Morgunblaðið - 03.09.1964, Side 15
Fimmtudagur 3. sept. 1964
MORCUN BLADID
15
j= tilneíndi frambjóðendurna. —
j= Að fundinum loknum sagði
H Humphrey, að enn væri ekk-
= ert ákveðið. Frá Washingtou
= hélt hann rakleiðis til
= lantic City og snæddi þar
= kvöldverð ásamt konu sinni,
= Mauriel og nokkrum vinum
= þeirra. Hjónin snæddu þegj-_
g andi og gestirnir horfðu á
s þau. Allir hugsuðu um það
H sama, um manninn í Hvíta
M húsinu, sem á þessari stundu
= var að ákveða hvort Hump-
H hrey yrði í framboði til vara-
j= forsetakjörs eða ekki.
Greinin um val Johnsons á
= varaforsetaefni, sem fer hér
E á eftir nokkuð stytt, birtist
= fyrir skömmu í bandaríska
S stórblaðinu „The New York
( Times“.
Það var með ráðnum hug
og í sérstökum tilgangi, sem
Johnson Bandaríkjaforseti
frestaði fram á síðustu stund
að útnefna Hubert Hump-
ábyrgð á nokkrum hluta ut-
anríkismálanna og koma fram
fyrir hönd forsetans erlendis
og heimafyrir við ýms tæki-
færi.
Þegar Johnson hafið skýrt
frá vali sínu sagði hann: „Ég
valdi Humphrey vegna þess
að dómgreind mín og viðræð-
ur mínar við demókrata víðs
vegar um landið sannfærðu
mig um, að hann væri hæfast-
\ir til þess að gegna forseta-
embættinu, ef eitthvað henti
mig.“ Hann kvaðst aldrei hafa
tekið jafn alvarlega ákvörðun
og fyrst og fremst haft í huga,
að sagnaritarar framtíðarinn-
ar gætu sagt, að gefinn hefði
verið gaumur því, sem mestu
máli skipti.
Johnson ákvað að miða val
sitt á varaforsetaefni við hver
yrði hæfastur forseti, ef hans
nyti ekki lengur við. Hann
gerði allt, sem unnt var til
þess að demókratar sameinuð
Humphrey og Johnson eftir útnefninguna á flokksþinginu. Til vinstri við Humphrey er kona
hans og til hægri dóttir þeirra Nancy, en fyrir framan Johnson er Luci dóttir hans.
Lynda Bird Johnson sussar á fulltrúa á flokksþinginu til
þess að faðir hennar geti tekið til máls. Fulltrúar fögnuðu
í 25 mínútur, þegar Johnson var útnefndur forsetaefni og
tilraunir dóttur hans tii þess að binda endi á fagnaðarlæt-
in báru lítinn árangur.
Hvers vegna Humphrey
varð fyrir valinu
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
ÞEGAB Lyndon B. John-
son Bandaríkjaforseti,
skýrði flokksþingi demó-
krata í Atlantic City frá
því, að hann hefði valið
Hubert Humphrey, öld-
ungadeildarmann, varafor-
setaefni flokksins, sagði
hann m.a., að Humphrey
hefði ekki verið valinn
fyrst og-fremst til þess að
skapa jafnvægi á framboðs
listanum, heldur vegna
þess, að hann væri hæfast-
ur til þess að gegna em-
bætti forseta, ef nauðsyn
krefði.
Sem kunnugt er, skýrði
Johnson ekki frá ákvörðun
sinni um val varaforsetaefnis
fyrr en nokkrum klukkustund
um áður en flokksþingið sam-
þykkti framboð hans. John-
son kallaði Humphrey á sinn
fund daginn, sem flokksþingið
hrey, öldungadeildarmann,
varaforsetaefni demókrata. —
Johnson efaðist aldrei um
hæfni Humphreys, en hann
vildi reyna að afla öldunga-
deildarmanninum eins mikils
fylgis innan demókrataflokks-
ins og hugsanlegt var, og það
hafði tekizt þegar opinber til-
kynning var gefin út um vara-
forsetaefnið.
Auk þess vildi forsetinn full
vissa sig um að hann og
Humphrey litu varaforseta-
embættið sömu augum. Þeir
ræddu þetta lengi, þegar
Humphrey heimsótti Johnson
í Hvíta húsið daginn sem á-
kvörðunin var tekin, og kom-
ust að samkomulagi um eftir-
farandi atriði:
1. Varaforsetinn skal, fyrir
hönd stjórnarinnar, hafa yfir-
umsjón með geimrannsókn-
um, afvopnun, heilbrigðismál-
um, baráttunni gegn fátækt og
fleiri málum, sem Humphrey
er vel kunnugur.
2. Varaforsetinn skal bera
ust um varaforsetaefnið og
frestaði ákvörðuninni. Hon-
um fannst það skylda sín að
hlusta á skoðanir annarra
fram á síðustu stund, ef þeir
vildu reyna að sannfæra hann
og sjálfur vildi hann hafa
tækifæri til að reyna að sann-
færa aðra. Daginn, sem út-
nefning varaforsetaefnis fór
fram, hóf forsetinn störf kl.
5,30 f.h. og fram til hádegis
ræddi hann við 50 mikils-
metna demókrata víðs vegar
að. •
Fyrir nokkru leitaði John-
son álits Deans Rusks, utan-
ríkisráðherra, Roberts Mc
Namara, varnarmálaráðherra
og MacGeorges Bundys, rað-
gjafa Hvíta hússins um utan-
ríkismál, á væntanlegu fram-
boði -Humphreys. Þeir voru
allir sammála um að Hump-
hréy væri hæfastur til þess
að gegna embættinu. John-
son lagði áherzlu á hve mik-
ils hann mæti dómgreind
þessara manna og fagnaði
stuðningi þeirra við Hump-
hrey.
— ★ —
Vangavelturnar um næsta
varaforsetaefni demókrata
hófust þegar við lát Kennedys.
Á fundum með fréttamönnum
var Johnson oft beðinn um að
gefa upplýsingar um hver
væri líklegastur frambjóðandi,
en hann varðist alltaf allra
frétta.
Fyrstu mánuðina eftir em-
bættistöku Johnsons var oft-
ast rætt um Humphrey, Eug-
ene McCarthy, öldungadeild-
arþingmann og Robert Kenn-
edy, dómsmálaráðherra, sem
væntanleg varaforsetaefni. Þó
var talið nær fullvíst, að John-
son myndi aldrei velja Kenn-
edy, því að hann vildi sigra
forsetakosningarnar án þess
að þurfa að þakka Kennedy-
nafninu hluta sigursins.
Fyrstu mánuðina, sem John-
son gegndi forsetaembættinu,
var minnsti vinsemdarvottur
af hans hálfu oft túlkaður
sem vísbending um væntan-
legt varaforsetaefni, og af
þeim sökum voru mörg nöfn
nefnd. Robert Wagner, borgar
stjóri New York, sat við hlið
frú Johnson í forsetastúkunni,
þegar Johnson ávarpaði sam-
einað þing í fyrsta sinn. Það
nægði til þess að blöðin tóku
að ræða um borgarstjórann
sem væntanlegt varaforseta-
efni. Johnson sendi skömmu
síðar framkvæmdastjóra frið-
arsveitanna, Sergent Shriver,
með bréf til Páls páfa og eftir
það þótti hann um tíma líkleg-
ur til að verða fyrir valinu.
Eftir því sem nær leið útnefn-
ingu varaforsetaefnisins, fjölg-
aði nöfnunum, sem nefnd voru
í því sambandi. Ríkisstjórar
síðar tilmæli um að ganga ekki
of hart fram í baráttunni að
sinni og forðast að sýna
Kennedy beina andstöðu. Þeg-
ar Johnson í júlí útilokaði
alla ráðherra stjórnar sinnar
sem varaforsetaefni, hvöttu að
stoðarmenn forsetans Hump-
hrey til þess að afla sér vin-
sælda og stuðnings innan
fokksins og þá hófst kosninga
barátta hans fyrir alvöru.
Auk þess að ræða við áhrifa-
mikla demókrata frá flestum
ríkjum, lét Johnson fara fram
margar skoðanakannanir til
þess að kyna sér hver nyti
mests stuðnings sem varafor-
setaefni. Humphrey var efstur
á blaði í flestum þeirra. En
Humphrey og Muriel, kona hans.
helztu ríkjanna, sem demókrat
ar ráða, komust allir á blað
og einnig margir öldungadeild
armenn. Aðeins einn full-
trúadeildarmaður, Cornelius
Gallagher, kaþólskur íri frá
New Jersey, var nefndur, þótt
Johnson segði oftar en einu
sinni, að ekki mætti gleyma
fulltrúadeildarmönnum, þegar
leitað væri frambjóðanda.
Humphrey fylgdist með
gangi mála og beið átekta, en
þegar helztu stuðningsmönn-
um hans þótti aðrir vera farn-
ir að skyggja of mikið á hann
í umræðunum um varaforseta-
efnið, tóku þeir að senda leið-
togum ýmissa félaga innan
Demókrataflokksins greinar
og bæklinga, þar sem farið var
lofsamlegum orðum um hann.
Frá Hvíta húsinu bárust
stuðningsmönnunum skömmu
vangavelturnar um varafor-
setaefnið héldu áfram og dag-
ana fyrir flokksþingið bar þá
hæst Humphrey og McCarthy.
Daginn, sem útnefningin fór
fram, sendi McCarthy John-
son skeyti, þar sem hann
kvaðst eindregið- mæla með
Humphrey. Skömmu eftir að
það barst hélt Johnson fund
með fréttamönnum í garði
Hvíta hússins, en þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir tókst þeim
ekki að fá upplýsingar um
varaforsetaefnið. Það var ekki
fyrr en Johnson steig upp í
flugvélina til Atlantic City,
sem endi var bundinn á óviss-
una og vangavelturnar, en
aldrei hafa jafnmörg nöfn ver
ið nefnd í sambandi við vara-
forsetaefni í Bandaríkjunum
og að þessu sinni.
niniiiiiiuiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiHiíiMiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii uiuuiiuiiiiuiiiuuiuiiuiiiiiuiuuiuuuuuiuiiiiiiiiiiiiuiiuuiiunuuuiiiiiiuiuuiiuuuiuuiui iiniiiiiuiniiuuoiniuuiiuiuuiuinnuniiniiiiiniiiniiiuiuiiiuiniiiiuiiiuiiiuniuiiiiiiiiiiiuuuiiiuiiiiunuuuniiiiiiiiiiiniiiiinniiiuiiiii