Morgunblaðið - 11.12.1964, Side 31
Föstudagur 11. des. 1964
MORCU N BLAÐIÐ
31
Stúdentafundur á Akureyri um
Davíðssafn og Davíðshús
AKUREYRI, 10. des. — Stúdenta-safnarinn heldur skáldið, sem
félagið á Akureyri hélt fund í
kvöld um fyrirhugað Davíðssafn
á Akureyri og hugmyndina um
lcaup á húsi Davíðs Stefánssonar
Við Bjarkarstíg.
Á fundinum voru um 30 manns,
«em þykir gott hér, enda hljóm-
leikar o. fl. í hænum. í félaginu
eru 100 manns. Formaður félags-
fns, Aðalgeir Pálsson, verkfræð-
ingur, setti fundinn og fór nokkr-
nm orðum um Davíð. Hann var
heiðursfélagi Stúdentafélagsins,
tiður gestur á fundum þess og lét
sér mjög annt um það.
í>á tók til máls fyrri frummæl-
andi, Þórarinn Björnsson, skóla-
meistari. Fyrst rakti hann gang
málsins og skýrði frá þeim að-
gerðum sem áhugamenn um mál-
ið hafa gengizt fyrir til þessa,
m.a. drap hann á undirskrifta-
söfnunina, sem fram fór í bæn-
um um daginn. Hann kvaðst
aldrei hafa deilt á bæjarstjórn
í þessu máli, enda væri það ómak
legt, þar sem hún er eini aðilinn,
sem fram til þessa hefði eitthvað
gert í málinu. Þó kvað hann á
skorta að sínum dómi að húsið
sjálft fylgdi ekki með í kaupun-
um. En Davíðshúsið væri ósvik-
ið Davíðshús. Þar hefði ekki einu
sinni eiginkona komið nærri. —
Hann hefði búið þar einn og skap
að heimilið einn og þar væri
enn sama andrúmsloftið og þeg-
ar hann dvaldist þar. Skólameist-
ari veik þessu næst að ýmsum
mótbárum þeirra, sem eru and-
vígir kaupum á húsinu.
Margir halda þvi fram að
bækur hans eigi að vera í Amts-
bókasafninu, en vel væri hugsan
legt að skrá yrði gerð um bæk-
urnar og Amtbókavörður hefði
milligöngu um útvegun þeirra
að láni handa fræðimönnum.
Einnig væri hægt að hugsa sér
að fræðimenn fengju að dveljast
í húsinu og nota bækur og hand-
rit í fræðiskyni með l'eyfi bóka-
varðar. Ýmsum finnst kaupverð-
ið hátt. Vissulega er dýrt að
kaupa húsið, en þegar til lengd-
ar lætur, munu peningar fremur
renna til bæjarins en út úr hon-
umum við það að safnið er hér.
Auk þess er íbúð í kjallara, sem
leigja má út og miklar tekjur
má hafa af aðgangseyri. Talað er
um Akureyri sem ferðamanna-
bæ, en hér er of fátt handa ferða^
mönnum að una við, þeir stöðv-
ast of lítið í bænum. Davíðssafn
mundi stuðla að því að dvelja
fyrir ferðamönnum og setja um
leið menningarsvip í bæinn.“ Það
er líka hollt fyrir okkur sjálfa
að leggja rækt við minningu
hinna dánu, t.d. af því að þeir
geta ekki borgað fyrir sig með
peningum. Það lyftir okkur sjálf
um og stuðlar að rækt okkar
sjálfra.“
Þá tók til máls annar frum-
mælandi, Ingólfur Árnason, raf-
veitustjóri. Hann kvað skáld
reisa sér minnisvarð sjálf og lifa
bezt í verkum sínum og því væri
hann andvígur stofnun safnsins.
Þó mætti hugsa sér að húsið
yrði listamannaheimili, þangað
sem skáldum og rithöfundum
yrði boðið að dveljast við störf
eða til hvíldar í heiðursskyni,
eftir að búið væri að flytja dýr-
mætustu muni Davíðs í Davíðs-
stofu í Amtsbókasafni. Hann
kvað sumt benda til þess, að
skáldið hefði óskað eftir að
heimili hans varðveittist sem
safn. — Fjármálin eða pening-
arnir hafi ekki skipt meginmáli
þegar ég myndaði mér skoðun í
málinu, sagði ræðumaður. Marg
ir munir eru svo dýrir ög dýr-
mætir að læsa verður þá sundir
gleiri og þá yrði safmð dautt
safn og bækiurnar skrautgripir
einir. Persónulegir munir skálds
ins eru mér miklu meira virði
en bækurnar og hreinir dýrgrip-
ir. 1 raunninni er það ekki bóka-
við ætlum að heiðra. Eyfirðing-
ar ættu fremur að sýna ræktar-
semi sína í verki með því að
stofna skóla í minningu Davíðs
í nágrenni við Fagraskóg. Eyfirzk
ar byggðir vantar einmitt héraðs
skóla.
Þá tók til máls Guðmundur
Karl Pétursson, yfirlæknir. Hon-
um fórust efnislega orð á þessa
leið: Mér finnst fagur siður að
leggja rækt í verki við minningu
vina og góðra manna, án nokk-
urrar sýndarmennsku. Þá verð-
um við betri menn og göfugri.
Davíð hefur reist sér minnis-
varða í verkum sínum, en nú eig
um við eftir að reisa honum
minnisvarða vegna þessara
verka. Bærinn hefur þegar riðið
á vaðið, en þar er að margra
dómi of skammt gengið. En fjór
ar milljónir er mikið fé fyrir
lítið bæjarfélag, til að snara út
nokkuð óviðbúið og án þess að
vita til fulls um vilja bæjarbúa
almennt. En ekki má gera litið
úr undirskriftunum um daginn.
í þeim fólst líka atkvæðagreiðsla.
Lítið ráðrúm var til athafna þá,
en þó söfnuðust um 1400 nöfn.
En ekkert slys hefur orðið enn
þá. Enn er hægt að kippa mál-
inu í lag. Allir eru mjög vel
viðmælandi, eftir því sem mér
skilst. Þá er bara eftir að útvega
peningana og það er næsta verk-
efni. Við þurfum að safna svo
miklu fé, að bæði sé hægt að
kaupa húsið, gera við það og
standa undir rekstrinum eitthvað
framvegis. Við höfum ekki ráð á
því að bíða og gera ekkert. Við
höfum ekki of mikið af menn-
ingarverðmætum í þessu landi.
Þjóð sem hefur efni á að drekka
fyrir 300 millj. á ári og reykja
fyrir annað eins, hún getur gert
það sem henni sýnist. En ef
menn eru sljóir og sinnulausir,
þá drekka þeir bara sitt brenni-
vín í staðinn, En vonandi tekst
að koma málinu í höfn og stofna
myndarlegt safn um Davíð í
Davíðshúsi. Mér þykir sennilegt
að Stúdentafélagið taki þessu
verkefni fegins hendi og geri það
að baráttumáli sínu.
Því næst tók til máls Brynjólf
ur Sveinsson, yfirkennari. Hon-
um mæltist efnislega á 1 þessa
leið: Vegur Akureyrar yrði því
meiri sem við sýnum minningu
Davíðs meiri sóma. Eg veit ekki
betur en allar menningarþjóðir
hafi kappkostað að varðveita sem
bezt heimkynni mikilmenna
sinna. Ef hingað kæmu erlendir
andans menn, mundu þeir ekki
eftir neinu fyrr spyrja en heim
ili Davíðs Stefánssonar og það
mundu margir fleiri gera. Eng-
inn samtíðarmaður okkar hefur
verið dáðari með þjóð sinni en
Davíð Stefánsson og jafnvel eng
inn í sögu þjóðarinnar. Það yrði
því hægðarleikur að safna nægi-
legu fé til að unnt sé að kaupa
hús hans og varðveita það til
minninga um hann.
Ýmsir fleiri tóku til máls, svo
sem Ágúst Þorleifsson, dýralækn
ir, Hólmfríður Jónsdótir, mennta
skólakennari, Hreinn Pálsson,
kennari og Halldór Blöndal erind
reki og stóðu umræður enn, þeg-
ar blaðið fór í prentun um mið-
nætti.
Einar Mathiesen, . umboðsmaður, herra Buen, sölustjóri og herra
Spilhaug, forstjóri.
Stóriramleiðandi bíl-
keðja í heimsókn hér
NÝLEGA kom til landsins Helgi
Oddur Spilhaug, forstjóri norska
fyrirtækisins A/S Kjættingfa-
brikken i Noregi ásmat sölu-
stjóra sínum, Eigil Arnulf Buen.
Fyrirtækið framleiðir allar mögu
legar tegundir oig gerðir af keðj-
um, svo að það hlýtur að hafa
mikla þýðingu fyrir Íslendinga
að eiga góð skipti við það.
Umboðsmaður þess hér á landi,
Einar Th. Mathiesen, sem er for-
stjóri E. Th. Mahiesen h.f., kall-
aði blaðamenn og ýmsa framá-
menn í íslenzkum vélaiðnaði á
fund þeirra félaga í gær.
Flutti forstjórinn, Spilhaug,
þar góða yfirlitsræðu og sýndi
kvikmynd frá framleiðslu keðj-
anna í Noregi,
En þetta kom m.a. fram um
fyrirtækið á blaðamannafundin-
um:
A/S KJÆTTINGFABRIKKEN
er framleiðandi allra tegunda af
'keðjuin, krókum, lásum, lyfti-
blökkum og bíl- og traktorskeðj-
um. Einnig framleiða þeir vélar
til framleiðslu á keðjum, og
hafa þeir selt slíkar vélar m.a.
til Finnlands, Sviþjóðar, Eng-
lands, Canada, Brasilíu og Ind-
lands.
Fyrirtækið hefir einkaleyfi á
ýmsum vélum og framleiðslu-
aðferðum til keðjuframleiðslu.
Fyrirtækið er stofnsett í Osló
árið 1909 og var byrjunin aðeins
í smáum stíl .Starfsmenn aðeins
3.
En í dag rekur fyrirtækið stóra
verksmiðju með eigin orkuveri
í KRAGER0, en aðalskrifstofan
er í Osló. Einnig rekur fyrirtæk-
ið verksmiðju í VANCOVER í
Kanada.
Firmað hefir undanfarin ár
selt nokkurt maign af keðjum
og lásum ingað til lands.
Þessi viðskipti vill fyrirtækið
auka og hefir nú valið sér um-
boðsmenn hér á landi.
Jólasvipur er að færast yfir bæinn. Útilegumaðurinn og jóla-
tréð. — Ljósm. Sv. Þorm.
Þýzkaiandsmálin og
kjarnorkuflotinn
-verðo trúlega aðalmálin á utan-
rikisráðherrafundi NATO
Washington, 10. des. — NTB
M E Ð A L mála þeirra, sem
talið er að rædd verði á utan-
ríkisráðherrafundi NATO-
ríkjanna í París í næstu viku,
verða Þýzkalandsmálin og
hinar nýju tillögur Breta um
sameiginlegan kjarnorkuflota
Atlantshafsbandalagsins. Að
því er talsmenn bandaríska
utanríkisráðuneytisins sögðu
í dag, verða síðarnefndu mál-
in þó rædd einslega í sam-
bandi við fundinn, en ekki
opinberlega á honum.
Talsmenn utanríkisráðuneytis-
ins bandariska segja, að Banda-
ríkjamenn hafi nú gert grein fyr-
ir sjónarmiðum sínum varðandi
kjarnorkuflotann, og nú sé það
hinna bandalagsríkjanna að
leggja fram sín sjónarmið og til-
lögur, ef einhverjar eru.
Ráðamenn á Vesturlöndum
munu á næstunni halda með sér
marga fundi á grundvelli við-
ræðna Johnsons forseta, og Har-
old Wilsons, forsætisráðherra
Breta. Hinn fyrsti af þessuna
fundum verður í London á morg-
un, föstudag, en þá ræðast við
þeir Schröder, utanrikisráðherra
Vestur-Þýzkalands og Gordon
Walker, utanríkisráðherra Breta,
um kjarnorkuvarnir.
Robert McCloskey, talsmaður
bandariska utanríkisráðuneytis-
ins, sagði í dag, að ekki væri hægt
áð segja fyrir um það, hvort á
utanríkisráðherrafundi NATO í
París yrðu lagðar fram tillögur,
sem fælu í sér að viðræður yrðu
teknar upp við Sovétríkin um
sameiningu Þýzkalands.
McCloskey var að því spurður,
hvort rétt væri að Bonn-stjórnin
hefði beðið bandamenn sína á
Vesturlöndum um að efna til
ráðstefnu með þátttöku Sovét-
ríkjanna um Þýzkalandsmálin.
McCloskey svaraði, að mál þetta
hefði verið til umræðu á fundi
þeirra Dean Rusk og Gerhard
Schröder í Washington fyrir
skömmu, en vildi að öðru leyti
ekki ræða málið.
Tshombe gekk á
fund Pd/s páfa
Óeirðir í Róm vegna komu hans
Róm, 10. des. (NTB).
MOISE Tshombe, forsætisráð-
herra Kongó, gekk í dag á fund
Páls páfa í Róm, ásamt sendi-
herra Kongó í Róm, André Man-
gig. Dvaldi Tshombe í V.atikan-
inu í eina klukkustund, en ekki
er ljóst hve lengi sjálfur fund-
ur þeirra páfa stóð. Góðar heim-
ildir í páfagarði segja, að páfi
hafi við þetta tækifæri sent ibú-
um Kongó boðskap, þar sem
hann segir, að ekkert sé hægt
að byggja upp í landinu á meðan
þar ríki bræðrastyrjöld. — Til
blóðugra óeirða kom i Róm í dag
milli stuðningsmanna og andstæð
inga Tshombe, og voru hinir
siðarnefndu einkum kommúnist-
ar.
Er Tshombe kom til flugvallar
ins í Róm fyrr í dag, hélt hann
stuttan blaðamannafund, og veitt
ist m.a. harðlega að þeim ríkjum.
Afríku, sem hann kvað sjá upp-
reisnarmönnum í Kongó fyrir
vopnum og vistum, m.a. Mali-
ríkjasambandið og Ghana.
Síðar í dag kom til bardaga
milli stuðningsmanna Tshombe
og kommúnista. Nokkur hundruð
manns, þeirra á meðal konur og
börn, höfðu safnast saman að
boði kommúnistablaðsins „L’Un-
ita“. Reyndi lögreglan að dreifa
hópnum, en hann hélt áleiðis til
gistihúss þess, er Tshombe dvel-
ur í. í þeim svifum bar að hóp
nýfasista og sló þegar í bardaga
milli hópanna. Beitti lögreglan
kylfum, þó eingöngu á nýfasista,
en menn úr öllum hópum særð-
ust. Fjöldi manns var handték-
inn, vegna atburðar þessa.