Morgunblaðið - 22.01.1966, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 22.01.1966, Blaðsíða 27
' Lanrrar?fa£ur 22. janSar 1968 MORGUNBLAÐIÐ 27 Rusk svartsýnn varðandi Vietnam Leiðum |)ó haldið opnum til samninga Waslhington, 21. jan. — NTB DEAN Rusk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt hlaðamanna fund í dag, og var útvarpað og Bjónvarpað frá fundinum. Utan- ríkisráðherrann hjó bandarísku jjjóðina undir að til nýrra og harðari átaka kynni að draga í Vietnam, þar eð svo liti nú út sem friðarsókn Johnsons forseta myndi lítinn eða engan árangur bera. Rusk málaði ástandið dökkum litum. Hann sagði að miklar til raunir í þá átt að koma á friði hefðu ekkí leitt til jákvæðrar afstöðu Hanoi-stjórnar á nokk- urn hátt. Hann varaði og við því, að allt benti til þess að Viet- Cong kommúnistar myndu auka mjög hernaðaraðgerðir sínar er yfirstandandi nýársvopnahlé í S- Vietnam væri á enda. Rusk sagði ekki berum um orðuim, að friðarsókn Joíhn- sons hefði farið út um þúfur, en Ihinsvegar gerði hann ljóst að handarísiku stjórninni hefur ekki tekizit að telja Hanoi á að setj- ast að samningaborðinu til þess að reyna að finna lausn á vanda- máilunum. Fréttamenn telja því, að Rudk Ihafi með fundi þessum viljað ibúa bandarísku þjóðina undir ný Ihernaðarátök, samtímis því, sem dyr eru iátnar standa opnar fyr- jr samningum. „Við vonum að við fáum að heyra annað frá Hanoi en hæðn isyrði og ásakanir um að tal okk ar um frið séu svik og prettir. Ég verð því miður að tilkynna yður, að við höfum hvorki feng- ið jákvætt né uppörvandi svar við friðarumleitunum okkar“, Sagði Rusk. Rusk var spurður um hæ'ttuna á því, að styrjöldin í Vietnam breiddist til annarra landa SA- Asíu. Hann svaraði: „Þar er alltaf haetta á ferðum er árásar- aðili hefst handa um að reyna að þvinga vilja sinn fram, og Ihinn aðiiinn er staðráðinn í að uppfylla skyldur sínar.“ Rus'k var að því spurður, hvort — ítahustjórn Framh. af bls. 1 málið. Hinsvegar kröfðust komm únistar — næst stærsti flökkur landsins — þess þegar, að stjórn in segði af sér. Er tillaga þeirra um þetta var felld, gengu þing- xnenn kommúnista út úr þing- ealnum. Samstarfsflokkar kristilegra demókrata í stjórninni tilkynntu Ihinsvegar á ríkisráðsfundinum í dag, án þess að það stæði í neinu sambandi við tillögu kommún- ista, að þeir óskuðu ekki að Ihalda stjórnarstarfinu áfram. Er fund'urinn hafði staðið í 10 mín- ú'tur, var ákvörðun tekin um að Btjórnin bæðist lausnar. Leiðtogi sósíalista í efri deild /þingsins, Giusto Tölioy ,hefur sagt, að yfirvega beri, að efna til nýrra þingkosninga í landinu. Þetta er í annað sinn, sem svo nefnd vinstri samsteypustjórn með Aldo Moro í forsæti, biðst lausnar vegna ágreinings um kennslumál. Fyrirfram var vitað, að hægrisinnaðir aðilar í röðum Ikristilegra demókrata höfðu áihyggjur af frumvarpinu um rík isrekna smábarnaskóla, sökum Iþess að slíkt nýmæli mundi svipta kaþólsika menn ábyrgð- inni á fyrstu fræðslu barnanna. Kennslumál eru allajafna við- kvæim miái í stjórnmálaheimi ftaliu. Bandaríkin hefðu hugleibt þann möguleika, að þau gaetu lent í styrjöld við Kína. Hann svaraði: „Okkur er fulkomiega Ijóst að Kína er hinu megin landamær- anna. Við vitum einnig gjörla um hernaðarmátt Kína.“ Robert McNamara, varnarmála ráðlherra Bandaríkjanna, átti einnig fund með blaðamönnum í dag. Hann sagði þar, að ekkert benti til þess að hlé það, sem Bandaríkin hafa gert á loftárás- um á N-Vietnam, hafi orðið til þess að auka á manna- og her- gagnasendingar frá N-Vietnam suður yfir landamærin. Hins veg ar bætti McNamara því við, að slíkir flutningar hefðu þrefald- ast sl'. sex mánuði. McNamara sagði, að kommún istar no'tuðu nú hléið til þess að gera við vegi, brýr og símalínur, sem eyðilagðar hefðu verið eða laskaðar. — Enn ókunnugt Framhald af bls. 28 vélar á sveimi, en ennfremur leitaði björgunarsveitin í Vík í Mýrdal að hinni týndu flugvél frá Múlakvísl að Sandfelli á Mýr dalssandi. f>á fóru og bændur úr Borgarfirði upp að Hreðavatni og leituðu þaðan frá vestri til aust- urs. • Ueitin í dag. Arnór Hjálmarsson, yfir- flugumferðarstjóri, tjáði frétta- manni Mbl. í gærkvöldi, að í dag yrði aðaláherzla lögð á að leita á Norðurlandi — og þá nær ein- göngu úr lofti. Myndi það svæði afmarkast af miðjum Skjálfanda til austurs en af miðjum Húna- flóa til vesturs. Þá myndu flug- vélar leita aftur á flugleiðinni Egilsstaðir—Akureyri og enn- fremur myndu þær allar leita sameiginlega á leiðinni frá Reykjavík og inn á aðalleitar- svæðið. • 14 flugvélar leita. Að sögn Arnórs. munu í dag þrjár flugvélar leita á svæð inu fyrir botni Eyjafjarðar og austanvert við hann, en um sex flugvélar munu leita í dag á svæðinu milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar, sem er mjög erfitt leitarsvæði. Þá mun ein Nep- túnusvél leita á svæðinu milli Skagafjarðar og Húnaflóa, en að sögn Arnórs munu alls 14 flugvélar leita í dag. Arnór kvað ástæðuna fyrir því, að mest áherzla vaeri lögð á Norðurlandið í dag, vera þá að þar um lsegi flugleið, sem til greina gaeti komið, þ.e.a.s. Egils- staðir, Akureyri, Langamýri og loks Reykjavík. Arnór sagði að lokum, að enda þótt í dag yrði nær eingöngu leitað úr lofti, væru allar björgunarsveitir á landi viðbúnar, ef aðstoðar þeirra þyrfti við. Leiðrétting ÞAU mistök urðu í blaðinu í gær, að undir mynd af bifreiða- árekstri var sagt að leigubifreið hafi ekið á kyrrstæðan bíl. Er hér umsnúið staðreyndum, því það var sá bíll, sem á leigu- bifreiðina ók með þeim afleið- ingum, að hún lenti á kjallara- glugga hússins Eskihlíðar 22 hér í borg. Eru hlutaðeigendur beðn- ir velvirðingar á þessum slæmu mistökum. Uppfinningamaðurinn, söluumboðsmaounnn, og iiokkrir útgerðarmenn við Sigmunds-huna- arflokkunarvélina. T.v. Ólafur Jónsson útgerðarmaður frá Sandgerði, sonur hans Gunnar, Sig- mund Jóhannsson, Ágúst Flygenring frá íshúsi Hafnarfjarðar hf. og Árni Ólafsson. Mý íslenzk uppfinning: „Sigmunds-humarflokkunarvér í GÆR var blaðamönnum boð ið að skoða nýja humarflokkunar vél, sem hinn kunni teiknari, Sigmund J. Jóhannsson frá Vest mannaeyjum, hefur fundið upp og gert teikningar að. Söluum- boð fyrir vélina hefur fyrir- tækið „íslenzkar sjávarafurðir". Flokkunarvél þessi er ákaf- lega einföld í sniðum, enda kveðst Sigmund hafa fengið hug myndina að henni, er hann var að velta fyrir sér einfaldari gerð sildarflokkunarvéla, Vélin þarf um 1.5 fermetra gólfrúm, og öll vinnslan er hljóðlaus. Dag legt viðhald við vélina er frem- ur lítið og eru aðeins átta smur- staðir á lienni. Þá eru rafmótor- ar og rofar sérstaklega vatns- varðir. Grind vélarinnar er úr galvainseruðum „prófílum", klædd ryðfríum stálplötum. Vél in verður framleidd með skúffu- bandi, sem tvær stúlkur komast að til þess að mata vélina. Að sögn Árna Ólafssonar, for- ráðamanns „Islenzkar sjávaraf- urðir“, eru afköst vélarinnar um 2-2J4 kg. (80-90 stk.) á minútu, er ein stúlka vinur við vélina, eða um 11-1300 kg. á tíu t. vinnu degi. Tvær stúlkur anna því tvöföldu magni eða 22-2600 kg. á tíu tíma vinnudegi. Árni sagði ennfremur, að mjög auðveld- lega væri hægt að stilla milli hvaða stærðaflokka, sem væri. Áður hefði þetta allt verið unnið þannig, að hver humarhali hefði verið settur á vigt, og flokkað- ur samkvæmt því. Mætti því sjá af þessu, hve afköstin ykust stórlega með tilkomu þessarar flokkunarvélar, auk þess sem nákvæmnin og öryggið hvað snerti stærðarflokkunina væn miklu meiri. Sagði Árni að lok- um, að hann teldi, að þessi Sig- munds - humarflokkunarvél ætti eftir að gerbreyta humar- framleiðslunni í heild. Sigmund skýrði fréttamanni Mbl. frá því, að þessi flokkunar vél hefði verið i undirbúningi hjá honum um þriggja mánaða skeið, en hugmyndina hefði hann fengið, eins og áður segir, er hann var að velta fyrir sér einfaldari gerð síldarflokkunar- véla. Hann kvað stærðarflokk- unina fara eingöngu eftir þykkt humarshalans, en þykktin gæfi svo rétta þyngd. Aðspurður hvort hann væri með nokkrar aðrar nýjungar í bígerð, svar- aði hann því til, að hann væri með á teikniborðinu og í hug- anum vél fyrir flatfisksflokkun. — Ironsi Framhald af bls. 1. Ek'ki er enn ljóst, hvaða öfl það voru innan hersins, sem gerðu hina misheppnuðu bylt- ingu um sl. helgi. Talið er þó, að menmrnir, sem fyrir bylting- artilrauninni stóðu, Ihafi átt þrennt sameiginlegt: 1. Flestir voru þeir frá Austur Nígeríu. 2. Þeir óskuðu þess að upp- ræta það, sem þeir taldu vera spillingu 'og stöðnun í nígerísku stjórnmálalífi. 3. Einkum og sérstaklega vildu þeir höggva á þau bönd, -sem tengdu furstann af Sokoto við Akinola, höfðingja. Hið nána samibai.d þessara tveggja stjórn málamanna virðist hafa verið helzta stoðin í tilraunum Norður Nígeríu, sem er múhameðstrúar, til að koma í veg fyrir að stjórn málasamsteypan í suðri (UPGA) kæmist til valda í vestur-héruð- unum. Þetta myndi hafa haft það í för með sér, að endir yrði bundinn á yfirgnæfandi völd No- Nígeríu í ríkjasambandinu. Sjálf uppreisnin var gerð í þrennu lagi, og á sama tíma. í Lagos voru Balewa, forsætisráð- herra og fjármálaráðlherrann, Festus Okotie, teknir og fluttir á brott af fáimennum hóp her- manna. Um sama leyti réðst sveit foringja inn í bústað furst- ans af Sokoto, forsætisráðlherra norðurhéraðanna, og heims- þekkts leiðtoga Múhameðstrúar- manna. Hann og „aðalkona“ hans voru tekin af lífi. í höfuðborg vesturlhéraðanna, Ibadan, hélt þriðji flokkurinn inn á heimilT Akintola, forsætis- ráðherra, og réð hann af dögum. — Rústir Framh. af bls. 1 er nú ófært vegna vetrarríkis. NTB bar fregn þessa undir Helge Ingstad. Hann vildi fátt segja um málið á grundvelli þeirra ónákvæmu upplýsinga um fundinn, sem liggja fyrir á þessu stigi. Ingstad taldi það þó líklegt, að farnar hefðu verið fleiri ferðir til N-Ameríku fyr- ir daga Kólumbusar en þær Vín- landsferðir, sem áttu sér stað um árið 1000. Hann vildi því ekki útiloka þann möguleika að upp- lýsingarnar um hinn nýja fund væru réttar. Ungava-flói liggur við Hud- sonsundið á norðanverðum Labradorskaga, alllangt norðan Nýfundnalands, þar sem Helge Ingstad framkvæmdi hinn at- hyglisverða fornleifauppgröft sinn. Ingstad segir að töluverð- ur skógur sé umhverfis Ungava- flóa og það virðist ekki ósenni- legt að mannabústaðir hafi verið á þessum slóðum, en annars taldi hann líklegra að landnemar hefðu haldið lengra suður á bóg- inn. Prófessor Björn Hougen við Fornmrnjasafn Oslóarháskóla, lét nægja að segja að fregnirnar um hinn nýja fund hefðu komið al- gjörlega á óvart. — Mikiö tjón Framhald af bls. 28 tanga gert aðvart, en það gat lítið aðhafzt, þar sem vatn var af skornum skammti og gadd- hörkufrost, eða eins og það hef- ur verið undanfarna daga, 18-20 stig. Einnig dreif að fjölda manns af næstu bæjum, en við ekkert var ráðið annað en að reyna að bjarga fjósi og hlöðu, sem var sambyggt. Tókst að verja þau hús. Innbú og hús var hvoru- tveggja brunatryggt, en frekar lágt, Bifreiðin var ekki bruna- tryggð, svo sjá má að tjón eig- andanna er mjög tilfinnanlegt. Fólkið hefst við á næstu bæj- um í bili og fer á milli til að annast búpening sinn. S. T. Revían „Kleppur hraðferðílO.sinn Revían KLEPPUR — HRAÐ- FERÐ var sýnd í Sigtúni í gær- kvöldi í 10. sinn. Hefur aðsókn verið ágæt og undirtektir áheyr- enda með afbrigðum góðar. Vegna árshátíða sem framundan eru í húsinu má búast við að sýningar hér í bænum falli nið- ur um sinn, jafnvel fram í febr- úarlok, en strax og húsnæðis- vandamálið leysist hefjast sýn- ingar að nýju með endurbótum og viðaukum, eins og hæfir góðri revíu, því alltaf er eitt- hvað að ske, sem revíusmiðir mega ekki láta fara fram hjá sér. Á þessu tímabili verður rev- ían hinsvegar sýnd nokkrum sinnum í nágrenni bæjarins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.