Morgunblaðið - 31.08.1963, Blaðsíða 1
24. síður
Stjórnarkreppa í Finnlandi
Karjalainen baðst
lausnar í gærdag
Ástæðan dgreiningur um verðlagsmdl
landbúnaðarins — Langvinn stjórnar-
kreppa fyrirsjdanleg
Vélbáturinn Leiíur Eiríksson RE 333. — Ljósm. Sn. Sn.
Helsinki, 30. ágúst.
— NTB — AP —
DR. AHTI KARJALAINEN,
forsætisráðherra Finnlands,
Vélbáturinn Leifur Eiríksson
fórst í gærkvóldi
Eins
saknað
manns
tín bjargnð um borð í „Jón
Finnsson“ og „Slgfús Bergmnnn
UM TÍU leytið í gærkvöldi fórst vélbáturinn LEIFUR
EIRÍKSSON, RE 333. þar sem hann var að háfa síld á
miðunum um 80 sjómílur ANA af Raufarhöfn. Þegar blaðið
fór í prentun í nótt, höfðu björgunarskip bjargað öllum
skipverjum nema einum, Símoni Símonarsyni, Grettisgötu
57 B. Reykjavík, háseta, (ókvæntur), en þá var hans leitað
á slysstaðnum. Þar var þa þungur sjór og slæmt veður.
Bátarnir, sem björguðu skipverjum af Leifi Eiríkssyni,
voru Jón Finnsson og Sigfús Bergmann, sem voru að veið-
um á svipuðum slóðum. Blaðinu var skýrt frá því í gær-
kvöldi, að skipstjórinn á Leifi Eiríkssyni, Sverrir Bragi
Kristjánsson, væri um borð í Jóni Finnssyni, ásamt sjö
skipbrotsmanna, en ckki var unnt að ná sambandi við
hann, þar eð talstöðin í Jóni Finnssyni var ekki í fullkomnu
lagi. Tveir skipbrotsmanna voru um borð í Sigfúsi Berg-
mann og að sögn sk pstjórans á honum, Helga Aðalgeirs-
sonar, voru það Ingimundur Jónsson og Einar Skúlason.
Ekki tókst að ná san.bandi við þá í gærkveldi, þar sem
þeir höfðu gengið til náða, en hinsvegar átti Morgunblaðið
samtal við Helga Aðalgeirsson skipstjóra og skýrði hann í
böfuðdráttum frá slysinu, aðdraganda þess og björgun
mannanna. Fer frásógn hans hér á eftir, — en þess má
þó áður geta, að Leiíur Eiríksson var rúmar 90 lestir að
stærð, eikarskip, smíðað í Svíþjóð 1947, eign Bæjarútgerðar
Reykjavíkur. Ellefu manna áhöfn var á skipinu.
staðr.um annar með síldarnótina
á floti, og leituðu í myrkrinu.
En skilyrði voru því miður ekki
sem bezt.
Þess má enn geta, að Helgi
skipstjóri hafði það eftir þeim
skipbrotsmönnum, sem voru um
borð í báti hans, að Leifur
Eiríksson hefði sokkið mjög
skjótlega og skipti ekki neinum
togum, að um leið og báturinn
tók sjó inn á síðuna hallaðist
hann snögglega og lagðist á hlið-
ina. Af því má sjá að lítið svig-
rúm hefur verið fyrir skipshöifn-
ina að komast í bátana.
Að lokum má geta þess, að
engin slys urðu á skipbrotsmönn
um, sem bjargað var, og líður
þeim öllum vel.
Þeir geta sjálfir bar-
izt í næstu styrjöld
Krúsjeff um kínverska forystumenn:
Veljenje, Júgóslavíu, 30. ágúst.
— NTB — Reuter —
KRÚSJEFF, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, hélt í dag ræðu í
Velenje, og lagði áherzlu á að
Sovétríkin og Júgóslavía ættu að
tengjast sterkari höndum. En
hann lét jafnframt í það skína að
ekki hefði tekizt fullt samkomu-
lag um öll ágreiningsatriði á
fundum þeirra Títós forseta. —
Hann réðist að leiðtogum kín-
verskra kommúnista, sem hann
nefndi ábyrgðarlausa menn, sem
héldu að hægt væri að hyggja
upp nýja siðmenningu á rústum
kjarnorkustyrjaldar.
Krúsjeff spurði í ræðunni: „Með
hvaða rétti tala þessir óábyrgu
leiðtogar (Kínverja) fyrir hönd
þjóðar, sem ávallt hefur barizt
gegn óréttlætanlegum styrjöld-
um? Ef þeir vilja styrjöld, geta
þeir barizt í henni sjálfir; þeir
eiga. ekki að leika sér að örlög-
um milljóna annarra".
Forsætisráðherrann fór lofsam
Framh. á bls. 2
gekk í dag fyrir Kekkonen,
forseta, og baðst lausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt. Tók for-
setinn lausnarbeiðnina til
greina, en fór fram á að stjórn
in sæti enn um sinn, eða þar
til ný stjórn hefði verið mynd
uð í landinu. — Stjórnmála-
fréttaritarar telja að erfitt
verði um myndun nýrrar
stjórnar, og geti stjórnar-
kreppan staðið lengi. Karjala-
inen baðst lausnar eftir að
þrír ráðherrarr, fulltrúar
finnska Alþýðusambandsins,
ákváðu að segja sig úr stjórn-
inni til þess að mótmæla á-
kvörðun meirihluta hennar
um verðlagsmál landbúnaðar-
ins. Ráðuneyti Karjalainens
var myndað 13. apríl í fyrra
eftir langan aðdraganda (Sjá
bls. 23).
Stjórn Karjalainens skipuðu 5
ráðherrar Bændaflokksins, 3 í-
haldsmenn, 2 ráðherrar finnska
Þjóðarflokksins, 2 ráðherrar
sænska Þjóðarflokksins og þrír
fulltrúar finnska Alþýðusam-
bandsins (SAK). Voru það hinir
þrír síðasttöldu, sem sögðu af sér,
þeir Olle Saarinen, félagsmálaráð
herra, Onni Nárvanen, aðstoðar-
samgöngumálaráðherra, og Onni
Koski, aðstoðarfjármálaráðherra.
Meirihluti ríkisstjórnarinnar
hafði ákveðið nýtt verð á land-
búnaðarvörum, sem gengur í
gildi 1. september. Hið nýja verð
felur m.a. í sér að landbúnaður-
inn fær ca. 90 milljón marka
tekjuaukningu, og um leið að vísi
tala framfærslukostnaðar í Finn-
landi hækkar um 1,2 til 1,3 stig.
Búizt er við að þessi vísitölu-
hækkun verði brátt til þess að
ýmis stéttarfélög muni krefjast
launahækkunar.
Finnsku blöðin sögðu síðdegis,
að fall stjórnarinnar vegna verð-
Framh. á bls. 2
Talsmaður stjórnar S-Viet Nam:
Tilboð de Gaulles er einskis virði
Ástand enn alvarlegt — Vaxandi
óánægja í garð Ngo Dihh Nhu og
forsetans
Frásögn Helga Aðalgeirssonar
skipstjóra á Sigfúsi Bergmann
er svohljóðandi: Leifur Eiríks-
son kastaði á svipuðum slóðum
og við, eða um 80 sjómílur ANA
af Raufarhöfn. Þegar þeir voru
oð háfa stórt kast, fengu þeir á
sig kviku og skipið lagðist und-
an síldinni og náði ekki að rétta
sig aftur. Þá höfðu þeir ekki
háfað í fulla lestina.
Við vorum að háfa ekki all-
langt frá Leifi Eiríkssyni, þegar
við heyrðum neyðarkallið, skár-
um við af okkur pokann, en
nokkurn tíma tók að losna við
kastið. 1 millitíðinni kom Jón
Finnsson, sem var á svipuðum
slóðum, á vettvang, og tókst að
bjarga skipbrotsmönnum úr gúm
bátnum. Ingimundur Jónsson og
Einar Skúlason komust í lítinn
hjálparbát, sem lá við síðuna
á skipi þeirra og rak hann und-
an sjó og veðri. Þá voru VNV
5 vindstig oig mikill sjór. Við
fundum mennina tvo með því
að beina ljóskastara að bát
þeirra.
Samtalið við Helga Aðalgeirs-
son fór fram skómmu eftir mið-
nætti í nótt. Þá voru þeir að
leita Símonar Símonarsonar,
sem enn var saknað. Helgi sagði,
að tveir bátar andæfðu á slys-
Saigon, 30. ágúst.
AP-NTB-Reuter
Þ R Á T T fyrir tilraunir stjórnar
Suður-Vietnam í þá átt að draga
úr spennu í landinu, er talið að
landið standi nú á krossgötum og
andspænis mestu vandræðum,
sem það hefur orðið fyrir, eink-
um að því er tekur til samskipt-
anna við Bandaríkin. Stjórnin
reynir nú að draga úr spennu
með því að Iáta lausa stúdenta og
Búddamunka, sem handteknir
höfðu verið, en engu að síður
telja stjórnmálafréttaritarar að
óánægja og biturð í garð Ngo
Dinh Nhu, bróður Diems, forseta,
fari dagvaxandi. — Talsmaður
stjórnarinnar lét svo um mælt í
dag, að tilboð de Gaulles Frakk-
landsforseta, varðandi að losa
Vietnam undau erlendum áhrif-
um, væri „einskis virði“. Hér
væri aðeins um að ræða persónu-
lega skoðun forsetans.
Hin opinbera fréttastofa Suður
Vietnam greindi hinsvegar ítar-
lega frá ummælum forsetans.
Fréttamenn telja að hinn ný-
skipaði sendiherra Bandaríkj-
anna í S-Vietnam, Henry Cabot
Lodge, vilji fjarlægja Ngo Dinh
Nhu, en talið er að það sé Nhu,
sem raunverulega fari með völd
í landinu, og standi að baki of-
sóknanna gegn Búddatrúarmönn-
um. Þá telja ýmsir að her lands-
ins vilji einnig steypa Ngo Dinh
Diem, forseta, ásamt Nhu, bróður
Framh. á bls. 23