Morgunblaðið - 27.04.1965, Síða 1
32 síður
framíarir
Stjórnmálayfirlýsing
Sjálfstæðisflokksins
Landsfundar
1965
HÉR fer á eftir stjórnmála
yfirlýsing sú, sem sam-
þvkkt var á sextánda lands
fundi Sjálfstæðisflokksins
síóasdiAinn sunnudag.
Stefna Sjálfstseðiaflokksins
tief'ir frá upphafi miðað að efl-
•nigu frelsis og mannhelgi. Lands
fundurinn ítrekar þessi megin-
■narkmið flokksins:
L Varðveita og tryggja sjálf-
stæði og frelsi íslands og
standa vörð um tungu, bók-
menntir og annan menning
ararf íslendinga.
H. Treysta lýðræði og þing-
raeði.
III. Vinna að víðsýnni og þjóð-
Jegri umbótastefnu á grund
vetli einstaklingsfrelsis og
athafnafrelsis, með hags-
muni allra stétta fyrir auig-
um.
IV. Beita nútíma þekkingu og
tækni, svo að auðlindir
landsins verði hagnýttar í
þágu þjóðarinnar.
V. Skapa öllum landsmönnum
félagslegt örygt'
★
Farsæl stjórnarstefna og góð-
eeri til lands og sjávar hafa leitt
til þess, að þjóðin býr nú við
jafnari og betri kjör en nokkru
einni fyrr. Eftir spurn eftir vinnu
efli hefir í heild verið meiri en
framboð, þótt atvinnuhættir 0\g
aflabrögð valdi því, að stundum
sé tímabundinn atvinnuskortur á
stöku stað á landinu. Jafnhliða
fullri atvinnu og öruggri afkomu
fyrir vinnufæra, hefir aðstaða
sjúkra og aldraðra og annarra,
sem almannatrygginga njóta, vef
ið bætt með víðtækum umbótum
í félags- og heilbrigðismálum.
Með framkvæmda- og fjáröfl-
unaráætlunum hefir síðustu tvö
árin verið lögð áherzla á að hag-
nýta sem bezt það fé, sem fáan-
legt hefir verið til opinberra
framkvæmda og til eflingar fjár-
festingarsjóðum atvinnuveganna,
en þó reynt að fylgja þeirri
stefnu í peningamálum, að hinar
miklu framkvæmdir ykju ekki
verðbólgu.
Fjármunamyndun i landinu
hefir verið meiri en áður eink-
um vegna þess framtaks, sem at-
bafnafrelsið hefir glætt. Aukið
viðskiptafrelsi hefir tryggt vax-
andi vöruval öllum almenning til
hagsbóta.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
setíð lagt á það megin áherzlu, að
velfarnaður hins íámenna ís-
lenzka þjóðféiaigs byggðist fyrst
og fremst á gagnkvæmum skiln-
ingi þjóðfélagsstéttanna. Því tel-
ur landsfundurinn ástæðu til þess
að láta í ljós ánægju yfir kjara-
samningum verkalýðsfélaga og
vinnuveitenda í júní 1964 og
þakkar rí'kisstjórninni leiðsögn í
samningsgerð. Verður að vænta
þess, að á vettvarxgi kjaramála
verði framvegis starfað þannig,
að leiði til raunhæfra kjarabóta.
Stærra átak hefir verið gert
en áður til úrbóta í húsnæðis-
málum.
Unnið hefir verið að undirbún
ingi stórframkvæmda við virkjun
fallvatna og orkuframleiðslu í
landinu, og 'hefir endurvakið
traust alþjóðlegra fjármálastofn-
ana á stjórn islenzkra efnahags-
mála komið þar að góðu haldi.
Fjölþætt vélvæðing atvinnu-
veganna og vaxandi tækni eiga
mikinn þátt í meiri og stöðugri
aukninigu þjóðartekna en fyrr.
Skipastóllinn er stærri og betur
búinn en nokkru sinni áður.^loft-
flotinn hefur vaxið hröðum skref
um, og bifreiðaeign landsmanna
hefir stóraukizt.
Stærri og skipulegri átök hafa
verið gerð en áður til umbóta í
vegamálum og vegagerð hafín úr
varanlegu efni.
Með nauðsynlegum aðgerðum
í efnahags- og peningamálum
hefir tekizt að vernda gengi krón
unnar og auka gjaldeyrisvara-
sjóðinn. «
★
Viðreisnarstefnan, sem mörkuð
var árið 1960, miðaði að því að
reisa efnahagskerfi þjóðarinnar
úr rústum vinstri stjórnarinnar
og leggja traustan grundvöll al-
hliða uppbyggingar og framfara
í þjóðfélaiginu. Á þessu fimm ára
tímabili hefir reynzt auðið að ná
þeim megintilgangi, að hverfa
frá haftabúskap og gjaldeyris-
skömmtun og byggja upp frjálst
efnahagskerfi, enda þótt viðreisn
arstarfið hafi verið torveldað af
kauphækkunaröldunni 1963, sem
olli atvinnuvegunum erfiðleikum
og stofnaði hagsmunum launþega
í hættu. Minnir landsfundurinn á
margítrekaðar aðvaranir Sjálf-
stæðisflokksins um það, að kröf-
ur á hendur atvinnuvegunum um
fram igreiðslugetu þeirra leiða til
ills eins, fyrst og fremst fyrir þá
efnaminnstu, og veikja gengi
krónunnar.
★
Efnahagskerfi athafnafrelsis og
frjálsra viðskiptahátta hefir sann
að yfirburði sína yfir kerfi hafta,
skömmtunar og ríkisafskipta.
Þjóðin stendur á tímamótum.
Undir traustri og framsýnni for-
ystu og í skjóli vinnufriðar og
stéttarsamstarfs er auðið að
tryggja með kerfisbundnum að-
gerðum, í frjálsu hagkerfi, nauð-
synlegar menningarlegar og efna
haigslegar framfarir til bess að
veita hraðfjölgandi þjóð góða
lífsafkomu.
Sextándi landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins telur Sjálfstæðis-
flokknum skylt að veita þjóðinni
forystu í framfarasókn hennar,
og í samræmi við meginmark-
mið flokksins lýsir landsfundur-
inn eftirfarandi höfuðviðfangs-
efnum, sem hann felur miðstjórn
flokksins, þingflokki og ráðherr-
um að vinna að:
1. Æskulýð þjóðarinnar verði
tryggð fullnægjandi mennt
un til þess að geta gagnt
hlutverki sinu í nútíma
þjóðfélagi, sem gerir sífellt
víðtækari kröfur til sér-
menntunar í ótal greinum.
Efla þarf æðstu mennta-
stofnun þjóðarinnar.
Lögð verði áherzla á að
veita æskufólki hvarvetna
um landið þá aðstöðu til
menntunar og félagslífs, er
skapi skilyrði fyrir jafn-
vaégi og festu í þjóðfélag-
inu.
Framtíðarstefnan í uppeld-
is- og menntamálum mið-
ist við, að bætt menntun
auki þroska og lífshám
ingju einstaklinganna cng
verði þannig aflgjafi þjóð
legrar menningar og efna-
hagslegra framfara. t upp-
eldisstarfinu verði iögð
rækt við kristna lífsskoð-
un, bindindi og holla tóm-
stundaiðju. Til þess að auð-
ið verði að framfylgja
þessari stefnu, þarf að
fara fram heildarendor-
skoðun á öllu fræðsluktrf-
inu og fræðslustarfinu á
skipulegan og vísindalegan
hótt.
2. Verkmenning, raunvisindi
og rannsóknir í þágu *t-
vinnuveganna verði efid
Framh. á bis. 30
Bretar lækka
tollinn
AUKATOLLUR sá, tr brezka
stjórnin lagði á skömmu eftir að
hún tók við völdum, og valdið
hefur miklum deilum innan Frí-
verzlunarbandalagsins (EFrA),
verður lækkaður á miðnætti í
nótt úr 15% í 10%.
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra, og formaður Sjálfstæft-
isflokksins, dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráffherra. Myndin er tekin að loknu formannis- og
varaformannskjöri á sextánda Landsfundj Sjálfstæðisflokksins á sunnudag.
(Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson).
Frá sextánda Landsfundi Sjálfstseðisfllokksins:
Bjarni Benediktsson kosinn
formaður Sjálfstæöisflokksins
Tékki sakaÖur um J
njósnir í Khh.
Ka upman nahöi'n 26. apríl.
(NTB).
EINVM at riturum tékkneska
sendiráftsins i Kaupmanna-
hnfn. Joseí Lmskj, hefur
verift visað ur landi. Er hann
sagftur hafa tekift þátt i aft
nj«Msna sn Atlantshafsbonda-
lagift og haft er eftir áreift-
anlegum heimildum, aft lög-
reglan hafi komift að I.ensky
og Vestur-Þjóftverja nokkrum
í gistihúsi, þar sem V.-Þjóft-
verjinn hafi verið aft afhenda
Lensky leynilegar upplýsingar
um hernaðarmannvirki i V.-
Þýzkalandi.
og Jóhann
SEXTÁNDA Landsfumli
Sjálfstæðisflokksins lauk á
sunnudag. Bjarni Benedikts-
son var endurkjörinn forniað-
ur flokksins, og Jóhann Haf-
stein var kosinn varaformað-
ur. Miðstjórn flokksins var
kosin og stjórnmálayfirlýs-
ing samþykkt.
Á þriðja degi sextánda Lands-
fundar Sjálfstæðisfiokksins, laug
ardag, hófusl fundarstörí kl 16
Hafstein varaformaður
fyrir hádegi. Störfuðu þá nefnd-
ir atvinnustétta.
Fundur var settur kl. 14, og
hélt þá Jóhann Hafstein dóms-
málaráðherra, ræðu. Fundarstjóri
var Ragnhildur Helgadóttir, en
fundarritarar Guðrún Lúðvíks-
dóttir og Vigdís Jakobsdóttir.
Að ræðu dómsmálaráðherra lok-
inni hófust fundir í kjördæma-
nefndum, en kl. 17 var fundur
settur að nýju. Neíndaráiit voru
iögð fram Og umræðUr fóru fram
um stjórnmálayiiriýsingu. Fund-
arstjóri var Gunnar Friðriksson,.
en fundarritarar Rafn A. Péturs
son og Símon Teitsson.
Síðasta dag landsfundarins,
sunnudag, hófust fundarstörf
kl. 10 fyrir hádegi. Þá fóru fram
umræður um stjórnmálayfirlýs-
ingu. Fundarstjóri var Baldvin
Tryggvason, en fundarritarar
Hannes Þ. Sigurðsson og Jón Er-
iendsson. Þá tóku til máls Gunn-
ár Bjarnason, óii Þ. Guðbjarts-
son, Jörundúr Gestsson, Sigfús
Johnsen, ölafur BjörnsSon, Þor-
Framh. á bls. 6