Morgunblaðið - 11.12.1964, Síða 18
18
MORGUNBLABIÐ
Föstiídagur 11. des. 1964
[!ák karlntannaíiil
í ÚRVALI.
Opið til klukkan ÍO Í kvöld.
Klæðaverzlusiin,
Klapparstíg 40.
Fyrirliggiandi
Umbúðapappír 40 cm. og 57 cm. rúllur.
Smjörpappír 33x54 cm. og 50x75 cm.
Brauðapappír 50x75 cm rúllur.
Kraftpappír 90 cm. rúllur.
Pappírspokar allar stærðir.
Egíiert Krlstiáiisson & Co. hf.
Sími 1 1400.
Löan tilkynmr
Mikið úrval af amerískum telpnakjólum á aldrin-
um 1—14 ára. — Verð frá kr. 135,00 — 455,00.
Barnaúlpur loðfóðraðar og nælonfóðraðar.
Barnasloppar.
Orionpeysur, 2—12 ára.
Ennfremur lambhúshettur og húfur í miklu úrvalL
Barnafataverzlunin LÓAN, Laugavegi 20B.
(gegnið inn frá Klapparstig, á móti Hamborg).
Blikksmiðlan Vogar Eif.
Getum bætt við nokkrum nemum í blikksmíði nú
þegar eða í byrjun næsta árs.
Blikksmiðjan Vogar hf.
Auðbrekku 65 — Kópavogi.
Skriastofuhúsnæði
Til leigu eru nokkur skrifstofuherbergi í Banka-
stræti. Leiga til annars en fyrir skrifstofur getur
komið til greina. TJpplýsingar í síma 18588.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 16
hæg að sjá það fyrir í smá-
atriðum, hverjar afleiðingar
þessi þróun muni hafa, en
viss atriði séu þó greinileg.
Það eru tvær meginástæður
til þess, að það er mikils um
vert að endurskipulagningu
landbúnaðarins verði hraðað:
1. ) Hættunni á alvarlegum
verzlunarmáladeilum milli
landa má afstýra með því að
bæði inn- og útflutningslönd-
in lækki hið tilbúna, háa
vöruverð, þannig að verðlag-
ið sjálft geti á eðlilegan hátt
lagað framleiðslu og neyzlu
hvort að öðru, og offram-
leiðsla sú, sem hlaðizt hefur
upp hjá útflutningslöndunum
verði seljanleg, og innflutn-
ingslöndin geti aukið frelsi
varðandi innflutninginn.
2. ) í Evrópu er mjög mikill
áhugi og þörf á skynvæðingu.
Líkt og í Bandaríkjunum
hlýtur fólksfækkunin í land-
búnaðinum að ná öðru stigi,
þar sem færri en stærri og
vélvæddari bú skila meiri
framleiðslu pr. einstakling,
sem er aleina lausnin á vanda-
málinu.
Thorkil Kristensen segir
það einkum tvennt, sem létta
muni framgang málanna:
1.) Skynvæðíngin í byggingu
landbúnaðarins muni á ákveðn
um sviðum hafa áhrif í átt
til aukins reksturs. Þannig
verði t.d. vöxur mjólkurfram-
leiðslunnar, sem er vinnuafls-
frek og bindur fólk meira, en
það kærir sig um, stöðvaður
í fjölmörgum löndum, og
komi þetta til góða fyrir
markaðsástandið í mjólkur-
iðnaðinum. 2.) Ef litið er til
nokkuð langs tíma mun
neyzlan í hinum vanþróuðu
ríkjum fara mjöig vaxandi.
Japan er talandi dæmi þess, að
frá vissum sjónarmiðum þýða
efnahagsframfarir beinlínis
það, að stóraukning verður á
neyzlu „animaliskra“ fæðu-
tegunda. Vegna þessa, ekki
siður en af mannúðar- og
sjórnmálaástæðum, eiga Vest-
uriönd að hafa forgöngu um
aðstoð við vanþróuð ríki.
Kristensen segir að lokum:
„Býli framtíðarinnar, hvort
heldur þau verða stór eða smá,
hljóta að verða rekin á grund-
velli skynvæðingar, þar sem
gjöld og arður verða reikn-
uð út fyrir hinar ýmsu grein-
ar framleiðslunnar. Þetta mun
gera býlin betur hæf til að
aðlaga framleiðsluna mark-
aðsaðstæðum, líkt og iðnað-
urinn gerir“ segir hann. „Það
ber að vona, að gamlar og úr-
eltar stefnur tefji ekki þessa
þróun um of.“
UM BÆKUR
Skagfisk ættarsaga
Elinborg Lárusdóttir:
Valt er veraldargengi.
ÞETTA er IV. bókin um Djúpa-
dalsmenn í Skagafirði og mætti
heita einu nafni Djúpdæla saga,
en höfundur hefur valið verki
sínu Horfnar kynslóðir sem
heildarheiti.
Þ. 12. júlí 1733 kaupir Eiríkur
Bjarnason frá Hjaltastöðum jörð-
ina Djúpadal af erfingjum séra
Eiríks Magnússonar prests í Vog-
ósum fyrir 50 hndr. lausafjár.
Síðan hafa niðjar hans setið jörð-
ina óslitið, og heitir sá Jón Eiríks
son, sem nú býr þar og mun vera
6. liður frá Eiríki Bjarnasyni.
Eiríkur Bjarnason var auðsæll
og mikill fyrir sér. Hann átti
hross mörg og góð. Af því fékk
hann viðurnefnið Mera-Eiríkur.
Elinborg kallar hann Hákon ríka
í Dal.
Sonarsynir Eiríks, Hannes og
Eiríkur, taka prestvígslu. Eiríkur
er rgkinn frá kalli sínu vegna til-
látssemi við Jörund hundadaga-
konung. Þá gerist hann stórbóndi
í Djúpadal, unz honum á efri ár-
um er veittur Staðarbakki í Mið-
firði. Hinn bróðirinn, sem kallast
Símon í sögunni, er hið snjalla
rímnaskáld og ræðuskörungur
Hannes prestur á Ríp. Hann mun
vera langafi frú Elinborgar.
Sýslumaðurinn í Viðvík er auð-
vitað Jón Espólín.
Vitanlega er hér um skáldsögu
að ræða, en beinagrindin er sögu-
lega sönn og við hana fléttaðar
sagnir um þá frændur. Einkum
eru skemmtilegar þjóðsögur um
skipti þeirra Mera-Eiríks og
Skúla sýslumanns á Ökrurn, síðar
landfógeta. Svipað má segja um
séra Hannes á Ríp og Jón Espólín.
Þeir Djúpadalsmenn eru ekki
umsvifamiklir utan héraðs. Þeir
eru hvorki hlaðnir titlum né met-
orðum. Þeir eru bændaaðall, fast-
heldnir og auðsælir en jafnframt
ríklundaðir, frændræknir og
rausnarlegir. Gildir þetta jafnt
bændur sem húsfreyjur.
Furðufáir hafa tekið sér fyrir
hendur á voru landi að skrifa
ættarsögur. Hins vegar ber mjög
á ævisögum einstakra manna.
Þær eru vinsælar, enda margar
snilldarlega skráðar (Guðm.
Hagalín o. fl.). Ýmsir amast við
slíkum bókum og telja þær „kell-
ingabækur" einar. Slíkt er firra
og uppskafningsháttur. Þegar
aldir líða, munu margar ættar-
og ævisögur okkar tíma verða
kallaðar íslendingasögur hinar
yngri. Hinar fornu ættarsögur
urðu til, er norskar ættir höfðu
flutt byggð sína hingað til lands
og sambandið við ættlandið var
að rofna og firnast. Hinar nýju
sögur gerast, þegar hinar fornu
bændaættir eru sem óðast að
flytja úr sveit í borg.
Ættartölur, ættrækni og ættar
þótti hefur e.t.v. stundum nálg-
ast öfgar og fengið á sig bros-
legan blæ. En hvað skal á hinn
bóginn segja um þá staðreynd, að
býsna margir unglingar í þéttbýl-
inu, á skólaaldri, geta ekki nafn-
greint afa sína og ömmur, þegar
þeir eru spurðir? Er það vænlegt
fyrir framtíðina?
Ættarsaga Djúpdæla er nær-
færin og litrík lýsing á þjóðlífi
og þjóðháttum 18, aldar og nokk-
uð fram á hina 19. Frú Elinborg
segir látlaust og lipurt frá, líkt
og sögufróðir karlar og konur
sögðu ein frá um síðustu alda-
mót. Hún amma mín kunni t.d.
svo langar sögur utan að, að
kvöldvakan nægði varla til að
segja frá. ’
Söguhetjur Elinborgar eru
skýrt mótaðar og ljóslifandi. Les-
andinn man þær, skilur þær og
gleymir þeim trauðlega. Líklega
á hún efni í ei-na bók enn.
Með þessum línum vildi ég að-
eins fyrir mitt leyti færa frú
Elinborgu þakkir fyrir vel sagða
sögu, sem ég las mér til gagns
og ánægju.
Jón Eyþórsson.
Ádeíluskáld — Trúarskáld — Lfstaskáld
Fyrsta heiEdarútgáfa á verkum höfuðskáEds
Steins Steinarr
Það er nú loksins á vitorði allra íslendinga að Steinn Steinarr var eitt af
oi.vivcfeissK.aidum íslands, fyrr og síðar, miskunnarlaust ádeiluskáld, er hafði
hæðni lifsins á vörum, nútimaskáld í beztu merkingu orðsins og trúarskáld.
í formála að hinni nýju Helgafellsútgáfu segir Kristján Karlsson, rithöfund-
ur: „Ef kvæði hans sanna nokkuð, er það gildi trúar fyrir manninn. Steinn
Steinarr er miklu skyldari Hallgrími Péturssyni en hinum upplýstu, „víð-
sýnu“ skáldum 19. aldar. Kvæði hans eru trúarljóð — með neikvæðu for-
teikni. Trúaður eða trúlaus er hann í sérflokki hinna mestu trúarskálda vorra".
í þessari nýju útgáfu verka Steins Steinarr, eru allar 6 ljóðabækur skáldsins,
er út hafa komið, auk þess 40 kvæði, sem ekki hafa áður komið í bókum hans, þar
á meðal hið hrottalega lýðveldiskvæði, sem mestri hneykslun olli á sínum tíma.
Ennfremur Hlíðar-Jóns rímur, 35 erindi, ekki prentað áður. Loks eru í bókinni
ritgerðir skáldsins, ræður o. fl. alls 20 greinar.
Kristján Karlsson, náinn vinur Steins um langt skeið ritar framúrskarandi for-
mála um skáldið og list þess.
ÞETTA ER BÓKMENNTAVIÐBURÐUR ÁRSINS.
Aðrar miklar jólabækur Helgafells í ár, Ný Kjarvalsbók, stórkostlegt verk um
meistarann í máli og myndum, 100 myndir af þeim 20 síður í litum, engar birtar
áður í bók, og ævisaga Kjarvals eftir Thor Vilhjálmsson. Þá er bók eftir Einar Ól.
Sveinsson, prófessor, Ferð og förunautar, ferðaþættir og mannlýsingar. Ný skáld-
saga eftir Ragnheiði Jónsdóttur, Og enn spretta laukar, Málverkabók Blöndals,
íburðarmesta listaverkabók, sem hér hefir verið gerð, bók Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi, Mælt mál, og loks bókmenntaviðburður ársins númer eitt, Sjöstafa-
kver Laxness og Barn náttúrunnar.
HELGAFELL, Veghúsastíg 7. — Sími 16837.