Morgunblaðið - 07.03.1965, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.03.1965, Blaðsíða 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 7. marz 1965 25 ára starfsafmæli: Davíð ÓBafsscn fiskimálastjóri Á MORGUN eru liðin 25 ár frá því, að Davíð Ólafsson var kjör- inn forseti Fiskifélags íslands í fyrsta sinn. Alls hefur hann verið kjörinn sjö sinnum af Fiskiþingi Davið Ólafsson. til fjögurra ára í senn, fyrst sem forseti félagsins og síðan sem fiskimálastjóri. Davíð lauk prófi í hagfræði við háskólann í Kiel árið 1909 og kom heim að loknu námi þá í árslok. Á æskuárum sínum hafði Davíð náin kynni af sjávarútveg- inum. Faðir hans, Ólafur Gísla- son, var um langt skeið fram- kvæmdastjóri stórra útgerðar og verzlunarfyrirtækja, fyrst á Aust fjörðum og síðan fyrir Kárafélag- ið í Viðey, sem rak toigaraútgerð í stórum stíl. Hinn heimskunni rithöfundur Jón Sveinsson, Nonni, getur þess í skemmtilegri frásögn í bók sinni: „Eldeyjan í Norðurhöfum“, sem hann samdi eftir ferð sina til íslands sumarið 1930, að hann hafi þá heimsótt Eggert Briem óðalsbónda í Viðey. Var Nonni sóttur til Reykjavíkur ásamt forn vini sínum Gunnari Einarssyni á mótorbát úr Viðey og fluttur aft- ur í land á sama farkosti. Skips- höfnin á bátnum voru tveir dreng ir 12 og 14 ára. Sá eldri, Davíð Ólafsson, stýrði bátnum, og þótti Nonna þessir ungu sjómenn standa sig með ágætum. Fylgdar- maður Nonna tók mynd af far- þegunum og ungu sjómönnunum, og hef ég beðið Morgunblaðið að birta hana með þessari grein. Ýmsir fulltrúar á Fiskiþingi 1940 töldu, að æskilegt væri. að forseti Fiskifélagsins hefði hag- fræðimenntun, en aðrir töldu, að ekki væri ástæða til breytinga. Davíð var í fyrstu kjörinn með eins atkvæðis mun, en síðan hef- ur hann jafnan verið endurkjör- Viðeyjarförin 1930. Gunnar Einarsson, Bjarni Kristinn Björnsson, Davið Ólafsson og Nonni. Myndina tók Friðrik Gunnarsson. inn með yfirgnæfandi fylgi án mótatkvæða. Er það mjög fátítt, að menn hljóti svo eindregna viðurkenn- inigu hér á landi fyrir gott starf, því að flokkadrættir, allskonar hagsmunatogstreita og hreppa- rígur setja oftast svipmót á fé- lagssamtök, sem ná til allra lands fjórðunga. Á þeim 25 árum, sem Davíð hefur gegnt forseta og fiskimála- stjórastarfinu hjá Fiskifélagi fs- lands, hefur orðið gagnger breyt- ing á íslenzkum sjávarútvegi. Ríkisafskipti af þróun atvinnu- veganna á íslandi hafa verið mjög mikil á þessu tímabili og hefur sjávarútvegurinn sízt farið varhluta af afskiptum hins opin- bera. Ýmsar ákvarðanir hafa oft ver ið teknar af Alþingi og ríkis- stjórn, sem mjög hafa orkað tví- mælis í atvinnumálum þjóðarinn ar eins og t.d. uppbótakerfið, sem síðast var komið út í þær ógöng- ur, að það jafngilti því, að 40-50 gengi væru á íslenzku krónunni. Var þjóðinni þá mikið happ að eiga menntaða og mikilsmetna hagfræðinga, sem vísuðu á leið út úr ógöngunum, þótt enn hafi ekki verið synt fyrir öll sker. Þegar saman fór hjá síldarút- veginum hvert aflabrestsárið eft- ir annað og gjaldeyrir, sem fékkst fyrir síldarafurðir var reiknaður með lægra verði en 'gjaldeyrir sá, sem fékkst fyrir aðrar fiskafurð- ir, þá var Davíð fremstur í flokki þeirra, sem reyndu að fá misrétt- ið leiðrétt og brýndi það jafn- framt fyrir þjóðinni í útvarpi og blaðagreinum, að ekki mætti leggja árar í bát í síldarútvegin- um, er væri svo snar þáttur I sjávarútvegi landsmanna, að ekki yrði án hans verið. Davíð hefur innt ómetanlegt starf af höndum með því að túlka málstað íslendinga á ráðstefnum og fundum erlendis í landhelgis- málinu. Hartn er meðal þeirra, sem bezt hafa unnið að fram- ganigi þess máls og sem þjóðin hefur að þakka hinn mikla árang ur, er náðst hefur. Þegar rætt er um sjávarútvegs- mál, hvort sem er á innlendum eða erlendum vettvangi, á ís- lenzka þjóðin sér ekki betri máls svara en Davíð Ólafsson. I stuttu máli GJALDEYRISSTAÐAN BATNAR London, 2. marz (NTB). TILKYNNT var í London í dag að gullbirgðir og gjald- eyriseign Breta hefði aukizt um 23 milljónir punda í febrúar, Er þetta í fyrsta skipti í níu mánuði, sem aukn ing verður á gullbirgðum og gjaldeyrisstaðan batnar. ELDFLAUG SPRINGUR Kennedyhöfða, 2. marz (AP). BANDARÍSK eldflaug af Centaur gerð, sem er á hæð við tíu hæða hús, sprakk á skotstað á Kennedyhöfða í dag og eyðilagðist. Engan mann sakaði. Eldflaugin átti að flytja gerfihnött út í geim- inn. Eldflaugar þessar kosta um niu milljónir dollara (tæp ar 39 millj. króna). I ATHUGAR STJÓRNARMYNDUN Haag, 2. marz (NTB). JÚLÍANA Hollandsdrottning hefur falið W. K. N. Schmelz- er, formanni þingflokks Ka þólskaflokksins i neðri deild þingsins, að athuga mögu- leika á myndun nýrra ríkis- stjórnar. En ríkisstjórn Vic- tors Marijens, sem einnig úr flokki kaþólskra sagði sér s.l. föstudag. ! i v ie- aig er göi af t • Hver syngur? Frá Suðurnesjum hefur Vel- vakanda borizt þetta bréf: „Ég býst við því, að flest rosk ið fólk, sem hlustar á passíu- sálmana lesna í útvarpinu, kunni vel við að heyra sungin við þá lög, sem það þekkir, eftir lestur þeirra. Okkar góð- kunna og velþekkta söngvara Guðmund Jónsson, þekkja allir, en hver er þessi frú eða fröken, sem syngur versin til skiptist við hann? Ég er svo hrifinn af rödd hennar og af því, hvað hún túlkar vel textann með söng sínum, að það er mér heilög stund, þegar hún syngur versin. Ef hún skyldi lesa þess- ar línur, þakka ég henni hjart- anlega ógleymanlegar ánægju- stundir. Eflaust getur þú, Vel- vakandi, frætt mig um það, hver þetta er. — Gamall karl við sunnan- verðan Favaflóa". Velvakandi veit ekki betur, en þetta sé frú Sigurveig Hjalte sted, sem hér er átt við. • Sóðaskapur á minnismerki Ó. K. skril'ar: „Ljá mér rúm í dálki þínum fyrir eitt lítilræði af nöldri, sem orðið er nokkuð tímabært, hvað sem öðru líður. Góðu heilli fer minnismerkj- um og styttum stöðugt fjölg- andi hér á opinberum vettvangi, en sá er ljóður á ráði, að stytt- um þessum er lítil umhirða sýnd, og oft eru þsfer óþriflegar að sjá. Á þessu fer síður en svo vel og sýnir leiðinlegt hugsun- arleysi. Má sem dæmi nefna minn- ismerki Jónasar Hallgrímsson- ar, en þar má ekki greina texta á fótstalli fyrir sóðaskap og óþrifnaði. Vil ég leyfa mér að vekja athygli og hvetja borgar- yfirvöld til þess að fela t. d. hreinsunardeild borgarinnar framangreint verkefni, — óþrifnaður er alls staðar til leið inda og lítils sóma. Ó. K.“. Trúnaðarmaður Velvakanda fór að styttu Jónasar Hallgríms sonar í Hljómskálagarðinum laust eftir hádegi á föstudag. Segir hann hér ekki beinlínis óþrifnaði og sóðaskap um að kenna, heldur leka einhverjar sýrur eða spanskgræna niður úr styttunni, brjótast fram und an hellunni, sem nafnið JÓNAS stendur á, og flæða yfir föður- nafn skáldsins og lífsstundaár- töl þess. Hér þyrftu efnafræð- ingar að koma til og finna ráð. Spanskgræna er Ijót í fæðingu og fögur í fullþroska, en þegar hún flóir yfir stein, verður hún alltaf heldur óskemmtileg. Ríf- ast má endalaust um það, hver prýði er í ýmsum minnismerkj um þessarar ágætu borgar, en reyna verður að halda þeim í lagi, sem allir eru löngu orðnir ásáttir um, svo sem styttu Jón- asar. Sennilega þarf að taka stöpulinn og stallinn undir styttunni í sundur, stífla lekann og skeyta saman aftur, þegar eir grænan, spanskgrænan eða kopargrænan er farin að fest- ast í réttri rás. • Mútur og ekki mútur Gísli Kristjánsson, ritstjóri Freys, segir í síðasta tölublaði rits síns um Sigurð Samúelsson, prófessor við Háskóla íslands, sérfræðing í hjartasjúkdómum og yfirlækni í Landsspítalan- um, í vörn sinni fyrir neyzlu mjólkur, feits kets og smjörs: „Ekki viljum vér ( ! - ) ætla, að ofangreindum prófessor hafi verið mútað til þess að bera staðhæfingar sínar á borð fyr ir hlustendur, svo sem sumir ætla“ . . . Hvaða sumir? Ekki höfum VÉR VELVARANDI heyrt um aðra en þennan sama Gísla Kristjánsson. Hann segist að- spurður byggja aðdróttun sína „á skrifum þýzks prófessors, Wolfs Múllers Limmroths í 70—80 síðna pjesa, sem Gísli kvaðst sjálfur vera að þýða“. Getur það verið, að þessi sami prófessor sé á launum hjá dönskum mejeristum (mjólkur búasamtökum) ? Það eru nátt- úrulega engar mútur, heldur er unnið fyrir launum. Sigurður Samúelsson er e. t. v. á laununa hjá smjörlíkisgerðunum ? • Vegna skrif- finnskunnar? Nú á að fara að gefa út nafn skírteini, og segir í forsendum eða greinargerð, að það sé gert „hins vegar til að skapa skilyrði fyrir fullri hagnýtingu hms svonefnda nafnnúmers Þjóð- skrárinnar“ (Mbl. bls. 8, 5. marz). Á að gefa skírteinin út, svo að hægt sé að nota þessi þjóð- félagsborgaranúmer ? Er þá ekki fulllangt gengið í dýrkun skriffinnskunnar, skriffinnsk- unnar vegna, eða hvernig á að skilja þessi ummæli ? Hin forsendan er vegna „tak- markana á áthafnafrelsi ung- menna“. Það er þá ekki í fyrsta skipti, sem takmarka á réttindi fullorðinna manna vegna í- myndaðrar verndar unglinga, sbr. kvikmyndir. Sem betur fer er þetta þó ekki svo slæmt, því að menn eru í íyrsta lagi ekki skyldir til að bera nafnskírteini á sér, og í öðru lagi ráða menn því sjálf- ir, hvort mynd þeirra fylgir plagginu. PIB COfílHUGl* » i 1 Bosch þokuluktir ' sívalar eða kantaðar, einnig luktargler í ökuljós. teRÆÐURNIR ORMSSON h.f. Vesturgötu 3. — Sími 11467

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.