Morgunblaðið - 09.01.1965, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIO
Laugardagur 9. janúar 1965
NÝLOKIÐ er forsetakosn-
ingum í Pakistan, landinu
tvískipta, sem liggur milli
Kína og Austurlanda nær
og hvílir á Indlandi eins og
illa ásettir baggar á klyf ja-
hesti. í Pakistan eru íbú-
ar taldir 110 milljónir, flest
ir játendur Islams (Múha-
meðstrúar) en Hindúar eru
þar einnig fjölmennir,
margt Búddatrúarmanna,
kristinna og Persa, auk
þeirra sem önnur trúar-
brögð aðhyllast. Fátækt er
mikil í landinu og almenn-
ingur fáfróður, ólæsi land-
plága og ekki nema tæpur
fjórðungur þjóðarinnar tal
inn læs og skrifandi.
í Pakistan hefur ráðið
ríkjum Ayub Khan hers-
höfðingi allt síðan haniPtók
öll völd í sínar hendur í
saman um framboð Fatimu
Jinnah, systur hins látna leið-
toga, sem nú er 71 árs gömul,
áratug eldri en Ayub Khan.
Fatima átti meira fyligi að
fagna í Austur-Pakistan,
smærri og þéttbýlli hluta sam-
bandsríkisins, sem 1.500 km
af indversku landi aðskilja frá
hinum hlutanum og fékk þar
um 40% atkvæða en 30%
í Vestur-Pakistan. Ekki er
með öllu lokíð talningu at-
kvæða frá kjörstöðunum 417
í báðum landshlutum, en svo
lítið eftir, að engu breytir um
úrslitin og litlu einu um at-
kvæðahlutfall keppinautanna.
Fatima Jinnah hefur látið að
því liggja bæði fyrir kosning-
arnar og eins nú að þeim
loknum ,að ekki muni allt
með felldu um úrslitin. Segist
hún handviss um, að Ayub
Khan hafi haft einhver brögð
í tafli og þeir sem standa að
framboði hennar segja, að ef
haldnar hefðu verið beinar
kosningar í Pakistan hefði
Fatima Jinnah unnið glæsileg-
bannað var að nota hátalara.
Það geta ekki kallast lýðræð-
islegar kosningar", sagði Fat-
ima Jinnah, sem fylgismenn
hennar kalla oft „landsmóður“
í líkingu við „landsföður“
heitið, sem bróður hennar var
gefið forðum daga.
Það er mál þeirra sem til
þekkja austur í Pakistan, að
þrennar ályktanir megi af
úrslitum kosninganna draga.
í fyrsta lagi þá, að andstaða
gegn Khan sé öflug í Austur-
Pakistan, þar sem Fatima
Jinnah fékk um það bil 40%
að Pakistan hefði í hyggju
að ganga úr SEATO og
CENTO hernaðarbandalögun-
um, sem til var stofnað til
þess að stemma stigu við
framsókn kommúnista í Aust-
ur-Asíu, og andúð þá á banda-
ríkjunum sem svo berlega
kom í ljós í Pakistan í kosn-
ingabaráttunni. Sagði hinn ný-
endurkjörni forseti, að Pak-
istan ætlaði sér alls ekki að
ganga úr SEATO og ekki
I CENTO heldur, en taldi hins-
vegar litlar líkur á að sam-
búðin við Bandaríkin batnaði
ir í þeim viðureignum.
Bandaríkjamenn hófu
vopnasendingar til Indverja
árið 1962,. að sögn AP, þegar
til átaka kom á landamærum
Indlands og Kína og hafa
haldið þeim áfram síðan. Það
er hið langsótta en þráða tak-
mark Bandaríkjanna, að Ind-
land og Pakistan taki saman
höndum um varnir geign kín-
verskum kommúnistum á um-
ráðasvæði landanna beggja.
Fyrsta árið voru Indlandi
veittar um 100 milljónir dala
og í samningi, sem undirrit-
Stúlkur tína te í Assam.
októbermánuði 1958. Hann
stjórnaði landinu að her-
Iögum í fjögur ár áður en
hann heimilaði aftur eðli-
lega stjórnmálastarsfemi
og þykir mörgum löndum
hans, sem forsetinn sé enn
heldur seingefinn á skoð-
anafrelsi til handa öðrum
en sínum útvöldu. Vinsæld
ir forsetans hafa verið
mestar úti á landsbyggð-
inni, þar sem mest hefur
gætt áhrifanna af efnahags
umbótum hans en í borg-
unum eru menntamenn
margir óánægðir með
stjórn hans.
f FORSETAKOSNINGUNUM
sem fram fóru laugardaginn
2. janúar réðust úrslit í hag
Ayubs Khan, forseta og verður
hann því áfram við völd í land
inu næstu 5 ár. Fékk Khan
tæp 50 þúsund atkvæði, en
helzti andstæðinigur hans,
Fatima Jinnah tæp 29 þúsund.
Tveir aðrir frambjóðendur
föluðust eftir atkvæðum kjós-
enda en höfðu lítið fylgi.
Tölur þessar kunna að þykja
undarlega lágar, en þess ber
að gæta, að í Pakistan er for-
seti kosinn óbeinni kosningu
og eru kjörmenn 80.000. Er
það kerfi til komið fyrir at-
beina Ayub Khans, sem segir
ókleift að hafa beinar kosn-
ingar í landi þar sem læsir
menn og skrifandi nái ekki
20 hundraðshlutum þjóðar-
innar. „Landi eins og Pakist-
an verður ekki stjórnað með
lýðræðislegum aðferðum á
vestræna vísu,“ segir Khan.
Fatima Jinnah vill aftur á
móti „endurreisa lýðræðið"
og koma á þingræði í Pak-
istan. Segir hún að Khan
hafi svikið málstað hins látna
bróður hennar, landsföður-
ins Muhammad Ali Jinnah
og tími sé til kominn að bæta
þar um. Ayub Khan vill völd
forsetans sem mest og öfluga
miðstjórn í landinu og bera
andstæðingar hans honum
óspart á brýn að hann hegði
sér eins og einræðisherra. Var
þetta helzta ástæðan til þess
að fimm flokkar úr stjórnar-
andstöðunni tóku höndum
Forsetakosningarnar í Pakistan
an sigur. Þegar kunnugt varð
um úrslitin, 'lýsti Fatima
Jinnah yfir því að kosninga-
barátta hennar væri ekki
nema byrjunin, meira myndi
koma á eftir og þjóðin myndi
innan tíðar varpa af sér
hlekkjum einræðisstjórnar
Ayubs Khan. Þessi svo-
kallaði sigur hans nú er
einmitt þvert á móti rnesti
ósigur hans“, sagði Fatima á
sunnudaginn, „kosningarnar
leiddu berlega í ljós, að þjóðin
fékk ekkert tækifæri til þess
að koma óskum sínum á fram-
færi. Þær leiddu líka í ljós
mútuþægni og sitthvað af
svipuðu tagi. Yfirvöldin bönn-
uðu að haldnir væru fundir
fleiri manna en fjöigurra og
atkvæða, þrátt fyrir ráðstaf-
anir Khans til úrbóta í efna-
hagsmálum þessa hluta sam-
bandsríkisins. í öðru lagi er
það ljóst, að miðstéttirnar í
borgunum eru óánægðar með
stjórnina og þykir hún ekki
nógu frjálslynd. í þriðja lagi
er svo það, að gagnrýni
klerkastéttar Islams í land-
inu á þá framhleypni Fatimu
Jinnah að bjóða sig fram við
opinberar kosningar, virðist
ekki hafa haft ýkjamikil
áhrif á kjósendur,
Fréttamaður bandarísku
fréttastofunnar Associated
Press átti viðtal við Ayub
Khan á sunnudag og spurði
tíðinda, minntist á áhyggjur
manna vegna orðrómsins um
AUs staðar er hægt að lesa, ef löngunin er noff.
meðan þau héldu áfram að
senda Indverjum vopn. „Ég
get á vissan hátt skilið afstöðu
Bandaríkjamanna til heims-
málanna, saigði Khan, „og ég
veit vel, að þau verða að
standa við sínar skuldbinding-
ar, en ég fæ með engu móti
séð, hverjum geti verið akk-
ur í því að hervæða Indland
og mér er þetta mikið tilfinn-
ingamál". Sagði Khan, að
Indverjar myndu nota vopn
þessi eins og áður til þess að
ógna Pakistan og öðrum
smærri þjóðum. „Indverjar
munu halda áfram að hræða
okkur, eins og þeir hafa gert
undanfarin 17 ár“, sagði
Khan, „og það er sízt til fram-
dráttar stefnumálum Banda-
ríkjanna hér eystra". Khan
kvað það vera íhlutun Banda-
ríkjanna í þessum heimshluta,
sem stórum hefði spillt fyrir
ganigi mála þar og taldi ör-
yggi Pakistan nú af þeim sök-
um hættara en áður.
Aðspurður um Kína, sagði
Khan: „Kína ræðist ekki á
Indland. Kínverjar eru ekki
svo uppiskroppa af almennri
skynsemi að þeim detti í hug
að gera árás á Indland og hin
mikla hervæðing Indlands
leysir í engu vandamál þau
sem löndunum tveimur ber í
milli. Hin miklu útgjöld Ind-
verja til landvarna eru ónauð
synleg byrði, sem Indverjar
verða að réttlæta fyrir sjólf-
um sér og heiminum með ein-
hverju móti — og við erum
efstir á blaði þar sem upp eru
taldir óvinir Indlands", sagði
Ayub Khan.
Deilurnar milli Indlands og
Pakistans eru jafn hatrammar
nú oig þær voru árið 1947,
þegar brezku nýlendunni Ind-
landi var skipt og þau urðu til
sem sjálfstæð ríki. Helzta
þrætueplið er nú sem fyrr
fjallahéraðið Kashmir, sem
bæði ríkin gera tilkall til. Þar
hefur varðliði landanna lent
saman ótal sinnum sl. 17 ár
og mannskaðar orðið töluverð-
aður var í Washington í fyrra-
vor, er kveðið á um ýmisskon-
ar lán og fjárveitingar til
handa Indverjum að upphæð
allt að 500 milljónum Banda-
ríkjadala á næstu fimm árum.
Er þá fé það, sem Bandaríkin
hafa veitt til þessarra tveggja
aðþrengdu stórþjóða Asíu,
komið yfir 10 billjónir dala
og hafa Pakistanir fengið nær
fimm billjónir þess fjár en
Indverjar sex og er þetta
meiri efnahags- o@ hernaðar-
aðstoð en Bandaríkin hafa
veitt nokkru öðru ríki síðan
1951.
En efnahagsaðstoðin kemur
fyrir ekki, því hvorki Indland
né Pakistan hafa fyrir bragðið
gerzt auðsveipir bandamenn
Bandaríkjanna. Indverjar
halda fast á „hlutleysi“ sínu
og þiggja alla þá aðstoð sem
Sovétríkin vilja láta þeim í
té til viðbótar aðstoð Banda-
ríkjamanna, en í Pakistan fer
álit Bandaríkjanna og áhrif
þeirra ört þverrandi, eink-
um af þeim sökum, eins og
Ayub forseti segir, að Banda-
ríkin halda áfram að senda
Indverjum vopn. Meira að
segja var látið að því liggja
í Karachi í hita kosninga-
baráttunnar, að Bandaríkin
stæðu að baki framboði Fat-
imu Jinnah og styddu hana
með fjárframlögum, en sá
orðrómur reyndist á litlurp
rökum reistur, er betur var að
gætt og helzta sönnunargagn-
ið, flugmiðar, sem dreift var,
voru þegar til átti að taka
áróður gegn öðrum frambjóð-
andanna tveggja, sem ekki
hafa einu sinni verið nafn-
greindir, og ninninn undan
rifjum Ayubs Khan sjálfs.
Svo miklar úfar eru enn með
mönnum vegna kosninganna,
að hervörður var hafður í
Karachi á þriðjudag vegna
óeirða sem þar urðu daginn
áður milli fylgismanna forset-
ans og Fatimu Jinnah er 27
manns létu lífið og mörg
hundruð særðust.