Morgunblaðið - 30.04.1966, Page 8
8
MORGU N BLAÐIÐ
Laugardagur 30. aprll 1966^
Gagnrýni á Þorlákshafnar
frumvarpið
Endurskoðun hafnarlaga hraðað
í FYRRAKVÖLD mælti Eggert
G. Þorsteinsson sjávarútvegs-
málaráðherra fvrir stjórnarfrum-
varpinu um
landshöfn í
Þorlákshöfn í
neðri deild Al-
þingis. Frum-
varp þetta hef
ur holtið af-
greiðslu efri
deildar. Rakti
ráðherra í ræðu
sinni efni frum
varpsins og rök þess að gera
landshöfn í Þorlákshöfn.
Sigfús J. Johnsen kvaðst vilja
mótmæla því sem rökum fyrir
landshöfn í Þorlákshöfn að úr
hafnarþörfinni við Suðurland
yrði ekki bætt með því að treysta
á Vestmannaeyjahöfn. Allir
vissu það, að nú væri t.d. á ann-
að hundrað bátar víðs vegar að
af landinu er fengju fullkomna
þjónustu þar.
Sigurður Bjarnason vitnaði i
þingsályktunartillögu frá 1958
sem fjallaði
um það að Al-
þingi ályktaði
að fela ríkis-
stjórninni að
láta í samráði
við vitamála-
stjóra gera 10
ára áætlun um
nauðsynleg-
ustu hafnar-
framkvæmdir á landinu og væri
fyrst og fremst við það miðað
að framkvæmdirnar gætu stuðl-
að að öruggri og aukinni út-
flutningsframleiðslu. Einnig
yrði endurskoðuð gildandi laga-
ákvæði um skiptingu kostnaðar
við hafnargerðir milli ríkis og
sveitarfélaga, svo og ákvæðin
um landshafnir og önnur þau
atriði laga um hafnargerðír sem
ástæða þætti til að breyta með
hliðsjón af fenginni reynslu og
til samræmis við aðrar niður-
stöður athugunar þessarar. Jafn-
framt yrði endurskoðuð lögin um
hafnarbótasjóð og athugað hvort
ekki væri tiltækilegt að efla
starfsemi hans svo hann gæti
m.a. veitt hagkvæm lán til langs
tirna til nýrra hafnarfram-
kvæmda.
Sagði Sigurður að þessari end-
urskoðun væri nú fyrir alllöngu
lokið og væri öllum þingmönn-
um það kunnugt, að ríkisstjórn-
inni hefði verið sent frumvarp
sem samið hefði verið á grund-
velli þessarar endurskoðunar.
Ríkisstjórnin hefði hins vegar
ekki séð sér fært að flytja þetta
frumvarp enn. Með frumvarpi
því sem hér lægi fyrir væri hins
vegar lagt til að lög yrðu sett um
þriðju landshöfnina, eða eitt
þeirra atriða sem gert var ráð
fyrir að heildarendurskoðun færi
fram á. Telja mætti að slík ráð-
stöfun orkaði tvímælis af mörg-
am ástæðum, m.a. af því að engri
höfn hefði verið veittur slíkur
stuðningur á öllu Norðurlandi, —
Vesturlandi og Austfjörðum.
Mörg atriði gildandi hafnar-
laga væru fyrir löngu orðin úr-
elt, t.d. ákvæðin um hlutföllin
milli framlags ríkissjóðs og
sveitarfélaga til hafnanna. Nauð
synlegt væri einnig að efla hafn
arbótasjóð verulega ef hann
ætti að geta sinnt hlutverki sínu.
Sagði Sigurður, að nú hefði
komið fram hjá sjávarútvegs-
málaráðherra að ríkisstjórnin
hefði ákveðið að gera nú gang-
skör að því að Ijúka heildar-
endurskoðun hafnarlaganna og
kvaðst hann fagna þeirri yfirlýs-
ingu, en kvaðst gjarnan vilja
heyra meira frá ráðherra þess
efnis, hvað skjótt þessi endur-
skoðun ætti að gerast, eða hvort
leggja ætti fyrir frumvarp á
næsta reglulegu Alþingi.
Eggert G. Þorsteinsson svaraði
því til, að það hefði réynzt ýms-
um erfiðleikum háð, að ná sam-
stöðu um endurskoðun þessa og
þó einkum að útvega fé, en að
því mundi samt stefnt að leggja
fram frumvarp til afgreiðslu á
næsta Alþingi.
—Alþingi
Framhald af bls. 32
Karl Kristjánsson (F) mælti
fyrir áliti fjárhagsnefndar deild-
arinnar. Sagði hann að þegar
lögin um kísil-
gúrverksmiðju
voru sett hefði
verið reiknað
með þátttöku
hollenzka fyrir-
tækisins AIME,
en það félag
hefði ekki átt
lögheimili í
heimalandi sinu.
Undirbúningsfélag hefði verið
stofnað með þátttöku AIME og
íslenzka ríkisins og hefði það
félag, Kísiliðjan h.f., haft veg
og vanda af öllum undirbúningi
við byggingu verksmiðjunnar.
Nú hefði það hins vegar komið
á daginn, að hollenzka fyrirtæk-
ið teldi sig ekki hafa yfir nægi-
legu fjármagni að ráða til þess
að taka þátt í framkvæmdunum
og auk þess hefði legið fyrir að
það gat ekki gert nógu tryggt
að framleiðsluvaran seldist.
Hefði því AIME dregið sig til
baka. Þá hefðu verið hafnar við-
ræður við bandaríska fyrirtæk-
ið Jons-Manville, en það fyrir-
tæki væri mjög stór framleiðandi
og seljandi kísilgúrs. Johns-Man-
ville hefði þegar sýnt málinu
áhuga og hefði hafið hér rann-
sóknir á hráefninu, m.a. mögu-
leika þess að ná vatni úr því.
Væri það mál nú leyst.
14. og 15. þessa mánaðar hefði
svo orðið samkomulag um aðal-
atriði, með þeim fyrirvara að Al-
þingi gæfi umboð sitt. Væri því
frumvarp þetta lagt fram og fæl
ist í því viðbót og breyting frá
lögum 1964.
Karl sagði, að síðan Kísiliðj-
an h.f. hefði verið stofnuð hefði
hún unnið að ýmsum fram-
kvæmdum til þess að prófa hrá-
efnið og einnig hefðu margvis-
leg tæki þegar verið keypt. Þá
hefði einnig mikil verkfræðileg
vinna átt sér stað og búið væri
nú að tryggja kaup á vélum
til verksmiðjunnar. Allt þetta
kallaði á áframhald, ef að gagfai
ætti að koma.
Þá vék framsögumaður að því,
að væntanlega yrði stofnað sölu-
fyrirtæki hérlendis, sem þó væri
að fullu eign útlendinganna.
Hefði það verið ákveðið' ein-
Fjórhagsneínd
mælír með ríkis-
óbyrgð fyrir FÍ
f GÆR var lagt fram á Aiþingi
nefndarálit frá fjárhagsnefnd
efri-deildar um frumvarpið um
að veita ríkisstjóminni heimild
til að ábyrgjast lán fyrir Flug-
félag íslands h.f. til kaupa á
millilandaflugvél. Mælir nefnd-
in með samþykkt frumvarpsins.
Undir nefndarálit skrifa Ólafur
Björnsson, Jón Þorsteinsson,
Karl Kristjánsson, Sveinn Guð-
mundsson, Helgi Bergs, Hjalti
Haraldsson og Þorvaldur Garð-
ar Kristjánsson.
göngu vegna okkar óska, þar
sem Johns-Manville teldi það sér
engan ágóða að hafa fyrirtækið
staðsett hérlendis. Þetta hefði
hins vegar þann hagnað í för
með sér, fyrir íslendinga að um-
boðslaunin yrðu hér skattskyld.
Væri þetta því sem fundið fé.
Lagði framsögumaður áherzlu á
að mál þetta yrði afgreitt á þingi
nú þar sem vel gæti farið svo,
að snurða hlypi á samningaþráð-
inn ef beðið væri til næsta Al-
þingis .Að lokum þakkaði fram-
sögumaður Magnúsi Jónssyni
fjármálaráðherra er var formað
ur samninganefndar við Johns-
Manville og sagði að ráðherra
hefði við samningagerðina sýnt
mikla festu og lipurð.
Hjalti Haraldsson (K) sagði
það varhugavert að veita ríkis-
stjórninni jafn víðtæka heimild
og fælist í frumvarpinu. Þá vék
hann einnig að 7. grein frum-
varpsins sem fjallar um náttúru
vernd og þótti að þar væri ekki
nógu fast að orði kveðið. Að lok-
um sagði hann, að hann væri
ekki andvígur málinu í sjálfu
sér, en ólíkt hefði verið geðfeld-
ara ef hægt hefði verið að vinna
eftir þeim lögum er sett voru
1964.
Helgi Bergs (F) sagði að mál
in horfðu nú allt öðru vísi við
en áður. Frumvarp það sem hér
væri um að ræða fæli í sér víð-
tæka heimild fyrir ríkisstjórn-
ina að emja v ðerlenda aðila
um erlent fyrirtæki er starfaði
hérlendis og um nýja skatt-
heimtuaðferð. — Þkð yrði að
liggja alveg Ijóst fyrir
fælist í heimildar at-
kvæðum frumvarpsins. Eigna-
aðild ríkissjóðs yrði 51% af hluta
bréfum og mætti þá segja að
umráð ríkisins yrðu áfram
tryggð, en hætt væri við að til
kæmu aukin áhrif erlendra að-
ila á tæknilegar framkvæmdir.
Þá væri alltaf ógeðfellt að gera
frávik frá skattareglum, þó svo
virtist að ekki væri óeðlilegt að
fallast á það í þessu tilviki.
Hér væri um nýjan erlendan
aðila að ræða, og að sínu áliti
yrði á það að leggja sama mæli-
kvarða og Framsóknarflokkurinn
hefði áður gert, að ef um rekstur
erlendra aðila væri að ræða yrði
það að vera liður í heildaráætl-
un. Það yrði einnig að liggja
fyrir til hvað langs tíma væri
ætlað að samningurinn stæði og
hvernig ríkisstjórnin hyggðist
beita þeim heimildum er í frum
varpinu fælust og hvort nokkuð
fæli í sér það sem lyti að íslenzk
um lögum.
Jóhamn Hafstein iðnaðarmála-
ráðherra sagði að lögin um kísil
gúrverksmiðju við Mývatn frá
1964 veittu almennan rétt til sam
vinnu við erlend
? « ,v, «. an aðila um
framleiðslu og
sölu kísilgúrs og
takmörkuðust
lögin ekki við
AIME og sam-
vinnu við það.
Ráðherra kvaðst
telja það rétt að
Alþingi yrði
gerð grein fyrir, til hlítar, ef, og
þegar lægju hugsanlegar breyt-
ingar frá því sem áður hefði ver-
Meíríhluti landbúnaðuinefndur
efri-deildar vill fellu minkufrumv.
f GÆR voru lögð fram nefndar-
álit frá landbúnaðarnefnd efri
deildar um frumvarpið um loð-
dýrarækt. Leggur meiri hluti
nefndarinnar til að frumvarpið
verði fellt og rökstyðja álit sitt
með því að frumvarpið sé mjög
ófullkomið, þegar höfð væri í
huga sú áhætta sem fylgdi því,
ef það yrði að lögum. Þá liggi
heldur ekki fyrir nógu ljósar
áætlanir um stofn- og rekstrar-
kostnað minkabúa. Að meiri
hluta álitinu standa Ásgeir
Bjarnason, Páll Þorsteinsson,
Ragnar Jónsson og Hjalti Har-
aldsson.
Að minnihluta álitinu standa
þeir Jón Þorsteinsson og Sig-
urður Ó. Ólafsson. Kemur fram
í áliti þeirra að þeir telji rétt
eftir atvikum að mæla með sam-
þykkt frumvarpsíns, þar sem
villiminkur væri til staðar í land
inu og ýmsir hefðu trú á því,
að ræktun minks í búrum kynni
að verða ábatasamur atvinnu-
vegur.
ið ráðgert við afgreiðslu málsins
í þinginu, að svo miklu leyti sem
aðstöðubreytingar kynnu að leiða
til þess að nauðsyn væri breyt-
inga í löggjöf.
Þá svaraði ráðherra því er
komið hafði fram í ræðu Helga
Bergs. Sagði hann að um gildis-
tímann hefði verið gert ráð fyrir
20 árum og hefði orðið um það
samkomulag milli samningsað-
ila og væri ekki ástæða til að
ætla að það breyttist.
Um það hvort sölufélagið, sem
væri eign erlends fyrirtækis,
lyti í einu og öllu íslenzkri lög-
gjöf, kvaðst ráðherra reiðulbúinn
að gefa þá yfirlýsingu, að það
mundi gera það alveg eins, að
sínu leyti ,eins og álbræðslufyrir
tækið í Straumsvík lyti að einu
og öllu islenzkri löggjöf. Ráð-
herra kvaðst ekki vilja binda
sig neitt við neinar yfirlýsing-
ar um það að ríkisstjórnin í fram
tíðinni kynni ekki að vilja skjóta
ágreiningi í sambandi við Johns-
Manville til erlends gerðardóms
eða ailþjóðlegs gerðardóms. Sem
kunnugt væri lægi fyrir Alþingi
frumv. um staðfestingu á sam-
þykkt Alþjóðabankans um lausn
fjárfestingardeilna, og gerði það
ráð fyrir gerðardómi milli ríkja
og einkafyrirtækja og næði frum
varp þetta samþykki Alþingis
yrði það að sjálfsögðu í sam-
ræmi við íslenzka löggjöf að
semja um meðferð mála samkv.
þeirri löggjöf.
Helgi Bergs (F) sagði að auð
vitað yrði gerðardómsákvæði að
íslenzkum lögum, ef frumvarp
það er aðild íslands og Alþjóða-
bankagerðardómnum yrði að lög
um. Það sem móli skipti í þessu
sambandi væri, hvort frekari á-
kvæði um gerðardóma yrði tekin
upp í samninga við Johns-Man-
ville.
Magnús Jónsson fjármálaráð-
herra, sagði að eitt atriði í fyrir-
huguðum samn-
ingum væri það
að gert yrði ráð
fyrir að deilu-
mál yrðu send
til gerðardóms.
Sá gerðardómur
yrði þá væntan-
lega þannig, að
hvor aðili um
sig tilnefndi í
hann einn mann, en Hæstiréttur
Islands skipaði oddamanninn, ef
samkomulag yrði ekki milli að-
ila um útnefningu hans.
Ólafur Jóhannesson (F) taldi
að ekki hefði komið fram nægi-
lega skýr svör
hjá ráðherran-
um, hvort frek-
ari ákvæði um
gerðardóma ætti
að taka upp í
samningana. Ef
um þann gerðar
dóm er fjármála
ráðherra hefði
talað um, væri
að ræða, væri það ljóst að hann
lyti í einu og öllu íslenzkum lög
um og væri á engan hátt sam-
bærilegur við gerðardómsákvæði
álsamninganna.
Helgi Bergs talaði aftur Og
lagði þá fram tillögu að rök-
studdri dagskrá, er gerði ráð
fyrir að frumvarpinu yrði vísað
frá.
Karl Kristjánsson sagði, að
hann sem þátttakandi í samning
um við Johns-Manville gæti lýst
því yfir að félögin mundu í öllu
lúta íslenzkri löggjöf. Sér dytti
ekki í hug að ríkisstjórnin tæki
upp á því að óska eftir erlendum
gerðardómi eftirá. Frávísunartil-
laga Helga Bergs væri því óþörf
og mundi hann greiða atkvæði
gegn henni.
Gils Guðimmdsson (K) taldi
þetta frumvarp og fyrirhugaða
samninga við Johns-Manville
ekki sambærilega við samning-
ana við AIME. Þá taldi hann að
óeðlileg bjartsýni hefði komið
fram hjá Karli Kristjánssyni
varðandi heimildarákvæði til
handa ríkisstjórninni.
Kom málið þá til atkvæða og
var frávísunartillaga Helga
Bergs fyrst borin undir atkvæði
og felld með 10 atkv. gegn 8.
Við fyrstu grein frumvarpsins
var viðhaft nafnakall og féllu
atkvæði þannig: Já sögðu: Sig-
urður ó. Ólafsson, Auður Auðuns
Ragniar Jónsson, Eggert G. Þor-
steinsson, Pétur Pétursson, Jón
Árnason, Karl Kristjánsson, —
Magnús Jónsson, Ólafur Björns-
son, Sveinn Guðmundsson og Þor
valdur Garðar Kristjánsson.
Nei sögðu: Alfreð Gislason, Ás
geir Bjarnason, Hjalti Haralds-
son, Gils Gruðmundsson, Helgi
Bergs, Bjarni Guðbjörnsson, Ól-
afur Jóhannesson og Páll Þor-
steinsson.
Frumvarpsgreinin var þannig
samþykkt með 11 atkv. gegn 8.
Einn þingdeildarmaður Jón Þor-
steinsson var fjarstaddur.
Loggjöf um fiskveiðar
í landhelgi endurskoðuð
Á FUNDI í neðri deild í gær var
frumvarpið um breytingu á lög-
-je tgpqpuet j jegtaAtistj utn uin
greitt við 3. umræðu og endur-
sent til efri deildar vegna breyt-
inga er gerð var við það í neðri
deild. Er málið kom til 3. um-
ræðu kvaddi sjávarútvegsmála-
ráðherra Eggert G. Þorsteinsson
sér hljóðs og sagði að í sambandi
við þetta frumvarp og fram-
komna þingsályktunartillögu
sama efnis mundi ríkisstjórnin
beita sér fyrir því að löggjöfin
um fiskveiðar í landhelgi yrði
endurskoðuð í heild.