Morgunblaðið - 08.09.1965, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.09.1965, Blaðsíða 27
Miðvikudagur 8 sept. 1965 MORGUNBLAÐIÐ 27 Vegagerðin fylgist velmeð VEGAMÁLASTJÓRI, Sigurður Jóhannsson, flaug í gærdag aust- ur yfir Skeiðarársand og Skeið- arárjökul með landhelgisgæzlu- flugvélinni Sif ásamt Ágústi Böðvarssyni, forstjóra Landmæl- inga íslands, og myndatökumönn um. í samtali við Mbl. í gær- kvöldi sagði vegamálastjóri, að hlaupið virtist koma undan aust- urbrún Skeiðarárjökuls og fiæða langt inn í Mosárdal og síðan xiiður með Skaftafellsheiði og breiða úr sér þar fyrir neðan. Talsvert jakahröngl sést á sand- inum niðri undir Skaftafelli. í — Þjóðleikhúsið Framhald af bls. 2 fyrir Skemmstu í Ástrallu, þar sem hann fékk mjög góða dóma, enda dönsuðu þá með flokknum Margot Fontaine og Nureyev, en ekki er vitað hvort þau komi með flokknum hingað. Hinn 15. janúar sýnir frskur dans- og söngvaflokkur listir sín- ar í Þjóðleik'húsinu. Halda þeir aðeins eina sýningiu LINDARBÆR. Á litla sviðinu i Lindarbæ verða sýnd nok'kur leikrit í vet- ur. í seinni hluta september verða hafnar á ný sýningar á Hver er hræddur við Virginíu Woolf en um mánaðamótin næstu verða frumsýndir einþátt- ungarnir Síðasta segulband Krapps eftir Samuel Baekett og Jóðlif eftir Odd Björnsson. Ná- lægt áramótum verður svo sýnt hið gamla íslenzka leikrit Hrólf- ur eftir Sigurð Pétursson. Það er eitt elzta íslenzika lei'kritið, var frumsýnt árið 1796 í Hólavalla- ekóila. Leikritið verður að þessu 6inni flutt svo að segja óbreytt. * Með „Hrólfi“ verður fluttur leik- þátturinn Á rúmsjó eftir pólska leikritaskáildið Slawomir Mrozek. Þá verður sýnt Næst syng ég fyrir þig eftir James Sonders og 6Íðast Rejsen til de grönne skygger eftir danska höfundinn Finn Metihiling. hlaupinu vötnunum vestar á sandinum er ekki sjáanlegur neinn verulegur vöxtur. Vegamálastjóri sagði, að í þess ari ferð hefðu verið teknar myndir úr lofti af hlaupinu, en Landmælingar íslands tóku einn- ig myndir í sumar af sömu slóð- um, þegar rennsli í Skeiðará var með eðlilegum hætti. Með þessu er verið að afla upplýsinga um hve víðtæk hlaupin eru, og er það liður í rannsóknum, sem fram fara áður en áætlanir verða gerðar um vegarlangingu yfir Skeiðarársand. Nú er akfært orð- ið austur fyrir Lómagnúp og sam kvæmt vegaáætluninni, sem sam þykkt var á þingi í vetur, er ráð- gert að gera akfæran veg að Skeiðarársandi austan frá. Vant- ar þá vegarkafla yfir sandinn, svo að akfært sé allt í kringum landið. Vegamálastjóri sagði, að fylgzt yrði vel með þessu hlaupi í ánni og eru tveir verkfræðingar Vega- gerðar ríkisins, þeir Helgi Hall- grímsson og Björn Ólafsson, staddir eystra í þeim tilgangi. Slys við liöfnina í GÆR varð það slys við Reykja- víkurhöfn, að þrettán ára dreng- ur, Björgvin Hilmarsson féll af bílpalli við ms. Selá. Var dreng- urinn fluttur í Slysavarðstofuna. Meiðsli hans voru ókunn. Viðræður standa enn SIGLUFIRÐI, 7. sept. — Enn standa yfir viðræður milli verk- taka og verkalýðsfélagsins hér um vaktavinnuikjör við lagningu vegarins um Stráka. Er mikill áhugi á því hér á Siglufirði, að framkvæmdum verði flýtt eins og hægt er og þá með vaktavinnu. Viðræðum er enn ek'ki lokið og því aðeins unnin dagvinna við .vegargerðina enn sem komið er. — Stefán. Siökkviliðsmenn við ruiluna, sem kviknaði L EltJua* í þvottahúsi Aflamet BÍLDUDAL, 7. sept. — í nótt var sett aflamet á smokkfiskveiðum, en þá fékk Óskar Magnússon á Álftinni 900 kg. Með honum voru tveir menn og fengu þeir 700 og 500 kg. hvor. Afli er ai- mennt 500-700 kg. á mann á bát- unum, sem smokkfiskveiðamar S'tundia. Freyja, sem stundar veið- ar með snurvoð, kom með 11 tonn í morgun aðallega þorsk. Tók um 5 tíma að ná úr einu halinu. Jör- undur Bjarnason kom hingað einnig með 10 tonn. — Hannes. 50 til 60 skip við Jan Mayen, VEÐUR VAR óhagstætt á síldar- miðunum austur af landinu og við Jan Mayen aðfaranótt þriðju dags. í gærmorgun fór veður heldur batnandi. Aðeins tilkynnti eitt skip um afla, og hafði það fengið har.n sl. sunnudag. Var það Halkion VE með 400 mál. í gær voru 50—60 skip við Jan Mayen, en aðeins eitt hafði til- kynnt um afla, Akurey með 1200 til 1300 mál. Sæmilegt veður var við Jan Mayen. Ekki var veiði veður á miðunum austur af land inu. KLUKKAN 23.50 í fyrrakvöld var slökkviliðið kvatt að þvotta- húsi Landsspítalans. — Þegar slökkviliðið kom á vettvang var búið að brjóta glugga og bera út eitthvað af þvotti, sem í húsinu- Þing iðn- nema um helgina NÚ um helgina verður 23. þing Iðnnemasambands íslands háð í húsi Slysavarnafélags íslands á Grandagarði. Þingið verður sett laugardag- inn 11. september klukkan 13.00 af formanni Iðnnemasambands- ins, Gylfa Magnússyni. Þingið stendur laugardag og sunnudag og verða þar reifuð og rædd fjölmörg áhugamál ís- lenzkra iðnnema, svo sem iðn- fræðslan og skipulagsmál sam- takanna. Þingið sitja 50—60 fulltrúar iðnnema víðsvegar af landinu. — Auk þess hefur Alþýðusambandi íslánds verið boðið að senda á- heyrnarfulltrúa á þingið. var, en eldurinn reyndist vera í teppi á rafknúinni rullu og hatði hann breiðzt út í þvott þar hjá. Fljótlega tókst að kæfa eldinn með kolsýru og varð ekkert telj- andi tjón nema hvað reykjar- lykt er af þvottinum. Talið er, að k-viknað hafi í teppunum frá elementum í rullunni eftir að tækið var tekið úr sambandi og fólk yfirgaf þvottahúsið. Straumur langt út í sjó BJÖRN Páisson flugmaður, ílaug yfir Skeiðarársand o>g Grímsvötn um fimm-leytið í gærdag. Sagði Björn í samtali við Mbl., að miklar spumgur hefðu myndazt í Grí'msvötin- uim og Skeiðarár velti stórum jökum á undan sér. Við árÓ6- ana er greinilega mikill staumur langt út í sjó. Þá sagði Bjöm að rennsli í Sand- gígjukvisl sem er vestur á sandinum, væri greiniLega í vexti. — Kalnefndin Framhald á bls. 27. bónda á Sandbrekku, til að fylgj- ast með því, hvernig heyskap miðaði á búnaðarsambandssvæð- inu. Hinn 20. ágúst fóru Pétur Gunn arsson og Kristján Karlsson aust ur. (Gísli Kristjánsson var for- fallaður vegna veikinda). Þeir ferðuðust um Fljótsdalshérað og firðina allt suður i Geithellna- hrepp. Á Egilsstöðum var hald- inn fundur með stjórn Búnaðar- sambands Austurlands, ráðunaut um þess og oddvitum eftirtalinna hreppa: Hjaltastaðahrepps, Eiða hrepps, Egilsstaðahrepps, Valla- hrepps, Skriðdalshrepps, Fella- hrepps, Tunguhrepps, Hlíðar- hrepps, Jökuldalshrepps og Borg arf i arðarhrepps. Oddvitarnir höfðu talað við bændur, hver í sínum hreppi og fengið hjá þeim upplýsingar um horfur á heyfeng. Það var sam- hljóða álit þeirra allra, að þótt tíðarfar yrði gott, það sem eftir er aí' heyskapartíma, mundi verða almenn heyvöntun á fyrr- nefndu svæði og sums staðar í stórum stíl. í eftirtalda hreppa fóru nefnd- armenn og töluðu við oddvita þeirra: Geithellnahrepp, Beru- neshrepp, Breiðdalshrepp, Fá- skrúðsfjarðarhepp, Reyðarfjarð- arhrepp, Helgustaðahrepp og Norðíjarðarhrepp. Oddvitarnir höfðu talað við bændurna og fengið hjá þeim upplýsingar um heyskapinn. Þeim kom saman um að heyfengurinn væri mjög lítill og að nokkrir bændur hefðu ekki náð neinu heyi inn ennþá. Á fjörðunum var ástand- ið lakara en á Fljótsdalshéraði. Verstar voru ástæðurnar í Breið- dalshreppi og Norðfjarðarhreppi, vegna kalskemmda. Þessi athugun leiddi í Ijós, að þó reiknað sé með hagstæðri hey skapartíð, það sem eftir er af heyskapartíma, muni einnig vera um rr.eiri og minni heyvöntun að ræða í þessum hreppum, Laus- Jeg áætlun leiddi í ljós, að hey- þörf fyrir a!lt svæðið væri 30 til 40 þúsund hestar, miðað við, að vel gangi með heyskapinn það sem eftir er. í viðræðum við oddvitana kom fram, að verulegur áhugi er fyrir heykaupun. ef verðið á heyinu fer ekki yfir kr. 1,50 vélbundið og komið á bryggju í höfnum á Austurlandi. í sambanöi við heykaupin er skylt að geta þess, að bændur á Austurlandi óska eindregið að fá hið fyrsta vitneskju um hvað hey ið muni kosta á bryggju þar eystra. en magn heypantana mun að mestu háð verðinu og verða þær ekki gerðar fyrr en það ligg ur Ijóst fyrir. Hinn ágæti heyfengur, sem nú er í öðrum landshlutum, hefur gefið tilefni til þess, að ýmsir bændur vilja gefa hey til Aust- urlands. Hve mikið magn hér getur verið um að ræða, þarf að rannsaka hið fyrsta. Þeir nefndarmenn, sem ferðuð ust um ka'svæðin nú í ágúst, urðu þess áskynja, að nokkuð hefur gróið að kölunum, en álíta, að nánari athuganir þurfi að gera svo hægt sé að benda á heppilegustu leiðir til endurrækt unar á kalsvæðunum. Það kotn greinilega í ljós, að fjárhagserfiðleikar muni tak- marka heykaupin, enda hafa nokkur undanfarin ár verið mjög erfið til búskapar þar eystra, sök um kalskemmda árið 1962 og sér í lagi vegna mikils kostnaðar við að koma búfé fram á síðasta vori. Það er því brýn nauðsyn að hrepparnir fái aðstoð með lánum og framlagi, svo að heykaupin verði framkvæmanleg og komizt verði hjá stórfelldum niður- skurði á búpeningi. sem mundi hafa vandséð áhrif á búskap þessa landshluta, bæði afkomu bændanna og fækkun þeirra um ófyrirsjáanlega. íramtíð. Vegna bæja og þotpa á þessu svæði má framleiðsla á mjólk ekki drag- ast saman, en á því er allmikil hætta vegna vaxandi eftirspurn ar eftir vinnuafli á útgerðarstöð- um í fjörðunum“. Bréfi nefnda.rinnar fylgdu svo felldar tillögur um ráðstafanir í þessu efni: „1. Útvegað verði hey og sent til Austurlands í haust, eft ir því sem hægt er að full- nægja pöntunum, sem það ■ an berast. 2. Leitað verði eftir því við Bjargráðasjóð að veita lán til heykaupa. Ennfremur verði til þess mælzt, að hann greiði kostnað við binding heysins og flutning á bryggju austanlands og sé það ekki endurkræft fram- lag. Hafi Bjargráðasjóður ekki bolmagn til þess að leysa þessi hlutverk, útvegar rík isstjórn Bjargráðasjóði það fjármagn, sem til vantar. 3. Vegna framkominna blaða- fregna um, að bændur í öðr um landshlutum hafi hug á að gefa hey til Austurlands, er lagt til, að nú þegar verði kannað, hve mikið heymagn mundi fást á þennan hátt“. Sama dag og ráðuneytinu barst þetta bréf nefndarinnar, sendi það Búnaðarfélagi íslands eintak af niðurstöðu nefndarinnar og óskaði þess jafnframt, að Bún- aðarfélagið hefjist handa um að kanna hversu mikið hey bænd- ur í Jandinu kynnu að vilja gefa til bænda á Austurlandi vegna heyskorts þar. Var Búnaðarfélag inu falið að ha'fa samband við stjórnir hreppabúnaðarfélaga, þar sem vitað er að hey er af- lögu. Ætlast var til þess, að hreppabúnaðarfélögin tilkynni eins fljótt og kostur var og ekki síðar en 10. september nk. um loforð um heygjafir. Heygjafirn- ar áttu að miðast við að heyið verði vélbur.dið á hentugum stöð um og þá við það miðað, að bændur, sem gefa heyið, flytji það á sinn kostnað - til þeirra staða innan sveitar, þar sem vél- binding fer fram. Þegar daginn eftir að Búnaðar félagi íslands hafði borizt þetta erindi ráðune.vtisins, hafði það samband við stjórnir hreppa- búnaðarfélaganna og er nú beðið niðurstöðu um árangur af þeirri málaleitan. Auk þess, sem hér hefur verið rakið, leggur fyrir í málinu Iaus leg áætlun nefndarinnar um kostnað við útvegun og flutning á hey til Austurlands á þessa leið: „Áætluð heyþörf 3000 tonn. Áætlað 1000 tonn gjafahey kr. 0 Áætlað 2000 tonn keypt hey á 1500/pr. — 3.000.000,00 Binding og flutn að skipi 1100/pr. tonn — 3.300.000,00 Hafnargjöld. framskipun og flutn. 693,75 pr. tonn — 2.081.000,00 Uppskipun og hafnargj. eystrá 243,75 pr t. — 731.000,00 Samtals kr. 9.112.000,00 3000 tonn hey selt á bryggju 1500/pr. tonn — 4.500.000,00 Mismunur kr. 4.612.000,00 Hefur stjórn Bjargráðasjóðs ís lands heitið stuðningi við þær ráðstafanir, sem fyrirhugaðar eru í þessu sambandi. Á fundi landbúnaðarráðherra 31. ágúst sl tók nefnd sú, sem getið er hér að ofan, að sér að vinna áfram að máli þessu og sjá um framkvæmdir þeirra ráðstaf- ana, sem gripið verður til í sam- bandi við úrJausn inálsins. Eins og fram kemur í greinar- gerð nefndarinnar eru ekki tök á að ákveða hvaða ráðstafanir þar verður um að ræða fyrr en fyrir liggja niðurstöður um end anlegan hevfeng bænda eystra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.