Morgunblaðið - 22.09.1964, Blaðsíða 21
r Þriðjudagur 22. sept. 1964
MORCU N BLAÐIÐ
21
Tonkin - flói og S-Viet Nam:
Allsherjarverkfall í
Saigon og stjórnin völt
Washington, Moskvu, Saigon,
Tókíó og Hong Kong, 21. sept.
f — NTB, AP —
IOHNSON Bandaríkjaforseti
eagSi á blaðamannafundi í dag að
ekki væri neitt um atburðina á
Tonkin-flóa að segja annað en
það sem þegar væri frá skýrt,
tvö bandarísk herskip hefðu hafið
skothríð til viðvörunar og sér til
varnar á fjögur ókennileg sjóför,
sem komið hefðu aðvífandi að ó-
vörum í myrkri og sjógangi á
Tonkin-flóanum á föstudagskvöld
ið en haft sig á brott við skotin.
Ekki væri vitað hverjir hefðu þar
verið að verki og ekki heldur
hvað þeim hefði gengið til.
Sagði Johnson að margir hefðu
lagt hart að Bandaríkjunum að
grípa til öflugra gagnráðstafana,
en „við viljum fara að öllu með
gát, því málið er þess eðlis að af-
leiðingar þess gætu orðið mjög
alvarlegar", sagði Johnson.
> Tass-fréttastofan gaf í dag út
yfirlýsingu þess efnis, að "banda-
rísku herskipin hefðu skotið á
fimm óþekkt skip á Tonkin-flóa
á föstudagskvöldið og sökkt þrem
þeirra. Johnson var spurður
hvort hann hefði séð tilkynningu
þessa, en kvað nei við. Forsetinn
sagði, að Bandaríkin hefðu ekki
átt frumkvæðið að átökum þar
eystra og þau myndu halda áfram
eftirlitsferðum um flóann meðan
þurfa þætti, hvort sem Sovétríkj-
unum eða öðrum 'aðilum þætti
betur eða verr.
Saigon
Allsherjarverkfalli því, sem hót
að hafði verið í Saigon var aflýst
í dag, er ríkisstjórnin hafði tekið
í taumana. Verkfallið hafði þá
staðið fram eftir degi og Saigon
verið rafmagnslaus og vatnslaus
á meðan. Allsherjarverkfall þetta
átti að standa í 48 tíma og var
gert til þess að mótmæla banni
stjórnarinnar á verkföllum. Um
60.000 verkamenn tóku þátt í
verkfallinu, en þúsundir þeirra
fóru í kröfugöngu eftir götum
borgarinnar fyrr í dag, og allt að
6krifstofum Khanhs forseta, en
þar ræddu leiðtogar verkamanna
við fulltrúa stjórnarinnar og
tókst með þeim samkomulag, en
ekki er vitað með hvaða skilmál-
um það var.
Barizt um helgina
Á sama tíma bárust fregnir um
sigur stjórnarinnar á herjum
kommúnista í norðri. Var þar
harður aðgangur um helgina og
beitt bæði stórskotaliði, fótgöngu
liði, flota og flugvélum, en tveir
herflokkar kommúnista sagðir
tvístraðir, 64 fallnir og 13 teknir
til fanga. Vart varð við ferðir
flokkanna er þeir fóru yfir 17.
breiddarbauginn, sem aðskilur
Norður- og Suður-Vietnam og
var þeim veitt fyrirsát 10 kíló-
metrum norðaustur af bænum
Quan Tri Lítið mannfall varð í
liði stjórnarinnar, að sögn.
Talsmaður stjórnarinnar í Sai-
gon hefur látið svo ummælt að í
landamæraviðureigninni um helg
ina hafi það komið í ljós að meðal
hinna föllnu og fanganna hafi
verið margir hermenn úr reglu-
legu herliði Norður-Vietnam, en
ekki einungis fyrrverandi íbúar
Suður-Vietnam, sem sendir hafi
verið aftur inn yfir landamærin
til skæruliðahernaðar, eins og áð-
ur hafi tíðkazt.
Átök innanlands
Fréttir frá bænum Qui Nhon,
sém er inni í miðju landi, herma
að stúdentar hafi þar tekið öll
völd í sínar hendur, lagt hald á
útvarpsstöðina og byrjað útvarps-
sendingar þaðan. Eru stúdentarn-
ir sagðir styðja hreyfingu, sem
hefur það á stefnuskrá sinni að
stuðla að frelsi og sjálfstæði lands
ins með því að koma á fót lands-
nefndum í sérhverju héraði þess.
Þá er og tilkynnt um uppreisn
í Darlac-héraði og er sagt að þar
hafi 31 maður látið lífið, margir
fyrir öxi. Ekki hefur frétt þessi
fengizt staðfest af hernaðaryfir-
völdum, en í fjallahéraðinu Dar-
lac hefur mönnum lengi lynt illa
við þá sem láglendið byggja. —
Vilja fjallabúar — sem eru um
milljón að höfðatölu — fá sjálf-
stjórn í eigin málum.
Hernaðaryfirvöld segja að
kommúnistar hafi haft sig mjög
í frammi undanfarið og einkum
sl. viku. 19. september var líkt á
komið með báðum, stjórnarhern-
um og liði Viet Cong, og var
mannfall þá 236 af hinum fyrr-
nefndu en 270 af hinum síðar-
nefndu.
Viðbúnaður í Hanoi
Kínverska fréttastofan „Nýja-
Kína“ tilkynnti í dag að gerðar
hefðu verið sérstakar „neyðar-
ráðstafanir“ í Hanoi, höfuðborg
Norður-Vietnam, með hugsanlega
innrás Bandaríkjanna fyrir aug-
um.
Fréttastofan hafði þetta eftir
tilkynningu frá Hanoi og sagði í
henni, að gerðar hefðu verið allar
ráðstafanir til þess að tryggja
eðlilegt atvinnulíf, verksmiðju-
rekstur og skólagöngu meðan
hernaðarástand ríkti, ef til þess
kæmi, að Bandaríkjamenn gerðu
innrás í landið og beittu fyrir sig
atviki því er þeir hefðu soðið
saman að skeð hefði á Bac Bo
(Tonkin-flóa) 18. september sl.
Væru leiðtogar stjórnarinnar í
Hanoi og foringjar kommúnista-
flokksins þar sem og einnig for-
Chou En-lai
kominn aftur
Tokíó, 21. sept. — AP.: —
CHOU EN-LAI, forsætisráð-
herra Kína, tók aftur við störf-
um í dag, eftir „40 daga fjar-
veru frá opinberu lífi“ eins og
Peking-útvarpið komst að orði.
Chou En-lai hefur hvergi kom
ið fram opinberlega siðan 10.
ágúst sl. og lék það orð á, að
forsætisráðherrann, 'sem nú er 66
ára gamall hefði undirgengist
minniháttar skurðaðgerð, þótt
ekkert hefði verið tilkynnt um
það opinberlega.
Útvarpið í Peking gat þess
ekki ítarlega, er forsætisráðherr
ann tók við störfum á ný, en
sagði að meðal fyrstu embættis
verka hans í dag hefðu verið við
ræður við fyrsta sendiherra
Kongó-Brazzaville til Kína, Alp
honse Bayonue.
svarsmenn helztu stofnana og at-
vinnufyrirtækja við öllu búnir,
að sögn fréttastofunnar.
Brezkt blað í Hong Kong bar
fram þá fyrirspurn í dag, hvort
eftirlitsferðir bandarískra skipa
svo skammt úti fyrir ströndum
Norður-Vietnam væru bráðnauð-
synlegar og sagði að þær virtust
engan veginn stuðla að lausn
mála þar. „Þessar ferðir eru
hættulegar og færa Bandaríkin
nær þeirri styrjöld sem þau hafa
til þessa reyrit að forðast", segir
blaðið.
— Reyndi að bjarga
Framhald af bls. 32
flota Bandaríkjanna, var á verði
við flugval'largirðingunia þar
skamimt frá. Heyrði hann hróp-
in í drenigjunum og sá hvað
um var að vera. Hringdi hann
upp á fluigvötllinn og bað um að
send yrði hjálp, en sjálfur fór
hann niður að sjónum, dreif sig
úr fötum, og lagðist til sunds.
En flekann bar hratt undan og
þegar hann loks náði til hans
var hann orðinn að fram kom-
inn af þreytu og kulda. Dreng-
urinn á flekanum, sem er 11-12
ára gamall, reyndi að ná hon-
um upp á flekann og tókst hon-
um að haflda honum uppi.
Helikopterflugvél ai Keflavík
urflugvelli kom á vettvang og
náði báðum mönnunum af flek-
anum. Drengnum hafði ekki orð-
ið meint af,f en undirforiniginn
Var látinn af vosbúð, og á-
reynslu áður en komið var með
hann í sjúkrahúsið á flugvell-
inum.
Minningarathöfn um Rodney
E. Taylor fer fram í kapellunni
á Keflavíkurflugb&lli á þriðju-
dag.
— Afurðaverð
Framhald af bls. 32
naesta Alþingi frunlvörp að bú-
fjárræktarlögum og jarðræktar-
lögum, sem feli í sér að jarð-
rælktarframlög hækki á næsta
ári um allt að 30% í heild mið-
að við sömu framkvæmdir og
1963. Jarðræktarstyrkurinn verði
greiddur samkvæmt sérstakri
vísitölu, sem miðast við fram-
kvæmdabostnað. Bráðabingðaá-
kvæði við jarðræktarlögin
tryggi bændum fjárfnamlag til
uppsetningar á súgþurrkunar-
tækjum með mótor og blásara,
er nemi að meðtöldum jarðrækt
arstyrk Vs kostnaðar. Sé um
færanlegia vél að ræða skal styrk
urinn miðast við hæfilega stóran
rafmagnsmótor. 3ráðabirgða-
ákvæði þetta gildir næstu 5 ár.
III. Verja skal árlega næstu
5 ár allt að kr. 5 milljónum til
aðstoðar þeim bændum, sem
verst eru settir, etftir nánari á-
kvæðum og í samráði við Bún-
aðarfélag íslands, landnáms-
stjóra og stjórn Stéttarsambands
bænda.“
Fulltrúar bænda í sex-manna-
nefndinni gera ráð fyrir að aukn
ing afurðalánanna geri slátur-
leyfishöfum og mjólkurbúm
fært að hækka fyrstu útborgun
til bænda um 10%.
Vegna samkomulags rikis-
stjómar, verkalýðsfélagnna og
atvinnurekenda frá 5. júní s.L
koma verðhækkanir á landbún-
aðarvörum fram í hækkuðu
kaupi miðað við kaupgreiðslu-
visitöliu nóvemibermánaðar,
nema til komi auknar niður-
greiðslur. Ekki er búið að á-
kveða endanlega hverjar verða
niðurgreiðslur. úr ríkissjóði og
er því eftir að ljúka útreikningi
útsöluverðs einstakra vöruteg-
unda.
Lokið verður við þá útreikn-
inga og nýtt verðlag landbún-
aðaavara auglýst næstu daga.
— Óðinn
Framhald af bls. 32
skipstjórar þeirra um borð í
Óðin. Neituðu þeir báðir að
hafa verið að veiðum, en viður-
kenndu að hafa verið innan
fiskveiðimarkanna, en báðir
sögðust hafa verið með vélar-
bilun.
Þegar réttarhöldin hófust í
dag komu fyrir réttinn yfir-
menn varðskipsins, Jón Jónsson,
skipherra, Helgi Hallvarðsson,
1. stýrimaður, Þorvaldur B.
Axelsson 2. stýrimaður og Krist-
inn Árnason, 3. stýrimaður.
Lagði skipherra fram skýrslur
um staðarákvarðanir og töku
togaranna og stýrimenn báru
vitni. Því næst' kom fyrir rétt-
inn William Spearpoint, 26 ára
gamall, skipstjóri á Wyre Van-
iguard frá Fleetwood. Viður-
kenndi hann að hafa verið fyrir
innan fiskveiðimörkin vegna
vélarbilunar en hélt fast við
þann framburð að hann hefði
ekki verið að veiðum.
í kvöld komu fyrir réttinn 1.
vélstjóri og bátsmaður á Wyre
Vanguard. Síðan kom aftur fyrir
réttinn William Spearpoint,
skipstjóri og var honum kynntur
framburður varðskipsmanna og
skipverja sinna og svaraði hann
nokkrum spurningum. Var þá
rannsókn málsins lokið og því
vísað til saksóknara ríkisins,
sem ákveður hvort höfða skuli
mál á hendur skipstjóra.
Réttarhöld í máli Richards
Taylors á James Barrie hefjast
kl. 11 í fyrramálið. -— H.T.
Eldur í Akra-
borg ó Akareyrl
Akureyri, 21. sept.: —
KL. 7:30 í gærmorgun kom upp
við syðri Torfunesbryggjuna hér,
Matsveinninn ætlaði að fara að
hita morgunkaffi, þegar eldurinn
breiddist skyndilega út um allt
eldhúsið, en olíueldavél er í skip
inu.
Matsveinninn hljóp þegar I
land og hringdi í slökkviliðið,
sem kom nær samstundis. Eldur
inn var þá orðinn mjög magn-
aður, en aðallega logaði í olíu,
sem runnið hafði út á gólfið.
Slökkviliðinu tókst að kæfa eld-
inn fljótlega. Skemmdir urðu litl
ar sem engar á skipinu. — Sv. P.
— Svíjb/óð
Framhald af bls. 32
að aukin yrði samvinna sú við
miðflokkinn sem verið hefði sl.
ár. Gunnar Hedlund, leiðtogi mið
flokksins, lét sér nægja að segja
að úrslit kosninganna hefðu ver-
ið miðflokknum í hag.
Þjóðflokkurinn hefur fengið
jafnmörg þingsæti í þessum
kosningum og í kosningunum
1960, 40 talsins, en miðflokkur-
inn 37 í stað 34,áður. Þó er gert
ráð fyrir, að utankjörstaðarat-
kvæði kunni að breyta þessu
þannig að hlutföllin verði 41
þingsæti þjóðflokknum til handa
og 35 fyrir miðflokkinn.
Einnig er ráð fyrir því gert,
að utankjörstaðaratkvæðin fækki
jþingsætum sósíaldemókrata úr
117 í 114—115, en hægriflokkur-
inn fær sennilega 32 þingsæti í
stað 28.
Kommúnistar hafa unnið þrjú
þingsæti og fá nú átta þingsæti
í stað fimm áður. Þetta er mesti
kosningasigur kommúnista síðan
1944, en þá fengu þeir 12 þing-
sæti. Er þetta einkum þakkað hin
um nýja foringja þeirra Carl-
Henrik Hermannsson, sem heldur
því fast fram að hann sé óháður
Rússum og þjóðlegur i steínu
sinni. KommúnLstaf!okkurinn er
eini flokkurinn sem bæði jók
fylgi sit-t og bætti við sig þing-
sætum i kosningum þessum.
Erlander forsætisráðherra, sem
gegnt hefur embættinu um 19 ára
skeið og eflaust mun gegna því
áfram lét í ljósi óánægju sína
með fylgistap flokksins, en hann
hlaut um 2% færri atkv. en við
síðustu kosningar. Einkum missti
flokkurinn fylgi í Norður-Sví-
þjóð og helzt munu það hafa
verið miðflókkurinn og komm-
únistaflokkurinn sem góðs nutu
af því.
Miðflokkurinn fékk fyrsta iþing
sæti sitt í Stokkhólmi í þessum
kosningum og kvaðst Hedlund
flokksleiðtogi hæstánægður með
það, nú væri flokkurinn að ná
fótfestu í stórborgunum líka.
Miðflokkurinn kom engum
manni að í Gautaborg og heldur
ekki í hinni kyndugu samsteypu
Málmhauga, Lundar, Landskrona
og Hálsingbörg, en þar fékk
„Medborgerlig samling“ 27% at-
kvæða og þar með 3 þingmenn.
— Kvikmyndir
Framhald af bls, 17
kraftajötuns sem er að springa
af tilíinninguim sem hann getur
ekki látið i ljós öðruvisi en í
útrás krafta sinna; sem á sterk-
ustu augnablikunum getur að-
eins talað með hnefiunum. Harr-
is leikur ýmist á andstæðum pól
um ruddaskapar og viðkvæmni
og persóna hans er svo sterk, að
áhorfandiran sér hann ekki «ft
aðeins á tjaldinu heldur finnuor
næstum líkamlega návist hans.
Rachel Roberts túlkar sömuleið-
is mjög vel frú Hammond, sjálf-
skipaðan píslarvott fiortíðarinn-
ar og aðrir leikendur eiga stór-
an þátt í áhrifamætti myndariran
ar, sem nær þó ekki þtrí að kall-
ast meistaraverk, en er óvenju-
legt kvikmyndaverk og á heimt-
ingu á eftirtekt allra sem kvik-
myndum unraa.
Tónlistin í myndinni er spar-
samleg og eins og kvikmynda-
tóralist á að vera, í stað hiras
venjulega Hollywood-hávaða
sem oftast er eins og sýróp út í
sætsúpu.
Pétur Ólafsson
3|a herb. Ibúð við Alftamýri
Höfum verið beðnir að selja íbúð á 4. hæð í nýju
sambýlishúsi við Álftamýri. Harðviðarinnréttingar,
hitaveita, þvottavélar
malbikaða götu.
í sameign. Húsið stendur við
Ásvallagötu 69.
Símar 21515 og 21516.
Kvöldsími 33687.