Morgunblaðið - 22.09.1964, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐID
Þriðjudagur 22. sept. 1964
Fréttamaöur Mbl á æfingum með NATO-flota
„Vigilante“-flugvélar, sem
fljúga hraðar en hljóðið, á
flugi yfir Atlantshafi.
Efst til hægri: H.M.S. Rhyl
að störfum sínum, sem kaf-
bátaspillir.
Miðja til vinstri: TJH2A „Sea
Sprite“ hefur sig á loft af þil-
fari USS Independence.
Miðja: Vice Admiral Kleber
„óvinakafbátum". Eru vélarn-
ar búnar öflugum radartaekj-
um til að finna kafbáta á yfir-
borðinu, en þyrlurnar hafa
sérstök hlustunardufl, sem
lögð eru í sjóinn til að hlusta
eftir kafbátum neðansjávar.
Ekki virtist hvíla mikil leynd
yfir aðgerðum um borð, því
fréttamenn voru frjálsir ferða
sinna um skipið og fengu leið-
sögn hvert sem þeir vildu. Og
þarna var margt að sjá, en
margt af þvi ekki fyrir leik-
menn um að dæma.
Við Islendingarnir héldum
að mestu hópinn þennan
fyrsta dag og skoðuðum skip-
ið hátt og lágt. Og hátt er það
eða alls 14 þiljur. Uppi á efstu
hæð er stjórnpallur og fyrir
neðan er aðmirállin til húsa
með sína aðstoðarmenn. Enn
neðar kemur svo radarklefinn
og stór salur þar sem fylgzt er
með öllum skipaferðurn í nánd.
við flotadeildina, bæði ofan
og neðansjávar.
í radark'lefanum fylgdumst
við með því á sjónvarpstækj-
um þegar flugvélarnar voru
að koma inn til lendingar.
Sýna vélarnar hvort flugvélar
nar koma inn í réttri stefnu
og hæð, og flugmönnum jafn-
óðum tilkynnt niðurstaðan.
Einnig er fylgzt með vélunum
í ratsjám.
í salnum þar sem fylgzt er
með skipaferðum eru margs-
konar tæki, sem notuð eru til
að safna upplýsingum, bæði
hlustunartæki og radar. Þar
eru stöðugt merktar inn á
kort ferðir skipa í nágrenninu
og eins um hvers konar skip
er að ræða. Allar upplýsingar
eru strax sendar til stöðva
admirálsins, sem stjórnar öll-
um ferðum skipanna í flota-
deildinni.
Við fylgdumst einnig með
flugtökum og lendingum ofan
Um borð í USS Independ-
ence, sunnudag, 20. sept.
FLOTAÆFINGAR Atlants
hafsbandalagsins, nefndar
Operation Team Work, hóf
ust fyrir suð-austan ísland
í morgun. Raunar hófst
hluti æfinganna fyrr, eða
þegar bandarískar flota-
deildir lögðu af stað að
vestan fyrir nokkrum dög-
um. En í morgun hittust
þær þrjár flotadeildir, sem
taka þátt í æfingunum,
hérna suður af íslandi.
Æfingar þessar verða fyrst
á hafinu miM íslands og Nor-
egs, en seinna á Biskayaflóa.
Einnig taka þátt í æfingunum
allmörg fiutnirngaskip, sem
sigla í skipalest frá höfnum
við Ermasund til að kanna
varnir herskipanna gegn kaf-
bátum. Er þetta í fyrsta skipti
frá lokum síðari heimsstyrjald
arinnar að flutningarnir yfir
Atlantshafið eru liður í æfing
mn NATO-flotans. Má það í
rauninni furðu sæta því reynsl
a-n frá fyrri styrjöldum hefur
sýnt hve siglingar þessar eru
nauðsynlegar.
í heild má segja að þetta
séu einhverjar mestu flota-
æfingar á sínu sviði.
Að þessu sinni hefur f jórum
íslenzkum blaðamönnum verið
boðið að fylgjast með æfingun
um, ásamt um 40 erlendum
fréttamönnum. Lagði allur
fréttamannahópurinn af stað
frá Keflavíkurflugvelli með
þyrlum á laugardagsmorgun.
Skammt suð-vestur af Reykja
nesi var ein flotadeildanna,
flugvélamóðurskipið Wasp, og
nokkrir tundurspillar og frei-
gát-ur. Lent var um borð í
Wasp, og þar voru allir frétta
mennirnir fyrsta sólarhring-
inn.
Allan laugardaginn var siglt
í suður og austur eftir króka-
leiðum, og stöðugt voru flug-
vélar og þyrlur á sveimi um-
hverfis skipin og yfir hafinu
í næsta nágrenni.
Elugvélamóðurskipið Wasp
er um 40 þúsund tonn með
um 2.500 manna áhöfn. Þeir,
sem ekki hafa áður komið um
borð í þessi risa-skip eiga erf-
itt með að átta sig á öllum
þeim göngum og stigum er um
skipið liggja og allir virðast
eins. Það var því ekki vanþörf
á því að útvega öllum leiðsögu
menn, að minnsta kosti í
fyrstu.
Árásarfloti NATO á Atlants
hafi.
Efst til vinstri: TJSS NEW-
PORT NEWS, flaggskip árás-
arflota NATO. Stjórnað af
Captain Robert D. Quinn. —
Flaggskipið, sem er 717 fet á
lengd er stærsta beitiskip í
heimi.
Efst í miðið: Fjórar A5A
Fljótlega eftir komuna um
borð hafði yfirmaður þessarar
flotadeildar, William M. Mc-
Cormick aðmiráll, fund með
fréttamönnum og skýrði fyrir
þeim verkefni það, sem hon-
um var falið í æfingunum. En
deildin nefnist Anti-Submar-
ine Force, og er ætlað að finna
og granda óvinakafbátum. Eru
alls 15 herskip í þessari flota-
deild auk flugvélanna frá
Wasp.
Flotadeild McCormicks er
svo deild í sameiginlegum
„Arásarflota" sem kom saman
í morgun.
Á laugardag var fýlgst með
því þegar flugvélar frá Wasp
voru sendar út til að leita að
S. Masterson, yfirmaður árás-
arflota NATO á Atlantshafi og
annars flota Bandaríkjanna.
Miðja til hægri: F4B „Phan-
tom 11“ flugvél, sem er hrað-
fleygasta orustuflugvél sjó-
hers, stendur á þilíari USS
Independence.
Neðst til vinstri: USS Inde-
af fimmtu hæð brúarinnar og
þótt mikið til um leikni flug
mannanna. Aðallega eru not-
aðar á Wasp tveggja hreyfla
skrúfuvélar búnar radartækj-
um, og bjóst ég við að þær
þyrftu allan „flugvöllinn" til
flugtaks. En þar sem vélarnar
eru mjög þungar, er þeim skot
ið á loft með „catapult“ svo-
nefndu. Nota þær aðeins 45
metra „flugbraut" og eru
komnar á 100 mílna hraða á
brautarenda. En sennilega
þarf langan tíma til að venjast
þessari öru hraðaaukningu.
Síðdegis á laugardag var
enn haldinn blaðamannafund-
ur og spurðu fréttamenn þá
yfirmenn skipsins spjörunum
úr. Flotadeildin hafði
nokkru áður lagt af stað frá
Bandaríkjunum, og þurfti
fyrst að sigla um svæði þar
sem fyrir voru „óvinakafbát-
ar“. En allt gekk vel. I ljós
kom að fleiri höfðu áhuga á
æfingunum en þátttakendur,
því rússnesk fiskiskip voru
mörg á þessum slóðum, og
sennilega einnig rússneskir
kafbátar. Hafa rússnesk skip
skotið upp kollinum í nánd
við flotadeildina alltaf öðru
hvoru, og aldrei verið langt
undan.
Eftir að dimma tók var lítið
fyrir okkur gestina að sjá og
notuðum við tækifærið til að
sjá tvær ágætar kvikmyndir
um kvöldið.
Fyrir okkur, sem vinnum
við morgunblöðin, var fóta-
ferðatiminn í morgun óeðli-
legur, því morgunverður er
snæddur frá kl. 6—7.30. Að
morgunverði loknum var svo
enn einn blaðamannafundur-
inn, en að þessu sinni vair
mættur á fundinum Kleber S.
Masterson, aðmiráll, yfirmað-
ur „ArásarflotSLns“ og stjóm-
andi annars flota Bandaríkj-
pendence orustuflugvélamóð-
urskip, sem stjórnað er af
Rear Admiral R. L. Townsend.
Neðst í miðið: RF«A könn-
unarflugvél frá USS Independ
ence í myndatökuleiðangri.
Neðst til hægri: USS Wasp,
sem stjórnað er af Rear Ad-
miral W. M. McCormick.
anna. Ræddu fréttamenn við
Masterson aðmírál í rúma
klukkustund um tilgang æf-
inganna, hvaða þjóðir taka
þátt í þeim, og um ferðir rúss
neskra skipa. Það vildi svo til
meðan fundurinn stóð yfir að
rússneskur togari, sem svipaði
mjög til vestiír-þýzku hafrann
sóknaskipanna, sigldi sam-
hliða Wasp í um tveggja rnílna
fjarlægð.
Masterson aðmiráll hafði
komið með þyrlu frá beitiskip-
inu Newport News, en það er
flaggskip hans og hin merk-
asta fleyta. Að þvi er bezt er
vitað er þetta stærsta beiti-
skipið, sem til er, og er sérstak
lega tekið fram hve byssur
þess eru hraðskeyttar.
Eftir fundinn með Master
son skildu leiðir okkar íslend
inganna. Tveir urðu eftir um
borð í Wasp, þeir Benedi'kt
Gröndal og Björgvin Guð-
mundsson. Við Tómas Karls-
son stigum hinsvegar um borð
í þyrlu, sem flutti okkur um
borð í flugvélamóðurskipið
Independence.
Ef unnt var að villast í
krókaleiðum, göngum og stig-
um um borð í Wasp, er það
ekki sáður hér í Independence.
Ekki hefur reynzt unnt að fá
nákvæmlega uppgefið hve
stórt skipið er, sumir segja 60
þúsund tonn, aðrir allt upp í
77 þúsund tonn. Þetta skip er
flaggskip Roberts Lee Towns-
ends, aðmíráls, og forustu-
skip í „árásardeildinni". Um
borð í Wasp voru aðallega
leitarflugvélar og þyrlur. Hér
eru aðallega * þotur, bæði or-
ustuþotur og sprengjuþotur.
Deginum í dag er aðallega
varið tii að birgja skipin upp
af visturn. Koma tankskip og
flutningaskip upp að herskip-
unum og vistirnar sendar um
Framh. á bls 25