Morgunblaðið - 11.12.1964, Page 23
ft Föstudagur 11. ðes. 1964
MORGU NBLAÐIÐ
23
NÝKJÖRIN stjórn Varðbergs,
félags ungra áhugamanna um
vestræna sainvinnu, hefur að
undanförnu unnið að undir-
húningi félagsstarfsins á
næstu mánuðum. Þar sem hér
er um að ræða samtök, sem
ungir Sjálfstæðismenn hafa
mikinn áhuga á og eru aðilar
að ásamt samtökum ungra
framsóknarmanna og ungra
jafnaðarmanna, snerum við
okkur til formanns félagsins,
Harðar Einarssonar stud. jur.,
og inntum hann tíðinda af á-
formum félagsins á næstunni
og starfsemi þess síðan hin
nýja stjórn tók við.
— Varðbergsfélögin víðs vegar
um landið efndu fyrir skömmu
til ráðstefnu norður á Akureyri,
þar sem fjallað var um skipu-
lagsmálefni þeirra og samþykkt
gerð um samstarf þeirra sín á
Nokkrir stjórnarmenn og varastjórnarmenn Varðbergs. Fremri röð talið frá vinstri: Ásgeir
Jóhannesson, 2. varaformaður, Hörður Einarsson, formaður, Jón A. Ólafsson, 1. varaform. Áft-
ari röð, talið frá vinstri: Ólafur Egilsson, forstöðumaður skrifstofu Samtaka um vestræna
samvinnu, Ragnar Kjartansson, Gunnar Gunnarsson, Gunnar Hólmsteinsson, ritari, Hilmar
Björgvinsson, Hörður Sigurgestsson. — Á myndina vantar Karl Guðnason, gjaldkera, Eyjólf
Sigurðsson, Ólaf Stefánsson, Georg Tryggvason, Ásgeir Sigurðsson, Dag Þorleifsson og Val
Arnþórsson.
Vmsíir nýjungar fyrirhug-
aðar í starfi VARÐBERGS
Samtal við Hörð Einarsson, formann félagsins
milli. Hefur þessi samþykkt í
för með sér verulegar breytingar
á samstarfi félaganna?
— Ekki býst ég við því. Ástæð-
an til þess, að rétt var talið að
setja sérstakar reglur um sam-
starf félaganna og stjórn sam-
eiginlegra málefna þeirra, var
fyrst og fremst sú, að það verður
að telja eðlilegt, að ákvörðun
um þessi efni sé í höndum aðila,
sem öll félögin standa að. Sam-
kvæmt hinni nýju samþykkt um
samstarf Varðbergsfélaganna er
æðsta vald í sameiginlegum mál-
efnum þeirra falið samstarfs-
nefnd, sem skipuð verður for-
mönnum félaganna auk varafor-
manna félagsins í Reykjavík, og
skal hún koma saman a.m.k. einu
sinni á ári. En sem framkvæmda-
aðili á vegum samstarfsnefndar
skal starfa framkvæmdastjórn,
sem skipuð verður formanni og
varaformönnum félagsins í
Reykjavík og tveim fulltrúum
kjörnum af samstarfsnefnd. —
Samþykktin um samstarf Varð-
bergsfélaganna hefur ekki enn
gengið í gildi. Til viðbótar sam-
þykkt hennar á ráðstefnunni á
Akureyri þarf að koma til stað-
festing % hluta hinna sjö Varð-
bergsfélaga, sem þegar eru starf-
andi. Síðan ráðstefnan var hald-
in hafa tvö Varðbergsfélög stað-
fest samþykktina, hið nýja félag
fyrir Húsavík og nágrenni, sem
staðfesti hana á stofnfundi sín-
um 10. nóv. sl., og einnig var hún
staðfest á framhaldsaðalfundi fé-
lagsins í Reykjavík 26. nóv. En
þar sem aðalfundir annarra fé-
laga eru á næstu grösum, mun
þess ekki langt að bíða, að sam-
þykktin öðlist gildi, og vona ég,
að með henni hafi verið lagður
grundvöllur, sem auðveldi stór-
aukið starf Varðbergsfélaganna.
Á Fundir, ráðstefnur, útgáfu-
starfsemi, kvikmyndasýningar
— Og hvað er svo helzt fram-
undan?
— Það er meginhlutverk Varð-
bergs að vinna að auknum skiln-
ingi meðal ungs fólks á gildi lýð-
ræðislegra stjórnarhátta og á
þýðingu samstarfs lýðræðisþjóð-
anna til verndar friði í heimin-
um. í eðli sínu er hér fyrst og
fremst um upplýsingastarf að
ræða. í starfsemi Varðbergsfélag-
anna verður því megináherzla
lögð á ýmis konar fundahöld,
bæði fyrir félagsmenn og almenn
ing, útgáfustarfsemi og kvik-
myndasýningar.
Á Rit um NATO í undirbúningi
Nú er í undirbúningi útgáfa
fræðslubæklings um Atlantshafs-
bandalagið og hina ýmsu þætti í
starfsemi þess, sem prentaður
verður í allstóru upplagi og til-
búinn verður á fyrstu mánuðum
næsta árs. Þá er verið að undir-
búa lokaátakið í dreifingu hins
vandaða rits, „Árvekni — vernd
frelsisins“, sem sent verður um
land allt.
Einnig er komin nokkuð á-
leiðis útgáfa næsta heftis af tíma-
ritinu „Viðhorf", sem gefið er út
sameiginlega af Varðbergsfélög-
unum og Samtökum um vest-
ræna samvinnu, en útgáfa þess
hófst á sl. vori, eins og kunnugt
er, undir ritstjórn Ólafs Egils-
sonar, forstöðumanns skrifstofu
samtakanna.
Á Kynning á bandalagsríkjum
íslands og ráðstefna
um kjaramál
Af fundahöldum og ráðstefn-
um, sem þegar hafa verið ákveð-
in, má nefna ráðstefnu um kjara-
mál í Atiantshafsríkjunum, í
febrúar nk., og hefur nýlega tek-
ið til starfa sérstök nefnd, sem
kjörin var til undirbúnings henni.
í þeirri nefnd eiga sæti Magnúa
Óskarsson, Ingimundur Erlends-
son og Ásgeir Sigurðsson.
Fyrirhugað er að taka upp eftir
áramótin kynningu á ýmsum
bandalagsríkjum íslands á sér-
stökum kynningarkvöldum, sem
sennilega verða einu sinni í mán-
uði mánuðina janúar—maí. Á
þessum fundum er gert ráð fyrir,
að sýnd verði stutt kvikmynd um
viðkomandi land, flutt erindi um
stjórnmálalíf í þessum löndum,
helztu vandamál þess o. s. frv. og
loks sé í myndum, tali eða tónum
kynntur einhver áberandi þáttur
í þjóðlífi hvers lands. Hefur verið
um það rætt að kynna fyrst með
þessum hætti Frakkland, ítaliu,
Vestur-Þýzkaland, Kanada og
Benelux-löndin. Vonumst við til,
að þetta geti orðið vinsæl og
gagnleg nýbreytni í starfsemi fé-
lagsins, og mun þessi starfsemi
verða í umsjá Dags Þorleifssonar
blaðamanns.
^ Heimsóknir erlendra
stjórnmálaforingja —
hádegisfundir
Eftir áramótin verður einnig
haldið áfram hádegisfundum fé-
lagsins. Á þessu hausti hafa tveir
slíkir fundir Verið haldnir, en á
þeim flytja yfirleitt erindi for-
ystumenn á sviði stjórnmála,
ýmsir sérfræðingar, ritstjórar
blaða, starfsmenn utanríkisþjón-
ustunnar eða erlendir gestir og
ræða ýmsa þætti utanríkis- og
alþjóðamála. — Það er nú í at-
hugun að efna til funda með
svipuðu sniði á vegum Varðbergs
félaganna utan Reykjavíkur.
Loks má nefna það, að því er
fundahöld varðar, að mikill á-
hugi er á því innan Varðbergs
að fá hingað til lands þekkta er-
lenda stjórnmálaforingja til
ræðuhalda. Er þegar hafinn und-
irbúningur að því, að úr þessu
geti orðið á næstu mánuðum, en
of snemmt er á þessu stigi að
segja um árangur þeirra tilrauna
•k Kvikmyndasýningum
haldið áfram
— Þú minntist á það áðan, að
Varðbergsfélögin hefðu hug á að
halda áfram kvikmyndasýning
um á sínum vegum. Er von
nýjum kvikmyndum á næstunni?
— Já, eftir áramótin gerum við
ráð fyrir að fá til sýningar nokkr
ar nýjar kvikmyndir með ís
lenzku tali um ýmsa þætti í sam-
vinnu vestrænna ríkja, einkum
varnarsamstarfið. Þær myndir
verða sýndar bæði hér í Reykja
vík og á vegum félaganna utan
Reykjavíkur, en þau hafa nú flest
til sýningar þær myndir, sem fé
lögin hafa yfir að ráða nú þegar
k Gagnlegar kynnisferðir
— Er framudan á vegum
Varðbergsfélaganna nokkur
kynnisferð til varnarstöðva og
stofnana Atlantshafsbandalagsins
og Evrópuríkjanna, eins og stund
um hefur verið farið í áður?
Ekki er áformuð nein slík
ferð alveg á næstunni, en að sjálf
sögðu verður leitazt við að hal ’• t t
þeim áfram með hæfilegu milli-
bili eftir því sem föng er á. Það
hefur verið talið eðlilegt að reyna
að gefa ungum áhugamönnum
um vestræna samvinnu hérálandi
kost á að kynnast af eigin sjón
og raun ýmsum þáttum í starf-
sem þeirra alþjóðastofnana, sem
ísland er aðili að, þ. á m. Atlants-
hafsbandalagsins og Efnahags-
og framfarastofnunar Evrópu,
enda telja þeir, sem tekið hafa
þátt í þessum ferðum, að þeir
hafi haft af þeim mikið gagn,
bæði kynnzt ýmsu, sem þeim var
fjarlægt og ókunnugt áður, og
gert sér betri grein en áður fyr-
ir þýðingu samvinnu lýðræðis-
þjóðanna á ýmsum sviðum.
Innan Varðbergs hefur komið
fram sú skoðun, að það ætti að
vera ekki síður gagnlegt að veita
ungu fólki frá samstarfsríkjum
okkar tækifæri til að kynnast
Islandi og íslenzkum málefnum
með heimsóknum hingað, enda
geta slíkar heimsóknir orðið bæði
okkur og gestum okkar til gagns.
M.a. þess vegna er mikill áhugi
á því, að unnt verði að halda
hér á landi VII. stúdentaráð-
stefnu Atlantshafsbandalagsríkj-
anna síðla næsta sumars, en ís-
lenzkir stúdentar hafa á undan-
förum árum tekið þátt í hlið-
stæðum ráðstefnum í öðrum að-
ildarríkjum bandalagsins.
k Stofnun nýrra félaga
— Hefur verið tekin ákvörð-
un um stofnun fleiri Varðbergs-
félaga en þeirra, sem þegar eru
starfandi?
— Það hefur ekki verið tekin
endanleg ákvörðun um stofnun
fleiri félaga, en stofnun nokkurra
félaga er á athugunar- og um-
ræðustigi, enda tekur undirbún-
ingur að stofnun hvers félags
venjulega alllangan tíma.
k Nefnir skipaðar til
athugunar á ákveðnum
málaflokkum
— Eru fleiri atriði í starf-
semi félaganna, sem hafa verið
ákveðin?
— Það, sem nefnt hefur verið
hér að framan, eru meginatriðin
í því, sem segja má, að þegar
hafi verið ákveðið um starfsem-
ina á næstu mánuðum. En auð-
vitað koma alltaf upp ný og ný
verkefni á hverjum tíma, sem
erfitt er að taka ákvörðun um
langt fram í tímann. Þó má e.t.v.
til viðbótar nefna, að nýlega
kaus stjórn Varðbergs þrjár
nefndir, sem skipuð er þrem
mönnum hver, til þess að fjalla
um og semja álitsgerðir um þrjá
málaflokka: Þátttöku íslands í
norrænni samvinnu, efnahagssam
vinnu Evrópuríkjanna og hug-
Framh. á bls. 19
STOFNFUNDUR FELAGS
UNGRA SJÁLFSTÆÐIS-
MANNAí
KJÓSARSÝSLU
verður haldinn í Hlégarði í kvöld kl. 21.
Að fundi loknum verður sýnd hin athyglis
verða og þekkta kvikmvnd um JOHN F.
KENNEDY fyrrum Bandaríkjaforseta.