Morgunblaðið - 01.09.1965, Side 28
allra^
197. tbl. — Miðvikudagur 1. september 1965
Haustsíldin er
seint á ferðinni
En kemuir vænfanlega samt
Á HAUSTIN safnast síldin sam-
an út af austanverðu larrlinu, —
heíur gert það undanfarin 15 ár,
og það er ekki ástæða til að ætla
að hnn geri það ekki nú, sagði
Jakob Jakobsson, fiskifræðingur,
er við spurðum hann hvort hann
héidi að farið væri að síga á
seinni hluta síldveiðanna á þessu
ári.
Hvenær síldin safnast í vetrar-
torfurnar, er ekki gott að segja.
Nú er allt seinna en í fyrra, en
þá komu vetrartorfurnar upp úr
miðjum september, svo búast má
við þeim seinna nú. Ástæðan er
sú, að ástandið er annað í sjón-
um. Hann hefur verið miklu kald
ari en venjulega og var það enn
20. ágúst, þegar Jakob fór að
austan, og allt líf þar af leiðandi
seinna. Síldin safnast ekki í vetr
artorfurnar fyrr en hún hættir að
eta og hún virðist ekki komin
á það stig enruþá. >á leggst hún
i einskonar dvala fram yfir ára-
«nót. Hvar hún verður þá er sam
kvæmt reynslu síðustu 15 ára
nokkuð misjafnt. í fyrra veiddist
hún 70—90 mílur út af Austur-
landi, en um 1950 allt upp í 200
mílur. Ekki er því hægt að segja
hvað það verður, það verður ein
hvers staðar fyrir austan.
Jakob kvaðst telja að bátarnir
mundu bíða og margir gerðu ráð
fyrir að verða áfram við síld-
veiðar fram eftir hausti. En
hvað verður þangað til þessi
vetrarsíld kemur?
*
Osamkomnlag
um vakfavinnu
tefur Stróka-
göngin
UM hálfur mánuður er síðan
byrjað var að sprengja jarð-
göngin gegnum Stráka á Siglu-
íjarðarleið. Gengur verkið eftir
atvikum vol. Þó getur það tafið
mjög að ekki er unnið nema á
einni vakt. En það stafar af því
að samningar hafa ekki tekizt
milli verktakans, Efrafalls, og
Verkamannafélagsins á Siglu-
firði um vaktavinnu.
— Það getur vel orðið tals-
verð veiði þangað til, svaraði
Jakob. Síldin virðist vera komin
í allgóðar torfur öðru hverju. Ef
það hittist á góða tíð, getur vel
orðið veiði.
Annars sagði Jakob að nokkur
hluti af síldarárgöngunum, sem
búizt var við, væru enn út af
Norður-Noregi. Þei.r ættu að
vera komnir vestur, ef allt væri
með felldu. Eigi að síður væri
ekki svo mikið af þessari sild
við Noreg að við ættum ekki líka
að geta fengið nóg, ef hún safn-
aðist saman í torfur.
Rannsókn á feröakostnaði
ríkisfyrirtækja
—og fleíri þáttum ríkisrekstursins
UNDANFARNAR vikur hafa
fregnir verið uppi í borginni
Magnús Jónsson.
efnis, að víðtæk athugun
íæri fram á rekstri ýmissa ríkis
stofnana og fyrirtækja ríkisins
og þá sérstaklega á ferðakostn-
aði starfsmanna þessara aðila.
Mbl. sneri sér í gær til fjár-
málaráðherra, Magnúsar Jóns-
sonar frá Mel, og spurði hann,
hvað hæft væri í þessum orð-
rómi.
Magnús Jónsson staðfesti, að
fram færi nú athugun á ýmsum
þáttum ríkisrekstursins og m.a.
beindist sú athugun, að ferða-
kostnaði ríkisstofnana og fyrir-
tækja, sem starfrækt eru á veg-
um ríkisins og ennfremur að
kostnaði við utanferðir starfs-
Síldin
BRÆLA var á síldarmiðunum
austur af landinu í fyrrinótt og
voru flest skipin í höfn.
Örfá skip eru nú við Jan
Mayen og í gærmor.gun hafði
frétzt um afla eftirtalinna skipa
frá þeim slóðum: Dagfari ÞH 400
mál, Lómur KE 300 og Sigurður
Bjarnason EA 700.
Sílda'rleitin á Raufarhöfn
Framh. á bls. 2
manna þessara aðila. Sagði fjár
málaráðherra, að tilgangurinn
með þessum athugunum væri sá
að setja fastar reglur um utan-
ferðir og greiðslu ferðakostnað-
ar starfsmanna ríkisstofnana og
fyrirtækja.
Þá sagði Magnús Jónsson, fjár
málaráðherra, að þegar hefðu
verið settar ákveðnar reglur um
hámarksupphæð, sem verja
mætti til bifreiðakaupa fyrir þá
forstöðumenn ríkisstofnana og
fyrirtækja, sem njóta þeirra
hlunninda að hafa afnot bifreiða
á vegum ríkisins. Einnig vaari
í athugun, hvort ástæða væri til
að breyta þeim reglum, sem nú
giltu um það hverjum bæri
þessi hlunnindi.
SJÖUNDU Stúdentaráð-
stefnu Atlantshafsbandalags-
rikjanna, sem var sett 21.
ágúst lauk í gær og eru þátt-
takendur farnir utan. Það var
utanríkisráðuneytið í sam-
vinnu við Varðberg og Sam-
tök um vestræna samvinnu,
sem sá um framkvæmd ráð-
stefnunnar, en hana sóttu 48
fulltrúar frá öllum aðildar-
ríkjum Atlantshafsbandalags-
ins. Á ráðstefnunni voru rædd
ýmis mál varðandi samvinnu
bandalagsríkjanna, og enn-
fremur var lögð áherzla á að
kynna hinum erlendu fulltrú-
um íslenzk málefni og voru
fluttir margir fyrirlestrar í
þeim tilgangi. Fulltrúarnir
ferðuðust og um landið. Með-
fyigjandi mynd var tekin, er
fulltrúar á stúdentaráðstefn-
unni heimsóttu Þjóðminjasafn
ið. . .
Utlit fyrir sæmilega
kartöfíuuppskeru
Kfornfírðingar búast við
lélegri uppskeru
MORGUNBLAÐIÐ hringdi í gær
á nokkra kartöfluræktarstaði á
landinu og spurðist fyrir um,
hvernig útlit væri með kartöflu-
uppskeru í haust.
Samkvæmt uppýsingum, er
blaðið aflaði sér um kartöflu-
Fjórtán Langjökulsmenn liafa játað
Tíu
enn i
EINS og kunnugt er fannst
gífurlegt magn af áfengi og
tóbaki um borð í m.s. Lang-
jökli við komu skipsins til
Reykjavíkur hinn 6. ágúst
sl. Meiri hluti skipshafnar-
innar var úrskurðaður í
gæzluvarðhald og aðrir skips-
menn í farbann. Rannsókn
hefur stöðugt verið haldið
áfram í þessu máli, sem er
eitt af yfirgripsmestu smygl-
málum, sem komið hafa til
kasta íslenzkra dómstóla.
gæzluvarðhaldi
Blaðinu barst í gær frétta-
tilkynning frá Jóhanni Níels-
syni, sem verið hefur rann-
sóknardómari í Langjökuls-
málinu. Þar segir, að 14 skip-
verjar hafi játað að eiga all-
an hinn ólöglega varning, sem
fannst um borð í Langjökli,
og átti hver þeirra frá 11
flöskum upp í 50 kassa af
áfengi. Átta skipverjar hafa
nú verið leystir úr haldi, en
tíu eru enn í gæzlu, þar sem
rannsókn málsins er enn
haldið áfram. Fréttatilkynn-
ing rannsóknardómarans
hljóðar þannig:
„Eins og fram er komið fund-
ust við leit í m.s. Langjökli við
komu skipsins til Reykjavíkur,
6. þ.m. 3940 flöskur af áfengi og
130.400 vindlingar.
Vörur þessar voru faldar á 13
stöðum í skipinu, yfirleitt á milli
þilja. Þó voru faldar 1644 flösk-
ur af genever í farmi í lest.
Málið var kært til sakadóms
Reykjavíkur, 11. þ.m. og var
skipshöfnin þá öll úrskurðuð í
farbann og jafnframt 18 skip-
verjar úrskurðaðir í gæzluvarð-
hald. Síðan -hefur ransókn máls-
ins verið haldið stöðugt áfram,
14 skipverjar hafa viðurkennt að
eiga áfengið og tóbakið, sumir
lítið, aðrir meira eða frá 11 flösk-
um og upp í 50 kassa af genever.
8 skipverjum hefir þegar verið
sleppt úr gæzluvarðhaldi, en
þáttur þeirra í málinu er nú
ljós. í gæzluvarðhaldi eru enn
10 skipverjar, þeir áttu allir veru
legt magn af áfengi, m.a. áfengi
það sem fannst í lestum skips-
ins.
Nokkrir skipverjar hafa við-
urkennt að hafa verið saman um
kaup á áfenginu og við að fela
það í skipinu.
Dómsrannsókn heldur enn
áfram.
Jóhann Níelsson."
uppskeru bæjarbúa, þá mun ekki
ennþá vera farið að taka upp
fyrir alvöru, en menn eru yfir-
leitt mjög ánægðir með útlitið
í görðunum. Sérstaklega væri út-
litið gott í Skammadal og i
Reykjahlíðarbrekku, hinum nýju
kartöfluræktarsvæðum borgar-
nnar, en aimennt mætti búast
við mjög góðri uppskeru.
o—o
Þykkvabæ, 31. ágúst.
Kartöfluuppskera er hér nú
u.þ.b. að hefjast og er útlit fyrir
sæmilega uppskeru, sem hún er
þó svolítið misjöfn Er hún lé-
legri þar sem hreinn sandur er,
en betri þar sem modarblanda
er. — Magi;ús.
o—o
Hornafirði, 31. ágúst.
Kartöfluuppskera hér verður
ábyggilega léleg í haust og er
jafnvel búist við að hún verði
engin. Er þar aðallega um að
sakast, að sumarið hefur verið
kalt og þurrkasamt og óx kar-
töflugras illa. Falleg tíð hefur
þó verið hér undanfarið og ef
grösin fengju að standa fram I
miðjan september, þá gæti upp-
skeran orðið einhver. — Gunnar.
o—o
Framihald á bls. 27