Morgunblaðið - 09.02.1966, Side 7
Miðvikudagur 9. iebrúar 198®
MORGUNBLAÐIÐ
7
NÚ er komið logn í Reykja-
vík, en undanfarið íhefur rok-
ið verið Okkar daglega brauð,
sem og annars staðar á land-
inu. í veðurfréttum útvarps-
ins kioma fyrir orðin, hvass-
viðri, stormur, rok, ofsaveð-
ur, fárviðri, en hætt er við
að fólk viti ekki almennt um
það, við hvað Veðurstofan
miðar, eða hvað hvert og eitt
þýðir í vindlhraða, og hvert
sé öðru ofsalegra. Við birtum
hér því vindhraðatöfluna
ásamt nöfnum þeim sem við
eiga, fólki til fróðleiks, svo
að það geti í framtíðinni bet-
ur áttað sig á því, tovað er að
gerast í rokinu.
VINDSTIG OG VINDHRAÐI
Vindhraði mældur í hnút-
um = sjómíla á klukkustund.
Vindstig Hnútar.
0 Hogn ............... 0-1
1 Andvari ............ 1-3
2 Kul ................ 4-6
3 Gola ................ 7-10
4 Kaldi ............. 11-16
5 Blástur ............ 17-21
6 Stinningskaldi ,,,, 22-27
7 Alilhvasst ......... 28-33
8 Hvassviðri ..........34-40
9 Stormur ............ 41-47
10 Rok .................48-55
11 Ofsaveður ...........56-63
12 Hárviðri ......... 64-71
13 72-8Ó
14 81-89
19 90-99
16 .................100-108
17 109-118
rok, rok,
ekki!“
Þao
er
ræ
eg
|
Stork-
urinn
sagði
að sól hefði skinið 1 heiði á
heiðskírum himni, þegar hann
stakk hausnum út í gættina að
bessari „vitskertu veröld“ eins og
þeir í Tónabíó nefna móður
jörð, eða þó sennilegar þá, sem
hana byggja. „Og ætli ’þeir segi
það ekki satt, bleddaðir“, sagði
kerlingin forðum daga.
Nú er svo margt á seiði ofan-
jarðar og neðan og meira að
segja milli himins og jarðar, að
fólk hefur ekki við að átta sig,
hvað þá melta öll þessi undur
og stórmerki.
Og bráðlega fáum við svo að
heyra og sjá eldhúsumræður í
sjónvarpinu, og það hefði nú
þótt saga til næsta bæjar hér
áður, og þó er ekki mannsaldur
liðinn síðan hér var ekki einu
sinni útvarp.
Hjá einu ljósmyndastudíóinu
hitti ég mann, sem skellihló út
að eyrum.
Storkurinn: Ja, nú þykir mér
týra á tíkarskarinu. Ertu eitt-
hvað í ætt við kátu karlana á
kútter Haraldi?
Maðurinn, sem skellihló: Ó,
nei, enda geta nú fleiri hlegið en
þessir kappar á Akranesi, sem
eru að deyja úr viðreisn, eftir
því, sem Þjóðviljinn segir, en
Það hefur nú aldrei verið talið
áreiðanlegt fréttablað, þegar um
pólitík er að ræða. En hitt hlæg-
ir mig, hvað Rússar urðu vond-
ir, þegar Bretar stálu frá þeim
tunglmyndunum. Afrek Rússa
var mikið, og það mesta hingað
til í geimvísindum, og þeim
ber heiður fyrir, en ekki fyrir
það að þola ekki, að gagnmerk-
ir vísindamenn í Bretlandi nái
af þessu góðum myndum, sem
einnig er afrek út af fyrir sig?
Skyldu Rússar annars nokkuð
hafa ætlað að birta myndirnar?
Ætli þeir hafi ekki ætlað sér að
hafa einkaleyfi á þeim?
Storkurinn sagðist enga af-
stöðu taka til málsins, enda virð-
ir hann hlutleysi Ríkisútvarps-
ins, sem stundum er þó ekki
upp á marga fiska, og með það
flaug hann upp á Radióhúsið,
sem um leið er húsnæði fyrir
fiskana í landinu og þeirra mál,
svo að ekki er það slorlegt.
Minningarspjöld
Minningarspjöld Flugbjörgnn-
arsveitarinnar fást á eftirtöldum
stöðum: Sigurði M. Þorsteins-
syni sími 32060. Magnúsi Þórð-
arsyni sími 37407 og bókaverzl-
un Braga Brynjólfssonar.
Kvenfélags Neskirkju fást á
eftirtöldum stöðum: Verzlun
Hjartar Nielsen, Templarasundi
3. Búðin mín, Víðimel 35 og
verzlunin Steinnes, Seltjarnar-
nesi.
Spakmœli dagsins
Heimspekingur, sem samtíðin
klappar ákaft lof í lófa, er
gleymdur fyrr en varir.
— P. M. Möller.
Litlu LISTAMAIMIMALAUIMIIM gefin á garðann
Skólastúlka
vill taka að sér barnagæzlu
aðallega á kvöldin. Upplýs-
ingar í sima 32403.
Svartur „Persian-cape“
tapaðist í leigubíl aðfara-
nótt 22. janúar. Finnandi
vinsamlegast hringi í 19097.
Stúlka
getur fengið vinnu við auðveld skrifstofustörf.
Tilboð auðkennt „Stundvís“ er tilgreini aldur og
menntun sendist Mbl. merkt: „8536“.
Sendisveinn
óskast á afgreiðslu blaðsins. Vinnutími 1—6 e.h.
Glæsileg 4 herb. íbúðarhæð
í VESTURBORGINNL
Til sölu er óvenju glæsileg 4 herb. íbúðarhæð í
nýlegu sambýlishúsi á einum bezta stað í Vestur-
borginni. Tvöfalt gler. Harðviðarhurðir og karm-
ar. Teppalögð. — Glæsilegt útsýni.
Skipa- og fasteignasalan
Þekkt vefnaðarvöruverzlun
í fullum gangi til sölu nú þegar. Upplýsingar á
skrifstofunni (ekki í síma), Laufásveg 2.
Rannveig Þorsteinsdóttir hrl.
Til sölu
Á bifreiðaverkstæði lögreglunnar við Síðumúla
14 er til sýnis og sölu Chevrolet Station bifreið,
árgerð 1955, í mjög góðu standi. Upplýsingar á
staðnum. Tilboð sendist Skúla Sveinssyni, varð-
stjóra, fyrir 15. þ.m.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
7. febrúar 1966.
Tilboð
óskast í Junkers lausstimpla loftþjöppu 130 ten.
feta afköst. Loftþjappan ásamt varahlutum verð-
ur til sýnis í Áhaldahúsi Njarðvíkurhrepps, Ytri
Njarðvík fimmtudaginin 10. febrúar 1966 kL 1
—4. Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora Borg-
artúni 7 fyrir kL 12 laugardaginn 12. þ.m.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Unglingstelpa
óskast til sendiferða.
Vinnutími 9—12 og 1—5 e.h.
^oUlhA<?A
Framreiðslunemar
Viljum ráða framreiðslunema strax í veitinga-
sal 8. hæðar. Uppl. að Hótel Sögu kl. 5—7 í dag.