Morgunblaðið - 27.04.1965, Page 31
Þriðjudagur 27. apríl 1#65
MORGUNBLAÐIÐ
31
n
Ir
Vernd fœr
Grjófagöfu 14 A
' Félagssamtökin Vernd hafa í [
vetur verið í húsnæðishraki, þar
sem þeim var sagt upp húsnæði,
þar sem undanfarin ár hefur
verið rekið heimili fyrir ýmsa
l»á þjóðfélagsþegna, sem styðja
þarf við bakið á meðan þeir
koma undir sig fótunum. Hafa
stafað af þessu mikil vandræði,
en nú hefur ofurlítið rætzt úr,
því Reykjavíkurborg er nú í '
þann veginn að útvega Vernd
afnot af húsinu Grjótagötu 14 A.
Heimilaði borgarráð í sl. viku
Óðinn rnddi
brnut í gegn
um ísinn
VARBSKIPI® Óðinn kom s.l.
nótt til Siglufjarðar með Kyndil
og norskt flutningaskip, sem
hann hafði rutt braut í gegn um
ísinn frá Horni. Reyndist Óðinn
vel og þurfti aldrei að nota
meira en hálft vélarafl í gegn
um ísinn.
Skipin biðu í ísnum aðfaranótt
sunnudags, þar sem ekki var
hægt að sigla áfram sökum
þoku. I gær var mikið dimm-
viðri á þessum slóðum, svo Óð-
inn varð að hætta við um sinn
að hjálpa Herðubreið í gegn um
ísinn, en hún beið á Isafjarðar-
djúpi í gær.
Akureyri, 26. apríl.
NOKKUR umferðaróhöpp urðu
hér um slóðir um helgina. Bíll
valt í Arnarneshreppi og annar
í Kræklingahlíð og sá þriðji
stakkst á endann ofan háa
brekku vi'ð Bjarmastíg hér í bæ.
Engin slys urðu á fólki við óhöpp
þessi, en nokkrar skemmdir á
bílunum, — Sv. P.
Verkfallið
Framhald af bls. 32
fram á Alþingi kvað ráðherrann
sáttasemjara hafa haldið t.vo
sáttafundi án árangurs. Kvaðst
ráðherrann hafa átt tal við sátta
semjara ríkisins síðast í gærmorg
un, og hefði hann þá ekki eygt
neina lausn í deilunni.
Samgöngumálaráðherra kvaðst
ekki ætla að setjast í dómara-
sæti í deilu þessari. Flugmenn-
irnir ættu skilið að búa við góð
kjör, en ráðherrann sagði hins
vegar efnisatriði deilunnar ekki
skipta meginmáli varðandi frum
varpið.
Hinar dýru flugvélar Loftleiða
hefðu nú staðið ónotaðar frá því
4. apríl. Tjónið af þeim sökum
væri ómetanlegt, það væri ekki
aðeins hið beina fjártjón félags-
ins heldur væri áliti þess erlend
js nú stefnt í beinan voða. Far-
þegar þess, sem ætlað hefðu að
taka sér far með hinum nýju
flúgvélum af gerðinni Rolls
Hoycé 400, sættu sig ekki við að
fljúga í stað þess með DC-6 vél-
um, sem félagið hefði tekið á
le'gu.
í>á sagðist ráðherrann vera
sannfærður um, að flugmenn fé-
lagsins vildu helzt af öllu, að
vinnudeilan leystist strax. í>eir
mundu auðvitað kjósa að hægt
væri að leysa hana með frjáls-
um samningum og að þeir fengju
sínum málum framgengt, en úr
því sem komið væri, hlytu marg
ir þei'ra að telja þessa lausn
nauðsynlega.
Þá sagði ráðherrann málið nú
komið á það stig, að stífni væri
kbmin í það af hálfu beggja að-
ila. Stöðvun hinna stóru flug-
véla um langan tíma væri miklu
alvarlegra mál en svo, að það
væri einkamál eigenda Loftleiða
ahnars vegar og flugmanna fé-
lagsins. Þetta væri mál, sem þjóð
ina alla varðaði úm, og ættu þing
menn áð'geta Verið samniála urtr,
að á þennan hnút yrði að skera.
félagsmálastjóra að semja við
félag'ssamtökin um afnot af hús-
inu.
Mbl. spurði frú Þóru Einars-
dóttur, formann samtakanna, um
þetta. Hún sagði að húsið væri
að vísu lítið, þar yrði ekki rúm
fyrir meira en 13—14 manns, en
samtökin þökkuðu fyrir hvað sem
væri, enda borgin ekki völ á
öðru. Nú mundu fara fram nauð
synlegar lagfæringar á húsinu
og væntanlega hægt að taka
þar til starfa í sumar.
Þessi úrlausn mundi bæta úr
sárustu þörfinni fyrir slíkt heim
ili í bili. En á vegum samtak-
anna væru miklu fleira fólk, sem
hjálpa þyrfti en þar kæmust
fyrir. Mikil þörf væri fyrir
staði, þar sem einstæ'ðingar
gætu átt heimili, haft- félagsskap
og stuðning. Það væri framtíðar-
verkefni. í
Speglabrofum stráð á stræti Santo
Dom'ngo gegn flugher stjórnaiinnar
Enn óvisf hver hafi sigur
Þegar ráðizt hafði verið á tylft
verksmiðja í Santo Domingo tók
lögregla borgarinnar, sem er fjöl-
menn nokkuð, um 10.000 manns,
i taumana og kvaðst myndu
Santo Domingo, 26. apríl, ' •
(NTB-AP)
ENN er óljóst, hverjir fari með
völd í Dóminikanska lýðvcldinu,
og cnn er þar barizt í höfuðborg-
inni Santo Domingo og utan
hennar. Eins og sagt liefur verið
frá i fréttum, var gerð uppreisn
á laugardag í Dóminikanska lýð-
veldinu og þriggja manna stjórn-
inni, sem þar hefur ráðið ríkjum
siðan 1963, steypt af stóli.
Flugher landsins er stjórninni
tryggur og heldur uppi loftárás-
um á bækistöðvar uppreisnar-
manna í höfuðborginni. Er sagt
að álta manns hafi týnt þar lífi í
dag og er mannfall þá orðið no.kk
uð á þriðja tug. Útvarpið í Santo
Domingo tilkynnti í dag að nokk-
ur hluti landhersins væri stjórn-
inni enn trygg^r, en sjóherinn
hefði tekið málstað uppreisnar-
manna og undirbyggi nú árás á
bækistöðvar flughersins.
Jose Rafael Molina Urena, fyrr
um þingforseti, tilkynnti á sunnu
dagskvöld að hann hefði tekið í
sínar hendur forsetaembættið,
eins og stjórnarskráin mæli fyrir
og myndi gegna því til bráða-
birgða eða unz Juan Bosch, fyrr-
um forseti, sneri aftur heim frá
Puerto Rico, þar sem hann hefur
dvalizt síðan honum var vikið
frá völdum fyrir tveimur árum.
B’/o viiðist sem leiðtogum
stjórnarinnar, Donald Reid Ca-
bral og Ramon Caceres Troncoso
og yfirmanni hersins, Rivera
Cuesta hershöfðingja, sé haldið
sem gislum í forsetahöllinni.
Flugherinn hefur haldið uppi
sýndarárásum á höllina í öigrunar
skyni og ráðist á stöðvar upp-
reisnarmanna við Duarte-brúna
yfir ána Ocama, skammt utan
við borgina. I flugstöð þeirri,
sem kennd er við heilagan fsi-
dórus, situr yfirhershöfðinginn
Eiias Wessin y Wessin með 1500
manns undir vopnum, 30 skrið-
dreka og flugflotann allan.
Wessin, hershöfðingi, er sagður
hafa sætzt á brottvikningu Reid’s
og manna hans, en hann er því
mjög mótfallinn að Juan Bosch,
fyrrum forseti, komi aftur til
landsins.
Uppreisnarmenn tóku höndum
ættingja flugmanna Wessins,
eiginkonur þeirra og börn o;g
fluttu eitthvað af fólkinu til
Duarte-brúar en létu þau boð út
ganga um útvarpsstöðina í Santo
Domingo að ef flugmennirnir
gerðu aðra árás á brúna myndu
þar týna lífi fjölskyldur sjálfra
þeirra. Þúsundir borgarbúa
gengu í lið með uppreisnarmönn-
um og stráðu speglabrotum um
stræti til ’þéss að blinda flug-
mennina og villa þeim sýn.
vernda líf og eigur borgaranna
og koma í veg fyrir rán og grip-
deildir. Erkibiskup Santo Dom-
ingo fór þess á leit að hætt yrði
árásunum og stríðsaðilar kæmu
saman til skrafs og ráðagerða,
svo aftur mætti koma á friði í
landinu.
HIN nýkjörna Miðstjórn Sjálf
stæðisflokksins. Myndin er
tekin í Sjálfstæðishústinu á
sunnudag. Sitjandi frá vinstri:
Ingólfur Jónsson, frú Ragn-
hildur Helgadóttir, Bjami
Benediktsson, Jóhann Haf-
stein og Pétur Ottesen. Stand-
andi frá vinstri: Geir Hall-
grímsson, Birgir Kjaran, Ámi
Grétar Finnsson, Matthías Á.
Mathiesen, Magnús Jónsson
og Gunnar Hvlgason. Á mynd-
ina vantar Sigurð Bjamason,
sem nú er staddur erlendis.
(Ljósm. Vigfús Sigurgeirss.)
If.dlísnd og Pakistan deiia:
dbyggilegt flæðiland á landa-
mærunum taíið ríkt af olíu
AÐ undanförnu hafa orðið
harðri árekstrar miili her-
manna Indlands og Pakistan á
vestur landamærunum á land-
svæði, sem heitir Rann of
Kutch. Saka hvorir aðra um
að beita skriðdrekum í bar-
dögunum.
Á sunnudag var sagt í nýju
Delhi,höfuðborg Indlands, að
stjórnin í Pakistan hefði kvatt
allan her sinn til vopna og
afturkallað öll heimfararleyfi
hermanna eftir harða bardaga
á Kutch-svæðinu á laugardag.
Og á mánudag lýsti Chavan,
það. Og orjsökin er ekki þjóð-
armetnaður né gagnkvæmt
hatur, heldur olía.
varnarmálaráðherra Indlands,
því yfir að hættuástand ríkti
á Kutch svæðinu, og hafi Ind-
landsher verið fyrirskipað að
vera við öllu bú.inn. Skýrði
ráðherrann jafnframt frá því
að á suhnudag hafi sveitir úr
Pakistanher, studdar þremur
skriðdrekum og þremur bryn-
vörðum bifreioum, gert árásir
á stöðvar Indverja á þessu
umdeilda svæði. Ekki liggja
fyrir nánari fréttir af átökun-
um að þessu sinni, en mann-
fall mun hafa verið mjög litið
miðað við aðstæður.
Landsvæðið, sem um er
deilt, liggur á landamærum
Vestur Pakistan og Indlands
upp fra Arabíska hafinu, er
u..i 23 ferkílómetrar og allt
jai ð eyðimörk. Frá því í
i og til nóvember er þetta
. ggilegt flæðiland, víða á
i’i í vatni sem ýmist berst
frá sjónum með staðvindun-
um eða frá nærliggjandi ám,
sem leita yfir sléttuna til sjáv-
ar. En heitu mánuðina þ. e.
nóvember til maí, er þetta sól
bökuð saltslétta með grjót-
hörðum jarðvegi.
Það kom því mörgum á
óvart þegar bardagar hófust
um yfirráðin á þessu svæði, og
skyldu fæstir til hvers verið
væri að úthella blóði til að
vernda land sem eftir nokkra
daga verður flóðunum að bráð
og rís ekki að nýju fyrr en
undir jól. Og hvaða máli skipti
það þótt landamærin á þess-
um slóðum væru óljóst mörk-
uð? í Pakistan er því haldið
fram að landamærin liggi
eftir mjóum flóanum, sem
myndast milli ríkjanna á regn
tímanum, en Indverjar halda
því fram að þau séu á vestari
bökkum flóans. ,
Það var því ekki fyrr en
um páskana að skýring fékkst
á því hversvegna stjórnir Ind
lands og Pakistan telja land-
ið þess virði að berjast um
Rann of Kutch er í bæði
Gujarat og Assam héruðum,
og í héruðum þessum hefur
fundizt olía. Telja sérfróðir
menn að undir eyðimörkinni
í Kutch felist hundruð millj-
óna lítra af olíu. Og það er
ekki laust við að ýmsir hafi
dregið andann léttara þegar
þessi ,.eðlilega“ skýring
fékkst. En hver sem skýring-
in er þá er ástandið þarna í
landamærahéruðunum mjög
alvarlegt, og getur leitt til
meiraháttar átaka. Bæði Bret-
ar og Bandaríkjamenn hafa
gert tilraunir til að koma á
friði þarna, og um tíma tókst
að fá báða aðila til að halda
vopnahlé, sem um var samið.
En það stóð ekki lengi og kem
ur aðilunum ekki saman um
það hver varð til þess að
rjúfa það.
Sagt er að Johnson Banda-
ríkjaforseti hafi -notað sér
þennan ágreining ríkjanna til
að fresta því að taka á móti
þeim Ayub Khan, forseta Pa-
kistan, og Shastri forsætis-
ráðherra Indlands að sinni.
Til stóð að báðir kæmu í opin
berar heimsóknir til Banda-
ríkjanna i vor. Khan var'ný-
lega í heimsókn í Sovétríkj-
unum og Kína, og gagnrýndi
þar opinberlega utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna. Mun
Johnson forseta ekki hafa lík-
að þessi framkoma og því grip
ið fegins hendi tækifærinu til
að fresta heimsókninni. En til
að særa engan varð hann
einnig að fresta heimsókn
Shastris.