Morgunblaðið - 12.01.1964, Síða 32
TVÖFALT
EINANGRUNARGLER
zQára reynsla herlendis
EGGERT KRISTJAN
aa«ffrt<s»aa
9. tbl. — Sunnudagur 12. janúar 1964
7771
CALCULATOR
H.BENEDIKTSSON HF...
LOFTLEIOIR LÆKKA FAR-
GJOLOIN ÁLÍKA OG IATA
STJÓRN Loftleiða hefur und-
anfarna daga setið á fundum
og rætt hver skyldu vera við-
hrögð félagsins vegna lækk-
unar IATA-flugfélaganna á
flugfargjöldum.
Mbl. náði snöggvast tali af
Alfreð Elíassyni, fram-
kvæmdastjóra Loftleiða, er
blaðið var að fara í pressuna
kl. 5 í gær. Hann kvaðst ekki
geta að svo komnu máli skýrt
endanlega frá ákvörðun Loft-
leiða, þar eð unnið væri að
henni. En víst mætti telja að
Loftleiðir mundu taka það til
bragðs að lækka frá 1. apríl
fargjöldin svipað og IATA-fé-
lögin og halda þannig áfram
að vera fyrir neðan þau, mis-
jafnlega mikið þó.
Ekki kvaðst Alferð geta
sagt neitt um flugvélakaup
félagsins.
Þrjá báta rak á land
upp á fsafirði
brezkum togara forðað
á síðustu stundu
ISAFIRÐI, 11. jan. — Um 7 leyt
ið í morgun rak á land þrjá vél-
báta hér á Isafirði. Vestan storm
ur var og sleit bátana upp úr
bátahöfninni og rak upp í fjöru
fyrir neðan Hafnarstræti. Varð-
skipið Albert gat dregið einn
þeirra, Pólstjörnuna, 24 tonn að
stærð, á flot, en hinir bátarnir
tveir, Sædís 15 lestir og Ölver
5 lestir, liggja báðir í fjörunni
enn þá. Talsverðar skemmdir
ihafa orðið á öllum bátunum, en
Iþó mestar á Ölver.
Fyrr í nótt munaði minnstu að
brezka togarann Port Vale GY
484 ræki upp í fjöru rétt hjá
gömlu bæjarbrygjunni. Laust
Ráðhúsið
sýnt í
Hagaskóla
UPPDRÆTTIR og líkan af ráð-
húsi Reykjavíkur verður til sýn
is í Hagaskóla sunnudaginn kl.
14.00—22.00 og mánudag til mið
vikudags kl. 17.00—22.00.
fylgir blaðinu 1 dag. Er hún 24 i
síður, en þar af eru 4 síður meðl
efnisyfirliti Lesbókar 1963. Að öðru ;
leyti er efni Lesbókar sem hér |
segir:
Bls. 1 Konan, sem kölluð var 1
Vinur fanganna, eftir séra |
Jón Kr. ísfeld.
— 2 Svipmynd: Aldo Moro
— 3 Formælíngin, smásaga eft-1
ir Gerard Chinotti
— - Kennedy, ljóð eftir Yngya 1
Jóhannesson
— 5 Bókmenntir: Ungir, gegg-
jaðir dýrlingar, spjall um i
Jerome Davið Salinger, (
eftir Örnólf Arnason
— 7 Hjá brezkum Suffragettum \
eftir Helga Valtýsson
— S Uppruni nokkurra sígildra )
jólasálma, eftir séra Sigur-
jón Guðjónsson, prófast í 4
Saurbæ. Síðari grein.
— 10 Eftirminnilegur dagur í (
Washington, eftir Hauk ,
Hauksson
— 12 Fjaðrafok
— 15 Fyrsti negrinn út I geim- 1
inn?
— 17 Gömul gelísk þula.
— 19 Krossgáta
— 20 Rannsóknir á Suðurskauts- t
Iandinu.
eftir kl. 3 í nótt var togarinn
að leggja frá bryggju, en rak
undan veðri og mun hafa rekið
stýrið í grynningar og talsverða-r
skemmdir urðu á því. Rak tog-
arann síðan norður Pollinn og
varpaði út akkeri, en dró það
með sér drjúgan spöl. Togarinn
kallaði á hjálp og fór varðskipið
Albert til aðstoðar við hann. —
Þrátt fyrir mikið öldurót tókist
hafnsöfumönnunum Jóhannesi
Elíassyni og Pétri Bjarnasyni að
koma dráttartaug frá Albert yfir
í togarann, sem hamlaði um 20
—30 m. frá landi. Gat þá Albert
dregið togarann að bryggju. Tal
ið er að skemmdir á stýrinu séu
það miklar að draga verði tog-
arann til Reykjavíkuir til viðgerð
ar.
Dakctavél F.í. teppt í
roki á Akureyrarvelli
AKUREYRI, 11. jan. — Veður
er hvasst hér í dag og byljótt
mjög, svo að sjóinn hvítskefur.
Vindmælir veðurstofunnar, sem
staðsettur er að húsabaki við
lögreglustöðina mælir 9-10 stiga
meðalvind og 11-12 stiga vind-
hraða í byljum.
Dakotavél frá Flugfélagi ís-
Stolið 12
þús. kr.
virði af
tóbaki
Aðfaranótt laugardagsins var
brotizt inn í verzlunina Björk
við Strandgötu í Hafnarfirði og
stolið þar sígarettum og tóbaki,
sem er 12 þús. kr. virði. Fóru
þjófarnir inn uim glugga á bak-
hlið verzlunarinnar og rifu frá
honum. Daginn áður hafði eig-
andi verzlunarinnar fengið nýja
sendingu af sígarettum og tóbaki
og því voru óvenju miklar birgð
ir af þessum vörum í búðinni.
Llnuvertíð
hafin
ÓLAFSVÍK, 11. jan. — Línu-
vertíð er hafin hér í Ólafsvík og
reru tveir fyrstu bátarnir sem
tilbúnir eru í gær, Steinunn og
Valafell. Afli var fremur lítill,
tæp 3 lestir hjá hvorum bát,
enda slæmt sjóveður. Aðrir tveir
bátar eru senn tilbúnir að hefja
róðra. Engir bátar eru á sjó í dag
vegna hvassviðris. Óvíst er enn
hve margir bátar róa héðan í
vetur á línu. verða senniiega 5—
6. H. K.
lands er teppt hér og er stórum
bílum og vinnuvélum komið fyr-
ir framan við hana, til að brjóta
vindinn. Er henni ekki talin
veruleg hætta búin, ef ekki
bvessir enn meir. Sem kunnugt
er, er hér ek.kert flugskýli, sem
rúmað get; vél af þeirri stærð
og engar festingar eru á flug-
vélastæðinu sjálfu.
Ekki er enn kunnugt um nein-
ar verulegar skemmdir af veðri
þessu hér um slóðir. I>ó hafa
nokkrar þakplötur losnað og
fokið, a.m.k. af einu húsi — Sv. P.
Allir ísafj arða rbátar voru á sjó
í gær, þrátt fyrir slæmt sjóveð-
ur og varð ekkert að hjá þeim,
nema hvað Vikingur II. missti
9 bala af lóðum.
Mesti rosi hefur verið hér alla
vikuna, vestan hvassviðri og
stormur og stórrigning eða hagl-
él. Ek'kert hefur verið flogið hinig
að síðan á mánudag.
H.T.
Hogkvæmt að
virkja Klóifoss
í Hvító
AKRANESI, 11. jan. — Á síðasta
aðalfundi Andakílsárvirkjunar
sagði framkvæmdastjórinn, Ósk-
ar Eggertsson, að rannsóknir á
orkuveitusvæðinu hefðu sýnt að
mjög hagkvæmt myndi reynast
að virkja Kláffoss í Hvítá. Þar
mætti reisa 11—13 þús. kw orku-
ver, sem framleitt gæti 80—90
millj. kílówattstunda á ári, þre-
falt stærra en Andakílsárvirkj-
un. — Oddur.
45 Færeyingar
r
til Islands
GULLFOSS átti að koma við í
Færeyjum seint í gærkvöldi, til
að taka þar 45 Færeyinga, mest
stúlkur í frystihúsin á íslandi.
Er skipið væntanlegt síðdegis á
mánudag til Reykjavíkur.
m
Tr-
j. '
: ................................. >■ > *■ ^ 1 'i'- ■.................................. ■■■■:■■■ | . .> .0-............................................ ■- x
í 1
Útliisteiknmg af verzlunar- og skrifstofuhúsnæði Silla og Valda
að ofar. Austurstrætismegm, að neðan er mynd tekin inn í Aust-
urstræti Fremst sézt viðbygging Útvegsbanka tslands, þá kemur
Silla og Valda-húsið eins og það lítur út í dag.
Stórhýsi í smíðum R.vík
Mikið er uim byggingarfram-
kvæmdir í bænum og möiig stór-
hýsi að rísa. Eitt þeirra er skrif-
stofu- og verzlunarhúsnæði Silla
og Valda í Asturstræti.
Byggingarframkvæmdiir hóf-
ust um mánaðarmótin júni og
júlí s.l. og var húsið steypt upp
á röskum fjórum mánuðum. Er
nú verið að múrhúða það að
innan og leggja leiðslur.
Silla og Valda-húsið verður
sex hæðir og kjallari. Kjallari,
1. og 2. hæð verða verzlunar-
húsnæði, en fjórar efri hæðirn-
ar ætlaðar skrifstofum. Hver
hæð er 400 fermetrar að flatar-
máli og búizt við að húsið verði
langt á veg komið um mitt næsta
ár.
Framhlið hússins, sem snýr að
Austurstræti, og sú sem snýr að
Hafnarstræti, verða settar í þeg-
ar húsið er um það bil fullsmíð-
að, og eru þær úr aluminíum og
gleri.
Húsið teiknaði Bárður Daníels
son, verkfr., byggingarmeistari
er Kristinn Sigurjónsson, múr-
arameistari Jón Bergsteinson.
Sjá um fleiri stórlhýsi í smiðum
á bls. 13.