Morgunblaðið - 11.12.1964, Side 8
MORGU N BLAÐiB
Föstudagur 11. des. 1984
— Hertogínn
Framhald af bls. 1
toginn muni þurfa að undir-
gangast kransæðauppskurð.
Hertoginn af Windsor er nú
sjötugur. Hann var krýndur
Englandskonungur í janúar
1936 að föður sínum Georg V
látnum, en sagði af sér kon-
ungdómi 10. des. sama ár til
þess að geta kvænzt fráskil-
inni bandarískri konu, Wallis
Warfield Simpson. Sem kon-
tingur bar hann nafnið Ját-
varður VIII.
— Njósnamál
Framhald af bls. 1
dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir
hálfu ári.
Bernd Bemdsson, saksóknari,
se>m kunnur er vegna atbeina
síns í réttarhöldunum yfir Dick
Helander, biskup, greindi frá því
í dag, að réttur í Stokk>hólmi
hefði ákveðið að kaupsýs'lumað-
urinn skyldi settur í gæzluvarð-
hald, þar sem grunur léki á að
hann hafi gert tilraun til njósna,
og að þa'ð mundi hindra rann-
sókn málsins, ef hann léki lausum
hala.
KaupsýslumaSurinn situr nú
í klefa í aðaltoyggingu sænsku
öryggislögreglunnar á Kungs-
holm, og ekki ólíklegt talið, að
hann gisti sama klefa og Wenner-
ström áður.
Vesturför Wil-
sons er lokið
Hann gefur þinginu skýrslu i næstu viku
Ottawa, 10. des. — NTB.
í DAG lauk stuttri heimsókn
Harold Wilsons, forsætisráðherm
Bretlands, til Kanada, og hélt
Wilson flugleiðis til London eftir
að hafa átt viðræður við Lester
Pearson, forsætisráðherra Kana-
da. Á bLaðamannafundi, sem
Wilson efndi til fyrir brottförina
frá Kanada, neitaði hann að gefa
frekari upplýsingar um gagntil-
tögur þær um sameiginlegian
kjarnorkuflota NATO, sem hann
hafði lagt fram á fundinum með
Johnson forseta í Washington
fyrr í vikunni. Mun hann gera
brezka þinginu nánari grein fyr-
ir tillögum sínum í næstu viku.
Kvaðst h>ann vona að þangað til
héldu bandalagsríkin í NATO
áfram að ræða málið frá hinum
ýmsu hliðum.
Forsætisráðherrann kvaðst
vona, að Frakkland mundi ekki
halda sig utan þessara viðræðna,
og kvað hinar ýmsu tillögur um
málið verða fram lagðar með það
í huga, að Frakkar .gætu tekið
iþátt í viðræðum um þær.
Þá sagði Wilson, að brezka
stjórnin fylgdist vei með undir-
róðri Kínverja í Afríku en hann
endartók að afstaða brezku
stjórnarinnar væri enn þú, að
styðja Kína til fullrar þátttöku
í Sameinuðu þjóðunum, þar eð
vart yrði hægt að fá Kínverja
til að setjast að samningaborði
um afvopnunarmál fyrr.
Loks nefndi Wilson fimm at-
riði, sem hann kvað skilyrði þess,
að Bretar gengju i Efnahags-
bandalag Evrópu:
1. Samband Breta við EFTA-
löndin (fríverzlunarsvæðið) verði
tryggt.
2. Brezkur landbúnaður fái
nauðsynlegar tryggingar (Gar-
anti).
3. Að efnahagsáætlanir í Bret-
landi fái að standast án ytri
áhrifa.
4. Að utanrikisverzlunarfrelsi
landsins verði tryggt. og
5. að frelsi Bretlands varðandi
verzlun við samveldislöndin
verði virt, svo og efnahagsmála-
þróunin innan samveldisins.
Edith Sitwell látin
LÁTIN er í London berzka
skáldkonan og rithöfundur-
inn Dawe Edith Sitwell, 77
ára að aldri.
Edith Sitwell varð snemma
fræg fyrir ritstörf sín, orð-
heppni og sérvizku og settu
þau Sitwell-systkinin þrjú,
hún og yngri bræður hennar
Osbert og Sacheverell, mikinn
svip á brezkar bókmenntir,
og gáfu út mörg ljóðasöfn,
einkum á áratugnum frá 1920-
30. Þau voru um margt og
þó einkum Edith, brautryðj-
endur nýrrar stefnu, stefnu
frjálslyndis og tilrauna í
brezkri ljóðagerð.
A síðari árum skrifaði
Edith Sitwell meira á óbundnu
máli og m.a. liggja eftir hana
ævisögur drottninganna Vikto
ríu og Elísabetar, sem þykja
firnagóðar.
Árið 1950 fór hún í fyrir-
lestraferð til Bandarikjanna
og voru fyrirlestrar hennar
betur sóttir en söngleikurinn
„South Pacific“ sem um þær
mundir var mjög vinsæll
vestra. Hún hefur verið kjör-
in heiðursdok tor í bókmennt
um við ýmsa háskóla, m.a. við
Oxford og Durham, en það
er heiður, sem hlotnast sára-
sjaldan konum.
Dame Sdith Sitwell.
Töluvert er síðan Edith Sit-
well hlaut aðalstign fyrir rit-
störf sín og var gerð D,,ame
of the British Empire“ og í
fyrra var hún kjörin „Comp-
anion of Literature".
Vegaáætlun 1965
1968
LttGÐ var fnam á Alþingi í gær
tillaga til þingsályktunar um
vegaáætlun fyrir árin 1965
—1968. í áætluninni, sem er í
senn ítarleg og yfirgripsmikil
og 46 blaðsíður að stærð, er gerð
grein fyrir fyrirhuguðum fram-
kvætndum í vegamálum næstu
4 árin. Er þar í upphafi gerð
grein fyrir áætluðum tekjum
svo og skiptingu útgjalda, en
síðan fyrir flokkun vega.
Hér fara á eftir nokkur at-
riði úr áætluninni:
Þjóðvegir
L Hraðbrautir.
Samkvæmt áætlun eru áætlað
ar 10 millj. kr. árlega til hrað-
brauta á áætlunartímabilinu. —
Áætlað er, að af þessari fjárveit
ingu gangi sama upphæð og í
vegaáætlun 1964 til Reykjanes-
brautar eða 6,8 millj. kr. á ári
ÖU árin.
•
2. Til þjóðbrauta.
Samkv. vegaáætluhinni verða
þjóðbrautir alls 2960,9 km. eða
um 31,5% af vegakerfinu.
Ráðgert er, að framkvæmdum
við Ólafsfjarðarveg milli Dalvík
ur og Ólafsfjarðar verði lokið á
næsta ári. Er kostnaður við þær
framkvæmdir áætlaðar 5,1 millj.
kr. Er áætlað að tekið verði sér-
stakt framkvæmdalán að upp-
hæð 4,0 millj. kr. í því skyni og
þá miðað við svipaða fjárv. í
vegáætlun 1965 og er í vegáætlun
1964 til vegarins um Múla.
Þá er áætlað, að framkvæmd-
um við Siglufjarðarveg verði
lokið á árinu 1966 og vegurinn
þá fullgerður milli Brúnastaða í
Fljótum og Siglufjarðar.
3. Landsbrautir.
Samkvæmt vegáætlun verða
landsbrautir alls 6272,1 km., eða
67% af vegakerfinu.
Ti lnýrra framkvæmda eru
áætlaðar:
1965 1966
Kr. 22.590.000,00 20.190.000,00
1967
Kr. 25.200.000,00
1968
26.500.000,00
Fjallvegir, reiðvegir og
ferjuhald.
1. Aðalfjallvegir.
Aðalfjallvegir samkv. vegáætl
un eru 444 km. að lengd. í veg-
áætlun 1964 var fjárveiting til
þessara ega 1,3 millj. kr., þar
af 900 þús, til kláfferju á
Tungnaá hjá Haldi.
Með tilliti til þess að byggingu
kljáferjunnar var lokið á s.l.
sumri, er lagt til, að fjárveit-
ing þessi verði lækkuð í 900.000
krónur.
2. Aðrir fjallvegir.
Fjárveiting þessi var 800 þús.
kr. í vegáætlun 1964. Lagt er til,
að upphæð þessi verði hækkuð
í 865 þús. kr. með tilliti til fjölda
umsókna, sem alltaf berast um
styrki til afréttarvega oþ.h.
3. Reiðvegir.
Fjárveiting þessi var 200 þús.
kr. í vegáætlun 1964. Lagt er til
að fjárveitingin verði óbreytt.
4. Ferjuhnld.
Fjárveiting þessi var 65 þús.
kr. í vegáætlun 1964. Lagt er til
að fjárveiting verði óbreytt
næstu 4 ár.
Brúargerðir.
1. Stórbrýr.
Mörkin milli stórbrúa og brúa
10 m. og lengri eru hér miðuð
við, að brýr sem kosta yfir 2,0
millj. kr. verði taldar til stór-
brúa. Lagt er til að fjárveiting-
ar verði alls 53,0 millj. kr. á
áætlunartímabilinu eða um 13
millj. kr. að meðaltali, þó þannig
skipt milli ára, að hægt verði
að ljúka ákveðnum brúm ár
hvert. Er þefcta svipuð upphæð
og veitt var til stórbrúa í veg-
áætlun 1964.
Með þessum fjárveitingum
verður væntanlega hægt að
byggja alls 12 brýr.
2. Brýr 10 m. og lengri.
Lagt er til að fjárveiting til
þessara brúa næstu 4 ár verði
eins og greint er í áætlun. Verð-
ur heildarfjárvei-ting á áætlunar-
tímabilinu 41,9 millj. kr. eða um
10,5 millj. kr. að meðaltali á ári.
Skiptast fjárveitingar þessar
noklcuð ójafnt á árin vegna þess,
að ná þarf ákveðnum áföngum
í byggingu stórbrúa og ekki þyk-
ir fært að hafa fjárveitingar til
smábrúa minni en þær eru í
vegáætlun 1964.
Mjög æskilegt væri að fjár-
veitingar til þessa flokks brúa
væru hærri, því enn eru á veg-
um í þjóðvegatölu óbrúaðar 69
ár, sem þurfa brýr yfir 10 m.
lengd.
3. Smábrýr.
Lagt er til, að varið verði 6
millj. kr. á ári til smábrúa í
næstu 4 ár.
Meðalverð smábrúa er nú um
300—350 þús. kr. og má því ætla,
að hægt verði að byggja 70—80
smábrýr á áætlunartímabilinu.
Sýsluvegasjóðir.
Samkv. 28. gr. vegalaga á fram
lag vegasjóðs á næsta ári að
vera 10,0 millj. kr. eða óbreytt
frá því sem er í ár, en hins veg-
ar verður framlag hreppanna á
næsta ári innheimt miðað við
tímakaup almennra verkamanna.
1. des n.k., sem verður kr. 33,81
og er það hækkun um kr. 5,47
eða 19,3%.
Vegir í kaupstöðum og
kauptúnum.
Samkvæmt 32. gr. skal fram-
lag til þjóðvega í kaupstöðum og
kauptúnum vera 1214 af heildar-
tekjum vegasjóðs. Sömuleiðis
skal 14% af heildartekjum vega
sjóðs ganga til tilraunastarfsemi
við vega- og gatnagerð samkv.
96. gr.
EFRI DEILD
Á Frumvarp um breytingu á
lögum um meðferð einkamála í
héraði, varðandi gjöld til stefnu-
votta var í gær vísað til 3. um-
ræðu.
Á Þá var frumvarpi um aðstoð
við fatlaða einnig vísað til 3.
umræðu.
ýr Frumvarpi um breytingu á
almennum hegningarlögum um
hækkún hámarks um tjón af
auðgunarbroti, til þess að opin-
ber málshöfðun komi til, var
samþykkt til 3. umræðu.
■Á Jón Þorsteinsson gerði grein
fyrir nefndaráliti um frumv. um
orlof, og var frumvarpinu síðan
vísað til 3. umræðu.
Á Frumvarp um fjölgun manna
í fastanefndum Alþingis var til
2. umræðu og mælti Ólafur
Björnsson þar fyrir nefndaráliti.
Urðu nokkrar umræður um frum
varpið, og töluðu þar Ólafur Jó-
hannesson (F), sem sagði mikið
vanta á, að það væri „system
i galskabet“, eins o>g hann orðaði
það sjálfur, í stefnu stjórnarflokk
anna gagnvart Alþýðubandalag-
inu. Alfreð Gíslason (Alþbl.)
talaði einnig og sagði m.a., að
menn mættu ekki rugla Alþýðu-
bandalaginu og Sósíalistaflokkn-
um saman, eins og Ólafur Jó-
hannesson hefði gert.
NEÐRI DEILD
Á Ingólfur Jónsson, landbúnað-
arráðherra, gerði grein fyrir
frumvarpi til girðingarlaga, sean
var til 1. umræðu í Neðri deild.
Var frumvarpinu síðan vísað til
2. umræðu og landbúnaðarnefnd
ar.
— íþróttir
hann þjálfar nú yngri flokkn
félagsins. Birgir Björnsson er
þjálfari i meistara- og 1. fL
karla en Ingvar Victorsson
þjálfari kvenna.
Forráðamenn FH ræddu við
blaðamenn í gær vegna þessa af
mælismóts og sögðu m.a.:
• VINSÆLT LIÐ
F.H.-ingar hafa alla tíð vérið
sérstaklega vinsælt lið meðal
áhorfenda. Ástæðan hefur ekki
einungis verið sígrar þeirra, held
ur hitt að FH hefur jafnan haft
fremur öðrum íslenzkum hand-
knattleiksliðum það, sem fólkið
vill sjá, þ.e.a.s. leikhraða, leik-
brellur, skothörku og góða mark
vörzlu og ekki hvað sízt sam-
heldni og leikgleði.
Undanfarin þrjú ár er því þó
ekki að neita að liðinu hefur ekki
ávallt tekist að ná því bezta sem
þeir hafa átt til. í ár aftur á móti
er útlit fyrir að liðið sé að yfir-
vinna þennan veikleika, enda hef
ur félagið aldrei haft jafn góða
aðstöðu til æfinga og einmitt nú
í vetur. Félagið hefur fengið að
æfa í íþróttahúsinu á Keflavíkur
flugvelli einu sinni i viku, auk
þess sem það hefúr haft aðstöðu
í Valsheimilinu í vetur sem endra
nær.
• VAXANDI LIÐ
Það ’hefur lítið sézt til FH-
inganna það sem af er þessu leik
ári, en þó er það álit ótrúlega
margra að bezti leikurinn sem
dönsku meistararnir Ajax léku
hér nýlega hafi einmitt verið
leikurinn við FH.
Blöðin höfðu það eftir Dön-
unum að FH hafi verið tvímæla-
laust bezta liðið, sem þeir kepptu
við og jafnframt verið álit þeirra
að FH myndi hafa meiri mögu-
leika á móti sænska liðinu Red-
bergsild heldur en Fram.
• DAGSKRÁ.
Dagskrá afmælismóts FH er
þannig:
Mánudagurinn 14. des.
KL 20,15: Formaður FH Valgarð
Thoroddsen setur mótið með
ræðu.
Leikir:
M.kv. FH—Valur: Leiktlmi 2x15
2. fl. k. FH—Valur: Leiktími 2x10
1. fl. k. FH—KR: Leiktími 2x15
M. k. FH—KR: Leiktími 2x15
KI. 20,15:
2. fl. kv. FH-Fram: Leiktími 2x10
4. fl. k. FH-Haukar: Leikt. 2x7,5
3. fl. k. FH-Valur: Leiktími 2x10
M. k. FH—Fram: Leiktími 2x30