Morgunblaðið - 15.10.1964, Side 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 15. okt. 1964
Útgefandi:
Framkvæmdast j óri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Ú tbreiðslus t j óri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
BREZKU KOSNING-
ARNAR OG STEFNU-
SKRÁR FLOKKANNA
Þ A Ð þykir varla fréttnæmt
lengur þótt einhver syndi yfir
Ermarsund, því að á hverju
sumri reynir mikill fjöldi
sundmanna við „kanalinn“,
eins og Bretar nefna það. Og
sumir synda meir að segja
fram og aftur.
Nokkrir hafa reynt að fara
yfir sundið í sérstaklega út-
búnum bifreiðum, aðrir i kaf-
arabúningum, og svo mætti
í flugdreka yfir Ermarsund
lengi telja. Eitt nýjasta fyrir-
bærið á þessu sviði er Frakk-
inn Bernard Danis. Hann fór
yfir sundið í flugdreka.
Danis er 37 ára og hefur
mikið yndi af sjóskíðum. Fyr-
ir nokkrum dögum ákvað
hann að fara með nokkrum
félögum sínum yfir sundið á
sjóskíðum. En Danis þótti
þetta ekki nógu mikið „sport“,
og hann ákvað því að reyna
að fljúga á skíðunum frá
Calais í Frakklandi til Dover í
Englandi. Félagar hans tveir,
Jean Martino og dr. Henri
Fucs, kusu sjóleiðina.
Bernard Danis fékk sér
flugdreka einn mikinn úr
næloni og sérstöku rólu-sæti.
Og að sjálfsögðu hraðbát bú-
inn 90 hestafla vél til að
draga sig. Svo var lagt af stað
frá Calais. Þegar hraðbátur-
inn var kominn á ferð hófst
flugdrekinn á loft og Danis
með honum.
Ferðin yfir sundið tók eina
klukkustund og 41 mínútu, en
hefði getað orðið styttri, ef
stjórnendur hraðbátsins hefðu
ekki villzt í þoku. Félagar
Danis, þeir Martino og Fucs,
lögðu af stað um leið og voru
tuttugu mínútum á undan til
Dover. — Flugdrekinn komst
hæst í um tuttugu metra hæð,
en stundum þaut hann rétt
yfir öldutoppunum. Og þegar
ferðinni var lokið sagði Danis
að hann væri orðinn máttlaus
í handleggjunum vegna þess
hve báturinn kippti snöggt í
dráttartaugina í öldununu
*
17’osningar til Neðri mál-
stofu brezka þingsins
fara fram í dag. Um úrslit
þeirra verður að sjálfsögðu
engu spáð. Flestir telja, að
mjóu muni milli hinna
tveggja stóru flokka, íhalds-
flokksins, sem farið hefur
með völd í landinu í 13 ár, og
Verkamannaflokksins, sem
verið hefur í greinilegum
vexti og sókn þetta síðasta
kjörtímabil. Má raunar segja,
að það gengi kraftaverki
næst, ef íhaldsflokkurinn
ynni fjórðu kosningarnar í
röð og færi þannig samfleytt
með völd í landinu í tæp 20
ár.
Þegar athugaðar eru stefnu
skrár brezku stjórnmálaflokk
ánna, sem háð hafa harða bar
áttu undanfarna mánuði um
fylgi brezkra kjósenda, kem-
ur í ljós, að þessum stefnu-
skrám svipar mjög hver til
annarrar. Allir flokkarnir
leggja megináherzlu á hag-
nýtingu tækni og vísinda í
þágu brezkra atvinnuvega til
efnahagslegrar uppbyggingar
í landinu. Allir flokkarnir
telja vísindin þannig lykil að
nýju og betra lífi í framtíð-
inni. Þess vegna lofa þeir
kjósendum að leggja sig fram
um að bæta áðstöðu hvers-
konar rannsóknarstarfsemi og
vísindalegrar vinnu, sem
bjargræðisvegum lands-
manna megi að gagni koma.
Athyglisvert er, að Verka-
mannaflokkurinn og íhalds-
flokkurinn lofa nokkurn veg-
inn sömu tölu nýrra íbúða á
ári hverju til umbóta í hús-
næðismálum, eða samtals um
400 þúsund nýjum heimilum
á ári. Frjálslyndi flokkurinn
tekur heldur dýpra árinni og
lofar 500 þúsund nýjum heim
ilum á ári.
Það er einnig eftirtektar-
vert, að íhaldsflokkurinn
og Verkamannaflokkurinn
reikna báðir með sama hag-
vexti í Bretlandi næstu fjög-
ur ár eða 4%. Frjálslyndi
flokkurinn lofar hinsvegar að
tryggja 5% hagvöxt.
Allir brezku stjórnmála-
flokkarnir eru sammála um
að lofa svæðabundinni upp-
byggingu atvinnufyrirtækja í
hinum ýmsu landshlutum.
Telja þeir að Lundúnaborg
sé orðin of stór og að
brýna nauðsyn beri til þess
að tryggja betur jafnvægi í
byggð landsins.
íhaldsflokkurinn er á móti
allri frekari þjóðnýtingu
brezkra atvinnuvega, en
Verkamannaflokkurinn lofar
að þjóðnýta stáliðnaðinn að
nýju. Verulegur ágreiningur
ríkir einnig um varnarmálin
milli Verkamannaflokksins
og íhaldsmanna. íhaldsmenn
telja nauðsynlegt að Bret-
land hafi yfir að ráða sjálf-
stæðum kjarnorkuvopnum,
en Verkamannaflokkurinn
vill afsala Bretum slíkum
vopnum algjörlega.
Þrátt fyrir ágreininginn
um varnarmálin og þjóðnýt-
inguna er naumast gerandi
ráð fyrir, að brezk stjórnar-
stefna muni breytast stór-
vægilega, þótt Verkamanna-
flokkurinn kynni að vinna
kosningarríar og mynda
stjórn að þeim loknum.
SORG
Á FLATEYRI
Á Flateyri við Önundarfjörð
^ ríkir nú sorg og söknuð-
ur. Þetta 500 manna byggð-
arlag hefur orðið fyrir miklu
og tilfinnanlegu tjóni. Með
vélbátnum Mumma, er sökk
um síðustu helgi út af Barða,
fórust fjórir menn, en tveir
komust af. Nú er talið von-
laust að vélbáturinn Sæfell
frá Flateyri, sem leitað hefur
verið að undanfarna daga, sé
lengur ofansjávar, en með
honum voru þrír menn. Sjö )
dugandi sjómenn frá Flat-
eyri og úr Önundarfirði hafa
þannig farizt. Að ástvinum
þeirra og skylduliði er mikill
harmur kveðinn. Missir
tveggja stórra vélbáta er
einnig mikið áfall fyrir at-
vinnulífið á Flateyri.
Við íslendingar erum hjálp
fúst fólk, þegar sorg og vand-
ræði ber að höndUm, einstakl
inga og byggðarlaga. Flat-
eyri hefur í senn orðið fyrir
hörmulegum mannskaða og
miklu tjóni á atvinnutækjum
sínum. Að því leyti sem hægt
er að bæta slíkt tjón verður
að gera það.
OLYMPÍULEIK-
ARNIR
lympíuleikarnir í Tókíó
eru fyrir nokkru hafnir.
Meira en 5500 íþróttamenn
frá 94 löndum sækja leikana
að þessu sinni.
Ólympíuleikarnir eru tákn
hinnar djúpu og einlægu þrá-
ar mannkynsins eftir friði og
bræðralagi. Á hinum frjálsa
íþróttavettvangi mætast full-
trúar æskunnar í öllum
heimshlutum, piltar og stúlk-
ur, synir og'dætur feðra, sem
fyrir örfáum árum bárust á
banaspjótum í andstæðum
fylkingum hrikalegustu heims
styrjaldar sögunnar.
Æska heimsins er í dag
hraustari og glæsilegri en
nokkru sinni fyrr. íþróttirnar
eru ríkur þáttur í uppeldi
hennar og lífi. Allar menn-
ingarþjóðir keppast nú um að
skapa æsku sinni sem bezt
skilyrði til íþróttaiðkunar og
líkamsræktar. Árangur þeirr-
ar stefnu birtist nú meðal
annars í glæsilegum afrekum
á íþróttaleikvangi Ólympíu-
leikanna í Tókíó.
Við íslendingar eigum ör-
fámenna en fríða sveit á þess-
ari miklu íþrótta- og æsku-
lýðshátíð. Fáni íslands blakt-
ir því á stöng austur í Tókíó
um þessar mundir. Við gerum
ekki ráð fyrir stórum afrek-
um okkar fólks, en við fögn-
um því að okkar litla þjóð
hefur síðustu áratugi getað
búið þannig að æsku sinni á
sviði íþróttamála, að íslenzk
æska er í dag betur íþróttum
búin en nokkru sinni fyrr,
Ýmsir íslenzkir íþróttamenn
hafa getið sér gott orð er-
lendis og þátttaka okkar í
Ólympíuleikjum er staðfest-
ing þess, að íslenzkir íþrótta-
menn eru hlutgengir þátttak-
endur á alþjóðaleikvangi.