Morgunblaðið - 08.09.1965, Page 15

Morgunblaðið - 08.09.1965, Page 15
Miðvikudagur 8. sept. 1965 MORCUNBLAÐIÐ 15 DE GAULLE, STEFNA HANS OG MARKMIÐ DE GAULLE, Frakklands- forseti, hefur gert sér það að venju að halda tvo blaðamannafundi árlega í hátíðasal Elysée-hallar- innar í París. Fyrri fund- urinn er oftast skömmu eftir áramót, en sá síðari um mitt sumar eða haust. Að þessu sinni hefur de Gaulle ákveðið að halda síðari fundinn á árinu á morgun, 9. sept. Fundarins er beðið með nokkurri eftir væntingu hæði austan hafs og vestan, því að forsetinn gefur oft mikilsverðar stjórnmálayfirlýsingar, þeg ar fréttamenn hafa safn- azt um hann í hátíðasaln- um. Hér á eftir fer grein um stefnu og markmið de Gaulles, sem birtist fyrir skömmu í bandaríska tíma ritinu „U. S. News & World Report“. Er hún byggð á upplýsingum hátt- settra embættismanna og náinna samstarfsmanna for setans og annarra heim- iLda í París, London, Bonn og Washington. Bandaríkjamenn og banda- menn þeirra í Evrópu hata enn einu sinni séð sér nauð- synlegt að taka til endurskoð- unar afstöðu sína til de Gaulles, Frakklandsforseta, og stefnu hans, fyrst og fremst vegna þess hve mikil áhrif forsetinn hefur haft á gang mála að undanförnu. Hann hefur sett Efnahagsbandalagi Evrópu stólinn fyrir dyrnar, gert að engu vonir manna um „Bandaríki Evrópu“, grafið undan Atlantshafsbandalag- inu (NATO), reynt að útiloka Breta frá Evrópu, stöðvað framgang áætlana Banda- ríkjamanna um sameiginleg- an kjarnorkuher NATO-ríkj- anna, gagnrýnt þá fyrir að- gerðir þeirra í Suður-Víet- nam og Dóminíkanska lýðveld inu og tekið upp nánari tengsl við Sovétríkin en ýmsa hina vestrænu bandamenn sína. Þeir verða æ fleiri, sem virðist de Gaulle fremur koma fram eins og skipstjóri á strönduðu skipi, en leiðtogi vinveitts ríkis, sem unnt er að treysta. En að hverju stefnir de Gaulle? Það er ekki erfitt að gera sér ljóst markmið hans í Evrópu. Hann vill fyrst og fremst afmá öll bandarísk á- hrif. Með þessu er ekki átt við að hann vilji svipta Ev- Það, sem De Gaulle getur ekki gleymt DE GAULLE, Frakklands- forseti, virðist aldrei hafa fyrirgefið Bretum og Bandaríkjamönnum, að þeir hleyptu honum ekki fram í fremstu röð við frelsun Frakklands 1944— 45. — „Vandamálið de Gaulle" er efni margra orðsendinga hershöfðingi væri Sir Win- ston Churchill oft „erfið- ur“ og „leiður“. Roosevelt var ekki sam- þykkur áætlunum de Gaulles um stjórn Frakk- lands eftir innrásina og hann vildi, að franska ný- lendan Indókína yrði sett undir alþjóðlega stjórn, er ' A' Charles de Gaulle, hershöfðingi, á styrjaldarráðstefnu með Roosevelt, forseta og Sir Winston Churchill. og bréfa í leyniskjölum frá styrjaldarárunum, sem ut- anríkisráðuneyti Banda- ríkjanna birti opinberlega fyrir skömmu. Franklin D. Roosevelt, þáverandi Bandaríkjaforseti, kallar de Gaulle „prímadonnuna“ í einni orðsendingunni, og það var almenn skoðun í Bretlandi, að de Gaulle heimsstyrjöidinni lyki. Eitt af þeim atriðum, sem vöktu reiði de Gaulles var áætlun, sem Banda- ríkjamenn og Bretar gerðu án þess að ráðgast við hann, um gengið, sem nota skyldi i Frakklandi eftir að herir bandamanna hefðu gengið þar á land. Bandaríkjamenn og Bret ar voru ekki sammála um hvað gerast myndi í Frakk landi eftir innrásina, en í ljós kom að Bretar höfðu á réttu að standa. Banda- ríkjamenn töldu, að fyrst eftir frelsun Frakklands myndi ríkja þar glundroði og ringulreið og jafnvel koma til blóðsúthellinga. Bretar voru hins vegar bjartsýnir og sannfærðir um að Frakkar myndu fylkja sér um de Gaulle hershöfðingja og útlaga- stjórn hans sem einn mað- ur og taka fyrirmælum hennar án spurninga. Og það var einmitt þetta, sem gerðist. Tillögu sína um, að Frökkum yrði ekki afhent Indókína aftur, bar Roose- velt fram í orðsendingu til Cordell Hull, utanríkisráð- herra, 1944. Þar skrifar Bandaríkjaforseti m. a.: „Frakkar hafa ráðið þessu 30 milljón íbúa ríki í nær 100 ár og þjóðin er verr á vegi stödd en áður........ Augljóst er, að Frakkar hafa mergsogið landið þessi 100 ár og þjóðin á betra skilið.“ Sem kunnugt er, var Indókína skipt í Kambó- díu, Laos, N.- og S.-Víet- nam, eftir ósigur Frakka. rópu þeirri vernd, sem kjarn orkuvopn Bandaríkjanna veita eða útiloka algerlega banda- ríska fjárfestingu. De Gaulle er nægilega raunsær til að gera sér grein fyrir því að Evrópa þarfnast herverndar Bandaríkjanna og er hagur að bandarísku fjármagni. í þeirri Evrópu, sem de Gauíle dreymir um, eru Bandaríkjamenn til staðar, en algerlega áhrifalausir. Allt bandarískt er undir evrópsku eftirliti og yfirstjórn og Ev- rópa er de Gaulle sjálfur. — Einn af nánustu ráðgjöfum de Gaulles, sem starfað hefur fyrir hann um langt skeið, var að því spurður fyrir skömmu, hvort forsetinn myndi vilja, að bandarískur her í Evrópu væri undir franskri yfirstjórn. Hann svaraði samstundis: „Auðvit- að! Það væri ákjósanlegt fyr- irkomulag." Nánir samstarfsmenn de Gaulles segja, að bak við árás ir hans á stefnu Bandaríkja- manna búi sannfæring um, Erhard, kanzlari Vestur-Þýzkalands, og de Gaulle. að áhrif þeirra séu að dvina um allan heim. Bandaríkin hafi ekki lengur þá yfirburði, sem þau höfðu eftir styrjöld- ina, ný öfl séu komin til sög- unnar og það breyti valdajafn væginu í heiminum. Þessi öfl séu Evrópa, Kina, Asía og Afríka. De Gaulle segir, að friður haldist í heiminum vegna þess að valdajafnvægið sé sífellt að breytast. Bandaríkin stefna að því að koma á varanlegum friði undir lagalegu eftirliti, en Frakklandsforseti lítur á alþjóðamálin eins og frum- skóg. Honum finnst kominn tími til að Bandaríkjamenn verði fengnir til þess, með góðu eða illu, að hætta að leika hlutverk alheimslög- reglu og kalli menn sína heim. Einn franskur stjórnmála- maður hefur sagt, að styrkur de Gaulles felist í þvi að hann búist við hinu versta af öll- um nema Frökkum, en hann bætir við, að þetta feli einn- ig í sér hættu. Þjóðernis- ■ stefna de Gaulles sé róttæk- ari en þjóðernisstefna Þjóð- verja. Með framkomu sinni hafi forsetinn drepið niður samstarfsandann í Evrópu og vakið upp gömlu togstreituna milli þjóðanna. Það er ekki margt, sem bendir til þess að nágrann- ar de Gaulles hafi hrifizt af draumi hans um að Evrópa verði þriðja stórveldið undir forystu Frakklandsforseta. I V.-Þýzkalandi hafa vin- sældir de Gaulles farið sí- minnkandi að undanförnu. í könnun, sem gerð var þar fyr ir stuttu á því hvaða erlend- um stjórnmálaleiðtoga þjóðin treysti bezt, hlaut Johnson Bandaríkjaforseti 46%, en de Gaulle aðeins 4%. Stjórn- málamenn í Bonn, sem sungu de Gaulle lof og prís eru nú annað hvort þögulir eða lof- söngur þeirra hefur snúizt upp í gagnrýni, og möguleikarnir á að de Gaulle takist að mynda traust bandalag við V.-Þjóð- verja, samkvæmt samstarfs- sáttmálanum 1963, fara sí- fellt minnkandi. Þeir embættismenn Breta, sem hvað mest hafa fjallað um málefni Evrópu, hafa kom izt að þeirri niðurstöðu, að de Gaulle geti ekki tekizt að skipuleggja samstarf ríkja í álfunni undir forystu Frakk- lands. Sé það fyrst og fremst vegna þess að V.-Evrópuþjóð- ■ irnar muni seint fást til þess að skipta á varnarbandalagi við Bandaríkin með öll þeirra kjarnorkuvopn að bakhjarli og evrópsku bandalagi, sem byggðist á hinum litla kjarn- orkuherafla de Gaulles. f hvert sinn, sem banda- mennirnir hafa orðið að taka ákvörðun um þetta efni, hafa þeir valið bandalag við Banda ríkin. De Gaulle er sannfærð- ur um að ástæðan til þessa sé dvöl öflugs bandarísks herliðs í Evrópu. Segja brezkir em- bættismenn, að vegna þessar- ar sannfæringar sinnar vilji Frakklandsforseti alla banda- ríska hermenn burt frá Ev- rópu. Benda þeir á, að hann hafi þegar stigið skref, er miði að upplausn Atlantshafs- bandalagsins og vilji evrópskt bandalag í staðinn. En sú skoðun Bretanna, að de Gaulle vilji afsala sér vernd banda- rískra kjarnorkuvopna er ekki rétt. Hann er sannfærður um, að kjarnorkujafnvægi milli Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna muni forða Evrópu frá styrjöld og telur fullvíst, að væri rússnesk innrás' í V.- Evrópu yfirvofandi, yrði henni bægt frá með bandarískum kjarnorkuvopnum, þótt At lantshafsbandalagið hefði ver ið leyst upp og Bandaríkja- menn reknir heim. Ein frönsk heimild skýrir frá þessu á eftirfarandi hátt: „De Gaulle er þeirrar trúar, að Evrópumönnum muni ekki takast að efla varnir sínar nægilega, meðan bandarískir hermenn og bandarísk kjarn- orkuvopn séu í álfunni. En hann vill engu að síður, að Evrópa njóti verndar banda- rískra kjarnorkuvopna með- an hún efli eigin varnir, á sama hátt og Bandaríkin nutu fyrr á tímum verndar brezka flotans.“ Brezkir embættismenn benda á, að flestar gerðir de Gaulles miði að því að auka áhrif Frakka út á við og efla virðingu þeirra á kostnað Bandaríkjamanna. Nefna þeir sem dæmi viðurkenningu hans á Kínverska Alþýðulýð- veldinu, tillögurnar um að SA.-Asía verði hlutlaust svæði og gagnrýnina á stefnu Banda ríkjamanna þar og í Dómin- íkanska lýðveldinu, og segja, að með þessu vilji Frakklands forseti gera lýðum ljóst, að Frakkar séu óháðir Banda- ríkjamönnum. Að undanförnu hefur de Gaulle unnið að því að efla tengsl Frakklands og komm- únistaríkjanna í A.-Evrópu bæði á / sviði viðskipta og menningarsamskipta og í ýms Framhald á bls. 17 De GauILe á fundi með fréttamönnum í febrúar s.l.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.