síma 32630.
4—5 herbergja íbúð Til sölu er stór sendiferðabill í góðu standi. Uppl. í sima 6030, Keflavík.
helzt í Vesturbænum ósk- ast til kaups sem fyrst. Nánari uppiýsingar í síma 16989.
TVEIR UNGIR, DANSKIR
íbúð óskast 5—6 herbergi. Uppl. í sima iðnaðarmenn óska eftir herbergi með húsgögnum í ca. 2 mán. Tilboð sendist
34735. Mbl., merkt: „5542“ sem fyrst.
Trjágarðaúðun Dragið ekki að láta úða garðinn. Pantanir móttekn- ar í síma 18686. Atvinna Vantar vanan mann til að hlaða einbýlishús í Kópa- vogi. Uppl. í síma 33261 frá kl. 12—2.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 47., 50. og 52. tbl. Lögbirtingablaðsins
1963 á hluta í húseigninni nr. 16 A við Skólavörðustíg,
hér í borg, þingl. eign Ingveldar Ólafsdóttir o. fl. fer
fram eftir kröfu Útvegsbanka íslands, og Gjaldheimt-
unnar í Reykjavik á eigninni sjálfri föstudaginn 5. júlí
1963, kl. 3 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 28., 30. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins
1963 á húseigninni nr. 1 við Sölvhólsgötu, hér í borg,
talin eign Arinbjörns Jónssonar, fer fram eftir kröfu
Einars Viðar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 5. júlí
1963, kl. 3Vi síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 47., 50. og 52. tbl. Lögbirtingablaðsins
1963 á m/s Erlingi RE. 50, þingl. eigandi Bátanaust h.f.,
fer fram eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og Fisk-
veiðasjóðs íslands við bátinn, þar sem hann liggur á
Reykjavíkurhöfn föstudaginn 5. júlí 1963, kl. 4 síðdegis.
Boigarfógetaembættið í Reykjavík. •
Stangaveiðimenn
Nokkur veiðileyfi óseld í Laxá í Leirársveit fyrir
ofan Eyrarfoss ásamt Eyrarvatni. Hús og bátar
á staðnum. — Leyfin seld í verzlun Helga Júlíus-
sonar Akranesi, sími 458.
Afvinna
Óskum eftir afgreiðslumanni í verzlun vora, helzt
vönum. —Einnig óskast maður á smurstöð vora.
Upplýsingar hjá Matthíasi Guðmundssyni.
Egill Vilhjálmssmi hf.
Laugavegi 118, sími 2-22-40.