Morgunblaðið - 13.11.1963, Blaðsíða 3
f Miðvikudagur 13. nóv. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
3
MA.RÍA Ragnarsdóttir var
íulltrúi íslenzkra kvenna í
fegurðarsamkeppninni í Lond
on, sem- lauk 4. nóvember.
Ungfrú Crawford frá Jamaica
sigraði hinar 30 fegurðardís-
irnar og hlaut 2500 sterlings-
punda verðlaun, önnur var
Elaine Miscall frá New Zea-
land og þriðja Lisa Stahl-
berg frá FinnlandL María var
ekki í úrslitum.
Mbl. barst í einkaskeyti
frá AP-fréttastofunni eftirfar
andi samtal við Maríu:
Ungfrú ísland, hin ljós-
haerða María Ragnarsdóttir,
neitaði því í viðtali í dag, 4.
nóvember, að hún væri í
Fegurðardrottningarnar í Lon don. Sigurvegarinn Carole Joan frá Jamaica í miðju. Aðrar, talið
frá vinstri: Grete Quiberg frá Svíþjóð, nr. 5, Marja-Liisa Stahlberg frá Finnlandi, nr. 3 og
Elaine Miscall frá Nýja Sjálandi nr. 2 og Airro Korva frá Danmörku nr. 4.
Elzta kona Islands og dóttursonardóttir hennar tala um:
Fegurðarsamkeppni og mjólkurdrykkju
megrunarkúr, til að búa sig
undir keppnina. Þessi 21 árs
gamla, bláeyga fegurðardís,
sem mælist 82,5—55—90 sm.,
þar sem mestu máli skiptir,
hló að orðróminum um megr-
unarkúrinn.
— Hann hefur líklega orðið
til af því ég drekk svo mikla
mjólk, segir hún. Ég drekk
marga potta á dag, en það
stendur ekki í sambandi við
neina megrunartilraun. Ég
trúi því heldur ekki að það
sé til svo mikils gagns fyrir
húðina. Ég drekk mjólk af
því hún er fjölskylduráð til
langlífis. I>egar ég var 12 ára
gömul, kom ég 1 heimsókn til
hennar langömmu minnar,
sem er yfir tírætt. Hún sagði:
Ef þú villt lifa lengi, þá
skaltu drekka eins mikla
mjólk og ég geri. Síðan hefi
ég drukkið mjólk.
María segir að langamma
hennar sé nú meira en 100
ára gömul og amma hennar,
sem líka drekkur mikla
mjólk, sé næstum áttræð. —
Það virðist hafa gefizt þeim
vel, segir María svo ég vona
að það dugi mér líka.
Langamma Maríu, sem hún
nefnir í viðtalinu, er María
Andrésdóttir í Stykkishólmi,
sem er elzta kona landsins,
105 ára gömul. María er ern
og hin hressasta, hún man
flest frá fyrri dögum og fylgj
ist með öllu sem gerist í út-
varpi og blöðum. Fréttaritari
blaðsins í Stykkishólmi, hitti
hana að ,máli í gær og ræddi
við hana um fegurðarsam-
keppnina og mjólkina. Hann
sagði Maríu að talið væri að
María Ragnarsdóttir og ung-
frú Holland í þjóðbúningum.
Ungfru Holland, Else Onstenk, og ungfrú lsland, María Ragn-
arsdóttir sitja í hárþurrku á hárgreiðslustofu í West End í
Landon, tál aS búa sig undir fegurðarsamkeppnL
dóttursonardóttir hennar
hefði lært að drekka mjólk af
henni, sagði gamla konan:
— Þetta hlýtur að vera vit-
leysa. Hún hlýtur að eiga við
ömmu sína, því ég get sagt
þér það, að ekki hefi ég drukk
ið mikla mjólk um dagana.
Ætli sú mjólk sem ég hafði
undir höndum í minum bú-
skap hafi nú ekki að mestu
farið í blessuð börnin, enda
átti ég nú 15 börn. Ég man
ekki eftir öðru . frá fyrstu
bernsku en að ég hafi orðið
að eta það sem að kjafti kom.
Ég minnist þess þegar ég var
á Kvennabrekku fyrir tæp-
um 100 árum, að ef ég fúls-
aði við einhverju þá fékk ég
ekkert að eta þann daginn.
Fóstra mín sagði þetta full-
gott í mig. En ég skal segja
þér eitt, að það var eitt sem
mér bauð alltaf við. Það voru
sauðaáfir út á skyrhræring.
Mikið ósköp var ég lengi að
kingja þessu.
— Hvað finnst þér um þess
ar fegurðarsamkeppnir?
— Æ, góði, mér finnst þetta
svo óendanlega hégómlegt, að
ég get ekki sagt frá því. Mér
findist miklu eðlilegra að
verðlauna dyggðina heldur
en fegurðina, sem enginn gef-
ur sér sjálfur. En ég get nú
ekki láð unglingsgreyjunum,
þó þeir gleypi við þessu. Börn
eru nú alltaf börn, vinur
minn. En það get ég sagt þér,
að ef eitthvað getur gert þau
hégómleg, þá er það einmitt
þetta.
María Andrésdóttir, sem er
105 ára gömul.
• MÁLFUNDAKLÚBBUR
Málfundaklúbbur hefur starf
semi sína í kvöld kl. 20.30. (Sjá
nánar í auglýsingu annars stað-
ar í blaðinu).
• HELGARRÁÐSTEFNA
Helgarráðstefna um stefnu-
skrá HEIMDALLAR hefst n.k.
laugardag kl. 14.00 í Valhöll.
• RAUÐA BÓKIN
Rauða bókin, leyniskýrslur
SÍA, er til sölu á skrifstofu
HEIMDALLAR. Félagsmenn eru
hvattir til að kynna sér þennan
gagnmerka vitnisburð um eigið
mat kommúnista á starfsaðferð-
um þeirra og markmiðum
• NÝIR FÉLAGAR
Komið á skrifstofu HEIM-
DALLAR og kynnið ykkur fjöl-
breytta starfsemi félagsins.
SUkSTtlMR
Margvíslegir
möguleikar
Alþýðublaöið vbirtir í gær for-
ystugrein undir fyrirsögninni:
„Notum frestinn vel“. Ræðir
blaðið frestun verkfallanna og
samkomulagið við verkalýðs-
hreyfinguna.
í niðurlagi forystugreinarinnar
er m.a. komizt að orði á þessa
leið:
„Þegar þess er gætt að efna-
hagskerfi þjóðarinnar er í aðal-
atriðum sterkt, ættu að vera fyrir
hendi margvíslegir möguleikar
til að leysa kjaradeilurnar á
þann hátt, að sú Iausn bjóði ekki
heim nýrri verðbólgu og jafnvel
falli krónunnar. Aðeins slík lausn
kemur láglaunafólki að haldi.
í gær var sá dagur, sem í tvo
mannsaldra hefur um allan heim
verið kenndur við vopnahlé.
Hann minnir okkur á, að eftir
vopnahlé kemur vandasamt starf
við friðarsamninga, en þeir verða
sjaldan varanlegir nema í þeim
ríki mildi og raunsæi“.
Þáttur
F ramsóknarf lokksins
Mörgum verður tíðrætt um
þátt Framsóknarflokksins í átök-
unum um kjara- og efnahagsmál-
in undanfarið. Eru flestir sam-
mála um að leiðtogar hans hafi
komið fram af hinu mesta ábyrgð
arleysi í þessum málum. Hefur
öll afstaða þeirra miðazt við það
að gera ríkisstjórninni erfitt fyrir
og torvelda framkvæmd viðreisn-
arinnar. Hinsvegar láta þeir sér
kjör hinna lægst Iaunuðu og laun
þega yfirleitt í léttu rúmi liggja.
Það er ekkert launungarmál,
að sumir leiðtogar Framsóknar-
flokksins hafa látið í það skína
undanfarið, að verkföllunum
væri fyrst og fremst ætlað að
ryðja Framsóknarmönnum braut
í ráðherrastóla. Hafa þeir jafn-
vel ekki hikað við að fullyrða að
þetta mundi gerast alveg á næst-
unni. Nú væri svo komið, að ekki
væri lengur hægt að stjórna án
Framsóknarflokksins.
Kommúnistar hafa að vísu
ekki verið látnir vita mikið um
þessar ráðagerðir Framsóknar-
manna. Hinsvegar .hafa þeir Ey-
steinn Jónsson og Þórarinn Þór-
arinsson lagt mikla áherzlu á það
að láta kommúnista halda að þeir
standi einhuga með þeim í hverju
sem á gengur, ekki sízt í hvers-
konar ófriði og upplausn.
Algerlega
áttavilltir
„Hannes á Horninu" ræðir
nokkuð hið ábyrgðarlausa at-
ferli Framsóknarmanna í dálk-
um sínum í Alþýðublaðinu í
gær. Kemst hann þar m.a. að
orði á þessa leið:
„Framsóknarmenn þóttust eiga
léttan leik. Þeir báru ekki ábyrgð
á ríkisstjórninni. Þeir ætluðu sér
ekki að leita úrræða til lausnar
á vandamálum. Þeir báru ekki á-
byrgð á verkalýðshreyfingunni.
Þeir þurftu ekki að leysa vanda
hennar“.
— „Framsóknarmenn voru á-
horfendur — og ætluðu sér að
vera áhorfendur áfram. Þeir
vildu stríð“. —
„Á föstudagskvöld barst það til
eyrna Framsóknarmanna fyrir-
varalaust, að einhver fundahöld
væru — og þeir urðu bókstaflega
að gjalti. Þetta sást m.a. í glugga
Tímans á laugardag, þar sem birt
var bull um þessi mál og það
kom líka áþreifanlega í Ijós í
Tímanum, sem kom út seint á
sunnudagskvöld. Það var bersýni
legt að þessi gjörsamlega ábyrgð-
arlausi armur stjórnarandstöð-
unnar hafði snögglega orðið al-
gjörlega áttavilltur“.
Þetta er vissulega rétt hjá
„Hannesi á Horninu".