Morgunblaðið - 31.08.1963, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 31.08.1963, Blaðsíða 3
Laugardagur 31. ágúst 1963 MORGUNBLAÐIÐ 3 ÍSKORT það sem fylgir hér með er gert af Landhelgis- gaezlunni eftir að flugvél hennar kom úr ísflugi í fyrra- kvöl<i. Kortið sýnir hvernig ís- röndin liggur út af Vestfjörð- um og tjáði Jón Eyþórs- son veðurfræðingur blaðinu í gær að ísröndin væri 42 sjó- mílur út af Straumnesi og væri það nær en vanalegt væri á undanförnum árum á þessum árstíma. Hér er um að ræða ísrek, smáa jaka og íshellur en ein- staka borgarísjakar eru inn á milli. Sumstaðar er rekið mjög gisið eða ekki nema 1/10 Tveir borgarisjakar hafa hér orðið til úr einum. — Ljósm. Garðar Pálsson. Isinn nær landi en venja er á þessum árstíma steinn Stefánsson leiðangurs* stjóri. Norðmenn taka einnig þátt í þessum rannsóknum, en leiðangursskip þeirra er ekki enn komið hingað til lands. Gert er ráð fyrir að áætlun leiðangursins muni eitthvað breytast vegna íssins. af yfirborði sjávar þakið ís. Þess á milli er rúmlega helm ingur sjávar undir ís og sum- staðar í jaðri ísbeltisins, sem skagar suður með Vestfjörð- um, eru íshellurnar svo þétt- ar að varla er bil á milli. ísinn liggur einkennilega þar sem er mikill skagi suður með Vestfjörðum en auður sjór vestan hans. ísrannsókn þessi er fyrst og fremst gerð til leiðbeiningar fyrir fiskirannsóknarleiðang- ur, sem farinn verður um næstu helgi norður í haf. Héð- an frá íslandi fer Ægir og af íslendinga hálfu verður Unn- Kortið sýnir ísröndina eins og hún var í fyrradag norður og vestur af Vestfjórðum. •' • vo/ ;• Borgarísjaki, sem isflugsmenn sáu fyrir skemmstu. iðnsýning Samvinn-uverksmiðjanna haldin í Rvík KL. TVÖ á sunnudag verður opnuð fyrir almenning sýning á framleiðsluvörum verksmiðja Sambands íslenzkra samvinnu- félaga. Sýningin er haldin i hinu nýja stórhýsi SÍS á Ármúla 3 i Reykjavík, en þar mun Véladeild SlS og Samvinnutryggingar hafa aðsetur í framtíðinni. Sýningin verður opin frá kl. 2—22 fram eft ir næstu viku. Að sýningunni standa verk- smiðjur SÍS, KEA, K.Á. og KRON. Undanfarin áratug hafa slíkar sýningar verið haldnai nokkrum sinnum á Akureyri, þar í- -- ” i r/ • •. — ■ «.-• - / • < /-?• " vtr'.r ( — •* MJ29V* " /■" sem stærstu verksmiðjurnar eru, en nú þótti rétt að hafa vöru- sýninguna í þéttbýlasta hluta landsins og sýna framleiðsluna í höfuðstaðnum. Auk fyrrgreindra fyrirtækja sýnir Tilraunadeild Sjávarafurðadeildar SÍS og verzlunin Kjöt og grænmeti. Upphafið að iðnrekstri sam- vinnufélaganna má rekja til árs- ins 1923 þegar farið var að afulla gærur á Akureyri. Upp úr því óx Skinnaverksmiðjan Iðunn, sem sútar hverskonar íslenzkar húðir og skinn, en hefur auk þess síðan 1935 rekið skóverksmiðju, sem framleiðir að meðaltali rúm- lega einn skó á ári á hvern íbúa landsins. Árið 1930 keypti Sambandið Ullarverksmiðjuna Gefjuni á Akureyri og hefur rekið hana síðan. Á árunum í kringum 1950 var verksmiðjan endurbyggð, bú- in nýtízkulegum vélum og stækk- uð mjög mikið. Framleiðir verk- smiðjan hvers konar band og dúka úr íslenzkri og erlendri ull. Sambandið framleiðir einnig karlmannaföt bæði á Akureyri og í Reykjavík. Fataverksmiðj an Gefjun í Reykjavík var end- urskipulögð og stækkuð fyrir tveim árum síðan og er hú rekin með mjög nýtízkulegum hætti. Þar hefur m.a. verið komið fullkomnu ákvæðisfyrirkomu- lagi. Síðan 1947 hefur Sambandið einnig rekið Fataverksmiðjuna Heklu á Akureyri, en hún er starfrækt í tveim deildum, ann- ars vegar prjónadeild, sem fram- leiðir Heklupeysur og sokka, og hins vegar saumadeild, sem fram leiðir hvers konar vinnuföt o. fl. Fataverksmiðjuna Fífu á Húsa- vík setti sambandið á stofn árið 1955 til þess að framleiða skyrt- ur, einkum vinnuskyrtur og sportskyrtur. Framh. á bls. 23 SIAKSIEINAR Greinargerð SH Fyrir nokkrum dögum birti Morgunblaðið grein eftir blaða- fulltrúa Sölumiðstöðvar hrað-. frystihúsanna. Enda þótt grein þessi væri „svar“ við ritstjórn- argrein í Morgunblaðinu taldi blaðið ástæðulaust annað en birta hana athugasemdalaust, enda ekki ofætlun meðalgreind- um lesanda að greina á milli staðreynda málsins og hald- lausra fullyrðinga. Síðan hafa orðið nokkur blaðaskrif um málið og skal því vikið að því nokkrum orðum. Upphaf þess er það, að Sölumiðstöðin sendi frá sér álykt un, þar sem m.a. segir: „Nú hefur dregið mjög úr inn- flutningi frá þessum löndum (jafnvirðiskaupalöndin) og þá jafnframt úr sölumöguleikum tU þeirra. Skorar því fundur- inn á hæstvirta ríkisstjóm fs- lands, að hún geri einhverjar þær ráðstafanir, sem tryggi að útflutningur sjávarafurða tU þess ara landa aukizt í stað þess að dragast saman“. Eins og réttilega er bent á í þessari ályktun byggist út- flutningur til jafnvirðiskaupa- landanna á innflutningsmagni þaðan. Nú er yfirleitt heimilt að kaupa hvaða vörur sem er frá þesum löndum, en bannað að kaupa flestar þær vöruteg- undir frá öðrum löndum, sem eitthvert vit er talið í að kaupa að austan. Ef yfirleitt á að taka þessa ályktun Sölumiðstöðvar- innar alvarlega, þá jafngildir hún að sjálfsögðu kröfu um það, að einhvers konar innflutnings- höftum sé beitt til þess að auka enn víðskipti við þessi ríki. Síldarútflutningur í nefndri grein er löngu máli varið til að skýra það, hver nauðsyn tslendingum sé að selja síldina til Austur-Evrópu, og er Morgunblaðið í meginefnum sammála greinarhöfundi um það, enda eru islenzk yfirvöld ekki einungis fús til að selja það síldarmagn þangað, sem þau nú selja, heldur vildu þau gjarnan selja meira og beita þeim innflutningshöftum, sem nú eru, til þess að koma á þeirri sölu. Hitt er staðreynd, að ekki hefur nægilega verið aðhafzt til að selja aðrar ís- lenzkar framleiðsluvörur á frjáls um mörkuðum, sem hagkvæm- astir eru, þótt það sé góðra gjalda vert, að Sölumiðstöðin hefur nú ráðið ungan og dug- mikinn mann til að leita mark- aða í Vestur-Evrópu. „Rök“ blaðafulltrúans En meginatriði pessa máls er það, að íslendingar vilja hafa góð viðskipti við kommúnista- ríkin eins og önnur lönd. Þeir hafa meira að segja verið fús- ir til að láta innflutning þaðan njóta algerra sérréttinda og verndar. En íslenzkir neytendur vilja ekki að lenga sé gengið í þessu efni en nauðsyn krefur. Þess vegna ætlast þeir til þess að reynt sé að selja á frjálsum mörkuðum það sem unnt er. Og „rökin“ fyrir kröfunum um auk in austurviðskipti eru vafasöm. I grg. S. H. segir t.d.: „Hvort innkaupamöguleikar frá Austur-Evrópu hafa verið kannaðir til hlítar skal látið ósagt. Það er t.d. mál margra, að Austur-Þjóðverjar og Pólverj ar byggi prýðileg fiskiskip“. Ætli forystumenn SH hafi ekki þann aðgang að kaupend- um fiskiskipa, að þeir gætu kom ið þessari vitneskju á framfæri við þá, án milligöngu ríkisvalds- ins?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.