Morgunblaðið - 23.10.1963, Side 23

Morgunblaðið - 23.10.1963, Side 23
Miðvikudagur 23. okt. 1963 MORGUNBLAÐIÐ 23 — Hjó frá sér Framh. af bls. 24 tim 17 klst og sigldar 202 sjó- mílur. Skipherra Palliser CMDR Hunt ræddi við togaraskipstjóra og Þórarin skipherra og náðist sam- komulag um að skipin færu til Isafjarðar og komu þau þangað kl. 10.30 í gærkvöldi. Þórarinn skipherra lagði fram í réttinum hluta af sjókorti með útsettum staðarákvörðunum. Næstir komu fyrir réttinn nokkrir varðskipsmanna, þeir Helgi Hallvarðsson, L stýrimað- ur, Ölafur Valur Sigurðsson, II. stýrimaður, Kristinn J. Árnason, III. stýrimaður, Sigurður S. Sig urðsson bátsmaður og hásetarn ir Gestur K Jónsson og Egill Pálsson. Staðfestu yfirmenn mælingar við staðarákvarðanir og einnig staðfestu vitnin, að þau hefðu séð tvo togvíra togarans úti og greinilega í blökkina og báru það að vírarnir hefðu verið eðli lega „skvenaðir" eins og það heitir á sjómannamáli. Varðskipsmenn eiðfestu allir framburð sinn. Að þessu loknu var gert réttar hlé til kl. 17.00 þar sem von var á tveimur lögfræðingum úr Eeykjavík, þeim Gísla Einars- syni hrl., lögfræðingi landhelgis gæzlunnar og Gísla ísleifssyni hrl., lögfræðingi verjanda togara 6kipstjórans. Réttur var settur á ný og kom þá Olesen skipstjóri fyrir og var lesin fyrir honum kæra skipherra varðskipsins. Olesen viður- kenndi að staðarákvarðnir varð- skipsins væru réttar, skip hans hefði verið á þessum stöðum, en neitaði að hafa verið að veiðum, innan fiskveiðitakmarkanna. Hann sagðist hafa farið frá Dýrafirði á hádegi á sunnudag og um 6 leytið hefði hann kaslhð vörpunni og togað í um 214 klst. Síðan hefði hann kastað aftur um 15 sjómílur frá Stiga og 19'— 20 sjómílur frá Rit. í því kasti hefði hann misst vörpuna, rétt um miðnætti og verið þá um 14 sjómílu utan fiskveiðimarkanna. Þá hefði hann um eittleytið gert tilraun til að slæða upp vörp una og sett út kröku á vír og haldið inn fyrir mörkin á stað um 9 sjómílur frá austurkanti Dýrafjarðar. Aðspurður kvaðst skipstjórinn hafa farið svona langt inn til að vera öruggur um að komast í beina línu og geta dregið krök- una í átt frá landi á þann stað, sem hann hafði misst vöi’puna. Rétt í þann mund er hann sá varðskipið koma, missti hann krökuna, vegna festu í botni og drá þá inn beran vírinn. Olesen skipstjóri sagði að það hlyti að vera alger missýn varð- akipsmanna að ttveir togvírrf hefðu verið úti, því vírinn hefði verið einn. Þeir hafi komið til að sjá tvo víra og þeir hafi séð þá. Skipstjórinn kvaðst hafa gert staðarákvörðun þegar hann missti vörpuna og hefði hann þá verið 1214 sjómílu frá austur- kanti Dýrafjarðar og 17,4 mílur frá Kópanesi. Hann var að því spurður hvers vegna hann hefði ekki stöðvað þegar Óðinn sigldi upp að hlið togarans og gaf stöðvunarmerkL Svaraði Olesen því til að vírinn hafi slitnað rétt áður en hann sá varðskipið og hann hafði ekki kært sig um að stanza og hafi álitið að varðskipið hefði ekki neinn rétt til að stöðva skipið. Olsen neitaði því að hafa ver- Ið að reyna að komast undan varðskipinu. Hann hafi vitað hvaða skip þetta var og að ekki væri hægt að komast undan því, en hinsvegar hafi hann verið að flýta sér austur fyrir land til að ljúka þar þessari veiðiferð. Ole- sen skipstjóri kvaðst ekki hafa þekkzt boð Þórarins skipherra um að slæða eftir vörpunni vegna þess að veðurskilyrði voru ekki til þess og Þórarinn hefði sagt að haxm vissi hvar varpan væri og taldi Olesen að Þórarinn gæti fundið hana. Brezki skipstjórinn var að því spurður hvers vegna öll ljós hefðu verið slökkt á togaran- um, Hann kvaðst hafa reynt að skýra Þórarni skipherra frá því að aðalöryggi skipsins hefði bilað og sennilega hefði vélstjóri ekki haft annað öryggi eða ekki fundið það strax. Hefði því verið siglt án siglingaljósa og þilfarsljósa til morguns. Olesen sagðist ekki hafa svar- að í talstöðina vegna þess að sendiloftnet hefði brotnað og sú bilun ekki fundizt fyrr en í birt- ingu og þá verið gert við hana. Og af hverju svaraði hann ekki þegar kallað var til hans í hátalara? Hann taldi sig ekki skyldugan að svara varðskipinu. Varðskips menn höfðu tekið um borð í Óðin um 10 faðma langan bút af togvír, sem lá á þilfari tog- arans og kvaddi rétturinn til tvo sérfróða menn til að skoða þann vír. Samkvæmt vottorði þeirra var annar endinn hreinlega höggv- inn en á hinum endanum voru höggnir 5 þættir en sá 6. slitinn. Olesen skipstjóri kvaðst ekki hafa gefið neina skipun um að höggva á vírinn, þegar Óðinn kom, en höggvið hefði verið á annan endann til að jafna vír- ana áður en þeir yx-ðu tengdir við nýja vörpu. Hinn endinn hlyti að hafa verið slitinn. Þegar yfirheyrslu yfir skip- stjóra var lokið var réttarhöld- unum frestað til kl. 10 í fyrra- málið. — H.T. Vinna Kennarafrú óskar að ráða unga stúlku til að líta éftir börnum og aðstoðar við heimilisstörf. — Gott kaup og aðbúnaður. — Vinsamlegast skrifið með nánum upplýsingum, til Mrs. Radwan, 58, Humber Avenue, South Ockendon, Romford, Essex, England. — Þingi frestað Framh. af bls. 1 í Efri málstofunni. Purdon sagði, að lokum, að Frjálslyndiflokkur inn myndi ekki leggja stein í götu Homes. --XXX----- Home lávárður ræddi í dag við Harold Wilson, formann brezka Verkamannaflokksins, um frest un þingsetningar. Að fundinum loknum sagðist Wilson vera and vígur frestuninni vegna þess að hún væri eingöngu í þágu íhalds flokksins. Talið er, að Home lávarður afsali sér aðalstign á morgun. Á hann þá hvorki sæti í Efri né Neðri-málstofu þingsins þar til aukakosningarnar hafa farið fram. Vilji hann vera viðstaddur fundi, sem fara fram - í þessari viku til undirbúnings þingsetu, verður hann að sitja á áheyrenda pöllunum. í dag hélt Home lávarður fyrsta ráðuneytisfund sinn og er það í fyrsta skipti í 61 ár, sem lávarð ur er í forsæti á slíkum fundi í Bretlandi, en 1902 var Salis- bury lávarður forsætisráðherra. — Bænastund Framh. af bls. 3 kassar á bátadekki brotnir upp. Afturseglið, sem við höfðum uppi, rifnaði í tætlur og margt smærra gengið úr skorðum. Okkur rak 90 sjó- mílur meðan á veðrinu stóð. Er því slotaði, vorum við staddir á 64°50' Nbr. og 35° VI. Stýrimaðurinn, Magne Ny- bö, sýnir okkur skemmdirnar. Sjá má hvar járngrindverk hafa lagzt á hliðina, ramm- gerðir kassar rifnað upp og brotnað í spón og björgunar- báturinn, sem var nærfellt ó- skemmdur, hefur slitið víra og skemmt frá sér. Þegar við göngum inn í brúna sjáum við hvernig dyrabúnaður hefur gengið úr festingum og hvar hann hefur lent á stóli föitum í brúargólfinu og síðan kast- ast þvert yfir brúna og valdið skemmdum á gluggakarmi bakborðsmegin. Lán er að hann lenti ekki á skipstjóran- um, sem var einn í brúnni, er atburðurinn átti sér stað. Brú- in er þröng og stóð skipstjór- inn frammi við gluggann og mun það hafa orðið honum til lífs. Inni f kortaklefanum sýndi stýrimaður okkur hvernig straumbreytarnir fyrir lóran- tækin og senditækin höfðu blotnað þar sem þeim er kom- ið fyrir í setbekk í klefanum. í Angmagsalik fengu þeir gert við ratsjána og hér í Reykjavík ætluðu þeir að fá önnur tæki lagfærð. Auðséð var að þeir skip- verjar höfðu þolað þunga raun vestur í Grænlandshafi. Skip- stjórinn var fölur og tekinn og sýnilega úttaugaður af þreytu eftir hina erfiðu för. Ekki vissi hann enn hvort ráð ast mundi að hann héldi heim eftir viðgerðir hér, eða haldið yrði undir Grænlandsstrendur á ný. LEIÐRÉTTING í frásögn af ræðu Gunnars Thoroddsen um bráðabirgða- breytingu og framlengingu nokkurra laga er birtist í Mbl. í gær, féll niður hluti úr setn- ingu. Setningin er rétt þannig: Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra kvað þetta frumvarp að efni til samhljóða öðrumfrum- vörpum, sem samþykkt hafa ver- ið á undanförnum árum að öðru leyti en því, að niður væru felld ákvæði um að innheimta vöru- magnstoll, verðtoll o.fl. með við- auka og ennfremur um bráða- birgðasöluskatt 8% en þessi á- kvæði voru felld niður með nýj- um tollskrárlögum, sem sam- þykkt voru á sl. vori. í FRÉTT af aðalfundi Varðbergs, sem birtist í Mbl. í gær, var það mishermt, að Björvin Guðmunds- son hefði verið kosinn formaður. Björgvin Vilmundarson var kos- inn formaður. Þá féllu niður I prentun nöfn tveggja manna, sem kosnir voru í aðalstjórn, þeirra Ásgeirs Jó- hannssonar og Jóns Á. Ólafsson- Erhard til Washington og Parísar Bonn, 22. okt. (NTB): — Kanzlari Vestur-Þýzkalands, Ludcig Erhard, skýrði frá því í dag, að í næsta mánuði færi hann til Washington og Parísar til við ræðna við Kennedy, Bandaríkja forseta, og De Gaulle, forseta Frakklands. Kanzlarinn skýrði fra þessu á fundi þingflokks Kristilega demó krataflokksins. Sagðist hann, halda til Frakklands 21. nóv. og dveljast þar tvo daga. Frá Frakk landi sagðist kanzlarinn halda til Washington til viðræðna við Kennedy Bandaríkjaforseta, og bandariska ráðherra. — Simaskráin Framh. af bls. 8 vissum flokkum númera, t.d þeim sem eru í flokknum 22000 22499, af því að þar eru einnig númerin til stöðvanna á Akra- nesi, í Borgarnesi, á Brúarlandi, Selfossi, í Hveragerði, Selási og Vestmannaeyjum. Þetta fer nú að lagast, í fyrsta lagi þegar nýja símaskráin tekur gildi, þvi að um leið eru númer ýmsra stóxra notenda flutt í annan númeraflokk, og í öðrulagi þeg- ar sjálfvirka símasambandið við notendur í Vestmannaeyjum og á Akranesi og Selási verður opnað. Fleiri ráðstafanir verða og gerðar til þess að ráða bót á of miklu álagi á einstaka núm ei'aflokka. Það er mjög mikil hjálp fyrir starfsmenn símans, að notendur kvarti skjótlega í nr. 05, ef ólag kemur fram á síma þeira, sér- staklega eftir að breytingin 3. nóvember hefur farið frarru — Utan úr heimi Framh. af bls. 12 búnaðinum, enda er brýn þörf á slíkri aukningu. En hin ójafna skipting á jarðnæði eða sam- dráttur alls bezta jarðnæðis á hendur fárra manna hefur leitt til þess, að stór hluti þeirra sem yrkja jörðina er landlaus eða lifir á smáskikum, sem eru illræktanlegir, meðan stór svæði af góðu landi eru látin óhreifð. I þessum löndum er spurningin um atvinnuleysi þiví nátengd spurningunni um jafnari skipt- ingu jarðnæðis. Ráðstefnuna í Genf sitja full- trúar ríkisstjórna, vinnuveit- enda og launþega frá um 40 lönd um. Verkefni þeirra er að semja tillögur um alþjóðareglur, sem ræddar verða á atvinnumáiaráð stefnu ILO í júní 1964. í skýrslunni er lögð áherzla á, að geri menn sér ekki ljóst að vandamálið er knýjandi og krefst skjótra aðgerða, þá kunni svo að fara að ekkert verði úr umbótum eða þær verði mátt- litlar, þegar reynt verði að koma þeim á. Ta » Blað- burðar- böm óskast í þessi blaðahverfi vantar Morgunblaðið nú þegar unglinga, röska krakka eða eldra fólk til að bera blaðið til kaupenda þess. Mávahlíð — Háteigsveg — Karlagðtu Lambastaðahverfi á. Seltjarnarnesi — Breiðagerði — Safamýri — Framnes- veg — og Laugaveg, neðst. Gjörið svo vel að tala við afgreiðslu blaðsins eða skrifstofu. JltotgMitlrlafeffr Sími 2 2480

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.