Morgunblaðið - 11.12.1964, Síða 19
Föstudegur 11. des. 1964
MCRGUNBLAÐIÐ
19
FORSETI íslands hefur ný-
lega sæmt nokkra Finna heiff-
ursmerki islenzku Fálkaorff-
unnar. Afhenti Árni Tryggva
son sendiherra íslands í Stokk
hólmi og Helsingfors, heiðurs
merkin 4. des. sl. Var myndin
hér aff ofan tekin viff þaff
taekifæri. Á henni eru taliff
frá vinstri: Skrifstofustjóri
Olli Auero, frú Auero, Áke
Frey, skrifstofustjóri, frú
Ellen Juuranto, Árni Tryggva
son, sendiherra, frú Anita
Hallama, Kurt Juuranto,
affalræðismaður og Sigrún
Tryggvason, sendiherrafrú.
— Jölauppskriftir
Framhald af bls. 13.
soðnum eða steiktum, og væri
ekki úr vegi að reyna hana út
á jólamatarafigangana.
SÍLD f SOÐNUM
KRYDDLEGI
2 saltsíldar, 1 Ví> dl sykur,
114 dl vatn, 1 dl edik. 12
piparkorn, 5 nagulnaglar, 1
lárviðarlauf, 1 laukur, 1 tsk
dill.
Hreinsið, sláið og flakið
síldina'og brytjið hana í mjó-
ar ræmur. Blandið saman öllu
kryddinu, sjóðið það, kælið
það og hellið því yfir síldina.
STERK KARRÝSÓSA
1 lítill laukur, 50 g smjör-
líki, 14 msk hrísmjöl, 14 msk
kókósmjöl, 1 epli, 1 msk
rúsínur, 1 msk sulta eða syk-
ur, 1 tsk karrý, 14 dl tómat-
lögur eða 2 tómatar, 2 tsk
chutney, 1 tsk sýróp, safi úr
einni sítrónu, 14 1 kjötsoð.
Brúnið smátt brytjaðan
lauk, hrísmjöl og kókósmjöl
í smjörlíkinu. Brytjið niður
epli og látið út í, ásamt rúsín-
um, sultu, karrý, tómat ,sýr-
ópi, sítrónusafa og soði. Sjóð-
ið í 5 mínútur. Blandið þá I !
chutney og sósulit ef þurfa
þykir.
Prýðilegt er að brytja leifar
af kjöti út í þetta eða nota það
á soðin hrísgrjón eða soðin
eða steiktan fisk.
Jólakort barn-
anna í Lyngási
ÉG vildi vekja athygli fólks á
nokkrum mjög skemmtilegum
og óvenjulegum jólakortum, sem'
ég hef rekizt á í búðum hér í
borg. Þetta eru kort, sem Styrkt-
arfélag vangefinna gefur út í ár,
teiknuð af börnunum sjálfum í
Lyngási. Kortin vildi ég hvetja
fólk til að kaupa af þremur
ástæðum: 1. þau eru bráð-
skemmtileg. og listræn í sér, 2.
þau eru svo vel prentuð að ber
af, og 3. þau eru seld vangefnum
börnum til styrktar.
Barbara Árnason.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Þíng leyst upp d Ceylon
Colombo, 9. desember, NTB
Forsætisráðherra Ceylon, frú
Sirimavo Bandiararuaike, kunn-
gerði í dag, að þinig yrði leyst
upp 1. desember og kosningar
haldnar 24. marz n.k. Er þetta
gert vegna þess að stjóim frú-
arinnar beið ósigur við atkvæða
greiðslu s.l. fimmtudag vegna
þess að bandameam hernnar í
— SUS-síðan
Framh. af bls. 23
myndirnar um kjarnorkuflota At
lantshafsbandalagsins. Er stefnt
að því, að þessar greinargerðir
geti m.a. orðið umræðugrund-
völlur á sérstökum fundum eða
ráðstefnum um þessi efni.
■Á Gott samstarf
— Hvernig er samstarf full-
trúa hinna þriggja stjórnmála-
flokka, sem að Varðbergsfélög-
unum standa?
— Ég hygg, að margir hafi ver-
ið vantrúaðir á það, þegar fyrsta
Varðbergsfélagið var stofnað ár-
ið 1961, að samstarf þessara að-
ila gæti orðið til frambúðar, eins
og stjórnmálabaráttunni hér á
landi er háttað. Þess vegna hafa
sumir látið í ljós undrun yfir
því, hve vel hefur tekizt til um
samvinnu ungra sjálfstæðis-
manna, framsóknarmanna og
jafnaðarmanna innan vébanda
Varðbergsfélaganna. Að mínu
áliti er þessi undrun ekki rétt-
mæt, því að mér virðist, að það
væri í rauninni meira undrunar-
efni, ef fulltrúar hinna þriggja
lýðræðisflokka landsins gætu
ekki komið sér saman um grund-
vallaratriði utanríkismálanna,
sem lýðræðisflokkar í flestum
löndum telja sjálfsagt að leitast
við að skapa sem heilsteyptasta
þjóðareiningu um. Að vísu kann
enn að vera of snemmt að full-
yrða, að Verðbergsfélögin séu
komin yfir sitt reynslutímabil.
En ríki eftirleiðis sá samstarfs-
og samkomulagsvilji innan félag-
anna, sem þar hefur til þessa
ríkt, er ekki ástæða til annars en
fyllstu bjartsýni um framtíð
þeirra og starf.
þinginu höfðu genigið í lið með
stjómarandsitöðuninl og sakaö
stjómina um að framfylgja ein-
ræðisleguim stjómarháttum.
Nýjar hljómplötur — nýkomnar
U| verfátónar Hverfisgötu 50
í. k. ' % '< wv A'wnyiwt
Minnisstæðasta
gjöfin er
Parker
Löngu eftir viðtöku gjafarinnar, þá mun
yðar minnzt af ánægðum eiganda. Frábær að
gerð og lögun, PARKER er sá penni, sem
verður notaður og glaðst yfir um arabil og
er hugljúf minning um úrvals gjöf um leið
og hann er notaður.
PARKER pennar eru lofaðir af fagmönnum
fyrir hið stílhreina útlit, þekktir heimshorn-
anna á milli fyrir beztu skrifhæfni.
Veljið PARKER penna til gjafa ( eða eignar).
Veljið varanlega gjöf. PARKER penni er
lífstíðareign.
Önnumst allar myndatökur, i-|
hvar og hvenær y ll y 1
sem óskað er. j—'
LJÓSMYNDASTOFA ÞÓRIS
LAUGAVEG 20 B . SÍKM 15-6 0-2
P A R K E R
Auðkenni: Örvarmerkið — Parker merkið.
Parker pennar frá kr. 106.00 til kr.
2,856.00.
FRAMLEIÐENDUR EFTIRSÓTT ASTA SKRIFFÆRIS HEIMS.