Morgunblaðið - 03.09.1964, Side 6
MORGUN BLAÐIÐ
r
Fimmtudagur 3. sept. 1954
JÞessir þrír bílar skelltust saman í Öskjuhlíð í fyrri viku (Ljósm. Mbl. Sv. >.).
Efla þarf innlent nám
í búvísindum
Framhaldsdeildiii á Hvanneyri
verði levtgd
lambratún
DACINN fyrir 75 ára afmælis-
hátíð Hvanneyrarskóla, þ.e. 8.
f m, var haldinn í skólanum
fundur í Nemendasambandi
framhaldsdeildarinnar á Hvann-
eyri.
Nemendasambandið var stofn
að 7. des 1963. Það hefur m.a. á
stefnuskrá sinni að vinna að efl
ingu framhaldsdeildarinnar.
Stjórn nemendasambandsins
skipa: Magnús Óskarsson, til-
raunastjóri, Egill Bjarnason,
ráðunautur og Ólafur Ásgeirs-
son.
Þessi fundur var aðallega helg
aður umræðum um framhalds-
deild og framtíð hennar og fram
tíðarskipulagi æðri búfræði-
menntunar hér á landi. Af því
tilefni var öllum kennurum fram
haldsdeildarinnar boðið að sitja
á fundinum og taka þátt í um-
ræðum.
Frummælendur voru þrír: Ótt-
ar Geirsson, kennari, Jóhann
Frankjson, framkvæmdastjóri
og Kristinn Jónsson, ráðunautur.
Röktu þeir all ýtarlega námstil-
högun í iandbúnaðarháskólum
nágrannalanda okkar og kröfur
sem þar eru gerðar um mennt-
un landbúnaðarsérfræðinga.
Yoru þeir sammálá um að Fram
haldsdeildin á Hvanneyri væri á
margan hátt góður skóli og
stæði á sumum sviðum jafnfæt-
i* landbúnaðarháskólum ná-
grannalandanna, en töldu þó, að
lengja þyrfti námið og bæta að-
stöðuna til að vel væri séð fyrir
þessum málum hér á landi. Þá
lögðu frummælendur áherzlu á
innlent sérnám í búfræði væri
ómissandi þáttur í námi þeirra,
sem tækju að sér leiðbeiningar
og fræðslustörf í land'búnaði hér
á landi.
Á eftir framsögu erindunum
urðu fjörugar umræður. Engin
ályktun var gerð að þessu sinni,
en kosin var 5 manna nefnd, til
að gera ýtarlegar tillögur um
skipan æðri búfræðimenntunar á
Islandi á grundvelli þeirra um
ræðuna, sem fram fór og ályktun
ar um þetta efni, sem samþykkt
var á stofnfundf nemendasam-
bandsins.
Ályktun sú, sem þar var sam-
þykkt og hér fer á eftir, fellur
í höfuðatriðum saman við þau
sjónarmið, sem mest bar á á
fundinum.
Hún er svohljóðandi:
„Fundur í Nemendasambandi
Framhaldsdeildarinnar á Hvann-
eyri, haldinn 7. des. 1963, telur
brýna nauðsyn bera til að efla
innlent nám í búvísindum hið
Hálfar niður í brúsana
Nú er brúsamjólkin úr sög-
unni í Reykjavík. Þeír, sem
að staðaldri hafa keypt mjólk
í lausu máli vegna 'verðmunar-
ins, eru að sjálfsögðu óánægð-
ir með þessa ráðstöfun — en
frá sjónarmiði heilbrigðis og
heilsugæzlu hlýtur þetta að
vera spor í rétta átt.
Það gegnir öðru máli með
stórar stofnanir, sem fá mjólk
á stórum brúsum beint frá Sam
sölunni. Þá eru brúsarnir að-
eins opnaðir á einum stað —
þar, sem mjókin er notuð.
En mér hefur aldrei fundizt
það samræmast þeim kröfum,
sem nú eru gerðar um með-
ferð mjólkur — að ausa úr
brúsunum í mjólkurbúðunum:
Láta þá standa þar opna. Og
þegar fer að minnka í þeim
verða afgreiðslustúlkurnar að
fara hálfar niður í brúsana til
þess að fylla ílát viðskiptavin-
anna.
fyrsta. Fundurinn telur- að ódýr-
asta og fljótfarnasta leiðin til
þess sé að lengja námið við
Framhaldsdeildina á Hvanneyri
til samræmis við hliðstætt nám
erlendis. Hann skorar því á alla
þá sem auka vilja veg íslenzks
iandbúnaðar, að taka höndum
saman og hrinda máli þessu í
framkvæmd hið fyrsta.
Sjálfstæð íslenzk búvísindi
hafa verið á frumstigi. Leiðbein
endur landbúnaðarins hafa til
skamms tíma orðið að sækja
menntun sína til annarra þjóða.
I skólum þeim, sem íslenzkir bú-
visindamenn hafa sótt er kennsla
að sjálfsögðu miðuð við erlendar
aðstæður. Landbúnaðurinn er
háðari náttúru- og þjóðfélagsað-
stæðum en allir aðrir atvinnu-
vegir. Nám við erlenda búnaðar
skóla hentar því ekki að öllu
leyti íslenzkum aðstæðum, enda
Framh. á bls. 12
Og ýmis önnur matvara ætti
líka að seljast í loftþéttum um-
búðum á sama hátt og mjólk
í hyrnum og flöskum. Þannig
ætti að vera með brauðin.
Hvenær ætli Reykvíkingar fái
nú loks niðurskorin brauð í
loftþéttum umbúðum, eins og
tíðkast víða erlendis?
Nógu góður í hvern
sem er
Og svo er það fiskurinn. L‘g
efast ekki um að starfsmenn
heilbrigðiseftirlitsins stinga
nefinu inn í fiskbúðir bæjar-
ins við og við. Enda þótt alls
staðar sé vafalaust fylgt sett-
um reglum, þá er ég viss um
að margir fisksalar gætu aukið
enn á hreinlætið og jafnframt
gert fiskinn svolítið „matar-
legri“ en hann er víða.
Annars er það oft þannig
með fólk, sem lengi hefur unn
ið í fiski, að það er hætt að
DAGBLÖÐIN hafa nýlega birt
mynd af minnismerki um Einar
skáld Benediktsson, sem fyrir-
hugað er að reisa á Klambra-
túni.
En er hægt að setja upp minn-
ismerki um listaskáldið á
Klambratúni? Ég held ekki, ekki
vegna staðarins, hann er ágætur,
en nafnið’ er fráleitt.
Þetta tún, sem í daglegu tali
er nefnt Klámbratún, er að ég
hygg hluti úr þremur túnum.
Eftir því sem ég bezt veit, voru
þrír landnámsmennirnir á Rauð-
arárholtinu.
Ég held að Guðmundur Jafets-
son hafi verið þeirra fyrstur
1908—9. Valdi hann sér stað hæst
suðvestan í holtinu, byggði þar
snoturt býli og nefndi Háteig.
Áður átti hann húsið „Veghús“
við Veghúsastíg, en seldi það
Jóni frá Bráðræði og konu hans,
Höllu. Þau bjuggu þar s'íðan sem
eftir var ævi með dóttur sinni
Helgu, en hún andaðist síðastliðið
ár.
Ekki veit ég hve lengi Guð-
mundur og Rúna bjuggu í Há-
teigi eða hvort þau fluttust það-
an lifandi, því ég fluttist burt úr
bænum 1918.
Síðar eignaðist Halldór skip-
stjóri Þorsteinsson frá Bakka-
búð og kona hans, Ragnhildur
Pétursdóttir frá Engey, þetta
býli, byggðu stórt og fallegt hús
og stækkuðu grasnytina.
Þá byggði Pétur Hjaltested
gullsmiður sitt fagra býli Sunnu-
hvol, var það neðar í holtinu, en
í beinni línu við Háteig, sem sjá
má af því, að Háteigsvegur var
lagður meðfram þéim.
Nokkru sunnar og neðar kem-
ur svo síðasta býlið, Klambrar,
sem Maggi Júl. Magnús byggði.
Nefndi hann það eftir ættaróðali
sínu. Hann var sonur hinna mætu
hjóna, Júlíusar læknis Halldórs-
sonar og konu hans, Ingibjargar
Magnúsdóttur.
líta á fiskinn sem hverja aðra
matvöru. Fiskur er bara fiskur
— og ekki meira um það. Á
skólaárum var ég á togara
nokkur sumur og stundum
þótti mér skipsfélagar mínir
fara illa með matvöruna, sem
við vorum að afla. Ég hafði þá
orð á þessu og þegar við veidd
um þorsk, sögðu þeir: „Þetta
er nógu gott í helv. . . Bret-
ann‘. Þegar það var karfi:
„Ætli Rússinn gleypi þetta
ekki fyrir því“. Sem betur fer
er aUtaf verið að uppræta
þessi sjónarmið, en ég hef grun
um að fiskurinn þyki samt
nógu góður ofan í hvern sem
er — hvernig svo sem hann er.
Nýr andstæðingur
Andstæðingar Haligríms-
kirkju hafa nú fengið
virðulegan mótstöðumann til
að lumbra á. Það er
nefnilega upplýst að sænska
kirkjan hafi fært Hallgríms-
Þetta býli stendur enn, og nafn
þess hefur orðið langlífast. Nafn-
ið er ekki fallegt — að mínum
dómi, og aðflutt. Ég held að það
ætti aldrei að flytja nöfn, þau
fara vel þar sem þau fæðast, en
geta orðið fráleit annars staðar.
Ég fæ t.d. alltaf ónotakennd, er
ég fer fram hjá húsi hér í borg
með nafninu Oddi og öðru í Hafn-
arfirði með nafninu Þórsmörk.
Þessir staðir eru engum líkir, og
það er ekki hægt að flytja þá
með sér.
Er ekki líka skrítið, að Unu-
hús skuli vera komið á Veghúsa-
stíg?
Ég er nú orðin full langorð
um efni það, sem hér um ræðír,
en það sem vakir fyrir mér, er
hvort ekki sé nú tími til kominn
að velja þessum fagra reit, því
ég veit að þessi fyrirhugaði gróð-
urlundur okkar verður fagur —
fallegt nafn við sitt hæfi. Ég tel
að hann eigi hvorki að kenna við
teig eða tún, þau eru á sínum
stað, og gott að svo er, en þá
verður að halda vel um þá hefð.
Mætti t.d. ekki kenna þennan
stað við hlíðarnar og nefna hann
Hlíðalund eða eitthvað því líkt?
Annars ætla ég nú ekki að setja
mig í það dómárasæti, en treysti
því, að Borgarráð og málfræð-
ingar komi nú með nýtt nafn,
og það áður en minnismerkið
kemur.
Anna Bjarnadóttir.
JÁBNBHAUTARSLYS
Arnhem, 31. ágúst (NTB)
TVÆR járnbrautarlestir, önn
ur vestur-þýzk, hin hollenzk,
rákust saman S Axnhem i
Hollandi í dag. Vitað er að
fjórir menn biðu bana i
árekstrinum og fjöldi mann*
hlaut meiðsli. Eldur kom
upp í lestunum við árekstur-
inn, en varð fljótlega slökkt-
kirkju eina milljón króna — og
ljóst er, að rausn Svía mun
flýta eitthvað fyrir því að turn
Hallgrímskirkju gnæfi yfir
borgina. Nú spyrja sumir hvort
hinir pennalipru andstæðingar
þeirrar Hallgrímskirkju, sem
rísa á, muni nú ekki fara að
skrifa á sænsku.
Surtseyjar-frímerki
Ég er alltaf að bíða eftir því
að heyra eitthvað frá póst-
stjórninni um Surtseyjar-frí-
merki. Nú hef ég frétt, að eng-
ar ráðagerðir séu uppi um að
gefa út fímerki með Surtsey
og þykir mér það miður. Ekki
vegna þess að ég safni frímerkj
um. Heldur vegna þess að mér
finnst ástæða til að sýna Surts
ey þennan sóma og jafnframt
að útbreiða á þann hátt þekk-
ingu um landið. Falleg Surts-
eyjar-sería yrði vafalaust
merkur viðburður 1 íslenzkri
frímerkjaútgáfu. — Annars get
ur verið, að póststjórnin hafi
enn ekki frétt um þessa marg-
umræddu Surtsey, því hún
(póststjórnin) fær dagblöðin
sennilega í pósti.
* ••
WH-KAUPFELOG
Nú er rétti tíminn til að panta
Rafhlöður fyrir veturbui.
Bræðurnir Ormsson hf.
Vesturgöiu 3. — Simi 11467.