Morgunblaðið - 31.08.1963, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
' Xiaugardagur 31. ágúst 1963
Síldin á vesturleið
Siglfirðingar vongóðir
-
-
I
ÚTL.IT fyrir áframhaldandi
og meiri sildveiði hefur batn-
að mjog síðustu sólarhring-
ana. Sú, staðreynd, að síldin
er á leið austan að inn á vest-
ursvæðið, hefur gefið þeim,
er við síldveiðarnar fást, og
þá sérstaklega Siglfirðingum,
hetri vonir um gott síldarsum
ar.
í gær hafði fréttamaður
blaðsins á Siglufirði tal af
síldarskipstjóra og tveimur
saltendum og fer álit þeirra
á veiðunum hér á eftir:
SIGLUFIRÐI — Baldvin
Þorsteinsson, skipstjóri á Snæ
felli frá Akureyri, kom hing-
að í dag með 17—1800 mál og
tunnur. Sagði skipstjórinn
þessa síld veidda norðaustur
af Raufarhöfn, um 15 tíma
siglingu frá Siglufirði Hann
sagði, að mjög mikið síldar-
magn væri á þessum slóðum,
en hún væri fremur erfið við
ureignar. Myndar hún stórar
torfur aðra stundina, en tvístr
ast síðan að stuttri stundu
Iiðinni. Taldi hann, að megin
hluti íslenzka síldveiðiflotans
væri á þessu svæði út af Þistil
firði og Langanesi, og gerði
hann sér góðar vonir um á-
framhaldandi veiði, ef síldin
héldist í „veiðanlegu ásig-
komulagi" eins og hann orð-
aði það. Kastaði hann tvisvar
og er síldin mjög falleg.
Virtist svo sem þessi síld,
sem veidd er á vestur-mörk-
um svæðisins, sé mun betra
hráefni en sú, sem austar veið
ist. Véibáturinn Hafrún fékk
afla, sem hann lagði einnig
upp til söltunar í dag, 15 míl-
um austar en Snæfell og var
hún mjög misjöfn að stærð og
lélegri til söltunar.
Ásgrímur Sigurðsson, fyrrv.
skipstjóri, sem nú veitir sölt-
unarstöðinni Hafliða h.f. for-
stöðu, sagðist gera sér vonir
um, að skip þau, er nú kæmu
með síld til Sigiufjarðar, leit-
uðu enn vestar, allt að Kol-
beinsey, því að það svæði
hefði að jafnaði gefið beztu
söltunarsíldina á undanförn-
um áruim. Hann minnti á, að
hér hefði verið söituð, síld
fram undir miðjan september
í fyrra og að enn væri því
ekki úti um „tækifæri Siglu-
fjarðar" á þessari síldarvertíð.
Skafti Stefánsson, fyrrv.
skipstjóri, forstöðumaðúr sölt-
unarstöðvarinnar Nöf, sem er
hæsta söltunarstöðin hér á
Siglufirði með um 8100 tunn-
ur, sagði, að skipstjórinn á
Hafrúnu, Benedikt Ágústsson,
sem hingað kom í nótt með
1500 mál og tunnur, telji, að
búast megi við vaxandi síld-
veiði á miðunum út af Siglu-
firði og Langanesi og ef til vili
vestar, enda sé síldin á vestur
leið.
Skafti segir síldina á þessu
svæð hafa verið mjög bland-
svæði hafa verið mjög bland-
sem vestar dregur. i
Ítrekaði hann sem hags-
munamál síldarsaltenda á
Siglufirði, að finna ætti mark
aði fyrir snemmveidda síld
með minna fitumagni, þar eð
síldarsöltun gæti þá hafizt hér
miklu fyrr en ella. Benti
Skafti á, að árið 1962 hafi
ekki verið söltuð síld á Siglu-
firði eftir 21. júlí, en þá hafi
hins vegar verið búið að salta
hér í 140 þús. tunnur eða
helmingi meira magn en salt-
að hefur verið hér í sumar.
Stefán.
BLAÐIÐ hafði af því spurnir í
gær, að ungur islenzkur læknir,
sem dvalizt hefir í Danmörku
væri á leið til Kongó til starfa
þar. Br þetta Hans Svane sonur
H. A. Svane apotekara á ísafirði.
Blaðið spurðist fyrir um ferð
Hans Svane læknis hjá föður
hans.
Hann sagði son sinn halda af
stað suður til Kongó í næsta
mánuði í hópi sex sérfræðinga
frá Danmörku Oig myndu þeir
taka til starfa við nýtt sjúkra-
hús, sem Danir hafa reist í
Leopoldville. Verður Svane lækn
ir aðalskurðlæknir sjúkrahúss-
ins. Með honum fer fjölskylda
hans, frú Ásdís Matthíasdóttir og
þrjú börn þeirra. Munu þau
dveljast í Kongó í eitt ár að
minnsta kosti.
Þetta nýja sjúkrahús danska
Rauða krossins verður skipað
ýmsum sérfræðingum og d- nsk-
um hjúkrunarkonum. Sjúkrahús-
ið er jafnframt kennslumiðstöð.
Sottafundur
SÁTTASBMJARI hélt í gær-
kvöld fund með aðiljum í deil-
unni um kaup og kjör farmanna.
Stóð fundurinn enn yfir, er
blaðið fór í prentun í nótt. Mun
kaupskipaflotinn stöðvast hafi
samningar ekki tekizt fyrir mið-
nætti í kvöld.
} ^ HA /5 hnútar I y SV 50 hnutar K Sn/Htmt * 0»i V SUrir K Þrumur mte X KuUoM Zs' HHtaké
H Hmt
L Lm,l
UM hádegi í gær var V-átt
hér á landi, en víðast hæg-
viðri og þurrt veður. Þó voru
smáskúrir vestan lands. Veður
var með hlýjasta móti fyrir
norðan, 14 st. á Akureyri, og
munu margir Norðlendíngar
þakka það höfuðdeginum, sem
var í fyrradag. Grunn lægð
er fyrir norðan landið, en
hldur í rénun. önnur lægð
alldjúp er við vesturströnd
Skotlands og hreyfist austur
eftir.
Nýr banki við Bankastræti
Samvinnubankinn hefur starfsemi sína í dag
ÁRATUGA DRAUMUR ís-
lenzkra samvinnumanna ræt-
ist í dag þegar Samvinnu-
bankinn hefur starfsemi sína
í nýjum og glæsilegum húsa-
kynnum að Bankastræti 7, við
hliðina á Verzlunarbankan-
um. Yfirtekur þessi nýi banki
réttindi og skyldur Samvinnu
sparisjóðsins, sem starfað hef-
ur í níu ár.
— Helzt hefðum við kosið að
opna 1. september, því þann dag
fyrir níu árúm hóf Samvinnu-
sparisjóðurinn starfsemi sína,
sagði Hjörtur Hjartar, fram-
kvæmdastjóri skipadeildar SÍS
og einn af þremur bankaráðs-
mönnum Samvinnubankans, við
fréttamenn í gær. — En þar sem
1. september er að þessu sinni á
sunnudegi, var það ekki unnt.
Samvinnubankinn mun annast
alla innlenda bankastarfsemi, svo
sem innlánaviðskipti í sparisjóð
og hlaupareikning, kaup og sölu
víxla og tékka og hvers konar
innheimtustörf.
Bankinn er stofnaður fyrir for-
göngu ábyrgðarmanna Samvinnu
sparisjóðsins og samvinnusam-
takanna í landinu. Hugmyndin
um stofnun Samvinnubanka er
ekki ný, brautryðjendur sam-
vinnuhreyfingarinnar byrjuðu
snemma að ræða það mál. í göml-
um fundargerðarbókum Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga
má lesa um umræður og álykt-
— Stjórnarkreppa
Framh. af bls. 1
lagsmálanna kæmi mjög á óvart.
Hefði verið talið að deiluaðilar
innan stjórnarinnar myndu kom-
ast að einhverju samkomulagi
um verðlagsmál landbúnaðarins,
enda væri hér ekki um himinhá-
ar fjárupphæðir að ræða.
Talið er að nokkur bið geti orð-
ið á að ný stjórn verði mynduð í
Finnlandi, og mun t. d. líða nokk-
ur tími þar til flokkar landsins
hafa tekið ákvörðun um hversu
þeir skuli haga stefnu sinni með
tilliti til myndúnar nýrrar stjóm-
ar. —
Erfiðleikar stjórnar Karjalain-
ens, sem sitja mun áfram þar til
ný stjórn vejður sett á laggirnar,
eru miklir og margvíslegir. Þann-
ig mun fjármálaráðherra Karjala
inen-stjórnarinnar verða að bera
fram fjárlagafrumvarpið er
finnski ríkisdagurinn kemur sam
an í byrjun næstu viku. Bent er
á, að margra mánaða samninga-
viðræður þurfti til áður en stjórn
Karjalainens var mynduð í fyrra.
Er talið að myndun pýrrar stjórn
ar geti tekið enn lengri tíma nú,
og ástandið orðið óþægilegt, m.a.
vegna fjölmargra fyrirhugaðra
opinberra heimsókna. Þannig
munu Lyndon Johnson, varafor-
seti Bandarikjanna, Julius Nyer-
anir um stofnun Samvinnubanka
allt frá árinu 1922.
Engar framkvæmdir urðu þó í
málinu fyrr en hinn 1. september
1954, en þann dag var Samvinnu-
sparisjóðurinn stofnaður af 54
einstaklingum. — Sparisjóðurinn
hefur lengst af verið til húsa í
Hafnarstræti 23 og hafa viðskipt-
in þar farið vaxandi ár frá ári.
Nema innstæður í sjóðnum nú
150 milljónum króna og hafa tvö-
faldazt frá árslokum 1961.
Vegna sívaxandi viðskipta var
sýnt að sparisjóðsformið hentaði
ekki lengur, og ritaði því stjórn
sparisjóðsins ríkisstjórninni bréf
hinn 20. febrúar 1962 og óskaði
heimildar til að breyta spari-
sjóðnum í banka. — Málið fékk
góða fyrirgreiðslu og hinn 21.
apríl sama ár voru lög um Sam-
vinnubankann afgreidd frá Al-
þingi.
Stofnfundur bankans var hald-
inn hinn 17. nóvember 1962. Þá
lágu fyrir hlutafjárloforð fyrir
ailri þeirri upphæð, sem fyrr-
greind lög gera ráð fyrir, kr.
10.201 þús. og var félag um rekst-
urinn þá stofnað. Reglugerð og
samþykktir bankans hlutu stað-
festingu bankamálaráðherra hinn
16. janúar 1963, og í dag er bank-
inn formlega opnaður í nýjum
húsakynnum.
Bankinn mun starfa á 3 hæð-
um hússins nr. 7 við Bankastræti.
Á 1. hæð verður afgreiðslusalur
fyrir sparisjóðs- og hlaupareikn-
inga, en á 2. hæð er afgreiðsla
víxla og skuldabréfa, innheimtu-
ere, forseti Tanganyika, André
Malraux, menntamálaráðherra
Frakka, Hays, landbúnaðarmála-
ráðherra Kanada o. fl. koma í op-
inberar heimsóknir til Finnlands
á næstu vikum.
Bændaflokkurinn hefur þegar
gefið til kynna að hann vilji ekki
stjórnarsamstarf við sósialdemó-
krata né fulltrúa Alþýðusam-
bandsins, og algjör óvissa ríkir
um hvort Bændaflokkurinn
mundi vilja taka þátt í hreinni,
borgaralegri stjórn. Þær leiðir,
sem helzt eru taldar færar varð-
andi myndun nýrrar stjórnar,
eru borgaraleg meirihlutastjórn,
minnihlutastjórn, eða utanþings-
stjórn. Þá hefur einnig verið
minnzt á þann möguleika að
leysa upp ríkisdaginn og efna til
nýrra kosninga í landinu. Skýrra
lína varðandi hvað verður í þess-
um efnum er ekki að vænta fyrr
en síðari hluta næstu viku, að því
er talið var í Helsingfors í dag.
Viðræður um myndun nýrrar
stjórnar munu ekki hefjast fyrr
en á þriðjudag, en þá mun Kekk-
onen forseti eiga viðræður við
Kauno Kleemola, forseta Ríkis-
dagsins. Á fimmtudag mun Kekk
onen halda fund með formönnum
þingflokka stjómmálaflokkanna,
og heyra álit þeirra á ástandinu.
deild og viðtalsherbergi banka-
stjóra. í kjallara eru geymslur,
matsofa starfsfólks o. fl.
Gagngerðar breytingar hafa
undanfarna átta mánuði farið
fram á húsnæði bankans undir
umsjón Teiknistofu SÍS, en for-
stöðumaður hennar er Gunnar Þ,
Þorsteinsson.
Arkitektarnir Ólafur Sigurðs-
son, Hákon Hertervig og Kjartan
Kjartansson hafa teiknað innrétt
ingar og Sigurður Sigurjónsson
raflögn. Yfirumsjón á vinnustað
hafði Gunnar Guðjónsson, tré-
smíðameistari. Tréverk allt er
unnið af Trésmiðju Kaupfélags
Árnesinga, Járnver hf. sá urn
járnalagningar og smíðaði stiga,
Blikk og stál hf. setti upp loft-
ræstikerfi, málarameistari var
Páll Wium, raflagnameistari Guð
mundur Jasonarson, dúkalagna-
meistari Ólafur Ólafsson og pípu
lagningameistari Helgi Guð-
mundsson, en Ársæll Magnússon
lagði grástein í anddyri hússins.
f bankaráði Samvinnubankans
eru Erlendur Einarsson, forstjóri,
formaður, og framkvæmdastjór-
arnir Hjörtur Hjartar og Vil-
hjálmur Jónsson.
Starfsmenn bankans verða 24.
Bankastjóri hefur verið ráðinn
Einar Ágústsson, sem veitt hefur
Samvinnusparisjóðnum forstöðu
undanfarin 6 ár. Skrifstofustjóri
verður Guðjón Styrkársson, lög-
fræðingur, aðalbókari Einar S.
Einarsson og aðalgjaldkeri Sig-
urður G. Gunnarsson.
— Þeir geta sjálfir
Framh. af bls. 1
legum orðum um Bretland og
Bandaríkin fyrir það sem hann
nefndi jákvæða afstöðu í samn-
ingaviðræðunum um tilrauna-
bann. Kvað hann Moskvusam-
komulagið fyrsta skrefið í átt til
allsherjarafvopnunar.
Tító, forseti Júgóslaviu, hélt
einnig ræðu í Velenje í dag. —
Sagði hann m. a. að viðskipti
Júgóslavíu og Sovétríkjanna
yrðu 50% meiri í ár en 1962.
Tító veittist einnig að leiðtog-
um kinverskra kommúnista og
sagði að froðusnakk og slagorð
ein nægðu ekki til þess að sýna
fram á yfirburði sósíalismans. Til
þess þyrfti raunhæfar framfarir.
TRÖLLAFOSSFERÐ
farin í dag.
Kl. 2 e.h. í dag efnir Heimdall-
ur til eftirmiðdagsferðar um ná-
grenni Reykjavíkur. SkoðuS
verður Dælustöðin í Mosfellssveit
og ekið npp að Seljabrekku og
gengið um 15 minútna leið upp
með Leirvogsá að Tröllafossi og
hann skoðaður. Þá verður Lax-
eldisstöð ríkisins i Kollafirði
einnig heimsótt. Nánari upplýs-
ingar og farmiðapantanir í siflU
17100.
Heúndallur, F.UJ3.