Morgunblaðið - 22.09.1964, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.09.1964, Blaðsíða 31
Þriðjudagur 22. sept. 1964 MORCU NBLAÐIÐ 31 Verður reynt að ,skapa‘ höfn í Surtsey Bíðum þess, að gerf verði tilkall til vélarinnar segir Þórður Hermannsson • • á Ogra Vi-ð á Ögra vorum staddir um 4 mílur út af Hópnesi á sunnudag, þegar við urðum varir við ferðir björgunarflug vélarinnar og þyrlunnar frá Keflavíkurflugvelli, sagði Þórður Hermannsson skip- stjóri á Ögra frá Hafnarfirði í gær. Klukkan 15,45 heyrði ég í talstöðinni, að flugvél hefði nauðlent þarna úti á sjó og fórum við þegar á staðinn. Við vissum, að manninum hafði verið bjargað, en ætluðum að kanna verksummerki. Þegar klukkan var liðlega sex kom um við að flugvélinni, sem þar var á floti. Við settum út bát, og reipi var komið undir vélina, sem síðan var lyft upp á þilfarið á Ögra. Það sáust litlar sem engar skemmdir á vélinni, en okkur var ekki ■ Þórður Hermannsson, skipstjóri. kunnugt um, hve vandmeðfar in hún var, og þess vegna laskaðist hún hjá okkur, þeg ar við innbyrtum hana. Vél- ina fluttum við hingað til Reykjavíkur um kvöldið og var hún flutt suður á flugvöll eftir hádegi í dag. — Hve alvarlegar eru skemmdirnar? — Nokkrir fróðir menn litu á vélina í dag og voru ekki á einu máli um hversu miklar skemmdirnar væru. — Var mikið vatn í vélinni, þegar þið komuð á vettvang? — Nei, það var lítið — rétt aðeins á gólfinu. Flugmaður- inn skildi eftir opnar dyr og þess vegna flæddi inn í hana. En það var lítið sem ekkert. — Þið gerið tilkall til eign arréttar á vélinni? — Við álítum þetta algjöra björgun, eins og t.d. á skips- flaki, sem fyndist á reki. Við bíðum þess nú, að einhverjir aðilar geri kröfu til fiugvélar innar og förum að lögum. Heræfingar NATO á Noróur—Atlants- hafi NÚ HÖFUM við í síðustu 10 mán uðina orðið vitni að sköpun lands þar sem Surtsey er. Og þá hefur mönnum farið að detta í hug að gott væri nú að geta ráðið því hvernig slíkt land verður, og ís- lendingum dettur þá auðvitað fyrst í hug að einna mikilvægast sé að fá góð hafnarskilyrði. Og því ekki það? Þessari hugmynd hefur skotið upp hjá ýmsum, allt frá bónda austur í Hreppum, sem skrifaði dr. Sigurði Þórarinssyni um — /jb róttir Framhald, af bls. 30 föstu skoti í hliðarnet KR, en rnínútu síðar voru KR-ingar í sókn og Kjartan markvörður ÍBK lét tiltölulega auðveldan knött smjúga í igegn um greipar sér. Úr þessu varð ekki mark, en það kom mín. síðar er jarðar- Ibolti frá Ellert Schram af 25 færi skreið undir Kjartan mark- vörð, er var of seinn að kasta sér. Nú vantaði KR herzlumun- Inn til að sigra, en þrátt fyrir hörkusókn síðustu mínútur leiksins lauk honum með jafn- tefli og sigri Keflavíkur í I. deild. Jafntefli f þessum leik voru ekki óréttlát úrslit. Keflavík átti fyrri hálfleikinn og marktæki- færi KR í síðari hálfleik voru tnörg Oig hættuleg. Lið KR var í byrjun leiktíma- bilsins talið vera sterkasta knattspyrnuliðið í I. deild. Síðan hefur liðið verið á niðurleið. Þó bjóst maður við, eftir blaða- fregnum af leik liðsins í Liver- pool að KR-ingar væru aftur að »>á sér á strik. Svo virðist þó ekki vera. Það mun hafa háð liðinu, að Gunnar Guðmansson, landsliðsmaður og sameiningar- tákn framlínunnar, lék ekki með vegna meiðsla og að hinn efni- legi Theodór Guðmundsson varð að yfirgefa völlinn á fyrstu min. leiksins er hann fékk spark í læri. Vörn KR var eins og fyrr segir sterkasti hluti liðsins, en leikur framherjanna var oftast í molum. í liði hinna nýbökuðu íslands- fneistara áttu aldursforsetar liðsins, þeir Högni Gunnlaugs- son og Sigurður Albertsson, báð- ir ágætan leik. Högni var sem klettur í miðjunni og Sigurður, «em gætti Ellerts Schram vann mörg skallaeinvígi og er það ekki á allra færi. Ungu mennirnir f liðinu, Karl Hermannsson, Rúnar Júlíusson, Hóimbert Friðjónsson, Einar Magnússon og Magnús Torfason ráða allir yfir knattmeðferð, sem er með því bezta, sem sézt hjá íslenzkum knattspyrnumönnum í daig. Síðarihluta sumars hefir þeim tekizt að notfæra sér leikni sína og útfæra stuttan samleik betur heldur en önnur lið hafa gert síðan KR var á hátipdi frægðar sinnar. Að vísu tekst þeim ekki að halda þessari leik- aðferð ennþá nema kafla og kafla í leiknum, en þeir eru áreiðanlega á réttri leið. Tveir KR-ingar eru mennirnir sem standa að baki sigurs Kefla- vikur, þ'eir bræðurnir Óli B. Jónsson og Guðbjörn Jónsson. Guðbjörn þjálfaði liðið í fyrra og lagði grundvöllinn, sem Óli bróðir hans hefir byggt starf sitt á í sumar. Árangurinn af SLar^ Þeirra bræðra sannar bezt, bvílík lifsnauðsyn hverju liði er «ð hafa góða þjálfara. Og þjálf- «iar koma því aðeins að notum, »ð leikmenn hlíði fyrirmælum þeirra. Það hafa hinir ungu Keflvikingar gert. Morgunblaðið óskar Keflvík- ingum tii h«riungj u með sigur- Itfin þetta, og til vísindamanna á borð við próf. Þorbjörn Sigurgeirsson. Við hringdum því til Þorbjarnar og vildum ræða málið við hann. Hann lét lítið yfir, neitaði ekki að sér hefði flögrað þetta í hug, en bætti því við að málði væri á slíku frumstigi að varla væri um það talandi. Þetta hefði bara ver ið rætt og auðvelt sé að „speku- lera“. Það sé þó ekki eintóm fjarstæða, og vel þess virði að reyna að hafa þannig áhrif á hraunstrauminn að hann renni eins og bezt hentar til að mynda höfn á Surtsey. Óneitanlega væri þetta skemmtileg tilraun og ef hún tækist, væri það í fyrsta skipti í heiminu, sem’ maðurinn lagaði land sitt til eftir eigin höfði með an það væri að skapast. Eldur í bíl í Eyjafirði Akureyri 21. septerriber. BIFREIÐIN A-4Ö4, sjö manna Buick, skemmdist mikið af eldi í kvöld, þar sem hún stóð á1 þjóðveginum skammt frá Lauf- ási við Eyjafjörð. Eigandinn, Kristinn Jónsson, forstjóri, var á leið til Mývatns við annan mann, þegar bilunar varð vart í bílnum. Fóru þeir heim á bæinn Áshól, til þess að fá að hringja til Akur- eyrar eftir viðgerðarmanni. Voru þeim boðnar kaffiveitingar á bænum meðan þeir biðu, en með an á kaffidrykkjunni stóð, sáu þeir út um glugga að tekið var að rjúka úr bílnum. Var brugðið hart við og farið með vatn á vörubíl til að slökkva. Tókst það bráðlega, en bíllinn skemmd- ist mikið, m. a. brann afturhjól- barði og aftursæti og er bíllinn óökufær. Sérstaklega er rómuð vaskleg framganga Reynis Jóhannssonar, Áshóli við slökkvistarfið. - Sv.P. Drengur féll úr nýbyojriníiu Á SUNNUDAGINN féll 8 ára drengur niður úr byggingu í Kópavogi og fékk höfuðhögg. Var hann að leika sér ásamt öðr- KOSNINGAR til 29. þings AI- þýðusambands íslands hófust sl. laugardag, og hafa þegar verið kjörnir fulltrúar í nokkrum fé- lögum. í Félagi islenzkra rafvirkja var listi stjórnar og trúnaðarráðs sjálfkjörinn, en hann skipa Ósk- ar Hallgrímsson, Magnús Geirs- son, Sveinn Lýðsson, Kristján Benediktsson og Sigurður Sigur- jónsson. Varafulltrúar eru Krist- ján Bjarnason, Bjarni Sigfússon, Jón A. Hjörleifsson, ólafur V. Guðmundsson og Gunnar Bach- mann. í Félagi islenzkra hljómlistar- manna var kosinn Elfar Berg Sigurðsson og til vara Guðmund- ur Finnbjörnsson. í verkalýðsfélaginu Bárunni á Eyrarbakka var kosinn Gestur Sigfússon. í Félagi járniðnaðarmanna í um dreng í nýju heilsuverndar- stöðinni um kl. 2 e.h. þegar slys ið varð. Hinn drengurinn tilkynnti lög reglunni slysið. Var litli drengur inn fluttur á Slysavarðstofuna og þaðan á Landakotsspítala. Listi lýðræðis- sinna í Trésmiða- félagi Reykja- víkur LÝÐRÆÐISSINNAR í Trésmiða félagi Reykjavíkur lögðu fram lista til fulltrúakjörs á Alþýðu- sambandsþing sl. föstudag. List- inn er þannig skipaður: Harald- ur Sumarliðason, Kristinn Magn ússon, Lúther Steinar Kristjáns son, Guðmundur G. Sigfússon, Erlingur Guðmundsson og Guð- jón Ásbjörnsson. Til vara: Ólaf ur Ólafsson, Knuth Helland, Þor valdur Karlsson, Sævar Örn Kristjánsson, Jón H. Gunnarsson og Ingólfur Gústavsson. Kosið verður í félaginu bráð lega. Reykjavík var listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs sjálfkjörinn. Hann skipa Snorri Jónsson, Tryggvi Benediktsson, Kristinn Ág. Eiríksson, Ingimar Sigurðs- son og Guðjón Jónsson. Vara- menn eru Einar Siggeirsson, Erlingur Ingimundarson, Jón Jónsson, Guðmundur Rósinkrans- son og Hafsteinn Guðmupdsson. í Verkalýðsfélaginu Einingu á Akureyri varð listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs sjálfkjörinn, en hann skipa Björn Jónsson, Þór hallur Einarsson. Vilborg Guð- jónsdóttir, Björgvin Einarsson, Auður Sigurpálsdóttir, Haraldur Þorvaldsson og Margrét Magnús- dóttir. Varamenn ei-u Bjöm Gunnarsson, Adolf Davíðsson, Jónína Jónsdóttir, Freyja Eiríks- dóttir, Kristján Larsen, Eiður Aðalsteinsson og Margrét Vil- mundardóttir. London, 21. september, AP. MIKLAR heræfingar fara nú fram á Norður-Atlantshafi á veg um Atlantshafsbandalagsins og taka þátt í þeim um 160 skip, 170 flugvélar og meira en 30.000 manns frá sjö aðildarríkjum bandalagsins, Bandaríkjum N- Ameríku, Stóra-Bretlandi, Frakk landi, Noregi, Belgíu, Danmörku og Hollandi. Yfirmenn heræfinganna verða Bandaríkjamaðurinn Harold Pace Smitlh, aðmiráll, fyrir flota Bandaríkjanna og Sir Wilfred Woods, aðmíráll úr brezka sjó- hernum. Aðallega verða þessar æfingar í árásum á sjó, kafbátahernaði, tundurduflalag.ningiu og slæðingu og vernd skipalesta. Æfingarnar munu standa fram til 2. október n.k. Þeir sem þátt taka í heræfing- unum munu skipta liði og eigast við Bláir og Rauðir, árásir verða gerðar á skip á ha.fi úti og við Noregsstrendur, ráðist verður á kaupskipalest, sem í verða ýmis flutningaskip, er fengin voru sér- staklega til þess hlutverks, og hún varin. Þá verða tundurdufl lö,gð og þau slædd og ýmsar aðr- ar hernaðaraðgerðir æfðar. „Við vonum að þetta verði raunverulegustu heræfingar í sjóhernaði sem nokkru sinni hafa verið gerðar“ sagði Frank Man- son, höfuðsmaður, talsmaður Bandaríkjaflota, í varnarmála- ráðuneytinu brezka í dag. Að- spurður hvort sovézkir togarar, búnir elektróniskum tækjum myndu ekki líklegir til þess að láta í ljós töluverðan áhuga á Orgelleikari Akra- ness í Dómkirkj- unni Akranesi, 21. september: HAUKUR Guðlaugsson, orgel- leikari á Akranesi, heldur orgel hljómleika í Dómkirkjunni í Reykjavík næstkomandi miðviku dag, 23. september kl. 21. Á efnis skránni eru verk eftir Dietrich Buxtehude, Johann Sebastian Bach og Pál ísólfsson. — Oddur. þessum heræfingum bandalags- ins svaraði Manson: „Við höfum haldið þessu leyndu eftir bezfeu getu fram til þessa. Betur gátum við ekki gert“. Hann kvað fjölda sovézkra flugsveita og flotadeilda hafa verið á vakki á Atlantshaf- inu í sumar og að líkindum væru einhverjir eftir þar enn, og sennilegt að Rússar myndu reyna að sjá hvað fram færi. Bkki vair tilkynnt hvar æfingarnar færu fram fyrr en skömmu áður en skipin lögðu upp í ferðina þang- að, og var það gert til að fyrLr- byggja að Rússar eða aðrir hefðu nokkrar spurnir af þeim. Á sunnudag kom fjöldi skipa sam- an úti fyrir íslandsströndum til þess að taka eldsneyti og voru það þau sem tilheyrðu Bláliðum (Blue Strike Force) en á mánu- dag í dag fór skipalest frá Wey- moutlh á suðurströnd Englands og hélt í suðvestur. Talsmaður Bandaríkjaflota lét svo ummælt í dag að heræfingar þessar væru hinar mikilvægustu. Það væri Atlantshafsbandalag- inu brýn nauðsyn að ráða lögum og lofum á Atlantsihafinu og standast Rússum allan snúning þar. (Sjá grein annars staðar í btað inu). Leiðrétting í FRÁSÖGN minni af 90 ára af- mæli Isafoldar sl .laugardag, er vitnað í grein um Björn Jónsson, sem birtist í ísafold 21. des. 1912. Stóð undir henni í blaðinu; Jóh. Jóhannesson. Hefur þessi grein almennt verið eignuð Jóhannesi Jóhannessyni fyrrv. bæjarfógeta á Seyðifirði og síðar í • Reykja- vík. Var svo einnig gert í minni grein. í efnisyfirliti við minningar- rit um Björn Jónsson, þar sem greinin er tekin upp, er höf- undur hennar nefndur Jóhann Jóhannesson. Liggur því fyrir örugg heimild um að greinin var eftir Jóhann Jóhannesson kaup- mann, kunnan borgara hér í Reykjavík á þeim tíma. Var hann bróðir Sigurðar Júl. Jóhannes- sonar skálds. Þetta sýnir hve oft getur valdið misskilningi þegar menn skammstafa nöfn sín, ekki sízt þegar frá líður. — S. Bj. Kosningar til Alþýðusambands- þings

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.