Morgunblaðið - 08.09.1965, Qupperneq 1
2tt síður
52. Srgangur.
203. tbl. — Miðvikudagur 8. september 1965
Prentsmiðja Morgunblaðsin*.
Mistekst enn
ein tilraunin
til að leysa stjórnarkreppuna í Grikklandi?
Mynd þessl, sem birt var í nýju Delhl, sl. sunnudafr sýnir, að sögn indversku stjórnarinnar, aí-
lciðingar loftárásar flugvéla Pakistan á bænahús MúhameðstrúarmaniHa í þorpinu Jauriam í Kasm
ír. Segir, að fimmtíu manns hafi beðið bana i loftárásinni. — AP.
Aþenu, 7. sopt. AP-NTB.
• í kvöld var ekki annað sjá-
anlegt, en að mistakast mundi
enn ein tilraunin til ]»ess að
leysa stjórnarkreppuna í Grikk-
landi. Síðustu daga hafa staðið
yfir viðræður þeirra Georgs
Papandreous, fyrrum forsætis-
ráðherra og Panayotis Kanellop-
ulos, leiðtoga Þjóðradikalaflokks
ins, — en áreiðanlegar heimild-
ir herma, að áhugi hins síðar-
nefnda á samningi við Papan-
dreu hafi farið hraðminnkandi
og ekki ólíklegt að upp úr við-
ræðunum slitni í kvöld.
Þjóðradiík ail i flokku rinn hefur
99 sæti á þingi og er haft fyrir
satt, að meðal þingmanna hans
Styrjöld Indlands og Pakistans harðnar:
Sókn Indverja til Lakore stöðvuð
sé öflug andistaða gegn þvi aV5
hal'da þimgkosjrinigar á næstunni
— en samikvæmt kröfu Paipan-
dreous skulu þær haldmar eigi
síðar en eftir 45 daga. Þangað
til fari með völd stjórn undir
forsæti Kaneliopou'lios. Þingmenn
þjóðradíkala munu þeirrar skoð
unar, að fyigi flokksins sé ekki
of öflugt um þessar mundir og
muni hraka, ef flokkurinn taki
að sér stjórnarmyndun, eins og
nú er ástatt.
Þá hefur komi'ð fram, að
vinstri-flokkurinn (EDA) er með
öliu ^and'vígur því, að Kanello-
pouios myndi stjórn, þótt um
skamiman tíma sé. Telja leiðtog-
ar flokksins, að utanflokkastjórn
sé eina færa lausnin á stjórnar-
kreppunni, þar til kosningar hafi
farið fram.
Kínverjar hóta liðssafnaði
á landamærum Indlands
N
Nýju Delhi, Karachi, 7. sept. — AP-NTB.
Ó STYRJÖLDIN milli Indlands og Pakistans verður se
umfangsmeiri. Barizt var í allan dag bæði á landi og
í lofti. og víðtækar loftárásir gerðar á báða bóga. Svo virðist
sem hermönnum Pakistans hafi tekizt að stöðva sókn ind-
verska hersins í Lahore-héraðinu.
| Stjórn. Pakistans staðhæfir, að indverskar sprengju-
flugvélar hafi gert loftárásir á fjölda bæja, bæði í
Austur- og Vestur-Pakistan, en þeim staðhæfingum er harð-
lega neitað af hálfu Indverja.
Ó Pekingstjórnin hefur lýst stuðningi við Pakistan og
tilkynnt, að hún muni auka liðssafnað á landamærum
Indlands og Kína. Sovétstjórnin hefur hinsvegar hvatt háða
aðila til þess að hætta bardögum og boðizt til þess að að-
Stoða við leit að friðsamlegri lausn Kasmír-deilunnar.
• Bandaríkjastjórn hefur til-
kynnt, að hún muni um sinn taka
fyrir frekari vopnasendingar til
Pakistan og IndlandS. Lýsir
stjórnin fullum stuðningi við
samþykkt öryggisráðsins og frið
arviðleitni U Thants, fram-
kvæmdastjóra S.Þ.
• U Thant heldur í nótt áleið
ls til Indlands og Pakistan með
viðkcmu í London. Hefur hann
fengið tryggingu fyrir því af
hálfu stjórnanna í Rawalpindi
og Nýju Delhi, að honum verði
þar vel tekið. En að öðru leyti
eru viðbrögð þeirra við erindi
hans heldur neikvæð.
• Óstaðfestar fregnir herma,
að stjórn Pakistans hafi fallizt
á tilboð Jomo Kenyatta, forseta
Kenya um að miðla málum 1
Kasmírdeilunni. Hinsvegar
skýrði Leaster Pearson, forsætis
ráðherra Kanada, svo frá í dag,
að hann hefði boðizt til að miðla
málum og átt viðræður við full
trúa stjórna Indlands og Pakist
an, en ljóst væri, að hvorugur að
ila væri fær um að taka tilboði
hans um málamiðlun, eins og
málum væri komið.
• Fregnir af bardögum
óljósar
Ekki er með öllu gott að
henda reiður á gangi styrjaldar-
innar í dag, þar sem fréttamönn-
um er stranglega meinaður að-
gangtir að vígvöllunum eða öðr-
um stöðum þar sem líklegt er,
að þeir gætu orðið sér úti um
áreiðanlegar fregnir af því sem
fram fer.
Ljóst virðist þó, að barizt hafi
verið á endilangri landamæralín
unni í Kasmír, sókn Ind-
verja í Lahore-héraði hafi verið
stöðvuð og flugher þeirra hafi
beðið nokkurt aíihroð í bardögun
um í dag.
Af hálfu stjórnar Pakistan var
sagt í dag, að u. þ. b. 30 flug-
vélar Indverja hefðu verið skotn
ar niður eða eyðilagðar í loft-
árásum á flugvelli. Ennfremur,
að 53 indverskir flugmenn hefðu
týnt iífi í loftorrustum frá því
í gær. Indverjar segjast hafa
eyðilagt níu flugvélar Pakistana.
Þá _ segir stjórn Pakistan, að
Indverjar hafi gert loftárásir á
fjölda borga í Vestur- og Austur
Pakistan og orðið fjölda sak-
Fraimha'Id á bls. 2.
V
Teheran, 7. sept. NTB-AP
ýt íranskeisari setti í dag ráð
stefnu í Teheran, sem fjalla
á um leiðir til þess að út-
rýma ólæsi í heiminum. Er
ráðstefna þessi, — hin víð-
tækasta, sem haldin er f
þessu skyni — haldin á veg-
um UNESCO, menningar og
vísindastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, og sitja hana 600
fulltrúar 118 þjóða.
Genf, 7. sept. NTB-AP.
ýé Fulltrúi Sovétríkjanna á
afvopnunarráðstefnunni í
Genf, Semjon Tsarapkin hef-
ur endurnýjað tilboð Sovét-
stjórnarinnar um að faílast á
bann við kjarnorkutilraunum
neðanjarðar, — án þess þó að
fallast á kröfu Vesturveld-
anna um eftirlit með því, að
slíku banni sé framfylgt.
Sjúkrahúsinu í Lambarene
breytt í nútímahorf
— segir dóttir dr. Schweitzers, sem
tekur nú við stjórninni
Yfirlýsing um stuðn-
ing við Ludvig Erhard
Bonn, 7. sept. — NTB:
• Flokksstjórn kristilega demó
krataflokksins í V-Þýzkalandi
gaf í dag út opinbera yfiriýsingu
um stuðning við Ludwig Erhard,
kanzlara, formann og ieiðtoga
flokksins í yfirstandandi kosn-
ingabaráttu. Benda stjórnmála-
fréttaritarar í Bonn á, að það
eitt, að flokksstjórnin skuli gefa
út slíka yfirlýsingu sýni ljóslega
að Erhard geti ekki gengið að
stuðningi hennar allt ©f vísum.
Stuðningsyfirlýsingin fylgdi
stefnuyfirlýsingu, sem stjórnar-
fundur flokksins samdi í gær und
ir forystu Konrads Adenauers,
fyrrverandi kanzlara. Að þeim
fundi loknum gaf Adenauer út
persónulega yfirlýsingu — hina
fyrstu í kosningabaráttunni —
og fór viðurkenningarorðum um
Erhard. Áður fyrr hefur hann
ekki dregið neina dul á andúð
sína á Erhard.
Lambarene, 7. sept.
— AP —
t RHENE Eckert, dóttir
hins nýlátna dr. Alberts
Schweitzers, skýrði svo frá
í dag, að faðir hennar hefði
allnokkru fyrir andlit sitt
fallizt á, að sjúkrahúsinu í
Lambarene yrði breytt í
nýtízkulegra horf — en
jafnframt beðið um, að því
yrði ekki hreyft fyrr en að
honum látnum. Kvaðst frú
Eckert hafa í hyggju ráð-
stafanir, er miðuðu að því
að halda sjúkrahúsinu gang
andi í „anda föður míns en
með ýmis konar nauðsyn-
legum hreytingum", eins
og hún komst að orði.
Samkvæmt erfðaskró hins
látna, er dóttir hans einkaerf-
ingi að öllum perSónulegum
eigum hans og jafnframt er
henni þar falið að taka við
yfirstjórn sjúkrahússins. Varð
andi hina læknisfraeðilegu
hlið rekstursins mun hún
njóta aðstoðar dr. Walters
Munz, 32 ára svissnesks læknis
er starfað hefur í Lambarene
frá því í febrúar sl.
Hefur frú Eckert í huga að
ganga hið fyrsta á fund for-
seta lýðveldisins Gabon, Lson
Mba og ræða við hann fram-
tíðaráætlanir um rekstur
sjúkrahússins — en gert er
ráð fyrir að stjórn landsins
óski að hafa þar einhverja
hönd í bagga og eftirlit með
rekstrinum. Hefur rekstur
sjúkrahússins sætt allmikilli
gagnrýni á síðustu árum, og
stjórnin reynt að telja dr.
Sehweitzer á að gera þar á
ýmsar breytingar. Neitaði
hann því jafnan opinberlega,
en haft er fyrir satt, að hann
hafi í einkaviðtölum löngu
fallizt á, að sjúkrahúsið væri
of gamaldags og þyrfti í
mörgu endurbóta við. „Já —
breytið því bara, en ekki fyrr
en ég er farinn", hafði hann
jafnan sagt.
Fulltrúi Mba, forseta, skýrði
frú Eckert svo frá við útför-
ina sl. sunnudag, að stjórnin
óskaði þess eindregið, að
sjúkrahúsið starfaði áfram.
Frú Eckert sagði í viðtali
við fréttamann AP: „Komið
aftur innan árs, þá verður hér
margt breytt, rafmagn og
rennandi vatn alls staðar. Á
hinn bóginn vonum við, að
Lambarene verði eftir sem áð-
ur afrískt þorp, þar sem fólk
getur komið með fjölskyldur
sínar, geitur og hænsni og
haldið áfram að lifa venju-
legu lífi sínu, meðan það nýt-
ur sjúkrameðferðar".