Morgunblaðið - 05.04.1966, Side 3
Þriðjudagur 5. apríl 1988
MORGUNBLAÐIÐ
3
í
GATA ein í Jerúsalem hefur
(hlotið nafnið fslandsgata eða
„Reöhov Iceland" á þarlendu
má'li. Var hún skírð og opnuð
er forseti ÍSlands var á ferð í
fsrael. Eru þessar myndir
teknar við það tækifaeri. Gata
þessi er í einni af nýjum út-
toorgum Jerúsalem, sem
toyggð er Gyðingum er flutzt v_
íslandsgata í Jerúsalem
hafa til Landsins helga frá
ýmsum stöðum.
Ásgeir Ásgeirsson, forseti
fslands, opnaði götuna þriðju-
daginn 29. marz og gaf henni
nafn Mikill mannfjöldi hafði
safnazt saman á stóru torgi í
hverfinu. Á miðju torginu var
forseti íslands, borgarstjórinn
og sendilherrar erlendra ríkja.
Fjöildi barna veifuðu íslenzka
fánanum og þjóðfánum sín-
um. Hermenn stóðu heiðurs-
vörð, og var rautt teppi lagt
upp að ræðupalli. Eftir að
nokkrar ræður höfðu verið
fluttar, klippti forseti ís-
lands á silkitoorða, sem
strengur hafði verið yfir göt-
una. Og forseti íslands og for-
seti ísraels gengu fyrir niður
götuna, sem hlotið hafði
nafnið íslandsgata, en mann-
fjöldinn fylgdi á eftir.
Á eindálka myndinni sjást
forseti íslands, Teddy Kollek,
borgarstjóri Jerúsalem, með-
an íslenzki þjóðsöngurinn er
leikinn, eftir að götuskiltið
með nafninu fslandsgata hef-
ur verið afhjúpað. j
Á annarri þriggja dálka
myndinni sést er Ásgeir Ás-
geirsson, forseti íslands,
klippir á silkiborðann og opn-
ar íslandsgötuna Teddy Koll-
ek toorgarstjóri aðstoðar hann,
en Zalman Shazar forseti
ísrael og Emil Jónsson utan-
ríkisráðherra íslands horfa á.
Á þriðju myndinni ganga for-
setarnir niður fslandsgötuna
og með þeim borgarstjórinn,
Pardess höfuðratobí og önnur
stórmenni.
w
í; i:\kimii ii
Skugginn
Fylgispekt Framsóknarflokks-
ins við kommúnista er öllum
kunn, og ekkert fréttnæmt við
það. Hitt er sjaldgæft að komm-
únistar ögri og stríði Framsókn-
arforingjunum fyrir þessa fylgi-
spekt, en greinilegt er, að einn
af ritstjórum Þjóðviljans hefur
ekki staðizt mátið lengur, síðast-
liðinn laugardag, þegar . hann
segir:
„Það hefur verið ákaflega
fróðlegt að fylgjast með Fram-
sóknarflokknum í stjórnarand-
stöðunni. Honum hefur naumast
tekizt að marka sérstöðu sina í
nokkru máli, og leiðtogar hans
hafa oft átt í miklum erfiðleik-
um með að fóta sig. Yfir-
leitt hefur raunin orðið sú, að
fyrst hefur Alþýðubandalagið
mótað stefnu sína, og síðan hef-
ur Framsóknarflokkurinn komið
í kjölfarið misjafnlega snemma.
Afstaðan til alúmínsamninganna
hefur verið til marks um þetta
......Leiðtogum Framsóknar-
flokksins er enn ákaflega ósýnt
um að átta sig á málavöxtum.
Þegar aðalforstjóri svissneska
auðhringsins lýsti því yfir á
blaðamannafundi á þriðjudaginn
var, að samningarnir við ríkis-
stjóm íslands væri algjört eins-
dæmi í sögu auðfélagsins að því
er varðar raforkuverð og ákvæð
in um erlent dómsvald, virtust
ritstjórar Tímans ekki gera sér
neina grein fyrir því að þessi
játning væri ákaflega söguleg
og lærdómsrík, heldur birtu yfir-
lætislausa frétt. Það var ekki
fyrr en Þjóðviljinn hafði vakið
mjög rækilega athygli á þessum
staðreyndum, að Tíminn gerði
slíkt hið sama degi síðar. Þjóð-
viljinn birti forustugrein um
málið í fyrradag, Tíminn tók
hana upp með svolítið breyttu
orðalagi í gær Þetta er ekki
sagt leiðtQgum Framsóknar-
flokksins til ávirðingar, hverj-
um skyldi detta í hug að álasa
skugganum sínum?“ Bragð er að
þá barnið finnur.
Misskilnmgur
S-Vietnamstjdrn sendir
herliö til Da Nang
Oeirðir og mótmæVaaðgerðir
í fleiri borgum
Dan Nang, 4. apríl — NTB:
HERSTJÓRINN í Saigon sendi í
dag herflokk manna flugleiðis
til Da Nang til þess að berja
niður andúðaröldu þá gegn S-
Vietnamstjórn og Bandaríkjun-
um, sem orðið hefur tilefni
fjöldafunda og götuóeirða þar í
borginni um helgina. Einnig var
lögreglulið og herlið sent til
fleiri borga norður þar sömu
erinda.
Ekki hefur neitt verið tilkynnt
opinberlega um liðsflutninga
þessa, en fregnir herma að í
kvöld hafi hermönnunum verið
komið norður og þeir settir niður
skammt frá Da Nang.
Fregnir frá Da Nang herma að
hermenn úr liði S-Vietnamstjórn
ar, sem gengið hafi í lið með
uppreisnarmönnum gegn henni,
séu nú að loka veginum er ligg-
ur frá flugvellinum að borginni
sjálfri til þess að freista þess að
hefta för sunnanmanna.
í Hué lýstu leiðtogar stúdenta
sig reiðubúna til þess að berjast
við herlið stjórnarinnar, verði
það sent norður þangað eins og
Ky forsætisráðherra hefur hótað.
Mótmælagöngur voru farnar í
Hué í dag og gerðu göngumenn
hróp að hvorum tveggja, stjórn-
inni í Saigon og Bandaríkjunum.
Héldu göngumenn að ræðis-
mannsskrifstofu Bandaríkjanna
í borginni og afhentu þar orð-
sendingu er ætluð var Johnson
forseta, en þar sagði að vera
Bandaríkjamanna í Vietnam og
það að þeir skertu svo sem raun
bæri vitni rétt Vietnam-manna
til sjálfstjórnar væri orsök alls
þess er á gengi í landinu.
Borgarstjórinn í Da Nang,
Nguyen Can Man, sem Ky for-
sætisráðherra hefur hótað lífláti
fyrir aðild að skipulagningu mót
mælaaðgerða, lýsti því yfir í dag,
að leiðtogar hersins þar í héraði
væru á sínu bandi. „Ky gengur
í berhögg við vilja fólksins",
sagði Can Man á fundi er hann
héit með fréttamönnum í dag,
við mikið varðlið. Hann neitaði
því eindregið, að hann væri
kommúnisti og fullvissaði menn
um að hann myndi berjast fram
í rauðan dauðann.
Rusk áhyggjufullur
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkj anna, sagði í dag að
ástæðan til hins slæma stjórn-
málaástands í S-Vietnam nú,
væri flokkadrættir vegna fyrir-
hugaðra kosninga í landinu, sem
lofað hefur verið að haldnar
skuli. Rusk sagði að mótmælaað
gerðir gegn stjórninni í Da Nang
og Hué hefðu engin bein áhrif á
hernaðaaðgerðir þær, sem beint
væri til höfuðs kommúnistum í
S-Vietnam. Höfðu fréttamenn
þetta eftir utanríkisráðherranum
er þeir lögðu fyrir hann spurn-
ingar að loknum fundi hans með
utanríkismálanefnd þingsins og
var Rusk sagður mjög áhyggju-
fullur vegna hinna alvarlegu ó-
eirða er orðið hefðu í landinu
undanfarið.
1 Saigon réðust vopnaðir lög-
reglumenn tvívegis gegn hópi
stúdenta er höfðu uppi mótmæla-
aðgerðir gegn ríkisstjórninni. Um
það bil 2.000 stúdentanna brut-
us't ótrauðir áfram og létu sig
engu skipta táragas lögreglu-
mannanna, eða gaddavírsgirðing-
ar en héldu sem leið Ía til bú-
staða upplýsingamálaráðherra
landsins og ríkisleiðtoga. Er stúd
entarnir höfðu kveikt í banda-
rískum jeppa er þar stóð kom
lögreglunni liðsstyrkur fallhlífar
hermanna og tókst henni þá að
dreifa stúdentunum.
Við fyrstu umræðu álmálsins
í Neðri deild Alþingis síðastlið-
inn laugardag, ræddi Jóhann
Hafstein, iðnaðarmálaráðherra
margendurteknar fullyrðingar
um, að Norðmenn eignist ál-
bræðslur þar í landi að samn-
ingstíma liðnum. Um þetta sagði
iðnaðarmálaráðherra:
í fjallaibænum Dalat var stúd-
entunum og öðrum skólanemend
um ekið hópum saman af mót-
mælafumdum og í strandibænum
Nha Trang var lýst yfir neyðar-
ástandi. í Hué voru miklar mót-
mælaaðgerðir eins og áður sagði
og létu lögreglumenn þar það
með öllu afskiptalaust þótt menn
færu þar um götur þúsundum
saman að mótmæla stjórninni í
Saigon og stefnu hennar en
stjórnuðu umferðinni áfram sem
ekkert væri.
Fregnir hafa einnig borizt um
mótmælaaðgerðum í bæjunum
Pleiku, Tam Ky og Ban-Methuot.
í Saigon hefur bandaríska sendi-
ráðið xáðlagt starfsliði sínu að
halda sig sem mest innandyra
og svipuð fyrirmæli hafa verið
gefin bandarískum hermönnum í
borginni.
Sunnan Saigon halda land-
gönguliðar flotans áfram hern-
aðaraðgerðum og finnast þar um
slóðir æ fleiri bækistöðvar Viet
Cong skæruliða og vistabúr og
hefur fjöldi skæruliða verið tek-
inn til fanga.
Talsmaður Bandaríkjahers i
Saigon sagði í dag að týnzt hefðu
tvær flugvélar sl. sólarhring,
önnur norðan landamæranna hin
sunnan þeirra.
„Þetta er að mínum dómi al-
gjörlega úr lau.su lofti gripið, og
veit ég ekki hvar menn hafa
fundið slíkan vísdóm. Sviss-
lendingar haft lagt fé í álbræðsl-
ur í Noregi, og þar eru ekki
nokkur ákvæði um það að þeir
skuli eignast bræðsluna að samn
ingstíma liðnum. Eins og ég segi
veit ég ekki hvaðan þessi vís-
dómur er kominn, en það kynni
að vera um misskilning að
ræða, vegna þess, að áður fyrr
a.m.k. var það svo, að erlend
fyrirtæki virkjuðu fossa og nátt-
úruauðlindir Norðmanna, og þá
voru ákvæði í slíkum samning-
um um að slík fyrirtæki skyldu
falla til ríkisins að samningstíma
liðnum. En þetta á auðvitað ekk-
ert skylt við álbræðslu, þar sem
útlendingar eru annaðhvort
meiri eða minnihluta aðilar í
venjulegum norskum hlutafé-
lögum“.
Því hefur oft verið haldið
fram í blöðum og á öðrum vett-
vangi, að Norðmenn hefðu gert
slíka samninga um álbræðslur,
að þeir eignuðust fyrirtækið að
samningstíma loknum. Af orðum
iðnaðarmálaráðherra er ljóst, að
hér er um misskilning að ræða.
Þessi ákvæði hafa átt við um
virkjanir fossa, en ekki ál-
bræðslurnar sjálfar.