Morgunblaðið - 14.08.1965, Blaðsíða 1
24 siður
52. árgangur. 182. tbl. — Laugardagur 14. ágúst 1965 Prentsmiðja Moigunblaðsins.
Kynþáttaóeiriir
í Los Angeles
tyrir skömmu sendi Ho Chi Minh einn trúnaðarmanna sinna, Hoan Van-Hoan, til fundar við
Mao Tse-tungr og hatði sá meðferðis dálitla gjöf, sem Ho sendi vini sínum Mao. Gjöfin var geymd
í snoturri, svartri skjalatösku og á myndinni sést hversu mjög hún gladdi Mao og aðra viðstadda.
1 töskunni voru leifarnar af bandarískri flugvél, sem skotin var niður yfir Thanh Hoa nokkru áður.
Slæmar horfur á lausn stjórn-
málaöngþveitisins í Grikklandi
Papandreou missir fylgi
Aþenuborg, 13. ágúst (NTB-AP).
ANNA-MARÍA Grikkjadrottning
kom til Aþenu í dag frá Korfú
öllum að óvörum og var talið
öruggt merki þess að Konstantín
honungur myndi dvelja í höfuð-
borginni um helgina og vinna að
lausn stjórnarkreppunnar, sem
nú hefur staðið í mánuð. Seint
f kvöld veitti konungur áheyrn
leiðtoga íhaldsmanna (Þjóðlega
radikalasambandsins), Panayotis
Kanellopoulos, í höll sinni í höf-
vðborginni.
Ekkert var tíðinda í griskum
etjórnmálum í dag og kyrrt víð-
•ist hvar í höfuðborginni. Áform-
aður var fundur þriggja helztu
ieiðtoga Miðflokkasambandsins,
Stefanos Stefanopoulos, fyrrum
eðstoðarforsætisráðherra, Elias
Tsirimokos, fyrrum innanrikis-
ráðherra og Savas Pasaix>litis nú
í kvöld og sagt að þar myndi
rætt, hversu snúast skyldi við
etjórnmálaöngþveiti því sem nú
ríkti. Það orð lék á, að leið-
togarnir þrír myndu ef til vill
taka til athugunar að segja skilið
við flokksleiðtogann, hinn aldna
Ikeda látinn
Tokíó, 13. ágúst (NTB-AP)
BAYATO LKEDA, fyirum fotr-
eætisráðherra Japans, lézt í dag,
6£ ára að aldri. Banamein hans
var lungnabólga, en hann hafði
lengi legið á sjúkrahúsi vegna
iltkyingaðs æxlis í hálsi, og var
skorinin upp við því 4. ágúst sl.
Iikeda er manna mest þöikikuð
efna'hagsieg viðreisn Japans eftir
iheimsotyrjöddina síðari. Hann
va.rð fónsætisráðherra í júdimán
tiði 1960 en sagði af sér í nóvem-
k>er í fyrra sökium Iheidsiubrests.
Bftiimaðiur harns í embætti,
Eisakiu Saito, heimsótti hann í
Bjú'knafhúsið skönMmiu fyrir and-
látið og kona hans og þrjár dæt-
ux vonu við 'bamaibeð hains.
George Papandreou, þar sem
ljóst væri, að hann gæti ekki
leyst stjórnarkreppuna. Er hann
sagður hafa misst töluvert fylgi
flokksmanna sinna fyrir ein-
þykkni sína og þrjózku í stjórn-
málaviðræðunum undanfarið.
Papandreou ræddi við Konstant
ín konung í gær og hélt fast fram
sínum fyrri kröfum en konungur
lét sig ekki og vildi hvorki fela
Papandreou að mynda nýja
Framhald á bls. 23.
Los Angeles,. 13. ágúst (NTB-AP)
YFIR 100 manns særðust og 96
voru teknir hönidum í Los Ang-
MIIIIIIMIIMMIIIIIMIMMIIMIMMIIIIIIIIIIIIIMMIMIMMIMIilM
12 Rússar (
| biðjast !
hælis I
Anchorage, Alaska, 13. ágúst.
NTB—AP.
TVEIR Rússar, sem lentu á laug
ardag skammt frá bænum Wales
í Alaska, eftir tveggja daga
hrakninga um Beringssundið á
bát sínum, sem þeir höfðu gert
úr rostungsskinnum, hafa nú
beiðzt hælis í Bandaríkjunum,
sem pólitískir flóttamenn.
Rússarnir tveir eru ungir
menn, Pétur Kalishenko, 35 ára
gamall og Gregorij Sarapushkin
29 ára og sögðust hafa unnið í
námabænum Laurentie á Síberíu
strönd. Þeir voru áður sagðir
hafa villzt af leið er þeir hefðu
farið að lieiman á skinnhát sín-
um í sveppaleit, og taldir myndu
vilja halda heimleiðis hið bráð-
asta. En reyndin varð önnur og
er nú beðið úrskurðar rúss-
neskra sendimanna og banda-
ríska utanríkisráðuneytisins um
það hvort hinir öheppnu sveppa
leitendur skuli fá landsvist í
Bandaríkjunum.
eles í dag er þar kom til mikilla
óeirða og götubardaga. Blökku-
menn áttu upptökin að óeirðum
þesum, sem eru hinar mestu er
orðið hafa í Los Angeles í manna
minnum. Hermenn úr þjóðvarð-
arliði Kaliforníuríkis voru kall-
aðir út til að koma í veg f.vrir
frekari óeirðir þar sem mest
hafði gengið á í borginni. Víða
lá reykur yfir borgarhlutum og
glerbrot um allar götur og ræiwt
var og ruplað í verzlunum. Rúð-
ur voru brotnar í a.m.k. hundrað
bifreiðum, mörgum þeirra velt
um koll og nærri 100 byggingar
með öllu eyðilagðar.
Dick nokkur Gregory, leikari
og blökkumaður, lagði lögreglu-
mönnum lið við að reyna að hafa
hemil á kynbræðrum sínum, sem
skutu af skammbyssum, köstuðu
grjóti og vörpuðu m.a. benzín-
sprengjum heimatilbúnum.
Hann varð fyrir skoti og féll
við en lét sig hvergi og bað menn
Framhald á bls. 23.
10 vinsæiustu
kvikmyndirnar
New York 12. ágúst.
Tímaritið Variéty skýrir frá
því í dag að 10 vinsælustu kvik-
myndirnar í Bandaríkjunum uim
þessar mundir séu eftirtaldar:
„Sound of Music“, „Whats
New, Pussycat", „Sandpiper",
„My Fair Lady“, „Flying Maoh-
ines“, „Von Ryan’s Express",
„Harlow“, „Cat Ballou", „Halle
lujah Trail‘ og „Greatest Story
Ever Told“.
Hinn græni vetur" sumarið 1965
Hi5 kaldasta á þessari öld i
mörgum Evropulöndum
ÞÓTT við íslendingar höf-
um notið sólar og sumars á
þessu sumri, hafa ýmsar
aðrar Evrópuþjóðir ekki
sömu sögu að segja. Ber
flestum saman um það, að
sumarið 1965 sé hið kald-
asta, rigningasamasta og
leiðinlegasta, sem komið
hefur á þessari öld. — í
Þýzkalandi hefur til dæmis
verið kveðið svo sterkt að
orði, að sumarið hefur ver-
ið kallað „hinn græni vet-
ur“.
Blaðið hringdi til íslenzka
sendiráðsins í Kaupmanna-
höfn og Jóhanns Sigurðsson-
ar, forstöðumanns Flugfélags
íslands í London, í gær, og
spurðist fyrir um veðráttuna
í sumar.
Samkvæmt upplýsingum ís-
lenzka sendiráðsins í Kaup-
mannahöfn hefur jafn leiðin-
legt sumar vart komið í ann-
an tíma í Danmörku. Veðrátta
hefur verið mjög óstöðug,
rigningar og kuldi, en sólar
ekki notið að neinu ráði. Hef-
ur fólk þurft að kynda upp í
húsum sínum yfir hásumarið
vegna þess, en slikt er algert
éinsdæmi. Að vísu var allgott
veður í júlíbyrjun, en þá ef
veður yfirleitt fegurst í Dan-
mörku. Góða veðrið varaði þó
aðeins skamman tíma í júlí að
þessu sinni, og var mánuður-
inn nú kaldasti mánuður sum-
arsins. Margir ferðamenn
leggja leið sína á hverju sumri
til Suður-Sjálands, en þar eru
vinsæl tjaldsvæði. f sumar
hefur fólk bókstaflega orðið
að flýja úr tjöldunum vegna
hinna óskaplegu rigninga.
Jóhann Sigurðsson sagði, að
veður í Englandi hefði yfir-
leitt verið mjög leiðinlegt í
sumar, og þannig hefði það
raunar verið undanfarin þrjú
til fjögur ár. í London hafa
Framhald á bls. 23.
Sumarsnjór í Noregi. Myndin var tekin fyrir skomimi.