Morgunblaðið - 10.06.1964, Blaðsíða 6
9
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10. júní 1964
60 sjúklinga sjúkra-
hús rísi á Selfossi
Frá aðalíundi sýslunefndar Árnessýslu
Fyrsíi skátaflokkurinn fær Risasúluna
Seljatungu, 31. maí.
AÐAL.FUNDUR sýslunefndar
Árnessýslu var haldinn í Hús-
mæðraskóla Suðurlands að Laug
arvatni dagana 26.—30. maí. f
upphafi fundarins minntist odd-
viti nefndarinnar, Páll Hallgríms
son sýslumaður, nefndarmanna
er látizt höfðu frá því er síðasti
sýslufundur var haldinn, en það
eru þeir Bjarni Jónsson fulltrúi
Selvogshrepps og Jóhannes Þor-
steinsson fulltrúi Hveragerðis-
hrepps. Ennfremur þeirra Dags
Brynjólfssonar frá Gaulverjabæ
og Jóns Ögmundssonar frá Vorsa
bæ, en þeir áttu báðir sæti í
sýslunefnd um áratugi. Nefndar-
menn vottuðu hinum látnu virð-
ingu sína með því að rísa úr
sætum.
Fundurinn afgreiddi 54 mál,
þeirra merkast staðfestingu á
uppkasti að samningi, er milli-
fundanefnd hafði gjört um af-
hendingu alþýðuskólans á Laug-
arvatni til ríkisins. En svo sem
kunnugt er samþykkti Alþingi
fyrir fáum árum lög varðandi
héraðsskóla í landinu, þar sem
ríkið gengst inná að taka við
rekstri skólanna ef viðkomandi
sveitarfélag felst á þá skipan.
í samningnurr. segir að skipun
skólanefndar skuli haldast ó-
breytt og tekjur er til falla af
skólanum skuli falla staðnum til
ábata.
Umræður urðu um fyrirhug-
aða byggingu nýs skólahúss fyrir
Húsmæðraskóla Suðurlands, en
fullnægjandi teikningar lágu
ekki fyrir og var ákveðið að sýslu
nefndin yrði kölluð til auka-
fundar á árrnu er teikningar
lægju fyrir a£ hálfu ríkisvalds-
ins.
gjald er öbreytt frá fyrra ári,
Til menntamála var
veitt: ............ 406,516,00
Til heilbrigðismála 1,671,000,00
Búnaðarmála .... 108,000,00
Hafnargerð og lending-
arbóta í héraðinu 340.000,00
Lögreglan á Seifossi 500,000,00
Byggingarfulitrúi 85,000,00
í>á staðfesti nefndin nýja sam-
þykkt um sýsluvegasjóð sam-
kvæmt hinum nýju vegalögum,
er Alþingi hefir nýlega sett.
Sýsluvegir eru nú um 200 kíló-
metrar og höfðu samkvæmt hin-
um nýju vegalögum stytzt um
70 km.
Samþykkt var áætlun um tekj-
ur og gjöld sýsluvegasjóðs og eru
niðurstöðutölur hennar 1,8 millj.
kr. Þar í er framlag ríkisins móti
álögðum skatti sýslunnar kr.
848 þús. Alls var veitt til við-
halds og nýbygginga vega:
1.135 þús. Til heflunar 200 þús.
og til brúa 280 þús. Að ýmsu
leyti er um verulegar breyting-
ar að ræða varðandi fjárveitingu
til sýsiuvega svo sem það, að
nú er veitt ein heildarupphæð í
hvert hreppsfélag með skiftingu
milli viðhalds og nýbygginga þar
sem um slíkt er að ræða, svo og
að hér eftir er vegamálaskrif-
stofan veghaldari allra vega lands
ins, hvort heldur þeir eru í
þjóðvega eða sýsluvegatölu.
Sýslunefndin endurkaus Þor-
lákshafnarnefnd en hana skipa:
Páll Hallgrímsson, Sigurður Óli
Ólafsson, Ásgeir Eiríksson, Guð-
jón Sigurðsson og Benedikt Thor
arensen.
Böðvar Magnússon á Laugar-
vatni, er um árabil hefir átt sæti
af hálfu sýslunefndarinnar í
skólanefnd. Húsmæðraskóla
Suðurlands, óskaði nú eftir að
verða leystur frá sbörfum í nefnd-
inni og kaus sýslunefndin Hjalta
Gestsson í hans stað.
Sýslunefndin hefir um mörg
ár haft fundarstað sinn í Hús-
mæðraskóla Suðurlands þar sem
húsum ráða Jensína Halldórs-
dóttir forstöðukona og Gerður
Jóhannsdóttir kennari. Er að-
staða þar öll hin ákjósanlegasta
til fundarstarfa. — Gunnar.
Aðalíimdur
Búnaðarsambands
Austur-Skaftfell-
inga
Höfn, Hornafirði, 4. júní.
BÚNAÐARSAMBAND A-Skaft-
fellinga hélt aðatfund sinn í
fundarhúsi Lónsmanna, laugar-
daginn 30. maí. Fundinn sátu
tólf fulltrúar frá öllum búnaðar-
félögum sýslunnar aúk stjómar,
endurskoðenda og ráðunauta fé-
lagsins.
Fundurinn gerði ýmsar sam-
þykktir í málefnum bænda. Egill
Jónsson, ráðunautur sambands-
ins, gaf ítarlega skýrslu um störf
in á s.l. ári. M.a. gat hann þess,
að á félagssvæðinu hefðu verið
ræktaðir 228 hektarar og hefði
það aldrei verið eins mikið, en
það samsvarar 1,8 hektara á
bónda. Mest var ræktunin í Mýr
ahreppi eða um 4 ha. á bónda.
Vélgrafnir skurðir voru 40 ha.
í fundarlok var úthlutað verð
launum úr minningarsjóði Jóns
Eiríkssonar og hlutu þa uað þessu
sinni hjónin Skafti Benediksson
og Sigurlaug Árnadóttir, Hraun-
koti, fyrir góða umgengni á heim
ili og fagran skrúðgarð.
— Fréttaritari.
SÍÐASTLIÐIÐ sunnudagskvöld
fór fram afhending verðlauna til
skátaflokksins Fóstbræðra í
Skátafélagi Reykjavíkur. Verð-
laun þessi eru veitt fyrir góðan
árangur í skátaíþróttuim og fyrir
tilskilda kunnáttu í skátaprófum,
en þau innihalda m.a. hjálp í við
lögum, þekkingu á áttavita og
kortamerkjum, einfaldar hæðar-
og breiddarmælingar og líflínu-
kast, auk fjölda margs, er við
kemur útistarfi. Fá skátaflokkar
eins konar öndvegissúlu til að
skreyta með fundahúsnæði sitt.
Súlan er veitt í þrem hlutum. —
Fyrsti áfangi er Dvergsúlan, ofan
á hana er látin Marksúlan og efst
kemur Risasúlan. Er þetta gert
til þess að fleiri flokkar geti unn
ið til viðurkenningar, og til þess
að sjálft lokcunarkmiðið, Risasúl
an, sé ekki of fjarlægt skátunum,
sem flestir eru á aldrinum 11—
14 ára.
Keppni þessl er einn þáttur í
starfi Bandalags íslenzkra skáta
á þessu ári og opin öllum flokk
um á landinu.
Þegar hafa um 50 flokkar unn
ið til Dvergsúlunnar og nokkrir
hafa hreppt Marksúluna. Risa-
súlan varð hins vegar að bíða
vorsins, því til þess að öðlast
hana þarf flokkurinn m.a. að
fara í þriggja sólarhringa úti-
legu, þar sem eldað er á hlóðum
og ýmis maniwirki reist úr spir-
um og reipurru
Myndin hér að ofan sýnir
Högna Egilsson, fræðslustjóra
Bandalags íslenzkra skáta af-
henda flokksforingja Fóstbræðr-
anna fyrstu Risasúluna, sem unn
ið hefur verið til.
Elzti borgari
Raufarbafnar lát-
inn, 102 ára
Raufarhöfn, 4. júní: —
ELZTI BORGARI Raufarhafnar,
Guðný Guðjónsdóttir, andaðist 1
nótt, á 103. audursári. Hún var
fædd að Mánárseli á Tjörnesi 10.
apríl 1862, dóttir Guðjóns Eiríks
sonar og Jóhönnu konu hans.
Hún giftist árið 1887 Sigfúsi Vig
fússyni, ættuðum úr Þistilsfirði.
Mann sinn missti hún 1934. Þeim
hjónum varð átta barna auðið.
— FréttaritarL
Birtur var fyrir nefndinni
samningur er millifundanefnd
með fullu umboði hafði gjört
við sýslunefnd Rangárvalla og
Vestur-Skaftafellssýslu um
byggingu sjúkrahúss á Suður-
landi. Kveður samningurinn svo
á að leita skuli samþykkis heil-
brigðisyfirvaida fyrir því að
byggja á Seifossi sjúkrahús er í
fyrsta áfanga rúmi 60 sjúklinga
með tilheyrandi vinnuplássi og
og verði byggt eftir fyrirmynd
teikningar af sjúkrahúsi Akra-
ness. Undirbúningi að fram-
kvæmdum og rekstri sjúkrahúss
ins annist fyrir hönd sýslufélag-
anna, nefnd sjö manna, er sé
svo skipuð að, sýslunefnd Árnes-
sýslu kjósi fjóra menn, Rangár-
vallasýslu tvo menn og Vestur-
Skaftafellssýslu einn mann. í
nefndina voru kjörnir af hálfu
Árnessýslu til tveggja ára: Ragna
Sigurðardóttir. Þórustöðum,
Matthías Ingibergsson, Selfossi,
Gunnar Sigurðsson, Seljatungu
og Teitur Eyjólfsson Hveragerði.
Skal og þessi nefndarhluti Árnes
inga hafa með höndum stjóm á
rekstri núverandi sjúkrahúss á
Selfossi.
Fjárhagsnefnd lagði fram fjár-
hagsáætlun sýslusjóðsins fyrir
yfirstandandi ár og voru niður-
stöðutölur hennar rúml. 3,5 millj.
króna. Niðurjafnað sýslusjóðs-
Eftirvænting
Þjóðleikhússtjóri brá sér til
Osló á dögunum og samdi þar
um heimsókn Kiev-ballettsins.
— að því er haft er eftir hon-
vm í fréttum. Menn bíða nú
fullir eftirvæntingar. Hvaða
ballett-flokk fáum við — og
hvenær verður hann endursend
ur?
Rigning
Kunningi minn var að dá-
sama veðrið fyrir nokkrum dög
um Og sagði, að sennilega
mundi haldast þurrt þar til
skemmtiferðaskipin færu að
koma. Hann sagði að það brygð
ist varla, að útlendu skemmti-
ferðaskipin kæmu með rigning-
una með sér.
Ég fer að halda að eitthvað
sé til í þessu. Fyrsta skemmti-
ferðaskip sumarsins hafði varla
lagzt fyrir festar á ytri höfn-
inni þegar máttarvöldin byrj-
uðu að hella yfir okkur úr öll-
um sónum fötum. Væri ekki róð
að biðja þessi skip að sigla fram
hjá?
Frétt frá sálfræðingi
Mér hefur borizt úrklippa úr
Politiken í Kaupmannahöfn,
öðru stærsta blaði Danaveldis.
Þar segir frá hvítasunnuhátíða
höldum á íslandi. Ég nenni
varla að þýða alla greinina, en
hér koma samt glefsur úr
henni, lauslega þýddar:
„Hvítasunnan á tslandi var
fyrst og fremst drykkjuhátíð.
Ekki hvað sízt við Hreðavatn,
en þar söfnuðust 4—600 ung-
lingar saman .... flestir voru
mjög illa klæddir, fötin öll rif
in — þvæld .... Sem dæmi
um framkomu hópsins má
nefna, að unga fólkið notaði
handklæði veitingahússins við
Hreðavatn til þess að bursta
skó sína, en skildi nærföt sín
eftir á salernunum Stúlkurnar
16—20 ára voru alls ekki skárri
en hinir.
Unga fólkið var ekki mjög
herskátt. Samt skemmdi það
lögreglubíl og braut rúður í
fjárhúsum — svo að glerbrot-
unum rigndi yfir sauðfé, sem
var að bera. Bifreið bóndans að
Hreðavatni var líka eyðilögð,
svo og bátur. Fólkið á bænum
svaf ekki yfir hvítasunnuna, en
hélt vörð við fjárhúsin til þess
að koma í veg fyrir íkveikju.
Unga tólkið lét ekki segjast við
aðvaranir, en ógnaði með alls-
herjaráirás (generalangreb) á
bæinn.
Lögreglan í Borgarfirði sendi
8 menn á vettvang, gerði tölu-
vert af áfengi upptækt, en unga
fólkið var svo el birgt af gene
ver og peningum, að ekki sá
högg á vatni.
Á Snæfellsnesi var hópur
unglinga á ferðalagi, nokkrir
þeirra aðeins 13 ára. Flestir
voru drukknir. í hinum litla og
friðsama bæ, Stykkishólmi,
varð lögreglan að loka einni
götu til þess að ferming gæti
farið fram í kirkjunni án trufl-
unar frá krakkaskrilnum.
Fólk úr sama hópi fór á bátl
út í nokkrar eyjar á Breiða-
firði. Ungur ís/lendingur hegð-
aði sér þannig við tvær ungar,
danskar stúlkur, að þær tóku
í fætur hans og skutu honum
fyrir borð. Til þess að hetjan
drukknaði ekki, héldu þær í fót
leggi unga mannsins, þar til
þær töldu, að hann hefði kælzt
í hinu salta vatni fjarðarins —
nægilega mikið til þess að hægt
væri að draga hann upp í bát-
inn á ný. Rétt áður en bátur-
inn kom að landi var ungum
manni enn varpað fyrir borð
þar eð framkoma hans þótti ó-
bærileg.
í nágrenni Hafnarfjarðar
voru liðlega 100 unglingar, frá
10 ára aldri, við drykkju í tjald
búðum. Lögreglan hafði 30 flösk
ur af sterkum drykkjum á brott
með sér.
Eftir svipaða atburði í fyrra
skipaði ráðherra nefnd, sem at
huga átti drykkju unga fólks-
ins. Niðurstöður nefndarinnar
liggja enn ekki fyrir“.
Svo mörg eru þau orð. Hvaða
Dani skrifar þetta, spyr e.t.v.
einhver. Undir fréttinni stendur
nafn fréttaritara Politiken á ís
landi — og hann heitir ólafur
Gunnarsson (Vík í Lóni).
Þetta getur maður nú kallað
að velta sér upp úr ósómanum.
Sjálfvirka þvottavélin
LWAMAT „nova 64“
komin á markaðinn. Fullkomn
ari en nokkru sinni. Óbreytt
verð.
AEG-umboðið
Bræðurnir ORMSSON
Vesturgötu 3