Morgunblaðið - 31.08.1963, Side 22
29.
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 31. Sgúst 1963
éÞ -A
immm morgoaibiadsuis
10 stúlkur heim-
sækja vinabæinn
Islandsmeistarar FH i utanlandsför
í DAG halda utan 10 stúlkur í
Fimleikafélagi Hafnarf jarðar,
en þær eru núverandi íslands-
meistarar í handknattleik
kvenna. Þær verða fulltrúar
Hafnarfjarðar í heimsókn til
vinabæjar Hafnarfjarðar, bæj-
arins Bræum, sem er aðliggjandi
borg við Osló. Með stúlkunum
fara Valgarð Thoroddsen, sem
Hér varð sjálfsmark. Akumesingurinn sem sést milli Víkinganna tveggja skaut eiginlega
fyrir markið og markvörður Víkinga bjó sig undir að ná knettinum þar. En á leiðinni
breytti Víkingurinn í miðið stefnu boltans og markvörður hafði ekki tök á að bjarga þó
ekki sé dregið af sér við tilraunina. — Myndir Sveinn Þormóðsson.
[Sjálfsmdrk og taugaspenna
-!
ÞAÐ er ekki síður spennandi
að horfa á leik ungu knatt-
spyrnumannanna okkar en
þeirra sem á „toppinum“
standa. Meðal þeirra yngri er
leikgleðin ósvikin og kappið
er stundum jafnvel meira en
góðu hófi gegnir og imgling-
arnir ráða við.
Þannig var það í úrslita
leik íslandsmótsins í 4. fl. A.
þar sem Víkingar og Akurnes
ingar mættust í úrslitaleik. —
Þetta eru án efa beztu liðin
í þessum aldursflokki og
höfðu hvort um sig unnið sína
riðla með glæsibrag. T. d.
höfðu Akurnesingar skorað 24
mörk í fyrri leikjum sínum
í mótinu en ekkert mark feng
ið á sig. Vikingar höfðu haft
nær því sömu yfirburði yfir
þau lið sem með þeim drógu
í riðil.
Það var mikil spenna fyr-
ir og i úrslitaleiknum. Kappið
var stundum meira en for-
sjáin. Taugaspenningurinn
stundum meiri en góðu hófi
gegndi og mörkin urðu hálf-
gerða klaufamörk — sjálfs-
mörk meira að segja á báða
bóga. Og liðin skildu jöfn,
skoruðu 2 mörk gegn 2.
Liðin verða því að mætast
aftur — og sennilega verður
spenningurinn ekki minni þá.
Drengirnir léku á Melavell
inum — fullstórum velli og
þreytan sagði líka til sín í
leikslokin, því það var ekki
byrjað á neinum millihraða
eða hægri ferð. Það var allt
á fullu allan tímann.
Við sjáum hér tvær mynd-
ir úr leiknum sem lýsa kappi
þessara verðandi stjarna.
Við mark Akraness. Víkingar sækja fast. Víkingar sækja fást. Víkingur sem ber yfir mark-
vörðinn er Kári Kaaber ein aðalskytta yngri manna eins og við sögðum frá í fyrra þegar hann
varð „markakóngur“. Kári hafði skotið og markvörður misst af knettinum «n bakvörður
Akraness fær bjargað. Takið eftir ákefðinni í svip drengjanna.
I
Breytingar
á leikjum
BREYTINGAR á leikjum í haust
mótum 7. og 8. september.
Laugardagur 7. september:
Melavöllur: 1. fl., Fram:Valur,
kl. 14.00. Háskólavöllur: 2. fl. B,
Fram.'Valur, kl. 14.00. Valsvöllur:
1. fl., Víkingur:Þróttur, kl. 14.00.
Framvöllur: 5. fl. A, Fram:Valur,
kl. 14.00. KR-völlur: 4. fl. B, KR:
Víkingur C, kl. 14.00. KR-völlur:
4. fl. B, Fram C:Víkingur B, kl.
14.00. Víkingsvöllur: 5. fl. A, Vík-
ingur:Þróttur, kl. 14.00.
Sunnudagur 8. september:
Melavöllur: 2. fl. A, Fram:Vík-
ingur, kl. 10.00. Háskólavöllur: 4.
fl. A, Fram:Valur, kl. 9.30. Há-
skólavöllur: 4. fl. B, Fram:Valur,
10.30. Framvöllur, 5. fl. B, Fram:
Valur, 9.30. Framvöllur: 5. fl. C,
Fram:Valur, kl. 10.30. Víkings-
völlur: 4. fl. A, Víkingur:Þróttur,
kl. 9.30. Víkingsvöllur: 3. fl. A,
Víkingur:Þróttur, kl. 10.30. Vals-
völlur: 3. fl. A, Fram:Valur, kl.
9.30. Valsvöllur: 3. fl. B, Fram:
Valur, kl. 10.30.
Lið Þróttar hefur hætt þátt-
töku í 2. flokki A.
íþróttafréttir
.... að utan
★ Margir af beztu frjáls-
íþróttamönnum Rússlands keppa
um þessar mundir í Brasilíu. —
Meðal þeirra eru Brummel há-
stökkvari, Ter Ovensjan, lang-
stökkvari og beztu frjálsíþrótta-
konurnar.
- ♦ —
ir Portúgalska knattspyrnu-
liðið Benefica hefur gert samning
við hinn 69 ára gamla ungverska
þjálfara Lajos Czeizler, sem nú
hefur sænskan ríkisborgararétt.
Czeizler á að þjálfa Evrópumeist-
arana 1963—64.
- ♦ —
if 34 ára gamall egypzkur
sundkappi, Abdel Latif Abo Heif,
sigraði fyrir skömmu í sund-
keppni yfir Michiganvatn, en
sundleiðin er 96 km. Fyrir sigur-
inn hlaut hann 15.000 dollara sig-
urlaun eða nær 650 þús. ísl. kr.
Aðeins 2 af 16 þátttakendum
luku við sundið.
★ Cassius Clay, sem nú er
efstur á lista yfir þá sem skora
mega á heimsmeistarann Liston,
hefur sagt að hann sé reiðubúinn
til að mæta C. Williams, sem er
nr. 3 á sama lista.
Þegar Williams heyrði skilmál-
ana um greiðslu fyrir leikinn, þá
að hann fengi 10 þús. dollara fyr-
ir hverja lotu sem hann stæði,
varð honum að orði: — Þá verð-
ur þetta einasti leikurinn á ferli
mínum sem verður 15 lotur.
Syndið 200 metrana.
fer með ávarp og gjöf frá Hafn-
firðingum til Bræumbúa og Hall
steinn Hinriksson, þjálfari
flokksins.
★ NÝBREYTNI
Valgarð skýrði svo frá í
gær að áður hefði verið skipzt
á heimsóknum bæjarstjórnar-
fulltrúa frá bæjunum. Nú hefði
verið ákveðið að íþróttaflokkur
færi í heimsókn og fyrir val-
inu urðu íslandsmeistarar FH.
Næste ár mun svo íþróttaflokk-
ur fpa Bræum koma í heimsókn
hingað.
★ 3 LEIKIR
Stúlkurnar leika þrjá leiki
ytra við lið Bræum og Osló og
halda heim með Heklu 7. sept.
Verið getur að þær leiki þá leik
meðan skipið stendur við í Fær>
eyjum.
ÍT DUGNAÐUR
Valgarð sagði að stúlkurnar
hefðu sýnt mikinn dugnað við
fjársöfnun og kosta sig að mestu
leyti sjálfar. Uppihald ytra verð
ur án endurgjalds og stendur
bæjarsjóður Bræum straum af
því að mestu.
Drengjameistara-
mót Reykjavíkur
DRENGJAMEISTARAMÓT
Reykjavíkur í frjálsum íþróttum
fer fram á Melavellinum í Rvík
dagana 5. og 6. sept. nk. og hefst
kl. 19.00.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum:
100 m hlaupi, 400 m hlaupi,
1500 m hlaupi, 110 m grindahl,
4x100 m boðhlaupi, kúluvarpi,
kringlukasti, hástökki, lang*
stökki, 200 m hlaupi, 800 m hl,
200 m grindahlaupi, 1000 m boð-
hlaupi, spjótkasti, sleggjukasti,
þrístökki og stangarstökki.
Þátttaka er heimil öllum með-
limum íþróttafélaga í Reykjavík,
sem eru á drengjaaldri, þ. e. 18
ára á þessu ári eða yngri.
Sigurvegari í hverri grein hlýt-
ur sæmdarheitið „drengjameist-
ari Reykjavíkur" í þeirri grein.
Mótið er um leið stigakeppni og
verða reiknuð stig af 6 fyrstu
mönnum í hverri grein. Keppt er
um verðlaunabikar og hlýtur fé-
lag það sem flest stig vinnur grip
þann.
Þátttökutilkynningar sendist
skriflegar til vallarstjóra í sið-
asta lagi þriðjudaginn 3. sept.
IMorðmenn mæta Holl-
landi í undankeppni
NOREXJUR er eitt peirra liða er
leika verða í undankeppni fyrir
heimsmeistaramótið ’ handknatt-
leik, en úrslitin verða í Tékkó-
slóvakíu í marz. ísland kemst
í úrslitakeppnina án undan-
keppni sem eitt þeirra landa er
skipuðu 6 efstu sætin í síðustu
keppni, eins og áður hefur verið
skýrt frá hér.
Norðmenn eiga að leika við
Hollendinga heima og heiman
og verður báðum leikjunum að
vera lokið fyrir 19. jan.
ísland er í þessari keppni í úr-
slitariðli með Svíþjóð, Póllandi
eða Ungverjalandi og sigurveg-
ara í keppni Afríkuríkja.
16 lið taka þátt í úrslitakeppn-
inni og komast 2 efstu í hverjum
úrslitariðli í lokakeppni 8
liða.