Morgunblaðið - 17.04.1966, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.04.1966, Blaðsíða 11
SunnuÆagur 17. apríl 1966 MORGU NBLAÐIÐ II og kannski hægt að gera þau seí- að góðu, en ekki hefur verið hátt á þeim rLsið. Foreldruim mínum þótti þau betri en önn- ur greni sem til boða stóðu — og bjuggu sár þar sæmilegt i bæli, líklega með aðstoð ein- hverra góðra vina sinna, því í Bjarni var vel kynntur í sveit- inni, þó ekki ætti hann gilda sjóði. Sagan segir að hann ha» sótt Bólu-Hjálmar, þegar hann sá að líft mundi verða í kotfan- um. Þá var Hjálmar einnig alls staðar óvelkominn og átti ekk- ert þak yfir hötfuðið, a.m.k. ekki þessa heims — og líklega mest fyrir munninn á sér. Bólu-Hjálmar tók boðinu, enda á flækingi og átti hvergi höfði sínu að að halla. Þeir voru vel kunnugir og sumt líkt um þá, þó Bjarni hatfi verið létt- ári á bárunni. Þau sváfu svo öli þrjú í básum, sem þau gerðu sér í kotfanum, og smið- uðu inn í þá einhverja rúm- bál'ka. Og þarna dó Hjálmar eft [ ir nokkrar vikur. Ég hef ek'ki heyrt að honum hafi þótt sér óvirðing ger með því að bjóða honum vist í beitarhúsunum. Þar undi hann hag sínum all- sæmilega, eins og á stóð. Mjög vel fór á með foreldrum mínum og honum, og þakklátur var hann aðhlynningunni í kofan- um, eins og þú sérð af kvæðinu góða um móður mína. Fjórum árum síðar fæddist ég í þessum sömu beitarhúsum og er sá eini sem þess heiðurs j er aðnjótandi. Atf því sérðu að ' foreldrar mínir hatfa gert sér | grenið að góðu og búið þar Bólu-Hjálmar. — Mynd eftir Þórarin B. Þorláksson. áfram í nokkur ár etftir að Hjálmar lézt. En þegar ég var á öðru ári, dó Bjarni, þó ég viti ek'ki hvort hann leið út af í sömu beitarhúsunum og Bólu-Hjálmar. En hvernig sem því var háttað, var móður minni byggt út atf þessu hokur- koti og vísað á sína sveit vest- ur í Húnavatnssýslu, að föður mínum látnum. Ég held að hún hafi verið ættuð vestan af Skaga, líklega dóttir einhvers Sigurðar Einarssonar, sem þar bjó. Mér sýndist hún roskin kona, en það segir lítið, því í þá daga virtust allir rosknir, sem komnir voru á fullorðins aldur, Hún var heldur há kona, en lotin. Andlitsfallið var gamaliegt og bar vott um, að hún var útþrælkuð af vinnu. Ekki veit ég hvað hún var gömul, þegar hún dó. En þetta var dárlegt líf og engin para- dísarsæla. Hún var ósköp blátt áfram við mig, en ekkert kelu- leg. Hún minntist aldrei á föð- ur minn, og þó hún saknaði Bjarna, hefði hún ekki látið það uppi. Þzið bar ekki sorgina utan á sér, fólkið í gamla daga, bældi hana heldur með sér — og móðir mín var engin undan tekning". xXx Árni bætti því nú við að í þann tíð hefðu flestir ábt betri daga í draumi en vöku. Upp úr því spannst frásögn hans um það, þegar hann dó 1 draumi. „O — það var ósköp jarðneskt“, sagði hann og lauk samtali okkar með því að Beitarhúsatóftirnar. segja mér frá því, þegar hann sá Krist í draumi: „Það var veturinn 1894 til ’95, ég man ekki hvoru megin nýárs. Það var búið að rifa gömlu kirkjuna á Auðkúlu, en sóknarnefndin gat ekki komið sér saman um, hvar nýja kirkj- an skyldi standa. í þessu þrefi stóð allan veturinn, þangað til ekki var hægt að draga lengur að útkljá, hvar hentugast mundi vera að byggja kirkjuna. Og þá dreymdi mig þennan draum: Ég þóttist koma út og sjá! Kristur birtist á himninum og kom niður á túnið rétt hjá bænum. Hann hélt út báðum höndunum til að halda jafnvægi í loftinu og draga úr ferðinni, áður en hann kæmi til jarðar, þótti mér. Ég hljóp inn til séra Stefiáns og sagði honum að kominn væri góður gestur: Kristur er kominn í heimsókn, sagði ég hróðugur. Prestur gekk fram og fagnaði Kristi, leiddi hann inn í stotfu í gegnum göngin, síðan var honum boðið að setjast við borðið, og hústfreyja spurði að gömlum og góðum sið: „Má ekki bjóða þér kafifi og kökur?“ Jú, Kristur hafði ekkert á móti því. Og þegar maddama Þorbjörg kom fram í eldihús, bað hún mig sækja kökubakkann fyrir sig inn í stofuna, en hann stóð skammt þar frá sem Kristur sat og spjallaði við prestinn. En ég hikaði þegar kom að hurðinni, því mér fannst að slíkur peyi gæti ekki komið fyrir auglit Drottins. Og með- an ég stóð þarna vandræðaleg- ur og nagaði neglurnar, vissi ég ekki fyrr til en Kristur opn- ar hurðina og kemur fram, klappar á kollinn á mér og seg- ir: „Þér er óhætt að reka er- indið, Árni minn“. Þá fiékk ég hugrekki til að sækja bakkann. Þar með var draumurinn bú- inn og ég minntist ekki á hann við nokkum mann, hélt að þá yrði hlegið að mér. En næsta vor ákvað sóknarnetfndin að kirkjan skyldi standa nákvæm- lega á þeim stað, þar sem Krist- ur kom niður. Þá vissi ég að ég hafði hitt Krist sjálfan í draumnum góða.“ Árni er í engum vatfa um að þar hatfi verið á ferð sami frels- arinn og Bólu-Hjálmar leitaði til í neyð sinni, þá er hann orti það ljóð, sem fyrst benti til að 'hann mundi skipa bekk meiriháttar skálda íslenz'kra: í þínu nafni, ó Jesú, ég ræ á tímans drötfn, gef, að mín dafni til þín tiú, tryggð þín er söm og jöfn, f jandmanna safni frá mér snú fyrst þeirra veiztu nötfn, lífs ferju stafni leiðbein þú ioksins í sigurhöfn. Sá sem ávarpaður er, fer ekki í manngreinarálit. Skáldið sem átti fólgna bæði ógæfu sína og andagift undir sömu tungurótum, og fátæki pilturinn umkomulausi á Auð- kúlu — þeir voru hans menn. Þeir áttu allir eitt sameigin- legt: athvartf tfjárhúss á örlaga- stund. Og rétt er það sem Hjálmar kvað, er hann var á leið í beit- arhúsin, forðum daga: Finnst mér orðið fremur þungt um ferðastjáið Alltatf blaktir ýlustráið. Ekki getur Hjálmar dáið. M. Bústaða og smáíbúðahverfi FJÖLBREYTT ÚRVAL AF I NDIRFATNAÐI — ARTIMES OG KORAL: UNDIRKJÓLAR SKJÖRT NÁTTKJÓLAR NÁTTFÖT HUDSON: SOKKABUXUR — TÍZKULITIR — KANTER’S: SLANKBELTI TEYGJUBELTI BR J ÓSTAHALD AR AR síðir og stuttir BUXNABELTI SPARIÐ SPORIN OG VERZLIÐ í Verzl. Tftf Asgarði 24 Sími 36161 Framtí ðaratvin na Lítið iðnfyrirtæki til sölu. Jafnframt gæti samist um trygga atvinnu, því meðfylgjandi ásamt leigu á húsnæði. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 20. þ.m. merkt: „Saumastofa — 9099“. Bifreiðaeigendur á Suðurnesjum Bifreiðaveikstæði okkar að Vesturgötu 12, Keflavík, tekur að sér ljósastillingar á bifreiðum. Verkstæðið verður fyrst um sinn opið, sem hér segir: Mánudaga til fimmtudaga kl. 7,30—12 og kl. 1—7 e.h. Föstudaga kl. 7,30 til 12 og kl. 1—3 e.h. Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur Sími á verkstæði: 1782. Afgreiðslumaður. óskast i byggingavöruverzlun strax. Tilboð með upplýsingum um aldur og fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir miðvikudagskvöld, merkt: „Afgreiðslu- maður — 9112“. TILKYIMIMIIMG frá félagsmálaráðuneytinu um sveitarstjórnarkosningar. í samræmi við ákvæði 17. gr. sveitarstjórn- arlaga nr. 58 frá 1961 skulu almennar sveitarstjórnarkosningar í kaupstöðum, og hreppum þar sem fullir % hlutar íbú- anna eru búsettir í kauptúni, fara fram sunnudaginn 22. maí nk. Framboðsfrestur rennur út á miðnætti miðvikudaginn 20. apríl. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar má hefj ast sunnudaginn 24. apríl. Kærur út af kjörskrá skulu hafa borizt hlutaðeigandi sveitarstjórn fyrir 1. maí. Félagsmálaráðuneytið, 15. apríl 1966. KEXIS UVFFENGA MEÐ SMJÖRI OSTI EÐA MARMELAÐI OG ÖÐRU ÁVAXTAMAUKI FÆST í FLESTÖLLUM MATVÖRUVERZLUNUM LANDSINS JACOB’S CREAM CRACKERS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.