Morgunblaðið - 22.09.1964, Page 1
32 sífkir
Otto Grolewohl Idtinn
í Austur—Berlín
Berlín 21. september.
AP, NTB.
I.ÁTINN er i Austur-Berlín,
íorsætisráðh. Austur-Þýzka-
lanðs, Otto Grotewohl, 70 ára
uð aldri. Banamein hans var
hvitblæSL
Grotewöhl var I sósíaldemó
kratáflokknum og átti mikinn
þátt í sameiningu sósíaldemó-
krataflokkslns og kommúnista
ílokksins 1946 en samsteypa
þessarra tveggja flokka sem
gekk undir nafninu sósíalist-
iski eininganflokkuTÍnn tók
við völduan í Austur-Þýzka-
landi.
m
ÞESSI mynd var tekin um
borS í Ögra frá Hafnarfirði
1 síðdegis á sunnudag, er skip-
verjar unnu að því að inn-
byrða flugvélina, sem nauð-
ient hafði á sjónum 34 mílur
snður af Keflavíkurflugvelli.
Fóru þeir út á litlum háti og
komu reipi um vélina, sem
síðan var lyft upp á þilfar
Ögra. Vélin var á leið frá Ný
fundnalandi til Reykjavíkur
! ásamt tveimur öðrum flugvél
um sömu tegundar, sem ferja
átti til kaupenda í Finnlandi,
Frakklandi og Þýzkalandi. Ein
vélin lenti hér í Reykjavík á
sunnudagsmorgun, þessi varð
benzínlaus úti yfir sjó og nauð
lenti, en ekkert hefur spurzt
til ferða þriðju vélarinnar frá
því á laugardagskvöld. Nauð
lending vélarinnar á sjónum
tókst vel og sakaði flugmann-
inn ekki. Honum var bjargað
af þyrlu frá varnarliðinu. —
Ögri flutti síðan flugvélina til
Reykjavíkur eftir að hún
hafði verið á floti í þrjár
klukkustundir. — Sjá frétt á
baksíðu.
(Ejósm.: Adolf Hansen).
Kosningarnar í Svíþjóð
ErKatider og flokkur hans áfram við völd
Hægriflokkurinn bíður mikinn hnekki
samvinna borgaraflokkanna e r vonum betri
og kommúnistar vinna á.
' tokkhólmi, 21. sept.
NTB, AP.
ÚRSLIT kosninganna í Svíþjóð
eru nú ráðin þó eftir eigi að
telja um 180.000 utankjörstaðar-
atkvæði, og eru sósíaldemokratar
öruggir um völdin næstu fjögur
árin, enda þótt ekki sé fullvíst
hvort þeir hafi hreinan meiri-
hluta á þingi.
Hægri fiokkarnir biðu mikinn
ósigur í kosningunum og munu
hafa tapað ellefu þingsætum, en
samvinna borgaraflokkanna hef-
ur tekizt framar vonum og
kommúnistar hafa uunið þrjú
þingsæti og hafa þeir nú átta
þingmenn.
Að því er síðustu tölur greina
og með fyrirvara um utankjör-
staðaratkvæðin, sem kunna að
breyta nokkru hér um, er þing-
mannatala flokkanna þessi: sósíai
demókratar (jafnaðarmenn) 117
þingsæti, þjóðflokkurinn 40, mið-
flokkurinn 37, hægriflokkurinn
28, kommúnistar 8, „Medborger-
lig samling“ 3 og kristilegir
demókratar ekkert þingsæti.
Mikið var rætt um hugsanlega
samvinnu borgaraflokkanna í
Svíþjóð, er úrslit kosninganna
voru kunngerð þar. Enda þótt
bæði þjóðflokkurinn og miðflokk
urinn misstu atkvæðamagn bættu
þeir aðstöðu sína á þinginu, en
hægriflokkurinn beið aftur á
móti mikinn ósigur. Mælti leið-
togi hægriflokksins, Gunnar
Heckscher með aukinni sam-
vinnu borgaraflokkanna þriggja
er hann ræddi úrslit kosning-
anna, en líklegast er talið að að-
eins gangi saman með þjóðflokkn
um og miðflokknum í fyrstunni.
Foringi þjóðflokksins, Bertil
Ohlin, sagði að hann myndi
leggja til við flokksmenn sína,
Framh. á bls. 21.
fiiiiMtfliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiuimn
I Rússar |
| fylgjast J
I með |
H Um borð í USS Independ- 1
§ ence, sunnud., 20. sept. 1
gALLT frá J»ví bandarískus
gflotadeildirnar, sem takal
sþátt í Operation Team =
gVVork, fóru frá Bandaríkj-=
|unum hafa sovézk skipH
Hfylgzt með ferðum þeirra.H
=Einstaka rússneskar flug-i
^vélar hafa einnig nálgastg
j|flotadeildirnar, en þá eru|
pjafnan sendar orustuþoturs
HÍ veg fyrir rússnesku véI-=
Marnar til að hindra þær í aft=
gnálgast skipalestina. KIukk=
|an 11,55 í morgun varð \ arts
Hvift 2 rússneskar sprengju-g
§ flugvélar í rúmlega 100 sjó-i
gmílna fjarlægð frá flotan-g
lum, og voru þá sendar tværi
porustuþotur frá flugvéla-M
Imóðurskipinu Independ-i
Mence til að fylgja þeim ág
Mbrott. — Orustuvélarnar§É
Mkomust brátt að rússnesku=
Msprengjuflugvélunum, ogH
Mvoru þær af gerð seml
MBandaríkjantenn nefna Bi-1
Mson. Fylgdu orustuvélarnari
pþeim rússnesku eftir í norðg
pausturátt, og komust rúss-M
||nesku vélarnar aldrei n*r|
|en 35 sjómílur frá flotan-M
lum. — b.t
> TTiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiuiiimiiiuiuiimr<iimitff|
| ÞESSÍ mynd var tekin af
grísku konungshjónunum,
ættingjum þeirra og brúðar-
meyjum skömmu eftir brúð-
kaupið í Aþenu. Á myndinni
eru í fremri röð frá vinstri:
Friðrik Danakonungur, Ingi-
riður drottning, Anna-Maria
drottning, móðir Konstantins,
konungur, Friðrikka ekkju-
drottning, móðir Konstantin,
Gústaf Adolf Svíakonungur,
afi Önnu Maríu, Viktoria
hertogafrú af Braunschweig,
móðir Friðrikku. f aftari röð
frá vinstri: Margrét ríkisarfi
Dana, Benedikta Danaprins-
essa, Sophia, systir Konstant-
íns, maður hennar Don Juan
Carlos og Karl prins af
Hessen.
Brúðarmeyjarnar t.v. eni
Anna Bretaprinsessa (fremri)
og Christina Svíaprinsessa.
TJi. írena Grikkjaprinsessa,
(næst Svíakonungi), Tatiana
Raðzíwill prinsessa, Margrét
prinsessa af Rúmeniu og Clar-
issa prinsessa af Hessen. Brúð
armeyjarnar báru slóða önnu
Maríu, en hann var sex metr-
ar á lengd. Slörið, sem hún
bar er knipplingaslör, sem
búið var til fyrir ömmu henn-
Margréti prinsessu, fyrri konu
Gústafs Adolfs Svíakonungs
og har hún það við brúðkaup
sitt. Ingiríður móðir Önnu
Maríu bar einnig slörið, þegar
hún giftist Friðriki konungi.
(Sjá fleiri myndir frá Aþenu
á bls. 10).
Grotewohl varð forsætisráð
herra Austur-Þýzkalands í
október 1949 og gegndi em-
bættinu til dauðadags. Hann
hafði átt við mikla vanheilsu
að stríða síðustu árin og ekki
tekið mikinn þátt í stjórrtar-
störfum.
Staðgengli Grotewohls í
embætti varaforsætisráðherra,
Willi Stoph, er spáð arftöku
í emibættinu og láta sumir
jafnvel að því liggja að hon-
um muni einnig ætlað að taka
við af Walter Ulbricht. Stoph
stendur nú á fimmtugu.