Morgunblaðið - 31.08.1963, Blaðsíða 24
ÍVOLVO
|yyg44t
18ö. tbl. — Laugardagur 30. ágúst 1963
sparið og
notið Sparr
Þessi mynd var tekin í gær aí bílnum, sem rann mannlaus niður brekkuna ofan Hafnarstrætis
á Akureyri — Ljósm. Sv. P.
Mannlaus
brekku
a
AKUHEYRI, 30. ágúst. — 1
morgun vildi til það óhapp, að
mannlaus bíll, eign sr. Benja-
míns Kristjánssonar á Lauga-
landi, rann niður snarbratta
brekku hér í bæ og stöðvaðist
Fiskvinn-
slustöð á
Selfossi
Selfossi 30. ágúst.
í DAG tók til starfa hér á
Selfossi fiskvinnslustöð, sem
hinn þekkti athafnamaður
Leó Árnason frá Víkum á
Skaga er eigandi að. Þetta
mun vera einstakt að unnið
sé að verkun íisks inni í
landi á ísiandi.
Hér á Selfossi er mikill
fjöldi unglinga, sem er að
komast á vinnumarkaðinn, og
er þarna kærkomið tækifæri
fyrir þá og aðra sem vilja
auka tekjur sínar.
Eigandi stöðvarinnar mun
hafa haft í huga auknar hafn-
ar framkvæmdir á Eyrar-
bakka ög með tilkomu þeirr-
ar hafnar, þar sem ekki er
nema 12 km á milli staða,
liggur þetta mjög vel við. Með
þetta í huga ásamt þeim vinnu
krafti, sem hér er á staðnum,
mun eigandi hafa byggt fram-
\ tíð þessarar stöðvar. — Ó.J.
bíll rennur nidur
Akureyri
ekki fyrr en neðarlega í henni.
Bíllinn valt ekki alveg og er
talinn furðulega lítið skemmd-
ur. —
Sr. Benjamín hafði skilið bíl
sinn eftir á jafnsléttu fyrir utan
hús Jóns Sigurgeirssonar frá
Helluvaði, en það var áður hluti
af gamla sjúkrahúsinu við Spít-
alaveg. Allsnörp sunnangola
mun hafa ýtt bílnum af stað og
hann síðan runnið aftur á bak
þvert yfir Spítalaveg, yfir
norðanverða lóð Helga Pálsson-
ar* og fram af brekkubrúninni,
Maður
drukknar í
Borgarnesi
BORGARNESI 30. ágúst — Milli
klukkan tvö og þrjú í dag gerð-
ist sá hörmulegi atburður, að
Halldór Gestsson, 58 ára að aldri,
búsettur hér í Borgarnesi, féll í
sjóinn við brúna út í Brákarey
og drukknaði. Ekki er vitað með
hverjum hætti slys þetta átti sér
stað, en börn, sem voru að leik
niðri við sjóinn, gerðu viðvart
um að þau sæu úlpu á floti við
brúna. Við nánari athugun kom
í ljós, að þetta var Halldór heit-
inn. Lífgunartilraunir, sem gerð-
ar voru á honum, báru engan ár-
angur. — Fréttaritari.
en þar tekur við snarbrött
brekka niður á jafnsléttu. Bíll-
inn þeyttist í loftköstum ofan
þessa geigvænlegu brekku, sem
er 30—40 m há, og stefndi á
húsið Hafnarstræti 29. Eh nokkru
fyrir neðan miðja brekku fór
bíllinn á hliðina, risti sig niður
í grassvörðinn með hægra aft-
urhjól og stöðvaðist þar. Var
mikil mildi, að ekki skyldi slys
af þessu hljótast, því að oft eru
börn að leik þarna fyrir neðan.
Góð veiði 70 oiílur
frá Raufarhöfn
Hvassviðri olli bdtum eríiðleikum
ÁFRAMHALDANDI sildveiði
var í- gær á miðunum um 70
milur norðaustur af Rahfar-
höfn og fengu þar mörg skip
góðan afla. Er liða tók á daginn
tók heldur að hvessa og í gær-
kvöld var orðið allhvasst af
norðaustri, en heldur tekið að
lægja aftur um miðnætti. Skip-
unum sóttist ferðin seint í
höfn og urðu sum þeirra að
losa sig við afla af þilfari.
Þá var einhver veiði í gær-
kvöld út af Skrúð. Síldin virð-
ist nú á ferð fjær landi.
Frá því í fyrrinótt þar til í
gærmorgun fengu 41 skip sam-
tals 34,200 mál og tunnur.
Rétt fyrir miðnætti var síld-
arleitinni á Raufarhöfn kunnugt
um afla eftirtalinna skipa: Skaga
röst 900, Hringver 1300, Am-
firðingur 1400, Þorbjörn 800,
Kópur 700, Áskell 400, Ólafur
Magnússon 500, Sæúlfur 550,
Hávarður 400, Hamravík 400,
Helgi Helgason 1300, Lotfur Bald
vinsson 400, Mánatindur 500,
Páll Pálsson 300, Pétur Ingjalds
son 550, Guðfinnur 400, Helgi
Flóventsson 1000, Margrét 900,
Grótta 600, Runólfur 150, Sigur-
björg 150, Ingv. Guðjónsson 150,
Asg. Torfason 150, Björg NK 250,
Hilmir 650, Guðmundur Þórðar-
son 600, Guðmundur Péturs 500,
Steingrímur trölli 700, Náttfari
450, Sólrún 250.
Flest þessara skipa voru á leið
til Raufarhafnar og sum til
Vopnafjarðar. Þessi síld muo
öll fara í bræðslu.
Síldarbátarnir fari
norður aftur
Hlutur d humarbdtum orðinn 100 þús.
EFTIR að síldin tók að glæð-
ast á ný fyrir Norðausturland-
inu héldu sildveiðiskipin, sem
komin voni hingað suður aftur
norður. T.d. hafði Haraldur
Böðvarsson & Co. átt 6 báta á
síldveiðum fyrir norðan og tók
þá alla suður og hafa þeir að
undanförnu verið að veiða sunn
an Reykjaness og við Vest-
mannaeyjar. Þrír háta hans eru
nú farnir norður aftur og sá
4. fer í dag. Farnir eru Harald-
ur, Höfrungur II. og Skírnir. Af
öðrum Akranessbátum eru Sig-
rún og Sæfari einnig farin norð-
ur.
Sturlaugur Böðvarsson sagði
blaðinu í gær að ekki tæki orð-
ið svo langan tíma fyrir skip-
in að skjótast milli nesja og
landshorna þegar stóru síld-
veiðiskipin væru ekki nema sól-
arhring á leiðinni norður. Þetta
væri nú orðið svo breytt-frá því
sem áður var þegar skipin voru
með báta í eftirdragi og höfðu
mun minni ganghraða en nú.
Humarveiði hefir verið ágæt
á Akranesi að undanförnu og
raunar í mestallt sumar. Há-
setar á humarbátum eru sum-
ir komnir með 100 þús. kr. hlut
sem er betra en nokkur síldar-
hlutur. Sumir humarbátanna
eru komnir með yfir 100 tonn.
— Það má eiginlega segja að
þetta sé nýr atvinnuvegur hér
hjá okkur á Akranesi, sagði
Sturlaugur. Allir vinna við hum
arinn sem vetlingi geta valdið
jafnt konur og börn sem aðrir
Humarinn er bæði frystur í skel
og án, og seldur bæði á Bret-
landsmarkað og Ameríku.
Humarveiðileyfi
SJÁVARÚTVEGSMÁLARÁÐU-
NEYTIÐ hefur í samráði við
Fiskifélag íslands og fiskideild
Atvinnudeildar Háskólans aug-
lýst, að leyfi til humarveiða verði
framlengd frá 1.—15. september.
Gerðu tilraun til að nauðga
15 ára kunningjakonu sinni
Svívirðilegt athæfi fimm pilta í Hljómskdlagarðinum
I FYRRINÓTT gerðu fimm pilt-
ar á aldrinum 15—17 ára tilraun
til að nauðga 15 ára kunningja-
konu sinni í Hljómskálagarðin-
um, en hlupust á brott áður en
ódæðið hafði verið framið. Gat
stúlkan þá kallað á hjálp, þar
sem hún lá mjög illa útleikinn í
kjarrinu, og kom á vettvang
fjórir menn, er leitað höfðu að
ánamöðkum í garðinum og heyrt
neyðaróp hennar. Hjálpuðu þeir
henni að komast á lögreglustöð-
ina, þar sem stúlkan kærði mál
þetta fyrir rannsóknarlögregl-
unni.
Þrátt fyrir þetta hörmulega á-
fall gat stúlkan gefið lögreglunni
skýrslu um atburðinn og bent á
piltana sem verknaðinn frömdu,
en þetr voru kunningjar hennar.
Hafði stúlkan verið á ferli í bæn
um með vinkonu smni þetta
kvöld, en skildi við hana laust
fyrir miðnætti og ætlaði þá að
fara á strætisvagnabiðstöð til að
taka vagninn heim til sín. Niðri
í miðbæ hitti hún umrædda pilta
og spurðu þeir hana, hvort hún
vildi ekki slást í för með þeim
og rölta um bæinn.
Gengu þau svo saman suður
Tjarnargötuna að horni Skothús
vegar og Bjarkargötu, þar sem
piltarnir höfðu ákveðið að gera
tiiraun til að nauðga henni. Fóru
þau inn á grasflötina og réðust
piltarnir þá að stúlkunm, drógu
hana inn í kjarrið og flettu
hana klæðum.
Þrír þeirra héldu föstum hönd-
um og fótum, einn hélt um
munn hennar, svo að hún gæti
ekki kallað á hjálp, og sá fimmti
gerði tilraun tii að eiga mök við
hana. Áður en það tækist, hafði
stúlkan bitið í hönd þess er
fyrir munninn héit og tók þá
annar við, en tveir þeirra, sem
héldu stúlkunni, tóku til fótanna
og hlupu á brott. Fylgdu hinir
þrír á eftir og skildu stúlkuna
eftir bjargarlausa í sundurrifn-
um klæðum og miklum hugar-
æsingi.
Munu piltarnir þó hafa séð sig
um hönd og haft í hyggju að
snúa við, stúlkunni til aðstoðar,
en þá höfðu mennirnir, er leit-
uðu, ánamaðkanna í garðinum
heyrt neyðaróp hennar og komið
til hjálpar.
Eins og áður er sagt, þekkti
stúlkan piltana og tókst rann-
sóknarlögreglunni að hafa upp á
fjórum þeirra í gær, en sá
fimmti, sem er utanbæjarmaður,
hafði farið heim í gærmorgun.
Við læknisrannsókn, sem
fram fór á stúlkunni i gær, komu
ekki fram nein meiðsli.