Morgunblaðið - 22.09.1964, Page 2
2
MORGUNBLAÐID
Þriðjudagur 22. sept. 1964
Mikil óvissa ríkir
um úrslit dönsku
kosninganna
ff' Kaupmannahöfn 21. sept.
T NTB og AP.
Á MORGUN verður gengið til
kosninga í Danmörku og kosnir
179 þingmenn til þjóðþingsins.
Þar eru nú á kjörskrá þrjár
milljónir kjósenda, en þingflokk-
ar þeir sem fram bjóða í kosn-
ingunum eru ellefu talsins. Til
stóð að þeir yrðu ennþá fleiri, en
7 náðu ekki tilskilinni tölu fylg—
emda, 10.000, til að geta boðið
íram. Á þingi eiga nú sæti full-
trúar 7 flokka.
Jens Otto Krag, forsætisráð-
herra, sem varð fimmtugur nú
fyrir nokkum dögum, hefur unn-
ið dyggilega að því að afla flokki
sinum, sósíaldemókrötum, fylgis,
en flokkurinn hefur verið við
völd, undan og ofan af, siðan
1929. Honum er fengið erfitt
verk, því flokkurinn hefur naum
an meirihluta á þingi, og eru úr-
slit kosninganna svo Óviss talin,
að enginn ábyrgur stjórnmála-
maður hefur fengizt til þess að
spá nokkru þar um.
Drengssaknaðá
Mosfellsheiði
í GÆR söknuðu fjárleitarmenn
úr Mosfellssveit ungs gangna-
manns, 13 ára pilts frá Þormóðs-
dal, sem hafði orðið viðskila við
leitarmenn einhvers staðar á
miðri Mosfellsheiði og kom ekki
fram þegar hópurinn kom niður
í sveit. Var ákveðið að fara og
leita hans og hjálparsveit skáta
í Reykjavík kölluð til aðstoðar
síðdegis í gær. Fór hjálparsveit-
in upp að Miðdal, en þá fréttist
að drengurinn, sem var ríðandi,
hefði um sex-leytið komið að
Heiðai’bæ í Þingvallasveit, verið
sagt til vegar og haldið af stað
aftur yfir heiðina. Fylgdi hann
gamla Þingvallaveginum og hittu
bændur, sem fóru á móti honum,
hann svo kl. um 9 hjá Borgar-
hólum ofan við Miðdal.
Á sunnudag fóru menn úr
Hafnarfirði einnig að svipast um
eftir einum af sínum leitarmönn-
um, sem ekki var kominn fram
nokkuð löngu á eftir hinum.
Lögðu 8 menn af stað, fóru á
mis við þann týnda, sem kom
til byggða, og leituðu mennirnir
því lengi án þess að vita af því.
Jean Paul Weiss við Mooney Super 21 flugvcl sína í Reykjavíká sunnudag.
„Vlð vitum ekki
hvað kom fyrir“
-segir Weiss flugmaður, sá eini af
þremur, sem komst heilu og höldnu
til Reykjavikur
FRÉTTAMAÐUR Mbl. átti á
sunnudaginn stutt samtal við
Jean Paul Wciss, en hann var
sá flugmannanna þriggja, sem
tókst a ð komast heilu og
höldnu til Reykjavikur. Weiss
er ungur Frakki, á heima í
Toulouse, og hefur umboð fyr-
ir Mooney-flugvélar í Frakk-
landi. Hann ferjar þaer vélar,
sem hann selur, sjáifur frá
Bandarikjunum til Evrópu og
sagði að þetta væri sú niunda.
Weiss kvaðst ekki þekkja
hina flugmennina tvo svo
neinu næmi. Þeir hefðu hitzt
fyrir nokkrum dögum, og á-
kveðið að hafa samflot yfir
hafið.
„Við lögðum af stað frá
Boston snemma á laugardags-
morgun og flugum til St.
Pierre“, sagði Weiss. „Allt
gekk vel í fyrstu, en þegar við
höfðum flogið yfir Gander og
í ca. tvær klukkustundir í átt
til Grænlands, týndum við
einni vélinni. Henni var flogið
af Bandaríkjamanni, Mr. Wall.
Þetta gerðist þannig að við
urðum að fara niður í gegn-
um skýjaþykkni, en þegar við
komum niður úr því í 3.000
fetum sáum við hvergi flug-
vél Walls. Við heyrðum aldrei
neitt til hans og vitum ekki
hvað kom fyrir. Við reyndum
að kalla á hann í radíóin, en
hann svaraði aldrei.“
„Nú eftir árangurslausar til-
raunir í þá átt að finna Wall,
flugum við tveir áfram,
Moody og ég. Nokkru áður en
við komum að Grænlandi lent
um við í skýjaflókum og
ókyrrð, og misstum þá sjónar
hvor á öðrum. Við höfðum þó
radíósamband lengi vel, en
síðan rofnaði það 100 mílur
frá Grænlandi."
„Moody flaug í nær 23
klukkustundir, en ég held að
radíókompásinn hafi bilað hjá
honum, og hann fann víst
aldrei Grænland né veðurskip
ið Alfa. Hann hefur flogið
áfram án þess að geta miðað
nokkurn radíógeisla."
Weiss sagði að hinar vélarn-
ar tvær hefðu átt að fara til
Þýzkalands og Hollands. Sjálf
ur virtist hann ekkert banginn
við að fljúga áfram héðan til
Frakklands þrátt fyrir það,
sem á undan var gengið.
fi
j
i
I í
I i
! I
Ljósin n Skngniiiði óupplýst
EKKERT nýtt hefur komið fram
til að upplýsa ljósin, sem sáust
frá bæjuin beggja vegna Skaga-
fjarðar fyrir helgina. Leituðu þrír
leitarflokkar alla aðfaranótt
laugardags ströndina frá Þórðar-
uuimiiiHiimimiiiMiMiiiiimimiiiiiiMuiiiMiiiiiiiiiiim
höfða að Haganesvík. Siglfirðing
ar brutust yfir Siglufjarðarskarð
og þeir og tveir flokkar úr Fljót
unum skiptu með sér að leita
svæðið. Voru þeir enn að leita
er flugvél Slysavarnafélagsma
kom og flaug yfir allan fjörðinru
Ekkert hefur þó fundizt sem
bendi til að þarna hafi verið
bátur á ferð og ekki vitað að
béts sé saknað.
NA tS hnútar Sit 5öhfi*ter X SnjHtama 9 />*/ 7 Sliirir E Þruaur œs KuUurkH H 1 Zs MibM L
| Drengur vilttist í göngum 1
Gekk 20 - 25 km. leið
yfir Snæfellsnes
í GM villtist 13 ára drengur
í göngum í Eyjahreppi og var
búið að leita mikið að honum
og gera aðvart Slysavarna-
félaginu, sem ætlaði að fara
að senda flugvél, þegar hann
kom fram um 20—2S km.
vegalengd í burtu á Dunk í
Hörðudal — Hafði hann farið
í öfuga átt, þvert ýfir Snæ-
fellsnesið. Drengurinn heitir
Hjalti Oddsson frá Kolviðar-
nesi í Eyjahreppi.
M'bl. átti í gær símtal við
Guðmund bónda á Höfða í
Eyjahreppi og sagði hann
að drengurinn hefði sýnt mik-
inn dugnað að komast svona
langt á svo skömmum tíma,
en hann kom fram um kl. 3
síðdegis.
í gær voru fyrstu réttir til
Þverárréttar, en réttað er
sama dag. Leggja gangna-
menn af stað kl. 4 um nóttina
á hestum, en senda svo frá
sér hestana og fara að ganga
um 6 leytið um morguninn.
Var Hjalti með gangnamönn-
um er gengið var af stað, en
hefur villzt í myrkrinu frá
þeim. Rekið er saman á Höfða
og þegar niður var komið um
hádegið, kom drengurinn
ekki fram. Var strax farið að
að leita og leitað víða, en
Slysavarnafélaginu svo gert
aðvart. Var það búið að hafa
samband við bjöngunarsveit-
ina í Borgarnesi og búa flug-
vél undir leit, þegar tilkynnt
var að drengurinn hefðí kom-
ið fram á bænum Dunki í =
Hörðudal, sem er hinum =
megin á Snæfellsnesi og inn- M
arlega við Hvammsfjörðinn. s
Guðmundur á Höfða sagði =
að veður hefði ekki verið j=
slæmt, en þó norðan svelj- =
andi. Hafði pilturinn sennilaga =
snúizt eitthvað um á heiðinni =
eftir að hann tapaði af félögum S I
sínum, en dimmt var enn er B j
þeir lögðu af stað í gönguna. =
Hefur hann síðan tekið þver- =
öfuga stefnu við það sem =
hann átti að gera, en hafði S
sig til bæja í Hörðudal á =
mjög skömmum tíma miðað =
við hina miklu vegalengd, =
sem hann hefur gengið. Hafði |j
honum ekki orðið meint af j|
volkinu. s
Guðmundur sagði að göng- ||
urnar hefðu að öðru leyti 5
gengið vel hjá þeim Þverár- |j
réttarmönnum.
uiiMiiMiituuiMiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiMiiiiMiimmmiiimiMimiiiiiiiiiiMiiiiiiiiimiiMiuifiiiiiiiMiiiMiiiiiMiiiiiMiiiiiiiiiiiiMiiMiiMiiiiimiiMMiiiiiiiiiiimiimiiiimiimimimuiuiu
iioioanauin, sem her var
síðustu viku frá því á þriðju
dag, með næturfrosti sunnan
lands og kalsarigningu, en síð
ar éljum fyrir norðan, er nú
horfin, en austan strekking
ur tekinn við. Orsökin er lægð
in fyrir suðvestan land, sem
er á hreyfingu NA eftir. í gær
rigndi á sunnanverðu landinu,
en smáþykknaði upp fyrir
norðan.
SV-land og miðin: Gengur í
SA-átt og S-átt og lægir, kúr
ir í dag.
£ ciXaxi.»jl lii iiUuiaiiaiiuj Og,
miðin: A-átt, víða hvassviðri,
dálítil rigning.
Norðausturland og Austfirð
ir og miðin: A- eða SA-átt,
víða hvasst, rigning.
Suðausturland og miðin:
Hvass A og hægari SA, rign-
ing.
Horfur á miðvikudag: A-
eða NA-átt, rigning austan-
lands, en slydda eða úrkoma
norðan til á Vestfjörðum og
á annesjum fyrir norðan.